Alþýðublaðið - 08.01.1974, Page 6

Alþýðublaðið - 08.01.1974, Page 6
LEIKFIMINNI Skipunin er: Upp, upp, á fætur, konur mínar, náið í sterkt ekki of stutt handklæði og hefjist handa við þessar góðu leikfimisæfingar... áður en þér greiðið yður eða þvoið... gerið þær daglega ÍByrjið á morgun: l.æfing: MITTIÐ Teygið út handlegg- ■ ina og haldið handklæð- inu spenntu milli hand- anna, sveiflið efri hluta likamans frá vinstri til hægri — eins langt til hliðanna og unnt er. Fæturnir eiga að vera aðskildir og standið fast i þá. bessa mittisæfingu á að gera 20—30 sinnum daglega og nú á að slappa um stund af i handleggjunum! Sveigið likamann1 fram i mittinu og teygið svo yður upp eins langt og þér getið, lyftið yður á tá. Næst: Hæla á gólfið og aftur i lárétta stell- ingu. Þessi æfing á að verða til þessað likamsstaðan ...verði glæsilegri og feg- :;;urri! En það verður vitanlega að endurtaka æfinguna minnst 6 til 8 sinnum! :*:,fiBMSi:*:*:*:*:'í*:*' :•:•!•:•:•:•:•:•!•: >:•:•: •:• :::::: y :•: :•:•:•:•:•: ••:•:•: ::: •:•:•: Teygið úr fótunum og nuddið þá með strekktu handklæði frá hæl og upp eftir leggjunum, hnésbæturnar og lærin með snöggum hreyfing- um fram og til baka. Sé þessi æfing gerð i eina til þrjár minútur hefur hún mjög góð áhrif og það er mælt með endurtekningum! NOTIÐ HAND-r Líkamsæfingar fyrir konur á öllum aldri KLÆÐIÐ ^ >4. æfing: 'AXLAÆFINGAR. Þessi axlasveigja, |sem jafnframt hefur á- hrif á mittið hefur sér- staklega góð áhrif á vöxtinn og auk þess mjög góð áhrif á melt- ingarfærin. Réttið úr handleggj- unum fyrir aftan bak og strekkið á handklæðinu. "'v ^'Hafið fæturna aðskilda og standið i allan fótinn. Gerið þessa æfingu i eina til tvær minútur daglega! 5. æfing: FÓTANUDD. Hér kemur góð æfing, sem styrkir blóðrásina i fótunum og gerir húðina á þeim fallegri! Eftir nokkrar minútur af kröftugu i nuddi finnið þér strax hin góðu áhrif æfingarinnar! 6. æfing: BAKÆFINGAR Bakið er nuddað en um leið eru djúpar hliðarbeygjur gerðar — eins langt niður i vinstri hlið og jafnlangt niður i hægri hlið og hugsan- legt er. Þetta örvar blóðrás- ina i öxlum og hrygg og liðkar hrygginn og styrkir hryggvöðvana. Sú kona, sem getur gert þessar bakæfingar i eina til tvær minútur er vel á sig komin lik- amlega. 7. æfing: SVIFSTAÐAN Við réttum fæturna beint upp og beygjum þá niður án þess að velta um koll. Þessi æfing hefur áhrif á jafnvægið og mjög styrkjandi áhrif á magavöðvana. Þær, sem hafa gert þessar æfingar lengi geta eftir að hafa gert þær hratt 6 til 7 sinnum gert þær jafnoft hægt. Standið með fæturna litið eitt aðskilda og handklæðinu strekktu milli handanna og sveiflið efra hluta lik- amans 6 til 8 sinnum i 8. æfing HRINGURINN UOKAST risastóra hringi frá vinstri til hægri. Æfing- una á að gera jafnhægt og unnt er, en að lokum má gera hana nokkrum 'Sinnum hraðar og þá frá hægri til vinstri. Húrra! m M ER UNNT AS VARAST KRABBAMEINID? Sérfræðingar álita að um 85% allra krabbameinstilvika megi rekja til sérstakra aðstæðna i daglegu um- hverfi okkar. Sennilega er unnt að koma i veg fyrir að minnsta kosti sumar af þessum aðstæðum, og er drepið á það i eftirfarandi tiu greinum. Samkvæmt þeim töl- fræðilegu niðurstöðum, sem fyrir hendi eru i Bandarikjunum, má ætla að 50 milljónir manna þar sýkist af krabbameini, og að sjúk- dómurinn muni draga að minnsta kosti 34 milljónir af þeim til dauða. Ef til vill er ástandið ekki alveg eins alvarlegt i öðrum löndum... — Það er unnt að varast krabbamein, bæði vissar tegundir þess, og draga að mun úr f jölda þeirra, sem taka sjúkdóminn, segir dr. David Wood, forstjóri Krabbameinsrannsókna- stofnunarinnar við lækna- deild Kaliforniuháskóla. Skilyrði þess að svo megi verða er að haldið sé í skef jum vissum aðstæðum í daglegu umhverfi okkar, eða komið i veg fyrir þær, en álitð er að þær valdi 85% af öllum krabbameinstil- vikum. Með því að byggja á niðurstöðunum, sem krabbameinsrannsóknir hafa leitt í Ijós að undan- f örnu, er það sem helst ber að varast, flokkað niður í tíu eftirfarandi greinar: 1. Viðhafðu fyllstu var- úð gagnvart loftinu, sem þú andar að þér. Rannsókn varðandi lungnakrabba meðal hvítra manna í Bandaríkjunum hefur leitt í Ijós, að hættan á að þeir sem búa i borgum sýkist af lungnakrabba 1,56 til tvö- falt meiri, heldur en þeir sem búa í sveitum og starfa þar. Þá hefur rann- sókn einnig sýnt, að meðal þeirra, sem búa í borgum og reykja, krabbameinið 123% tíðari dánarorsök en meðal þeirra, sem ekki reykja. Það lítur út fyrir að það sé einkum tvennskQnar loftmengun, sem veldur hættu á krabbameini. Annað notkun kola til hit- unar og ýmiskonar asbest- notkun. Asbest er meðal annars notað til einangrun- ar, og þá verður ekki kom- ið í veg fyrir að asbestryk myndist í loftinu í kring, og menn andi því að sér, ofan í lungun. Sérhver sá borg- ari, sem vill forðast krabbameinið, ætti því einnig að taka þátt í mark- vísum áróðri fyrir hreinna andrúmslofti í bæjum og borgum. Ber einnig að taka það fram, að mikil bílaum- ferð í borgum veldur skað- legri loftmengun. 2. Hafið aðgæslu með mataræðinu. I Bandaríkj- unum, Kanada, Bretlandi, á Norðurlöndum og í öðr- um velferðarríkjum, er það magakrabbinn, sem tíðast ásækir fólk. Þar er magakrabbinn tífalt al- gengari en í þróunarlönd- unum, svo samanburðar- dæmi sé tekið. Dr. Denis P.Burkitt í Lundúnum, sem sérfræðingur i afrisk- um farpestum og drepsótt- um, er kominn vel á veg með rannsóknir á maga- krabba í iðnaðarlöndum. Hann hefur þegar sannað viss tengsl með mataræði i Bandaríkjunum og víða á Vesturlöndum og tíðni magakrabbans. Venjuleg- ur matur í þessum löndum er lítill að magni til í hlut- falli við næringargildið, hreinsaður eins og tök eru á, og úrgangurinn að loka inni meltingu því mjög lít- ill. Hinsvegar hefur hann komist að raun um að í þeim löndum, þar sem fæða manna er lítt hreins- uð og úrgangsmikil, er magakrabbi mjög sjald- gæfur. Þá hefur dr. P. Burkitt og aðrir vísinda- menn, sem tekið haf a þátt í þessum rannsóknum, talið sig komast að raun um, að fólk úr þróunarlöndum, sem flyst til iðnaðarríkj- anna, verður fljótlega jafnhætt við magakrabba og þeim, sem þar eru born- ir og barnfæddir. 3. Varist óhófleg sólböö. Árlega eru uppgötvuð um 90.000 tilvik húókrabba í Bandaríkjunum. Banda- riskir sérf ræðingar á þessu sviði halda því f ram að þaú yrðu mun færri, ef sól- dýrkendur stilltu tilbeiðslu sinni betur í hóf. 4. Reykið ekki. Sam- kvæmt bandarískum læknaskýrslum eru átta af hverjum þeim tíu sem sýkjast af lungnakrabba miklir reykingamenn. Karlmönnum sem reykja er 25 til 34-falt hættara við lungnakrabba en þeim, sem ekki reykja. Þegar um konur er að ræða, er hætt- an 2,2 til 10,8-falt meiri. Munurinn stafar af því að færri konur reykja ofan í sig, reykja færri sígarettur á dag, og mörg önnur atriði koma til greina. Krabbamein af völdum reykinga, er tiðara meðal fólks, sem byrjað hefur ungt að reykja. Afdráttar- laust bráðari hætta ef við- komandi hefur byrjað fimmtán en ef hann byrj- ar ekki fyrr en tuttugu og fimm ára. 5. Forðist gegnumlýsing- ar, nema ýtrustu nauðsyn beri til. Rannsókn á þeim, sem lifðu af kjarnorku- sprengingu og þeim, sem meðhöndlaðir hafa verið með röntgen sökum gigtar- sjúkdóma, sýna að þeim er tvöfalt hættara við hvít- blæði en öðrum. Verður að treysta því að læknarnir beiti röngenskömmtun og röntgenmyndunum eins hóflega og unnt er. Sjúkl- ingar eiga heldur ekki að kref jast slíkrar meðhöndl- unar, en láta lækni sinn skera úr um það. 6. Umgangist áfengi með varúð. Læknisf ræðilegar hagskýrslur í Bandaríkj- unum sýn samhengi með ofnotkun áfengis og krabbameini i munni og hálsi. Frekarirannsóknhef- ur leitt í Ijós, að þeim, sem einungis drekka sterkt áfengi,eins og brennivin eða gin, og óblandað, er mun hættara, en hinum sem blanda það vatni, því að sterkt brennivín hefur Framhald á bls. 4 Of mikil sól getur valdið húðkrabba meini Þriðjudagur 8. janúar 1974 Þriðjudagur 8. janúar 1974

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.