Alþýðublaðið - 08.02.1974, Blaðsíða 1
Vildu gamla tímann aftur
Mikill meirihluti fólks, sem spurt var um álit á
breyttum kvöldfréttatima útvarpsins, i könnun,
sem rikisútvarpiB stóð fyrir skömmu fyrir jól, vildi
flytja fréttirnar yfir á gamla timann, eða frá kl. hálf
sjö til sjö. 1 gær tók útvarpsráð ákvörðun um þetta
atriði á fundi, en mikil leynd hvilir yfir úrslitum
málsins. Var meira að segja komið i veg fyrir, að
fréttin um ákvörðun útvarpsráðs væri sögð i frétt-
um útvarpsins kl. hálf sjö i gærkvöldi.
Föstudagur 8. febrúar 1974 slÍrg
Eimskip hrekur SH
til Hafnarfjarðar
,,Þrátt fyrir ad
vestu rhöf nin i
Reykjavíkurhöfn sé
nú skipulögð sem
fiskihöfn, fáum við
ekki til anota stóra
skemmu, sem byggð
var í tengslum við
fiskihöfn, en ekki
sem skemma fyrir
almennar vörur, og
því höfum við leitað
eftir lóð undir að-
stöðu við Hafnar-
fjarðarhöfn", sagði
Eyjólfur isfeld
Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Sölu-
miðstöðvar hrað-
frystihúsanna, i við-
tali við blaðið í gær.
Eimskip h/f hef ur
viðkomandi
skemmu nú á leigu,
og vi11 alls ekki láta
hana af hendi við
SH, að sögn Eyjólfs.
„Skemma þessi
hefði hentað SH
mjög vel", sagði
Eyjólfur, ,,auk þess
sem hún hefði kom-
ist fyrr í gagnið
heldur en skemma
sem reisa þarf frá
grunni á öðrum
stað".
Sem fyrr segir,
hef ur SH nýlega sótt
um stóra lóð undir
f rystigeymslur við
Haf narf jarðarhöf n,
og sagði Eyjólfur að
brýna nauðsyn bæri
til að reisa þar
f rystigeymslu, sem
gæti geymt um tíu
þúsund tonn til að
byrja með.
Staðurinn, sem SH
hefur hug á, er fyrir
vestan vörugeymsl-
una upp af nyrðri
hafnargarðinum, og
þarf talsverða upp-
fyllingu utan hafn-
argarðs og innan,
áður en byggingar-
framkvæmdir geta
haf ist.
HÆTTA VIÐ SPITALA:
Stafar frá
1 * PT—
f-á \
7
! á i M . JkwœrtSSlÉ
,,Ég er margbúinn að
benda mjög ákveðið á, að
allar óleyfilegar bygging-
ar bæði á Landspitalalóð-
inni og öðrum spitalalóð-
um i Reykjavik, verði
fjarlægöar, þvi þær eru
mér mjög mikill þyrnir i
augum, — jafnt skúrar,
sem reistir. eru i sam-
bandi við byggingafram-
kvæmdir, sem aðrir skúr-
ar, sagði Rúnar Bjarna-
son slökkviliðsstjóri við
Alþýðublaðið i gær.
Ein af þessum bygging-
um, sem Rúnar á við,
brann tii kaldra kola i
gær. Var það geymsla
fyrir óhreinan þvott, sem
stóð við suðurenda fæð-
ingardeildar Landspital-
ans. Eldurinn náði upp
eftir timburstokkum og
olli nokkrum skemmdum
á tveimur hæðum sjúkra-
hússins, auk þess sem
miklar truflanir urðu á
starfsemi þess.
,,Ég hef að visu ekki
sent bréf vegna þessara
bygginga en margitrekað
þá hættu, sem af þeim
stafar, og i bygginga-
nefnd geðdeildar Land-
spitalans hef ég farið
fram á. að framkvæmdir
verði stöðvaðar vegna
vinnuskúra, sem sjúkra-
húsinu getur stafað hætta
af’, sagði Rúnar. Bætti
hann þvi við. að bruninn á
skúrnum i gær opni von-
andi augu forráðamanna
spitalanna fyrir þvi, a$
ganga þarf vel um spit-
alalóðir.
Einn starfsmanna spit-
alans benti fréttamanni
Alþvðublaðsins á þaö i
gær. að við suðurhlið fæð-
ingardeildarinnar.
skammt frá taugeymsl-
unni, sem brann. sé sorp-
geymsla úr timbri, og
geti hæglega gerst
það sama þar.
» 3. SÍDA
Vigri frá veiðum
mánuðum saman
Alvarleg bilun varð i
aflfærsluútbúnaði skut-
togarans Vigra, er hann
var að veiðum austur af
landinu lyrir helgi, en
skipið komst þó fyrir eig-
in véiarafli til Reykjavik-
ur.
Gisli Jón Hermannsson
forstjóri ögurvikur h/f.
senr á togarann. sagði i
viðtali við blaðið i gær. að
togarinn mvndi fyrirsjá-
anlega stöðvast i langan
tima. jafnvel fleiri mán-
uði, þar sem sérsmiöa
þyrfti þá hluti sem biluðu.
Bilunin er i svonefndum
gir, en hann samanstend-
ur af fjölda tannhjóla.
Liklegt er talið að tönn
hafi brotnað úr cinu hjól-
anna. og hún svo t'lækst á
rnilli hinna og brotið úr
þeim lika.
Vigri er annar tveggja
skuttogara. sem Ogurvik
lét smiða fyrir sig i Pól-
landi. og komu þeir til
landsins seint á árinu
1972. Sagði Gisli Jón. að
þeir hefðu hingað til stað-
ið sig.með ágætum og afl-
að vel.
Stykki þau. sem brustu
i Vigra voru framleidd i
Póllatidi með frátn-
leiðsluleyfi frá Pyska-
landi. og hefur utgerðar-
lélaginu ekki enn borist
svar lrá framleiðendum
hvenær þeir telji sig geta
smiðað hlutina aftur.
l>ess má geta að bilanir i
girum eru mjög fátiðar.
ogt.d.er yíirleitt ekki lit-
ið á tannhjól giranna lyrr
en i 16 ára skoðun.