Alþýðublaðið - 08.01.1974, Side 2

Alþýðublaðið - 08.01.1974, Side 2
Þjóðleikhúsið: Leðurblakan Tónlist: J. Strauss Texti: K. Haffner, R. Genée Leikstjóri: E. Bidsted Þýðandi: Jakob Jóh. Smóri Leikmynd og bún.: Lórus Ingólfsson Dansar: Alan Carter Hljómsveitarstjóri: Ragnar Björnsson Þeim ber saman um það, málkunningum minum og eða skyldmennum sem gistu Vinar- borg fyrir heimsstyrjöldina ■ siðari og sdu skugga hennar á veggjum og á teikniborði höfundarins, kortagerðar- mannsins Hitlers, þegar hann var að rissa upp nýja heims- mynd, að mikil breyting hefði orðið á þessari borg gleðinnar, og það til hins verra. En þegar Jóhann Strauss yngri var og hét, rikti gleðin og Vin var borg valsa, vins og ást- ar. Jóhann Strauss átti að verða verkfræðingur, en þegar dreng- ur vill þá veröur, og músikin átti hug hans allan, Qg þegar faðir hans, Jóhann eldri lést, tók sonurinn við tónsprotanum og eitt sinn var hann beðinn gjöra svo vel og semja tónlist við skemmtileik einn þýskan, Fangelsið, er siðar var snúið upp á frönsku og gerður að létt- um söngvaleik með texta Mailhac og Halévy, en tónlistin eftir Offenbach. Um áramótin 1873, var músikin tekin að flæða úr penna Strauss, sem ,,gaf sig að verkinu eins og ástsjúkur maður”. Um textann sáu rithöfundarnir Haffner og Genée. Leðurlakan var svo frumsýnd 5. april 1874, og hlaut fremur kaldar viðtökur i Vin, en hlýlegri i Berlin skömmu siðar, og þá skömmuðust Vinarbúar sin, og eftir það átti hún greiðan að- gang að leikhúsum heimsins. Söguþráðurinn að sjálfsögðu i óperettu stil. heldur blár, persónur i stil. Framhjáhald er yfirvofandi, enda algengt i borg gleðinnar, eiginmaðurinn, góss- eigandi Eisenstein skal i tugt- hús vegna gefins kjafthöggs, úti i garði himir gamall aðdáandi frú Eisenstein, nautheimskur ástsjúkur tenór, glettin stofu- stúlka skartar heimilið, stam- andi verjandi, þá F'alke heimilisvinur, uppnefndur leðurblaka, vegna grikks er Elsenstein gerði honum i fyrra, þegar þeir voru að koma fullir af grimuballi og nú er stund hefndarinnar runnin upp, þess vegna allt þetta umstang; ball hjá prins Orlofský, öllum boðið nema ástsjúka tenórnum, hann situr i svartholinu sem Eisenstein, enda hvað er maöurinn að kássast á annara jússur, og það i slopp eigin- mannsins og kominn inn í svefn- herbergi frúarinnar? Sjálfur fangeisisstjórinn kom og sótti hann, og fór siðan á ballið. Frúin mætir þar með grimu og kallinn hennar þekkir hana ekki, en verður bálskotinn i vaxtarlaginu, sem hann heldur að sé ungverkst eða úr þeirri áttinni. Auðvitað kemst allt upp; afbrýði, reiði, en svo dúna- lognið vinsæla með góða endin- um, þetta er jú óperetta. Ekkert sjálfsmorð, ekkert lik. Söngur og aftur söngur, gleði, Ijós og litir, dans. Glæsileg sýning i dökkum ramma vetrar hér norður á lslandi. Nútima islenskir leikarar hafa, við öröugar aðstæður, lyft islenskri leiklist hátt og i dag er umgjörð listgreinar þeirra mjög viðun- andi, og á eftir aö batna með Borgarleikhúsi. En i framsókn þjóna Þaliu, gleymdust þýðingarmiklir þættir leikhússins: Danslistin og sönglistin. Operur hafa jú verið fluttar hér, með erlendum og innlendum kröftum, svo og óperettur innlendar og erlendar. Ballettinn hefur fengið inni á sviði Þjóðleikhússins — stundum. Það er grátlegt að islenski söngvarinn^sem fórnar tima og fé, sækir menntun sina til þjóða hvar óperan er æva- gömul hefð, kemur svo heim til gamla landsins bak við tunglið, til þess að sýngja við jarðarfar- ir, messur stundum hjá fagur- kerum i prestastétt, eða bara við uppvaskið, sussa kannski i söng köttum til draumheima. Svo þegar mikið liggur við, eru þeir vaktir, burstaðir upp svo þeirséu nú frambærilegir nokk- ur kvöld, stirð og rustuð radd- böndin pensluð, hreyfingar æfð- ar eða kenndar á svipstundu, sem annars tekur árin að þjálfa svo að vöðvar allir hlýði huga, bailettinn skirður upp og nefnd- ur islenski dansflokkurinn, lát- laust nafn og lofar engu, og æf- ingin, sem skapar mestarann, er naumlega skömmtuð, allt er á spani og upp kemst sýningin á réttum tima og enn eitt krafta- verkið gerist: Sýningin er góð. Þegar vorar, og söngfuglar koma til landsins og gera sér hreiður i haga, er kominn timi til að hætta þessum söng og dansi, slútt! og raddböndin hætta að titra, lærvöðvar slakna, áhuginn dofnar, leikar- ar taka völdin, svo er haldið áfram að jarða. Enn i dag eru menn ekki viss- ir um það, hver fann upp is- lenska þjóðleikhúsið. Var það Indriði, var það kannski Kamban, eða var það bara Jón- as? Fann ekki Sjörshill gamli upp islensku hitaveituna? Hvað sem þvi liður, fann Jóhann Strauss upp tónlistina við Leð- urblökuna og i dag er hún flutt hvarvetna af meisturum þeirra listgreina sem hún krefst. Og hvað gerir Þjóðleikhúsið? Það sækir Þjóðleikhúskórinn ofan af hillu, (en ég tel að sæma ætti hann stórriddarakrossi Fálka- orðunnar, fyrir þolinmæði og seiglu við islenska listfram- leiðslu), húsið lemur upp i Dóm- kirkjunni og sækir dómorgan- istann og setur i umdeilda gryfju með félögum úr Sinfóniu- hljómsveit tslands, það hringir i Carl Billich, frábæran og elju- saman listamann frá landi vals- anna; viltu, elskan min, æfa kór og einsöngvara, svo þeir kunni nú söngvana sina, farðu svo og slappaðu af. Hvar var Billich á frumsýningunni, þegar menn gengu fram til að taka á móti iofi? — vonandi hann hafi fengið nýárskveðju frá Þjóðleikhús- inu! Svo var hringt, skrifað eða kannski sent skeyti til Bidsted, sem i gamla daga hafði mikinn áhuga á öllum tilraunum til list- sköpunar hér i þessu undarlega landi: viltu — kære ven —- stjórna öllu heila gillinu? Já, auðvitað og Herdis Þorvalds- dóttir honum til aðstoðar, og Danir meira að segja aö sýna sama verk, og kostar milljón danskar krónur. Hvað fær Bid- sted mikið fé til framkvæmda? Litið eða mikið, stjórn hans var frábær. Svo var Alan Carter til staðar i landinu, heimsfrægur auðvit- að, þvi tslendingar sætta sig ekki við minni frægð útlendinga, og Julie Claire, elskuleg ballerina með kimnigáfu. Ég beygi mig djúpt fyrir djörfung og dug, og þessi sýning á Leðurblökunni er öllum til sóma er aö standa. Það hefur verið gaman i leikhúsunum i vetur, gaman að fá að sjá og njóta, finna að við eigum á einu sviði gjaldgengan miðii alþjóð- legum mörkuðum: listina. Þessir aðrir taka svo þátt i kraftaverkinu: Góður og kær- kominn gestur, Sigurður Björnsson, syngur og leikur eig- inmanninn, von Eisenstein og gerir það af frábærum kostum. Ég skal játa á mig gamlan efa um frama hans, fyrir mörgum árum, er Sigurður lék það leiða hlutverk, Indriða, i Pilti og stúlku. Siðan hefur mengun aukist i öllum vötnum er til sjávar renna, Sigurður hefur öðlast viðurkenningu að verð- leikum hjá erlendum mönnum, og er okkur kærkominn, þá sjaldan hann kemur, en þá syngur hann gjarnan i útvarp eða sjónvarp, eða kemur fram á tónleikum. Sigurður hefur Eisenstein, söng hans, hreyfing- ar allar og svip, algjörlega á sinu valdi. — Og brátt mun hann hverfa til anna erlendis, og við taka Garðar Cortes. En Sigurð- ur Björnsson kemur alltaf aftur, hann er mikill íslendingur, og sómi að honum hvarvetna. Svala Nielsen er kona hans, Rósalinda. Svala hefur afar mikla og þjálfaða rödd, þrátt fyrir allt. Ég hefði kosið að með- an hann Bidsted var i öðrum önnum, hefði Herdis aðstoðar- leikstjóri, hjálpað Svölu ögn meira með svip og hreyfingar. Það er óþarfi, Svala, að horfa til gólfs, vertu upplitsdjörf, þú hef- ur mörgum sinnum efni á þvi. Horföu fram til okkar, sem i salnum sitja. Við erum þakk- iatir áhorfendur þér, fyrir rödd þina og „temperament”. Elin Sigurvinsdóttir stundaði nám hjá Mariu Markan, þeirri konu sem liklega lengst hefur komist islenskra söngkvenna, og hefði átt að komast lengra, en örlögin vildu hana heim til kalda landsins. Þar hefur hún miðlað söngfólki trúlega af sinni miklu þekkingu. ETlin er vitan- lega aigjör byrjandi, en þess gætir mjög litið, örugg sviðs- framkoma, falleg rödd, sem býr yfir þrótti og styrk, og á eftir að þroskast meir, og þá hefur okk- ur bæst merkilegur söngkraftur i hið annars þögla lið islenskra söngvara. Til hamingju Elin. Idu, systur Adelu, leikur Dóra Reyndal, og mætti beita enn meiri léttleika i túlkun. Risinn meðal islenskra karl- söngvara, bæði likamlega og frá sönglegu sjónarmiði, Guðmund- ur Jónsson, leikur og syngur Dr. Falke, Leðurblökuna. Það er ekki að undra þótt Guðmundur, ungur og fallegur og nýkominn frá námi, fyllti Gamla Bió, hvaö eftir annað hér á árunum. Hann er traustúr, rödd hans dekkri með aldrinum, en um leið mýkri og manni virðist ekkert vera honum ómögulegt. Svo hefur kallinn hann Guðmundur skemmtilegan húmor, t.d. þegar þeir Sigurður dansa og snúa honum siðan upp i einskon- ar morgunleikfimi, við óvænta innkomu frúarinnar. Bráðfynd- ið atriði. Alfreð, ástsjúkur eins og kött- ur, og ekki i neinum érfiðleikum með vitið, hávær og glæsilegur tenór, er leikinn prýðilega vel af Magnúsi Jónssyni, Gerfið ágætt, og hreyfingar allar vel i stil. Eini atvinnuleikárinn i þess- um stóra hóp, er Árni Tryggva- son, og fer á kostum. Ekki að - eins að hann sýngi af þrótti og er hvergi hræddur við ,,þá með raddirnar”, heldur nýtur kimnigáfa Arna sin sérléga vel i hlutverki verjandans sem stamar, en heldur að enginn taki eftir þvi. Frosch fangavörð leikur Lárus Ingólfsson, sem einnig hefur gert ágæta og fagra leik- mynd, einkum salarkynni Orlofskýs, svo og teiknað bún- inga. Hlutverk fangavarðarins er alls staðar leikið af frábærum leikurum, og Lárus Ingólfsson er i þeirra hóp. Fangelsisstjórann leikur og syngur Kristinn Hallsson og gerir kostulega skemmtilega manngerð okkur til góða. Hann Kristinn sannar nú sem oft áð- ur, hve góður söngvari hann er, og næmt auga hann hefur fyrir sviðinu, gætinn i hreyfingum, fyndinn dálitið i útliti og nýtir það vel. Sólveig M. Björling hefur fagra rödd og sterka, dýptin mikil, og framburður skýr. Dá- litið stirður leikur, en Orlofský leiðist undur og skelfing mikið. Óvæntur gestur i veislunni, var á frumsýningu Guðrún Á. Simonar. Það hefði vel mátt sleppa þvi að kynna hana sem rithöfund, og Guðrún heði gjarnan mátt gefa nöfnu sinni Kristinsdóttur fri, og nýta hljómsveitina, og siðast en ekki sist, syngja á islensku, ég var fyrir vonbrigðum með gestinn, en ekki vegna þess að Guðrún syngi ekki yndislega vel, hún einhvernveginn féll bara ekki inn i myndina, hverjum sem um er að kenna. — Sólódansarar voru Julia Claire og Orn Guðmundsson, Orn nokkuð taugaóstyrkur sem von er, þjálfun hans vist ekki mjög löng, en Julie mjög góð i sinum atriðum. Dansflokkurinn var einkum skemmtilegur i atr- iðinu i fangelsinu. Ragnar Björnsson stjórnaði hljómsveitinni öruggri hendi, ljósin voru prýðisfalleg, og ég segi eins og Orlofský: Ég læt i Ijós mina innilegustu viður- kenningu. ?.janúar 1974 Hafnarfjarðar Apótek Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Helgidaga kl. 2 til 4. BLOMAHUSIÐ suni 83070 Skipholti 37 Opið tu kl. 21.30. Einnig laugardaga og sunnudaga. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA Í KRON DÚflA í GlflENBflE /ími 64200 0 Þriðjudagur 8. janúar 1974

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.