Alþýðublaðið - 05.10.1974, Side 12
alþýðu
I n fTfiTfil
ldsaóstoó
leðtékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
SSBSSBB
KOPAVOGS APOTEK
Opifi öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
SENDIBIL A STÖÐIN Hf
30
ÁRAHÚMOR
Hún var aft segja frá vinkon-
um sinum: „Svo er það
hún Lóa. Hún er 25 og er þri-
gift. Allir mennirnir hennar
hafa heitið Villi.”
„Hún er sannkölluð Villi-
kona.”
„Fær hún að ráða öllu i hjú-
skapnum?”
„Það held ég nú. Hún skrif-
ar dagbökina sina viku fyrir-
fram.”
„Hvað er hún gömul?”
„Tuttugu og fimm ára.”
„Nú, hálffimmtug!”
■■■■■■■■
„Konan min hefur notaö
megrunarrúllu i þrjá mánuði.’
„Ber það tilætlaðan
árangur?”
„Það veit ég ekki, en það
sést munur á rúllunni.”
■■■■■■■■■
„Er hún lagleg?”
„Það er hún sannarlega.
Þegar hún er i strætisvagni,
litur enginn á auglýsingarnar
þar.”
Vinnustúlka (i vorhrein-
gerningum): „Það eru fjórir
menn niðri með ryksugur.
Þeir segja, að þeir eigi að
sýna, hvernig þær starfi.”
Húsfreyja: „Látið einn i
hverja stofu og segið þeim að
byrja.”
,,Má ekki bjóða yður ofur-
litið meiri „dessert”?”
„Jú, en aðeins einn munn-
bita.”
„Bella, gjörið svo vel að
fylla diskinn hjá frú Hansen!”
„Ég er orðin dauðþreytt á
honum Steina.”
,,Það er sjálfri þér að kenna.
Þú áttir ekki að ganga svona á
eftir honum.”
„Hefur þú þekkt hana Lillu
lengi?”
„Já, já, alveg frá þvi að við
vorum jafnöldrur.”
Malla: „,Ég ætla ekki að
giftast, fyrr en ég er orðin
þritug.”
Milla: Ég ætla ekki að verða
þrftug, fyrr en ég er gift.”
Dóa: „Hann Goggi er alveg
vitlaus I mér.”
Lóa: „Taktu það ekki nærri
þér. hann var vitlaus áður en
hann kynntist þér.”
KAKTUS-
ORÐAN
Viö sjáum ástæðu til þess nú
að veita kaktusinn okkar þeim
ferðamönnum, sem gist hafa i
skálum Ferðafélags Islands
og sýnt af sér fádæma sóða-
skap og hirðuleysi, sem hefur
valdið þvi, að þeir hjá Ferða-
félaginu hafa hugleitt að loka
skálunum nema fyrir félags-
mönnum sinum.
En sá, sem nú býðst kaktus-
inn til eignar og umhirðu, er
fjallkóngur þeirra Biskups-
tungnamanna, eða sá sem tók
viö af honum eftir að hann var
fluttur slasaður til byggða. Við
sögðum frá viðskilnaði leitar-
manna úr Biskupstungum i
viðtali við Einar Guðjohnsen,
framkvæmdastjóra Ferðafé-
lagsins, á baksiðunni i vik-
unni, en þar lýsir hann við-
skilnaöi leitarmannanna i
Hvitanesskála og segist aldrei
muna aðra eins aðkomu og um
siðustu helgi.
Kaktusinn getur fjallkóng-
urinn eða staðgengill hans sótt
á ritstjórn Alþýðublaðsins,
Skipholti 19, 3. hæð.
(H)RÓS í
HNAPPA-
GATIÐ
(H)rós Alþýðublaðsins fellur
að þessu sinni i skaut Huldu
Viktorsdóttur, formanns
Kvennadeildar Slysavarnafé-
lags Islands, fyrir hönd hinna
ötulu félaga deildarinnar, sem
hafa undanfarin ár stutt við
bakiðá Slysavarnafélaginu með
fjársöfnunum af fádæma dugn-
aði.
Við gripum tækifærið og af-
hentum Huldu (h)rós okkar nú,
þegarfélagskonur voru i óðaönn
að undirbúa árlega fjársöfnun
sina, sem að þessu sinni er það
sem þær nefna „happamark-
að”, og verður haldinn um helg-
ina i húsi Slysavarnafélagsins
við Grandagarð, eins og við
skýrðum frá i blaðinu i gær. A
markaðnum er margt girni-
legra muna, bæði föt, bækur og
margt fleira, á ótrúlega lágu
verði.
„Við höfum snikt þetta allt
saman”, sagði Hulda, þegar
blaðamaður Alþýðublaðsins
hafði nælt (h)rósinni i barm
hennar, „en það er mjög gaman
að fara i fyrirtæki i nafni Slysa-
varnafélagsins og snikja, þvi
það er eins og öllum finnist þeir
eiga eitthvað I félaginu. En það
er leiðinlegt,'hvað er skemmt
mikið fyrir okkur, I björgunar-
skýlum og annars staðar þar
sem ekkert eftirlit er. Mér
finnst, að fólk eigi að leggja
metnað sinn I að hlifa einmitt
þessu, sem getur á næstu stundu
bjargað mannslifi”.
Blað hinna dauðu
eða Kirkjugarðurinn
Timinn er hlynntur okkur, einkum þeim dauðu,
enda framsóknarblað,
og safnar i eina syrpu þeim riku og snauðu
á svolitið afviknum stað.
Og hvar sem er dvalið og drollað að lokinni ævi,
þeir dauðu eiga sitt blað
og vitnisburð sem er heldur betur við hæfi,
við höfum bréf upp á það.
Af fágætri snilld er meitlaður minnisvarðinn
um menn sem hér hafa gist.
Og nú vilja allir komast i KIRKJUGARÐINN
og komast þangað sem fyrst.
FIMM á förnum vegi----------------------------------------------
Hvaða verðhækkanir hafa komið verst við þig?
Benjamln Júliusson, vaktmaö-
ur: Það eru ábyggilega verð-
hækkanirnar á landbúnaðarvör-
um. En svo má auðvitað nefna
hækkanirnar á sykri og kaffi og
fleiri hækkanir mætti sjálfsagt
telja, sem koma illa við mann.
Siguröur Friöriksson.starfsmaö-
ur á Keflavikurflugvelli: Verð-
hækkunin á bilum er tilfinnan-
legast fyrir mig persónulega.
Sveinn Jónsson, leigubilstjóri:
Það er bensinhækkunin tvi-
mælalaust og aðrar hækkanir,
sem áhrif hafa á afkomu okkj,
sem lifum af þvi að gera út bila.
Ég er sjálfur leigubilstjóri og
hef lifað á þvi i 45 ár.
Elin Steindórsdóttir, húsmóöir:
Bensinhækkunin er tilfinnanleg-
ust að minnsta kosti fyrir at-
vinnubilstjóra. En auk þess held
ég, að verðið á matvörkni sé
orðiö alltof hátt fyrir venjulegt
launafólk.
Sólveig Svavarsdóttir, skrif-
stofustúlka: Allar þessar verð-
hækkanir koma illa við mann.
Það er orðið alltof dýrt að lifa,
að minnsta kosti virðist mér
það, meðan eiginmaðurinn er i
skóla.
✓