Alþýðublaðið - 08.01.1974, Page 10

Alþýðublaðið - 08.01.1974, Page 10
Karfan Allt eftir formúlunni Fjórir leikir fóru fram i 1. deild i körfuknattleik um helg- ina. tírslit urðu þessi: ÍH-UMFS KR-Valur UMFN-ÍS HSK-UMFS 109:69 90:80 72:70 71:52 ÍR og KR munu væntanlega berjast á toppnum en Borg- nesingar (UMKS) virðast lík- legastir fallkandidatar, að ó- breyttu. Nánar ó morgun. Dregið í HM Það verða heimsmeistar- arnir frá Brasiliu sem leika fyrsta leikinn i úrslitakeppni HM i knattspyrnu 1974. Þeir mæta Spáni eða Júgóslaviu i 2. riðli i Frankfurt 13. júni. Dregið var i riðla keppninnar á laugardaginn, og urðu úr- slitin þessi: 1. riðill: Vestur-Þýskaland, Chile, A-Þýskaland og Astralia. 2. riðill: Brasilia, Skotland, Spánn/Jógóslavia og Zaire. 3. riðill: Urugay, Holland, Búlgaria, Sviþjóð. 4. riðill: ttalia, Argentina, Pólland og Haiti. Sérfræðingar spá þvi, að þau lið sem áfram komist verði V-Þýskaland og A- Þýskaland úr 1. riðli. Brasilia og Skotland i 2. riðli, Urugay og Holland úr 3. riðli og ttalia og Argentina úr 4. riðli. 3. rið- illinn er greinilega sterkasti riðill HM. Yfirlýsing Ég undirritaður Ilaukur Clausen, tannlæknir, hef aldrei skrifað undir opið bréf til ritstjóra VIsis, og leyfi mér að lýsa vanþóknun minni á bréfi þvi, sem birtist I Timan- um siðastliðinn laugardag. Reykjavik 6. janúar 1974 Haukur Clausen. Þorsteinn Ingólfsson er vaxandi lfnumaður I liði Ármanns. Hér hefur hann sloppið úr gæslu Ágústs Svavarssonar og Harðar Hákonarsonar, og skorar. Ljósm. Steinninn. ÍR í fallhættu eftir tap gegn Ármanni en Þórsarar komust ekki suður Um helgina áttu að fara fram fimm leikir i 1. deild tslands- mótsins i handknattleik, en að eins fjórir fóru fram. Þórsarar komust ekki suður til leiksins við Val, og fer hann fram i Laugardalshöllinni á miðviku- dagskvöldið. IR er nú i fall- hættu, cftir tap gegn Ármanni. í gærkvöldi áttu FII og Haukar að leika i Hafnarfirði, og má lesa um úrslit þess leiks á öðrum stað á siðunni. Ármann—ÍR 15:14 (9:9 Þessi leikur var afar jafn eins og tölurnar bera með sér. IR hafði yfir i byrjun, en siðan sóttu Armenningar á. Leikurinn var spennandi, en mikið um villur á báða bóga. Ein slik hjá IR undir lokin leiddi til sigurs Ármenninga. Mörk Árm: Björn 4, Vilberg 4(3v), Ragnar 3, Þorsteinn 2, Olfert og Jón Astv. eitt hvor. Mörk 1R: Agúst 6, J1 v), As- geir, Gunnlaugur og Hörður Há- konarson 2 hver, Hörður Hafst. og Jóhannes eitt hvor. FH—Ármann 18:12 (8:6 Armenningar stóðu lengi i forystuliði FH, en slakur sókn- arleikur og stórgóð markvarsla Hjalta Einarssonar gerði gæfu- muninn fyrir FH. Mörk FH: Viðar 7(3 v), Þór- arinn 4, Gunnar og örn 2 hvor, Auðunn, Birgir og Ölafur eitt mark hver. Mörk Arm: Vilberg 4, Hörður 3(3 v), Ragnar 2, Björn, Guðjón, Olfert og Þorsteinn eitt hver. Vík—Fram 21:19 (9:7/ Afar spennandi leikur, sem Vikingur leiddi þó lengst af. Markvarslan afar slök hjá Fram, og munaði þar mestu á liðunum. Mörk Vik: Einar 6 (3v), Stef Ólafur, Skarphéðinn og Viggó Ólafur, Skarphéðinn • og Viggó eitt hver. Mörk Fram: Axel ll(6v), Björgvin 4, Ingólfur 3 og Pálmi eitt mark. Getraunir Enginn með 12 rétta Enginn seðill fannst með 12 réttum hjá getraunum að þessu sinni. Alls fundust 10 raðir með 11 réttum, og gefur hver röð 23 þúsund krónur. Þá fundust 95 raðir með 10 rétt- um, og gefur hver þeirra þús- und krónur. Potturinn var ekki nema 335 þúsund að þessu sinni, og var helsta ástæðan sú, að seðlar komust ekki út á land vegna samgönguerfiðleika. KSÍ ræður nýjan fram- kvæmdastjóra Knattspyrnusamband ís- lands hefur ráðið fram- kvæmdastjóra fyrir þetta ár. Hcitir hann Hans Herberts- son, 23 ára gamall námsmað- ur i Háskólanum. Hans er fé- lagi i Val. Hann mun hefja störf 20. janúar. Starfið var auglýst laust til umsóknar, og komu nokkrar umsóknir. Heyrst hefur að ein þeirra hafi verið fráÁrna Ágústssyni fyrrverandi framkv.stj. KSi, en það hefur ekki fengist staðfest. Arni mun hins vegar áfram verða formaður unglinganefndar KSÍ, og með honum i nefndinni þeir Albert Eymundsson og Gunnar Pétursson. Þeir hafa iagt fram mikla æfingaáætlun vegna Evrópumóts unglinga sem fram fer i Sviþjóð i mai, og hefur stjórn KSÍ samþykkt hana fyrir sitt leyti. Þá hefur stjórnin ennfremur samþykkt að athuga mögu- leika á þvi að leigja hluta af nýbyggingu sinni i Laugardal, a.m.k. fyrst um sinn. FH sigraði Hauka í I. deild í gær- kvöldi, 21:13 Nánar á morgun Að sparka í rangan mann Frá þvi rétt fyrir jól hafa átt sér staö harðvitugar deildur milli Halls Simonarsonar iþróttaritstjóra VIsis og Finns Karlssonar, sem svo óvænt varð formaður Lyftingasambands Islands á liðnu hausti. Þessar deilur urðu uppi vegna sjónvarpsþáttar sem Finnur var þátttakandi I, og hófust þær á Iþrótta- siðu Vísis. Siöan hafa deilurnar tekiö á sig hinar furðulegustu myndir, og jafnframt farið inn á nýjan vettvang, sem er iþróttasiöa Timans. Er sá þáttur einna aivarlegastur I þessu óheillamáli, og verður vikið að þvi siðar. Nú slðast á laugardaginn birtist I Tfmanum opið bréf til VIsis, undirritað af 100 „Iþróttamönnum”, þar sem skrif Halls eru fordæmd, og Visi jafnframt ráðlagt aö losa sig við Hall! Það var mál manna, eftir fyrrnefndar sjónvarpsþátt, þar sem Finnur var þulur og lýsti fjálgum orðum „heims- meti” Gústafs Agnarssonar, að þar hefði Finnur gripið til sterkari lýsingarorða, en við áttu sem afrekið var i sjálfu sér ágætt. Hallur vakti athygli á þessu i hógværri grein i Visi. Honum er samstundis svarað af Finni Karlssyni, i einhverri ruddalegustu blaðagrein sem lengi hefur birst. Var hún mestmegnis persónulegt nið um Hall Simonarson og aðra iþróttafréttamenn, en minna hirt um rökfærslur. Hallur svaraði siðan af gefnu tilefni, sem voru nýjar heimsmetstöl- ur úr hinum erlenda lyftinga- heimi. Það næsta i málinu er það, að lyftingamenn undir forystu Finns, að þvi er talið er, hófu undirskriftasöfnun meðal iþróttafólks. Fyrsti listinn sem gekk á milli iþróttafólks- ins var á þá leið, að skorað var á Visi, að reka Hall, og jafn- framt skorað á önnur blöð að ráða hann ekki til sin! Siðan mun þessi texti hafa fengið á sig ýmsar myndir, og tókst að skrapa saman 100 „iþrótta- menn”, aðallega á einu veit- ingahúsanna hér i borg. Ig undirritaðhef hef starfað við iþróttamennsku nú um nokk- urra ára skeið, en ég get þó ekki komið fyrir mig nema svo sem þriðjungi þeirra nafna sem standa undir áskoruninni. Hin nöfnin kannast ég ekki við. Nokkur þekkt nöfn eru á listanum, og þar á meðal menn sem ég hélt það skyn- sama að láta ekki teyma sig út i svona nokkuð. En það mat hefur kannski verið á mis- skilningi byggt, eða þá að um- ræddir menn hafi skrifað und- ir plaggið á öðrum forsendum en að fá Hall rekinn af Visi, eða kannski aldrei skrifað undir. Hver veit? Þáttur lyftingaforsprakk- anna og þeirra sem rita undir listann er ljótur i þessu ó- heillamáli. En þáttur þeirra sem stjórna iþróttasiðu Tim- ans, og þá einkum Alfreðs Þorsteinssonar borgarfull- trúa, er ekki siður ljótur. Lyft- ingafotystan fór með „opna bréfið til Visis” á Timann og Morgunblaðið, með ósk um birtingu á þeim upplognu for- sendum að það fengist ekki birt i Visi. Visir stóð þeim alla tið opinn, eins og kemur fram i Visi og reyndar Timanum á laugardaginn. Morgunblaðið neitaði umsvifalaust að birta bréfið, en Timinn gerði það á laugardaginn, og fylgdi svo- hljóðandi skýring: „Það er ekki venja iþróttasiðu Timans að blanda sér i deilur, sem önnur blöð eiga i, nema sér- staklega standi á”. Og af hverju stendur svona sérstaklega á? Varla vegna þess að Visir neitaði að birta bréfið, þvi það kemur fram bæði i Visi og Timanum á laugardaginn, að Visir hefði aldrei fengið bréfið til birting- ar, þrátt fyrir loforð um slikt frá lyftingaforystunni. Þá liggja væntanlega aðrar ástæður til. Það skyldu þó aldrei vera borgarstjórnar- kosningarnar i vor? Fyrir sið- ustu borgarstjórnarkosningar var Finnur Karlsson Alfreð drjúgur fylgismaður, ásamt öðrum aðilum i iþróttahreyf- ingunni, sem tókst að smala svo mörgum iþróttamönnum i Framsóknarfélag Reykjavik- ur fyrir prófkjörið, að það nægði Alfreð til 4. sætis á lista Framsóknar. Þá var liðveisla Finns ekki siður mikilvæg þegar laugardagsbyltingin fræga hjá FUF var fram- kvæmd hér um árið. Þar kom iþróttafólk einnig mikið við sögu, og eins og áður var Finnur þar drýgsti smalinn. Og nú er enn eitt prófkjör framundan, og þá kæmi sér vel að hafa Finn sér við hlið, ekki sist þegar menn eru valt- ir i sessi eins og Alfreð. Vænt- anlega verða það kaup kaups, ýmsar skey tasendingar Alfreðs til Halls að undan- förnu styrkja þann grun. I hófi sem Samtök iþrótta- fréttamanna héldu á föstudag- inn, þegar kjör Iþróttamanns ársins var tilkynnt, lét Her- mann Guðmundsson framkv.stj. ISI þau orð falla, að án iþróttablaðamennsk- unnar væru iþróttirnar ekki það afl i landinu sem þær eru i dag. Ég tel það happ iþrótt- anna á Islandi að hafa notið krafta Halls allt frá frum- bernsku iþróttablaðamennsk- unnar hérlendis. Hann er i dag nestor okkar iþróttafrétta- manna, en samt siungur og ferskur i skrifum sinum. Það eru aðrir en Hallur sem hafa orðið iþróttunum frekar til ó- þurftar en hitt, og notað þær miskunnarlaust til að mjaka sér upp metorðastigann. Það eru þessir menn sem eiga að fá spark i rassinn. 100 menn- ingarnir hafa sparkað i rang- an mann. Sigtryggur Sigtryggsson Þriðjudagur 8. janúar 1974

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.