Alþýðublaðið - 14.09.1974, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 14.09.1974, Qupperneq 1
Á að lækka viðbótarniöurgreiðslur um helming? ÞA HÆKKA BÚVÖRUR UM 61%! Alþýðublððinu er kunnugt um nokkrar niðurstöður útreikn- inga, sem gerðir hafa verið á hugsan- legum breytingum búvörugerðs, ef helmingur viðbótar- niðurgreiðslnanna, sem til komu 20. maí s.l., yrði felldur nið- ur. Þá myndu bú- vöruverð hækka um allt að 61%. Mjólk myndi hækka um 37%, súpukjöt um 45%, skyr um 53% og smjör um 61%. Launþegar og neytendur mega þvi vita, hvað til síns friðar heyrir, verði niðurgreiðslurnar takmarkaðar um leið og nýtt landbún- aðarverð verður ákveðið. alþýdu LAUGARDAGUR 14. sept. 1974 - 176. tbl. 55. árg. Ný hljómsveit, enn nafnlaus, sem poppsérfræðingur blaðsins segir mega gera miklar kröfur til I fram- tiðinni, kemur fram á sjónarsviðið um næstu helgi. Frá hcnni og ýmsu fleiru segir I Tóneyranu á bls. 3 i sunnudagsblaðinu. Söguleg sjóferð fullra Færeyinga endaði uppi i fjöru við Seyðisfjörð, og svo sögðu þeir hjálparmönnunum að halda kjafti. Sjá bls. 3 BJÖRN JÓNSSON, FOR- SETI ASÍ UM VIÐ- RÆÐURNAR VIÐ RÍKIS- STJÓRNINA UM BÆTUR Oljósar hugmyndir um laglaunabætur „Það hefur furðulega litið gerst á fundunum með rikisstjórninni” sagöi Björn Jónsson, for- seti Alþýðusambands Is- lands, i samtali við Alþýðublaðið i gær, og hann bætti viö, að hug- myndir rikisstjórnarinn- ar varðandi fyrirkomulag svokallaðra láglaunabóta séu enn óljósar og þoku- kenndar. Engar ákveðnar tillögur hafi verið lagðar fram, en aðeins verið skipst á skoðunum varð- andi láglaunabætur, niðurgreiðslur vöruverðs, fjölskyldubætur, elli- og aðrar lifeyrisbætur. Fulltrúar Alþýðusam- bandsins i viðræðunum við rikisstjórnina hafa fengið ýmsar upplýsingar frá rikisstjórninni, sem flestar eru unnar af Þjóð- hagsstofnuninni, um ástand efnahagsmálanna og hugsanlega möguleika á hliðarráðstöfunum fyrst og fremst til að vernda lifskjör hinna lægst launuðu i þjóðfé- laginu. Björn Jónsson, forseti ASl, sagði i samtali við Alþýðublaðið, að hægt væri að imynda sér, að 4- 5% af heildarlauna- upphæðinni, sem talin er vera um 60 miljarðar króna á ársgrundvelli, gætu greiðst til baka i láglaunabótum. Þetta yrðu 2,5-3 milljarðar króna. Ef gert væri ráð fyrir, að launabætur kæmu aðeins á um helm- ing heildarlaunanna, mætti ætla, að laun hinna lægstlaunuðu gætu hækk- að um að minnsta kosti 8- 10%. Björn sagði, að engar mótaðar hugmyndir hafi komið fram um fyrir- komulag hinna svoköll- uðu láglaunabóta. „En við munum að sjálfsögðu miða okkar hugmyndir við það, að þeir, sem mest þurfa á þeim að halda, fái mest. Ég held, að ekki sé fráleitt að ætla, að Alþýðusambandið gæti fallist á, að láglaunabæt- urnar rynnu út við tekju- mörk einhvers staðar á bilinu 50-55-60 þúsund krónur á mánuði, en bæt- urnar minnkuðu i 2-3 þrepum. Hins vegar höf- um við ekki sagt okkar siöasta orð i þessu efni og eru hugmyndir rikis- stjórnarinnar enn of óljósar til þess að hægt sé að fullyrða nokkuð hér um”, sagði Björn. Björn Jónsson bætti ar huga væri annað fyrir- láglaunabæturnar yrðu föst upphæð miðað við klukkustund og i tengsl- um við verðlagið, þannig að bæturnar breyttust á þriggja mánaða fresti i breytingar á verðlagi, en þetta fyrirkomulag hefur t.d. tiðkast annars staðar á Norðurlöndum. Þá væri lika hugsanlegt, að állir launþegar fengju bætur i laun, ef verðlagið færi upp fyrir akveðin mörk”. Fulltrúar rikisstjórnar- innar i viðræðunum við Alþýðusambandið hafa talað um, að efnahags- ráðstafanirnar, sem koma skuli i stað visitölu- bóta á laun, taki tii 12 vegar hafa fulltrúar ASl lagt áherslu á, að þessar bráðabirgðaráðstafanir skyldu aðeins taka til sex mánaða, og er ekki talið vonlaust, að rikisstjórnin sé reiðubúin að beygja af i þessu efni. I þessu sambandi sagði Björn Jónsson: „Það er i okkar huga mjög mikils- vert atriði, að aðgerðir rikisstjornarinnar i fram- haldi af þeim álögum, sem hún nú hefur lagt á allan almenning i land- inu, feli i sér lágmarks- tryggingu fyrir láglauna- fólk, en eftir sem áður verði möguleikanum til að semja um meira, ef svo ber undir, haldið opn- um. Slikt yrði miklu að- gengilegra fyrir okkur, en eins og fyrr segir, eru m- alin enn svo óljós, að ekk- ert verður sagt um það, hvort rikisstjórnin fellst á þessi mikilvægu sjónar- mið verkalýðssamtak- anna’ . Varðandi niðurgreiðsl- ur búvöruverðs sagði Björn: „Það yrði að okk- ar viti alveg óbærilegt fyrir láglaunafólkið, ef helmingur viðbótarniður- greiðslnanna frá i sumar yrði felldur niður, hvað þá ef öll viðbótin yrði felld niður”. — VINNUTÍMI ALDREILENGRIEN NÚ Orri og co. heim úr fríi Þeir Orri og félagar hans cru nú komnir heim úr sumarfríi og téknir til við Tjaldabak- ið. Sjá Tjaldahak um „fóstbræðrasögu hina nýju” i opnu sunnu- dagsblaðs. Gerð hefur verið könnun á raunveru- legum vinnutima einstakra starfs- hópa i þjóðfélaginu á vegum kjararann- sóknarnefndar. Könnunin leiðir í IjóS/ að vinnutími hefur aldrei i sögunni verið lengri en nú. Þannig vinna verka menn a ö meðaltali 53 klukku- stundir á viku og i einstöku greinum fer meðalvinnutím- inn á viku upp i tæplega 62 klukku- stundir. Vinnu- tíminn hjá verka- mönnum skiptist þannig, að 68,4% er dagvinna/ 13/1% er eftirvinna og 18t5% er næturvinna. Hinn langi vinnu- timi gerir að verk- um, að rauntekjur hækka verulega. úr- tak, sem gert var á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, sem náði til 47 fyrirtækja og 1.302 þúsund vinnu- stunda, leiðir i Ijós, að rauntekjur iðnaðarmanna í timavinnu voru á þessum árshluta 107 þúsund krónur á mánuði og um 78 þúsund krónur á mánuði hjá verka- mönnum. Gera má ráð fyrir, að þetta hafi eitthvað lækkað á þriðja ársfjórðungi. En skýringin á því, hvernig láglauna- fólk hefur komist af i dýrtíð síðustu mánaða virðist vera auðrakin til þess mikla vinnuálags, sem tiðkast hef ur að undanförnu.— MEÐALVINNUTÍMI VERKAMANNA ER ALLT AÐ 62 STUNDIR Á VIKU

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.