Alþýðublaðið - 14.09.1974, Side 8
REYKVÍKINGAR
Sækið opna klúbbfundinn okkar að Hótel
Borg, mánudagskvöldið 16. september kl.
20.30.
Umræður
Verðlaun
Veitingar
Ný umferðarlitkvikmynd
Allir alltaf velkomnir.
Klúbburinn Öruggur akstur
Reykjavik.
DANSLEIKUR
til stuðnings Styrktarfélagi lamaðra og
fatlaðra vegna Reykjadals i Mosfells
sveit verður haldinn i Þórskaffi ó morg-
un, sunnudaginn 15. sept.
Skemmtiatriði verða: Danspar frá dans-
skóla Sigvalda og leikararnir Geirlaug
Þorvaldsdóttir og Jón Júliusson skemmta.
— Hljómsveit Guðmundar Sigurjónssonar
leikur frá 8-1.
i Aðstoðarlæknir
Staha aöstoharlæknis vih Svæfinga- og gjörgæsludeild
Borgarspitalans er laus til umsóknar.
Stahan veitist frá 1. des. til eins árs eða eftir samkomu-
lagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavik-
ur.
Upplýsingar um stöðuna veitir yfirlæknir deildarinnar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist Heilbrigðismálaráði Reykjavikurborgar fyrir 20.
okt. n.k.
Reykjavik, 13.09. 1974.
Heilbrigðismálaráð
Reykjavikurborgar
Blaðburðarfólk
óskast til að
bera blaðið út
i eftirtaldar
götur
Aragata
Dunhagi
Fálkagata
Hagatorg
Oddagata
Lynghagi
Ægissiða
Fornhagi
Hagamelur
Hjarðarhagi
Kvisthagi
Kópavogur
Fagrabrekka
Melheiði
Nýbýlavegur
Skálaheiði
Álftröð
Brattabrekka
Bræðratunga
Digranesvegur
Fifuhvammsvegur
Hliðarhvammur
Hliðarvegur
Hrauntunga
Reynihvammur
Viðihvammur.
Hafið samband við
afgreiðslu blaðsins.
Sími 14900
alþýðu
n RTilfil
Að loknu
Norðurlandamóti
Eins og ég nefndi i lok síð-
asta þáttar, ætla ég nú að
ræða um íslenska liðið,
frammistöðu þess, þjálfun
og samanburð við hin liðin.
Nýliðar i karlalandsliðinu nú
voru þeir Ragnar Ólafsson úr
G.R. og Sigurður Thorarensen úr
Keili.
Þessir tveir hafa tekið þátt i
EM unglinga, Sigurður i tvö skipti
en Ragnar Ólafsson i eitt, þ.e. nú i
sumar i Helsinki. Hér eru á ferð
mjög góð efni og hafa þeir báðir
lagt mikla rækt og alúð i æfingar.
Þegar þeir hafa öðlast meiri
reynslu i alþjóðlegum keppnum
má reikna með þeim sem föstum
landsliðsmönnum. Þeir nýliðarn-
ir komu vel út úr NM i Grafarholti
og tryggði frammistaða þeirra i
einstaklingskeppninni seinni dag-
inn sigur okkar yfir Finnum, en
þeir léku báðir á 74 höggum, sem
er góður árangur i stórmóti. Ég
tel lika að á þeim ungu strákun-
um hafi hvilt sérstök pressa, þ.e.
að sanna að þeir væru vandanum
vaxnir og ættu heima i karla-
landsliði svo ungir — á 17. og 18.
ári.
G.S.Í. tekur að visu nokkra á-
hættu með þvi að velja jafnunga
drengi i karlalandsliðið, áður en
þeir hafa náð að herðast i ung-
lingalandsliði og öðlast meiri
keppnisreynslu. 1 þessu móti
stóðu piltarnir fyrir sinu, en þó tel
ég rétt að hafa þetta i huga og
reyna að byggja á reynslu nokk-
urra ára i alþjóðamótum.
Eigum við að gefa þeim eldri
það eftir að geta keppt annað
hvert ár i EM eða NM, þegar
unglingalandsliðið keppir árlega i
EM-unglinga?
1 fjórleiknum stóðu þeir Ragnar
og Sigurður sig ágætlega. Loftur
Ólafsson virtist ekki finna sig i
mótinu og átti i einhverjum örð-
ugleikum með flatarleikinn, en
Loftur er stundum mistækur i
púttum. Ef til vill hefur golfleiði
hrjáð hann eins og fleiri.
Keppnisprógrammið i sumar hef-
ur verið mjög stift og varla fri
eina einustu helgi. Brautarleikur-
inn hjá Lofti var i góðu lagi. 1
fjórleiknum siðari daginn gekk
mjög illa hjá Lofti og Björgvin og
vorum við heppnir að þurfa ekki
að taka það skor með. Ég held, að
Loftur og Björgvin passi ekki allt-
of vel saman i fjórleik, högglag og
lengd þeirra er það ólikt. Ég hefði
haldið að t.d. Ragnar Ólafsson og
Björgvin væru sterkari samherj-
ar.
Jóhann Benediktsson hefur
leikið gott golf i sumar og var
löngum með efstu mönnum i
stigakeppni G.S.I., enda þótt
hann næði ekki stigum i nokkrum
siðustu mótunum. Hann hefur þó
ekki náð sinu besta i Grafarholti,
þótt hann hafi stöku sinnum feng-
ið góðan hring þar. Ég held, að
Jóhann hafi verið kominn yfir
þann topp, sem hann var i fyrr i
sumar, enda erfitt að vera i formi
frá þvi i mai fram i september.
t einstaklingskeppninni náði
hann ekki sinu besta og i fjór-
leiknum með Kjærbo tókst honum
ekki að samhæfa leik sinn. Ég
held, að Kjærbo og Jóhann hafi
ekki náð almennilega saman og
farið eigin leiðir i stað samleiks,
sem er forsenda árangurs i fjór-
leiknum.
Þorbjörn Kjærbo var i góðri æf-
ingu fyrir mótið og hef ég sjaldan
séð hann hitta boltann betur en nú
seinni hluta sumars. Hjá honum
gætti þó leikþreytu að minum
dómi. Æfingar landsliðsins sið-
ustu vikurnar ofan i stanslaus op-
in mót voru ef til vill strangar fyr-
ir mann i fullri vinnu. Seinni dag-
inn tók ég eftir, að Kjærbo var
farinn að hitta boltann verr en áð-
ur, og var þá þreytan að segja til
sin. Keppnisreynsla hans og
harka er mikill styrkur fyrir
landslið okkar.
Björgvin Þorsteinsson var
máttarstólpi liðsins, enda þótt
hann næði ekki sinu besta. Eins
og ég sagði áður tel ég, að Ragnar
Ól. hefði verið upplagður sam-
herji Björgvins i fjórleiknum.
Þeir eru báðir högglangir, nota
mikið há járnahögg og slá ákveð-
ið á flagg. Björgvin var stundum
dálitið villtur i teighöggum og
hleypti það upp skor hans. Hann
þarf að tileinka sér járnahögg af
teig, þegar driverinn svikur, likt
og vinir okkar frá Norðurlöndum.
Högglengd hans og uppáskot eru i
það góðu lagi, að hann getur leyft
sér að slá teighögg með járnum á
lengri brautunum. Leikleiði var
kannski farinn að hrjá meistar-
ann, eins og marga okkar menn.
í golfi
Islenska liöið sem heild var i
góðri þjálfun, en árangurinn var
talsvert fyrir neðan getu.
Heildarskorið var 1090 högg en að
minu mati áttu okkar menn að
vera 20-30 höggum betri eða 1060
högg. Við stöndum alllangt að
baki Norðmanna, Svia og
Dana að getu og megum nokkuð
vel við una að vera 20-40 höggum
á eftir þeim stórveldum.
Einna mest áberandi er still
landsliðsmanna þessara þjóða,
þ.e. hversu mjög þeir slá niður á
boltann með járnunum og ná bak-
spuna. Þeir taka alltaf torfu með,
sem okkar menn gera ekki að
jafnaði. Greinilegt er, að þeir
hafa notið reglulegrar golf-
kennslu um árabil og oft frá barn-
æsku.
Innan fárra ára fara okkar
menn að helga sér þetta högglag
og slá ákveðið niður á boltann i
öllum brautarhöggum. Leikni
frænda vorra i glompum minnir
okkur á að æfa þann þátt og gera
fjölda af glompum á öllum okkar
völlum. Læt ég þetta nægja að
sinni en mun koma að þessum at-
riðum siðar.
EinarGuönasoir^
Af golfvellinum >•
ER KÆRA VIKINGS LÖGLEG?
- DÖMSTOLL KRR TEKUR
I dag mun dómstóll KRR taka
fyrir kæru Vikings gegn Framum
notkun á ólöglegum leikmanni i
leik liðanna i 1. deild. Nokkur á-
greiningur er vegna kæru Vik-
ings, og vilja margir halda fram,
Meistarakeppni Fl hófst I
morgun á Grafarholtsvellin-
um og verður framhaldið á
morgun.
Þátttakendur i keppninni
verða klúbbmeistarar og þeir,
sem hlotið hafa flest stig til
landsliðsins. Það verða þvi
allir af bestu golfleikurum
landsins samankomnir á
Grafarholtsvellinum um
helgina.
Þá mun fara fram á
Hvaleyrarvellinum HP open,
en sú keppni er 18 holur með
hálfri forgjöf og stendur
keppnin yfir i dag.
mAlið fyrir í dag -
að kærufresturinn sé sjö dagar
eins og stendur i 11. gr. reglu-
gerðar KSt um knattspyrnumót,
og aðrir að kærufrestur sé 6 mán.
eins og var i reglum ISl, en á
þingi tSt um siðustu helgi var sá
frestur styttur niður i einn mán-
uð.
111. gr. er talað um ástandsbrot
sem liggja ljós fyrir áður en leik-
ur hefst, svo það virðist liggja
beint við að kæra Vikinga flokkist
vart undir þessa grein. En i 11 .
gr. er lika minnst á dóms- og
refsiákvæði tSt, sem virðast vera
málinu mun skyldara.
En til gamans birtist 11. gr.
reglugerðar KSt um knattspyrnu-
mót.
ll.gr.
öll mótmæli varðandi undir-
búning kappleiks, keppnisvöll,
dómara, línuverði, boltastærð eða
annað viðvikjandi framkvæmd
leiksins skulu borin fram við
dómara fyrir leikinn af farar-
stjórn eða fyrirliða, ella hafi leik-
aðilar fyrirgert rétti sínum til að
kæra nefnd ástandsbrot.
Allar kærur skulu hafa borist
framkvæmdaraðila áður en 7
dagar eru liðnir frá leikdegi.
Um málatilbúning og kæru-
gjald fer samkvæmt dóms- og
refsiákvæðum ÍSt. Kærugjald er
óendurkræft.
Þótt félag sé uppvist að leik-
broti, losar það ekki mótaðilann
við keppnisskyldu.
Mótsstjórn sker úr um öll vafa-
atriði varöandi framkvæmd móts
eða einstakra leikja, og hún hefur
rétt til þess að breyta leikstað eða
leikstund.
Þannig hljóðar reglugerð KSt
um ástandsbrot, en einhvern veg-
inn finnst manni kæra Vikinga
tæplega geta flokkast undir
ástandsbrot, sem á að liggja ljóst
fyrir leik. En það leið lengri timi
en sjö dagar frá leik Fram og
Vikings, þar til dómstóll KRR
komst að þeirri niðurstöðu, að
Elmar væri ólöglegur, þannig að
tæplega er hægt að flokka þessa
kæru undir áðurnefnda 11. gr.
En um helgina mun verða skor-
ið úr, hvort áðurnefnd kæra skuli
flokkast undir refsiákvæði tSl eða
11. gr.
Framarar munu ætla að leggja
fram gögn I málinu, sem þeir
telja skipta miklu máli, en það er
skilningur þeirra sem sömdu 11.
gr. á sínum tima.
0
Laugardagur 14. september 1974.