Alþýðublaðið - 08.02.1974, Síða 3
Ögri átti
heimsmet
dagpart
Skuttogarinn ögri sló heimsmet i sölu afla er hann seldi 238 tonn i
Grimsby i fyrradag fyrir 13,2 milljónir isl. króna, eða um 68 þúsund
pund.
Þetta var hæsta peningaupphæð sem vitað var til að greitt hefði
verið fyrir afla úr einum togara til þessa, en hins vegar hefur feng-
ist hærra meðalverð pr. kiló, en ögri fékk.
Ekki átti ögri heimsmetið þó lengi, þvi sama dag landaði Hulltog-
ari einn 300 lestum i Grimsby og fékk um 72 þúsund pund fyrir sinn
afla, eða fjórum þúsundum punda meira en ögri.
Fuku þvi heimsmetin milli þjóða, þótt fiskurinn væri sá sami úr
báðum skipunum, af Islandsmiðum.
Mikil eftirspurn er eftir bygg-
ingarlóðum i Hafnarfirði um
þessar mundir og sem dæmi um
það bárust 226 umsóknir um þær
49 lóðir, sem til úthlutunar komu
á þessu ári.
Flestar umsóknir bárust um
einbýlishúsalóðirnar, eða 142. þar
af 33 frá fólki utan Hafnarfjarðar.
Umsóknir um raðhús voru 37, tvi-
býlishús 18 og fjölbýlishús 19, þar
af 15 frá Hafnfirðingum.
Þá má geta þess að stjórn
verkamannabústaða i Hafnar-
firði hefur nýlega úthlutað 12
ibúðum I fjölbýlishúsi, en 75 um-
sóknir bárust um þær.
STÚLKUR UM BORÐ ÞRÁTT FYRIR HLIÐIÐ
Það varð mikil ringulreið á
fæðingardeild Landspitalans
skömmu eftir hádegi I gær, þeg-
ar sængurkonum þar var virki-
lega gert rúmrusk. Eldur kom
upp i timburskúr, þar sem
geymdur var óhreinn þvottur
deildarinnar, beint fyrir utan
gluggana á fjórum sjúkrastof-
um i suðurenda hússins. Eldur-
inn gaus upp eftir timburstokk-
um, sem lágu frá svölum á
tveimu hæðum á suðurhlið húss-
ins og teygði sig inn um glugg-
ana. Kviknaði i gluggunum og
allar rúður sprungu, og
skemmdir urðu i læknaher-
bergjunum I enda ganganna.
„Fyrst sáum við reyk, en sið-
an heyrðist sprenging, og eldur-
inn gaus skyndilega upp, svo við
sáum hann út um gluggann”,
sagði ein sængurkvenna,
sem fréttamaður Alþýðu-
blaðsins hitti að máli frammi
á gangi annarrar hæð-
ar fæðingardeildarinnar. „Urð-
uð þið ekki hræddar?”
spurðum við, og sængurkonurn-
ar þvertóku ekki fyrir það.
„Okkur brá náttúrlega dálitið
við þetta”, sagði ein þeirra.
Þá stöðvuðum við hjúkrunar-
konu, sem var á harðaspani
eftir ganginum og spurðum,
hvort öll þessi læti hefðu ekki
komið af stað fæðingum. „Nei,
það held ég ekki”, svaraði hún.
„En það hefði svo sem ekki veitt
af, að þetta kæmi einhverju af
stað. Liklega hafa þær, sem eru
niðriá fæðingarganginum, samt
minnst orðið varar við þetta”,
bætti hún siðan við.
„Hvert var farið með sængur-
konurnar, eftir að vart varð við
eldinn?” spurðum við aðra
hjúkrunarkonu á hlaupum.
„Þær voru allar sendar yfir i
nýju álmuna, — og þá má segja,
að með þvi hafi hún verið vigð,
þvi það er ekki enn búið að taka
hana i notkun”, var svarið.
Og þegar fréttamaður og ljós-
myndari Alþýðublaðsins yfir-
gáfu fæðingardeildina var öll
hætta hjá liðin, en læknar,
kandidatar og hjúkrunarkonur
tekin til við að raða sængurkon-
um þeim, sem voru i endastof-
unum fjórum, niður á aðrar
stofur. „Þær, sem voru á stofum
niu og eitt, fari upp”, hrópaði
einn kandidatinn. „Upp?” sagði
ein hjúkrunarkonan undrandi.
„Ég sem var að senda þær nið-
ur”. -„Nú fer allt i vitleysu, það
vilja allir stjórna”, sagði þá ein
sængurkonan við okkur, um leið
og við smokruðum okkur út um
dyrnar fram á stigapall.
226 sóttu um
49 lóðir í
Hafnarfirði
Skora á
Halldór
ráðherra að
stöðva Halldór
prjónastofu-
eiganda
.
Stjórn Landssambands iðn-
verkafólks hefur skorað á
stjórnvöld og Alþingi (þar /
með talinn Halldór E. Sigurðs- J
son fjármálaráðherra) aðl
koma I veg fyrir það „óþurft- /
arverk” að prjónavoðir verði J
sendar úr landi til fullvinnslu,
á meðan nægur mannafli og
vélakostur er i landinu til að
vinna verkið.
Tilefni áskorunar er, að
Prjónastofa Borgarness (eign
Halldórs E. Sigurðssonar fjár-
málaráðherra og fleiri), hefur
sent prjónavoðir i 17 þúsund
kápur til fullvinnslu I Skof-
landi, en þar á prjónastofan i-
tök i prjónastofu. Er hér um
að ræða kápur að verðmæti
50—60 milljónir, og er talið að
ódýrara sé að sauma þær ytra.
Fimm saumastofur á Norður-
landi hugðust taka verkefnið
að sér, en þær standa nú uppi i
verkefnalausar. Starfsmenn l
þeirra eru á annað hundrað. J
Eldvígsla
nýju
ólmunnar
HORNIÐ
Skuttogaraknörr
„Landnámsmaður” hringdi:
„Við vorum hér nokkrir félag-
ar að ganga niður við höfn og
sáum þar nýja skuttogarann
Ingólf Arnarson liggja bundinn
við festar. Þá fórum við að
hugsa með okkur, hvort þetta
skip ætti ekkert að fara á veið-
ar, eða hvort meiningin er að
láta það liggja bundið við
bryggju allt þjóðhátiðarárið.
Okkur kom saman um, að það
væri liklega besta lausnin, ef
ekki á að verða þeim mun meira
tap á útgerðinni. Hins vegar má
einnig leysa annað vandamál
með þessu skipi: Láta það koma
i staðinn fyrir knörrinn góða.
Þvi leggjum við til, að s/t Ing-
ólfur Arnarson verði ekki
sendúr út á haf i allan sóðaskap-
inn, heldur verði látinn liggja
við landfestar þangað til á 17.
júni. Þá lætur skipið úr höfn
með a.m.k. eina lúðrasveit inn-
anborðs, auk allra helstu fyrir-
manna þjóðarinnar, svo sem
Indriði G. Þorsteinsson, Matthi-
as Johannessen, Ólafur
Jóhannesson og Sverrir
Runólfsson.
Þeir sigla sem leið liggur
austur með landinu og koma við
I hverri vik, þar sem borist
hefur bein að landi. Lúðrasveit-
in leikur ættjarðar- og sjó-
mannasöngva, Indriði og
Matthias lesa ljóð hvor fyrir
annan, Ólafur Jóhannesson flyt-
ur ræðu og Sverrir Runólfsson
ræðir vitt og breitt um stjórnar-
skrána.
Siðan er boð um borð i togar-
ann fyrir broddborgara þorp-
anna, þar sem Ingólfi módel 874
er drukkin skál og á meðan
leikur lúðrasveitin fyrir dansi
bæjarbúa á bryggjunni.
Eg fer út ....
Gisli Baldur Jónsson, vakt-
stjóri á BP bensínstöðinni við
Alfheima hringdi i gær vegna
skrifa „bileiganda” i Horninu i
gær:
„Ég vil taka það fram, vegna
þess sem kom fram i Horninu,
að við hér á BP stöðinni við Álf-
heima höfum þvottaþjónustu
hvern einasta frostlausan dag.
Við höfum hér stórt þvottaplan
sem er geysimikið notað. Ég hef
sjálfur séð um að bera kústana
út á planið og endurnýja þá eftir
þörfum, og hef þvi góða yfirsýn
yfir þessi mál. Þá má einnig
geta þess að við tjöruþvoum
kústana á hverju kvöldi.
Þvert ofan i álit „bileig-
anda” er það min reynsla að
bensinstöðvarnar hér kapp-
kosta einmitt að veita góða
þjónustu i þessum efnum sem
öðrum”.
,,Ás t a n d i ð " í
Straumsvíkurhöf n er
ekki liðið undir lok þrátt
fyrir að stjórn Alversins
hefði í fyrra lofað að
koma upp hliði við höfn-
ina svo stúlkur kæmust
ekki um borð í erlend
flutningaskip þar. Svo
rammt kvað að þessari
ásókn stúlkna í fyrra og
svo mikil vandræði voru
oft, er þær voru að koma
dauðadrukknar og illa
til reika upp úr skipun-
um, að ákveðið var að
setja upp hlið, og hafa
þar vörð.
Hliðið var sett upp, en
það er alltaf opið, þegar
skip er í höfninni, og
enginn vörður. Þannig
er nú griskt skip i höfn-
inni og hefur lögreglan í
Hafnarfirði spurnir af
ásókn stúlkna um borð.
0