Alþýðublaðið - 08.01.1974, Síða 3
Harðnar í
skákinni
önnur umferð skákþings
Reykjavikur var tefld á sunnu-
daginn, og voru helstu úrslit þau,
að Gunnar Gunnarsson og Július
Friðjónsson skildu jafnir, Björg-
vin Viglundsson vann Björn Jó-
hannesson, Jón Þ. Þór vann
Braga Halldórsson, ómar Jóns-
son vann Jóhann Þóri Jónsson, og
Leifur Þorsteinsson vann Björn
Halldórsson. Skák Andrésar
Fjeldsted og Benóný Benedikts-
sonar fór i bið.
Biðskákir úr fyrstu og annari
umferð voru tefldar seint i gær-
kvöldi, og er þvi ekki hægt að svo
stöddu, að segja hver hefur tekið
forystu i mótinu, en áður en bið-
skákirnar voru tefldar, var Gunn-
ar Gunnarsson hæstur
með 1 1/2 vinning.
Þriðja umferð verður tefld i
kvöld, og eigast þá við Björgvin
Viglundsson og Benóný
Benediktsson, Bragi Halldórsson
og Björn Jóhannesson, Jón Þ.
Jónsson og Jón Þ. Þór, Björn
Halldórsson og Ömar Jónsson,
Július Friðjónsson og Leifur
Þorsteinsson, Andrés Fjeldsted
og Gunnar Gunnarsson. Keppnin
fer fram i félagsheimili TR við
Grensásveg. —
Læknaritari
Staða 1. ritara Röntgendeildar Borgar-
spitalans er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. mars 1974.
Læknaritaramenntun eða starfsreynsla
áskilin.
Laun skv. kjarasamningi Starfsmanna-
félags Reykjavikurborgar.
Umsóknir, ásamt itarlegum upplýsingum
um menntun og fyrri störf, sendist skrif-
stofu Borgarspitalans fyrir 1. febrúar
1974.
Reykjavik, 3. janúar 1974
Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar
Laus staða
Staða löglærðs fulltrúa i viðskiptaráðu-
neytinu er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna rikisins.
Umsóknir sendist viðskiptaráðuneytinu,
Arnarhvoli, fyrir 1. febrúar n.k.
V iðskiptaráðuney tið,
3. janúar 1974.
Seinni önn 1973-1974.
Innritun i Námsflokka Reykjavikur fer
fram i Laugalækjarskóla 7. — 11. jan. kl.
18.30 — 21.30.
Nemendur frá fyrri önn geta innritað sig i
fyrstu kennslustund.
Kennslustundir verða þær sömu og á fyrri
önn, nema eftirtaldir flokkar:
Danska I og II verður aðeins á miðviku-
dögum, II. fl. kl. 7.30 og I. fl. kl. 9.15.
Þýska I a fellur niður, nemendum skal
bent á I b á miðvikud. kl. 6.40.
Spænska II RH verður á þriðjud. kl. 7.30
og spænska IRH verður kl. 7.30 á miðvd.
Franska I JGC verður á fimmtud. kl. 9.15.
Verslunarenska verður mánud. kl. 7.30 —
9.
Nýir byrjendaflokkar verða i ensku,
spænsku, þýsku (áhersla lögð á málfræði
og æfingagerð), hnýtingum (macrame),
tauþrykki, barnafatasaumi, sniðum og
saumi, viðhaldi bifreiða, ræðumennsku og
fundarstörfum, tréskurði, vélritun og
eðlisfræði.
Aðrir kennsluflokkar eru: islenska,
danska, enska, þýska, franska, italska,
spænska, færeyska, sænska, norska,
stærðfræði, tónfræði og nótnalestur,
leikhúskynning, jarðfræði, kjólasaumur.
Nemendur gagnfræðadeildar, miðskóla-
deildar og verslunar- & skrifstofustarfa-
deildar komi mánudag, 7. jan., kl. 21.
INNRITUN í BREIÐHOLTSSKÓLA fer
fram þriðjud. 8. jan. kl. 20 til 21.30.
INNRITUN í ÁRBÆJARSKÓLA fer fram
þriðjud. 8. jan. kl. 20 til 21.30.
Stundaskrá liggur frammi á fræðsluskrif-
stofunni Tjarnargötu 12 og i Laugalækjar-
skóla á kvöldin:
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá
þriðjudaginn 8. jan.
Blaðburðarfólk
vantar nú þegar
i eftirtalin hverfi:
Fossvogur
Gnoðarvogur,
Hátún
Skúlagata
Tjarnargata
Kópavogur,
Fagrabrekka
og nágr.
Alþýðublaðið inn á hvert heimili
AUGLÝSINGA-
SÍMINN
OKKAR ER 8-66-6Ö
Tilkynning til rafverktaka
á Suðurlandi
Rafveitur á Suðurlandi, Rafmagnsveitur
rikisins, Rafveita Selfoss, Rafveita
Hveragerðis, Rafveita Stokkseyrar og
Rafveita Eyrarbakka tilkynna:
Frá og með 15. janúar 1974 taka gildi regl-
ur um rafverktakaleyfi.
Starfandi rafverktökum á Suðurlandi er
bent á að kynna sér skilyrði og skilmála,
til að öðlast rafverktakaleyfi við rafveitur
á Suðurlandi.
Upplýsingar varðandi rafverktakaleyfin
eru veittar hjá Rafmagnsveitum rikisins,
Laugavegi 116, Reykjavik og Rafveitu
Selfoss, Eyrarvegi 8, Selfossi.
Rafverktökum, sem ekki eru með raf-
verktakafyrirtæki sin skráð á Suðurlandi,
eftir 15.01,1974, er óheimilt að taka að sér
raflagnavinnu á framanskráðu orkuveitu-
svæði, nema samkvæmt rafverktakaleyfi.
A
KOPAVOGSBUAR
TILKYNNING UM
SORPHAUGA
Athygli skal vakin á þvi að frá og með 1.
janúar 1974, eru sorphaugar Kópavogs á
sama stað og sorphaugar Reykjavikur —
við Gufunes.
Það skal tekið fram að frá sama tima er
Kópavogsbúum óheimilt að fara með
hverskonar sorp eða úrgang á sorphaug-
ana sunnan Hafnarfjarðar.
Ibúum Kópavogs, sem þurfa að koma frá
sér úrgangi, er þvi bent á að fara með allt
slikt á sorphaugana við Gufunes.
Leiðinað sorphaugunum við Gufunes er
þessi:
Eftir að komið er upp Artúnsbrekku er ek-
ið um 2 km eftir Vesturlandsvegi, siðan
beygt af honum (skiiti: Gufunes) til
vinstri á veg sem liggur að Gufunesi og
farið eftir honum um 4 km leið að sorp-
haugunum.
Sorphaugarnir við Gufunes eru opnir, sem
hér segir:
Mánudaga — laugardaga, kl. 8,00—23,00
sunnudaga, kl. 10,00—18,00
Rekstrarstjóri Heilbrigðisfulltrúi
Kópavogs Kópavogs
Hér með er vakin athygli á ákvæðum reglugerðar um orlof
um skil orlofsf jár. Þeir launagreiöendur, sem
ekki hafa enn gert að fullu skil fyrir árið 1973 eru beðnir að gera það nú þegar
og í siðasta lagi 10. þessa mánaðar.
Greiðslum er veitt móttaka á póststöðvum á
sérstökum eyðublöðum, sem þar fást.
POSTUR OG SIMI
Póstgíróstofan
Þriðjudagur 8. janúar 1974
o