Alþýðublaðið - 14.09.1974, Síða 12

Alþýðublaðið - 14.09.1974, Síða 12
alþýðu 11 Bókhaldsaðstoð með tékka- KÓPAVOGS APÓTEK færslum Opiö öll kvöld til kl. 7 up) BÚNAÐAR- My BANKINN Laugardaga til kl. 12 SENDIBIL ASTODÍN Hf ■ ,,Er þetta gott og heilsu- samlegt hérað?” spurði að- komumaður. „Það held ég nú. Þegar ég kom hingað, gat ég ekki mælt orð af vörum. Það var varla nokkurt hár á höfði mér, og ég gat ekki stigið i fæturnar. Ég var algerlega ósjálfbjarga.” „Dásamlegt! Hversu lengi hafið þér búið hér?” „Ég er fæddur hérna. ■ ■ ■ Fasteignasali i Reykjavik var að reyna að selja Keflvik- ingi jörð á Vatnsleysuströnd. Hrósaði hann jörðinni á hvert reipi og lýsti þvi fjáglega, hversu miklir framtiðar- möguleikar væri bundnir við hana. „Vatnsleysuströndin þarfnast aðeins góðs fólks og vatns,” sagði hann. „Helvíti þarfnast hins sama,” sagði sá úr Keflavíkinni. ■ ■ ■ Tveir þorparar höfðu verið að hlýða á prédikara einn, sem var frjálslyndur mjög, og kvaðst ekki trúa á helviti. „Heyrðir þú, að hann sagði að helviti væri ekki til?” sagði annar þorparanna. „Já,” svaraði hinn. „Hvað um það?” „Nú,” sagði vinur hans, „mér dettur bara i hug, hvað á að verða um okkur, þegar við erum dauðir, ef þetta er rétt hjá honum.” Ung stúlka, sem hafði farið umhverfis jörðina með föður sinum sagði, þegar hún kom heim, að hann hefði kunnað bezt viö sig i Feneyjum. „Já, skurðirnir eru dásam- legir, að ógleymdum lista- verkunum.” „Nei, pabbi kunni svo vel við að geta dorgað út um gluggana i gisthúsinu.” „Hvernig kunnir þú við þig i Sviss?” „Ágætlega, maður fær alls- staðar svo falleg, marglit póstkort.” ■ ■ ■ „Þessar rústir eru 2000 ára gamlar,” sagði leiðsögu- maðurinn við ferðamannahóp. „Hvaða vitleysa! Það er ekki nema 1943 ennþá.” Að þessu sinni fær skrifstofustjóri borgarverk- fræðings, Jón G. Kristjánsson, kaktusinn okkar fyrir að hafa ekki staðið við gefin loforð viö Guðrúnu Stefánsdóttur, sem býr á erfðafestulandi sfnu i Fossvogi. Borgin gerði sér litið fyrir og hóf byggingu skóla i landi hennar án þess svo mikið sem að láta hana vita, eins og blaöið skýrði frá i vikunni. Guðrúnu hefur hvað eftir annað veriö lofað Ióð og ibúð fyrir tveggja hektara land sitt i Fossvoginum, en efndir hafa ekki verið i hlutfalli við loforðin. Reyndar er Jón ekki einn um að hafa lofað Guðrúnu og svikið, þvi fyrirrennarar hans istarfinu, Már Gunnarsson og Ellert B. Schram, höfðu báöir sama háttinn á. — Jón getur sótt kaktusinn á ritstjórnina að Skipholti 19 hvenær sem er. (H)RÓS í HNAPPA- GATIÐ (H)róshafi Alþýðublaðsins þessa vikuna er Rauði kross Is- lands, fyrir stofnun sjúkra- hótelsins, sem hann er að koma af stað og er nýjung i heil- brigðismálum hér á landi. Blað- ið sagði frá sjúkrahótelinu i vik- unni. Eggert Asgeirsson, fram- kvæmdastjóri R.K.l. tók við (h)rósinni fyrir hönd allra, sem styrkt hafa stofnunina með vinnu eða fjárframlögum, svo henni varð kleift að hrinda þess- ari hugmynd i framkvæmd. Eftir að Helga Margrét Guðmundsdóttir hafði nælt (h)rósina i barm Eggerts og smellt kosti á kinn hans, sagði hann, að allir sem að þessu stæðu væru mjög stoltir og sannfærðir um nytsemi þessar- ar stofnunar. Enn væru nokkur atriði varð- andi rekstarfyrirkomulag ó- leyst, en það væri allra von aö fólki myndi lfða vel þarna og gott samstarf yrði við spitalana. Tannviðgerðir Eitt sársaukamesta mál okkar þjóðar og lands er mikið til leyst og við erum þakklát og fegin: við kröfðumst þess jafnan að kjaftur hvers einasta manns og hver kolbrunnin tönn yrði læknuð og gulli slegin. Og réttlætið sigrar alltaf hvað oft sem það tefst, i öndvegi skipar sér þekkingin og vitið, nú geta menn rifið kjaft eins og þörfin krefst, á kostnað hins opinbera nagað og bitið. í baráttu lifsins er kjafturinn kristileg vörn sem kemur sér vel fyrir ofvitann jafnt sem glópinn, að visu er aðgerðin ennþá miðuð við börn en innan skamms bætast fullorðnu dýrin i hópinn. Xc .•>7^' PIMM 6 förnum vegi Björgvin Pálsson, ncmi: Tvl- mælalaust. Eg hef hugsað mér að sjá Kardimmommubæinn og svo nýja stykkið hjá Þjóöleikhúsinu eftir þennan, sem skrifaði „Fló á skinni.” Erna Matt, vinnur á verkfræði- stofu: Maöur ætlaraðgeraþað á hverju ári, en oft verður minna úr efndunum. Ég er nú ekki far- in að hugsa um leikhúsin ennþá nema hvað eg hef hugsað mér að sjá leikritið eftir Feydeau i Þjóðleikhúsinu. Einar Þorsteinsson, málari: Ég er staðráðinn i þvi að fara mikið i leikhús i vetur, — maður fer aldrei nógu mikið i ieikhús. Ætli ég fari ekki með Ernu á Reydeau og svo á jólaleikrit Þjóðleikhússins, — það verður áreiðanlega gott stykki. Kristmundur Guðmundsson, blikksmiður: Ég hef hugsað mér það. Ég hef reyndar ekki kynnt mér verkefnaskrá leik- húsanna i vetur, en ég ætla að bæta úr þvi, að ég fór aldrei i leikhús i fyrra. Óskar Kristjánsson Súgandafirði: Ég hef nú ekki tækifæri til að gera mikið af þvi, — ég er nefnilega utan af landi. A Súgandafirði er kannski fært upp eitt leikrit á ári, en oft falla ár úr. Ætli maður reyni ekki að skreppa i leikhús, þegar maður kemur i bæinn.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.