Alþýðublaðið - 14.09.1974, Side 5

Alþýðublaðið - 14.09.1974, Side 5
Útgefandi: Blað hf. Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm.) Sighvatur Björgvinsson Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir ASsetur ritstjórnar: Skipholti 19, simi 28800 Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10, sími 28660 og 14906 Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, sími 14900 Prentun: Blaðaprent FLEST ENN í KAFI Stjórnarblöðin ræða mikið um það, að nú sé búið að móta heildarstefnu i efnahagsmálum, sem koma eigi þjóðarbúinu á réttan kjöl á ný. Þetta er mesti misskilningur. Hafi slik heildar- stefna verið mótuð, þá hefur a.m.k. ekkert um það heyrst opinberlega. Það eina, sem ríkisstjórnin hefur gert til þessa er að flytja nokkra milljarða króna frá al- menningi i landinu og yfir til rikissjóðs og á- kveðinna atvinnufyrirtækja. Slikar aðgerðir eru auðvitað ekki nein heildarstefnumótun i efna- hagsmálum heldur aðeins nokkur hluti þeirra ráðstafana, sem slik stefnumótun fæli i sér. Flestöllum spurningunum er enn ósvarað. Fólk hefur enn ekki séð nema efsta hluta isjakans — meginhluti hans er enn i kafi, hulinn sjónum manna. Svo dæmi sé nefnt, þá hafa enn engar ráðstaf- anir verið gerðar til þess að tryggja útgerðinni eðlilegan rekstursgrundvöll, en gengisfellingin hefur stefnt afkomu hennar i mikla hættu. Þá hefur enn ekkert verið gert til þess að svara spurningum aldraða fólksins, öryrkjanna og láglaunafólksins um, hvort það eigi virkilega að bera álögurnar til jafns við betur stæða borgara i þjóðfélaginu. Yfir þessum og fleiri málum er rikisstjórnin nú að velta vöngum og hefur enn engar skoðanir skapað sér um þau. Og fyrr en úr þeim spurningum og fjölmörgum fleiri hefur verið leyst er ómögulegt að segja, að rikis- stjórnin hafi myndað heildarstefnu i efnahags- málum. Stjórnarblöðin ættu þvi að spara sér stóru orðin þar til það liggur fyrir — nema þau hafi þá sannfæringu, að með álögunum einum sé allt orðið klappað og klárt. HVER ER SKVRINGIN? Á s.l. vetri voru nær stanslausar umræður um efnahagsmál á Alþingi. Þingmenn Sjálfstæðis- flokksins tóku mikinnþátti þeim umræðum og töldu, að ekki væri neitt sérlega erfitt að leysa fjárhagsvanda rikissjóðs. Töldu þeir það best gert með þvi að spara verulega i opinberum út- gjöldum og fluttu m.a. sérstaka tillögu um að skera niður opinber útgjöld um hundruði milljóna króna. Fyrsta verk þessara manna eftir að þeir kom- ust i rikisstjórn var hins vegar ekki að beita þessu einfalda og nærtæka úrræði. Þvert á móti brugðust þeir þannig við að hækka söluskatt um tvö stig — leggja nýjar álögur að upphæð 2000 m. kr. á almenning i landinu. Er þvi furða þótt spurt sé: Hvað hefur breytst svona mikið — hver er ástæða þess, að Sjálf- stæðisflokkurinn söðlaði gersamlega um? Bæði sjónarmiðin geta ekki verið rétt. Annað hvort hafa orðræður Sjálfstæðismanna i vetur leið verið fleipur eitt og markleysa — ellegar þá hitt, að skatthækkun þeirra frá þvi i sumar var með öllu óþörf og ónauðsynleg. Málgögn Sjálfstæðisflokksins, Morgunblaðið og Visir, verða að gefa einhverjar viðhlitandi skýringar á þessum mótsögnum. lalþýduj IilRTiTTil ERLENDIS FRÁ: NÝ ANDLIT A TOPPNUM - KANN AÐ TÁKNA BREYTINGU í SAMSKIPTUM EVRÓPU OG USA Lasse Budtz, sem er einn helsti utanríkismálaskrif- finnur Aktuels, aðalmál- gagns danska Jafnaðar- mannaf lokksins og danska alþýðusambandsins, gerir því skóna í þessari grein, að mannabreytingarnar í toppstöðum heimsstjórn- málanna geti leitt til bættr- ar sambúðar Bandaríkj- anna og Vestur-Evrópu, sem ekki hefur verið upp á það besta siðustu árin. Fyrir ári si&an hefði vist enginn spáö þvi, að nýir menn tækju viö helstu lykilhlutverkunum á leik- sviði heimsstjórnmálanna með svo skjótum hætti og orðið er. En nú hafa þeir Ford, Wilson, d’Estaing og Schmidt tekið viö hlutverkum þeirra Nixons, Heaths, Pompidous og Brandts og mætti ætla, að þessi miklu mannaskipti gæfu tilvalið tæki- færi til að hefja til vegs ný betri samskipti milli Bandarikj- anna og Vestur-Evrópu. Maðurinn, sem skipar stærsta aukahlutverkið á sviðinu, dr. Henry Kissinger, skipar enn sitt fyrra embætti, eh ekki er ótrú- legt, að yfirráð hans á leiksviðinu verði alla vega óljósari i framtið- inni en verið hefur til þessa. 1 þessu efni eru ýmis tákn á lofti. Tilraun Kissingers til að þvinga • stjórnmálamenn i Vestur-Evrópu til að dansa I takt við vilja Banda- rikjamanna mistókst gersam- lega. Og á siðasta andartaki varð komið i veg fyrir, að hið svokall- aða ,,ár Evrópu”, sem þeir Nixon og Kissinger höfðu kallað svo, færi eymdarlega út um þúfur. Kissinger veðjaði á rangan hest Það er alveg óhugsandi, að Kissinger geti haldið áfram eins og hann hefur gert hingað til. Að sjálfsgðu dást menn að afskiptum hans af málefnum Miðaustur- landa og Asiu, en á hinn bóginn er vitað og einnig viðurkennt, að hann glopraði Kýpurmálinu niður úr höndum sér, fyrst og fremst vegna þess að hann veðjaði i upp- hafi á rangan hest, þ.e.a.s. her- foringjastjórnina i Grikklandi og samsærisfélaga hennar á Kýpur. Nelson Rockefeller, varaforseti Bandarikjanna, býr yfir allmikilli reynslu á sviði alþjóðamála og réð það vafalaust miklu um, að hann var valinn i embætti vara- forseta. Sennilega verðum við á næstunni vitni að þvi I fyrsta sinn um margra ára skeiö, að varafor- seti Bandarikjanna fari með mikilvægt stjórnmálahlutverk. Eigi Nelson Rockefeller kost á sliku hlutverki, er engin ástæða til að efast i þessu efni. Ford hlustar af eölishvöt I þessu sambandi er vert að at- huga, að manngerð og skapgerð Fords forseta Bandarikjanna gef- ur ærið tilefni til að ætla, að hann muni af eðlishvöt taka sjónarmið Vestur-Evrópu til greina. Það merkilega er, að þetta er engin þverstæða, þó svo að Ford sé i grundvallarskoðunum ihalds- samari en Nixon var i forsetatið sinni. Astæða er til aö ætla, að Ford sé sá bandariskur stjórn- málamaður, sem liklegur er til að geta komið nýju skriöi á sambúð- armál Bandarikjanna og Vestur- Evrópu. Ford beitir ekki brögöum Viðhorf Fords — alla vega eins og þau eru kunn á þessari stundu — eru likleg til að vekja með Evrópumönnum meira traust i garð Bandarikjanna en þeir hafa til þeirra borið að undanförnu. Telja má fullvist, að hann reyni ekki að beita neins konar pólitisk- um brögðum eins og forveri hans á forsetastóli reyndi, heldur muni hann leggja sig fram um að hlusta á sjónarmið Evrópu- manna, en til þess neyðist hann alla vega, þar sem hann hefur sáralitla reynslu á sviði alþjóða- mála. Evrópa viII jafnrétti Sé litið til þriggja mótherja eða samherja hans i Vestur-Evrópu (menn geta notað hvort hugtakið sem er, eftir þvi hvernig þeir lita á málin) er ljóst, að þeir hafa allir áhuga á bættri sambúö við Band- arikin. Þetta er einkar athyglis- vert, hvað snertir forseta Frakk- lands. En jafnframt þvi, sem þre- menningarnir vilja bættj sambúö við Bandarikin, vilja þeir einnig, að Evrópa öðlist „jafnrétti” á við Bandarikin. A þetta atriöi hefur Giscard d’Estaing, forseti Frakk- lands, einmitt lagt höfuðáherslu i viðræöum rikjanna niu i Efna- hagsbandalagi Evrópu um öryggismálastefnu þeirra og samvinnu þeirra á þvi sviði i framhaldi af samstarfinu á sviði efnahagsmála. Kissinger og sjónarmið hersins Yfirlýsingar Fords, Banda- rikjaforseta, um að viðræðunum við Sovétrikin um takmörkun á framleiðslu kjarnorkuvopna verði haldið áfram, falla i góðan jarðveg i Vestur-Evrópu. En i þessu sambandi eru ekki allir bandariskir stjórnmálamenn sammála. Margir þeirra vilja halda áfram framleiðslu og þróun kjarnorkuhergagna af ótta við, að Sovétrikin vinni annars forskot fram yfir Bandar. i vopnafram- leiðslu. En Kissinger hefur upp á siðkastið reynt að koma til móts við sjónarmið James Schlesing- ers, varnarmálaráðherra, i þessu efni með þvi að segja, að ekki verði hægt að semja um þessi mál við Sovétrikin nema út frá eigin styrkleika og reynist Sovétrikin ekki fáanleg til að stöðva fram- leiðslu sina á kjarnorkuvopnum, neyðist Bandarikin til að fylgja fordæmi þeirra. Heimurinn ferst bara einu sinni En Kissinger hefur sagt fleira. Hann hefur lýst yfir, að þvi séu mörk sett, hve langt verði gengiö I framleiðslu gereyöingarvopna af þeirri einföldu ástæðu, að hver maður verði ekki drepinn nema einu sinni með sömu vopnunum og heimurinn geti lika aðeins far- ist einu sinni. Með öðrum oröum: Það er ekk- ert vit i þvi að hlaða hverri vetnissprengjunni ofan á aðra. En eins og Kissinger hefur einnig lagt áherslu á: Það getur oröið býsna erfitt að sannfæra þá, sem með hermálin fara, um réttmæti þessara orða. Vígbúnaðurinn og fátæktin í heiminum Þar sem ráðstefna Sameinuðu þjóðanna i Búkarest um mann- fjölgunarvandamálið er nýaf- staðin, kemst maður varla hjá þvi að leiða hugann að þvi, hversu skynsamlegra þaö væri að verja Framhald á bls. 4. o Laugardagur 14. september 1974.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.