Alþýðublaðið - 02.04.1975, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 02.04.1975, Qupperneq 1
Verður „valdataka Hitlers” endurtekin í Þýskalandi nútímans? | sjá — bls. 5 MIÐVIKUDAGUR 2 apríl 1975 — 75. tbl. 56. árg. SJOMENN SÆTTA SIG EKKI VIO ASÍ SAMNINGANA „Það sem við vildum ekki sætta okkur við i samningum ASI er fyrst og fremst það, að þar var samið til skamms tima, og eingöngu var um að ræða láglaunabætur,” sagði Jón Sigurðsson, for- seti Sjómannasambands íslands, þegar Alþýðu- blaðið hafði tal af honum i gærkvöldi. „Það er ekki þannig, að við höfum á móti þvi að semja fyrir þá lægst laun- uðu,” sagði Jón, „en það er okkur bara ekki nóg, það hefur verið tekið svo mikið af sjómönnum með lögum. Stærsta atriðið er, að hlutakjörin hafa verið skert svo stórkostlega aftur og aftur, nú siðast i september, að við sættum okkur ekki við það.” Fulltrúar sjómanna og útgerðarmanna sátu á fundi með sáttasemjara framundir kvöld i gær, og að sögn Jóns gekk hvorki né rak, og virtust fulltrú- ar útgerðarmanna ekki hafa vilja til að leiðrétta hlutakjörin. Næsti fundur þessara aðila með sátta- semjara verður á morg- un. „ÞJÚÐIN HEFUR BRUGOIST STJÚRNARSKRAflMALINU” EN FORSÆTISRAÐHERRA VILL FÁ HREINAR LfNUR „Við höfum tekið á móti svörum frá félagasam- tökum og einstaklingum við beiðni okkar um til- lögur og hugmyndir varð- andi endurskoðun stjórn- arskrárinnar, en þar var ekki um auðugan garð að gresja,” sagði Hannibal Valdimarsson formaður stjórnarskrárnefndar. „Mestur hluti þeirra , sem voru beðnir um til- lögur, svaraði engu, en þeir sem svöruðu gerðu það á mjög þröngu sviði eða lögðu fram minni- háttar tillögur eftir að frestur til að skila svör- unum hafði verið fram- lengdur ” Þetta kom i ljós á sið- asta fundi nefndarinnar, sem var haldinn fyrir skömmu, og var ákveðið á þeim fundi, að þar sem þjóðin hefði brugðist i undirbúningi á endur- skoðun stjórnarskrárinn- ar, skyldu nefndarfulltrú- ar búa sig undir að leggja fram sinar eigin tillögur á næsta fundi. Sagði Hanni- bal, þegar við ræddum við hann, að Hkast til verði að byggja á hug- myndum nefndarmanna einna, þótt gert hafi verið ráð fyrir þvi i upphafi, að byggt yrði á aðsendum hugmyndum og tillögum. Stjórnarskrárnefndinni voru engin timamörk sett i upphafi til að skila áliti, og var haft eftir Hannibal Valdimarssyni hér i Al- þýðublaðinu i vetur að nefndin væri reiðubúin að flýta störfum sinum æskti rikisstjórnin þess. Geir Hallgrimsson forsætis- ráðherra sagði hinsvegar i samtali við Alþýðublað- ið i gær, að engin tima- mörk hefðu verið sett ennþá,„en ég hef áhuga á þvi, að málin fari að skýr- ast,” sagði forsætisráð- herra, „en það er Hanni- bal sem ræður ferðinni.” „Fyrirboðar atvinnuleysis leyna sér ekki” „Fyrirboðar atvinnu- leysis leyna sér ekki. Árið 1973 var úthlutað i Reykjavik einni, lóðum undir 667 ibúðir, en árið 1974 er þessi úthlutun komin niður i 370 ibúðir. Til samanburðar má geta þess, að við upphaf atvinnuleysistimabilsins frá 1968—70, var aðeins úthlutað árið 1968 lóðum undir 366 ibúðir, og var það fyrirboði þess mikla atvinnuleysis. Þessi aft- urkippur f lóðaúthlutun- um var lengi að vinnast upp, og var komið fram á sumar 1970, þegar jafn- vægi náðist aftur.” Þannig segir i ályktun frá aðalfundi Múrarafé- lags Reykjavfkur. Þá er í ályktuninni skorað á rik- isstjórnina að gera ráð- stafanir til að tryggja Húsnæðismálastofnun rikisins nægjanlegt fjár- magn, svo unnt verði að ljúka þeim ibúðum, sem eru i byggingu, og bent er á að lán stofnunarinnar voru 42% færri árið 1974 en árið áður. I ályktuninni er skorað á opinbera aðila að draga ekki úr atvinnuaukandi framkvæmdum, sem fyrirhugaðar hafa verið. Ennfremur segir: Hendi sama slys og varð á árunum 1968—70, þá er ekki i önnur hús að venda eins og þá, þar sem alvarlegt atvinnuleysi er hjá þeim nágrannaþjóð- um okkar, sem islenskir byggingaiðnaðarmenn gátu helst flúið til. ^ Það er nú liðin tíð ASÍ vill fremur aukinn skattafslátt en sölu- skatts- og tollalækkun Ráðstefna um menninguna Samband islenskra sveitarfélaga hefur boð- að til ráðstefnu í Reykjavik dagana 6—8. april. Sambandið á nú I vor 30 ára afmæli og þetta er 25 ráðstefna sam- bandsins á s.l. 10 árum. Að þessu sinni fjalla sveitarstjórnirnar um menningarmál ein- göngu og samskipti sveitarstjórna við rikið í þeim efnum. Meðal annars verður rætt um starfsemi menntamála- ráðs, Sinfóniu hljóm- sveitarinnar og Lista- safns Islands. Fulltrúar listamanna og ýmissa áhugamannasamtaka munu einnig kveða sér hljóðs um viðhorf sfn til málsins. Ráðstefnan verður sett f Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 6. aprfl með ræðu menntamála- ráðherra, Vilhjálms Hjálmarssonar, sem fulltrúa rikisvaldsins. „Yfirlýsingin er heldur jákvæð, — jákvæðari en efnahagsmálafrumvarp rikisstjórnarinnar var, og gefur til kynna, að ýmsar leiðir opnist, sem i frum- varpinu var lagt til, að farnar yrðu og ættu að vera til bóta,” sagði Björn Jónsson, forseti ASÍ, i samtali við Alþýðu- blaðið í gær. Umrædda yfirlýsingu sendi rikisstjórnin út dag- inn, sem samningar milli ASl og Vinnnuveitenda- sambandsins tókust, og segir þar m.a., að rikis- stjórnin hyggist beita sér fyrir þvi, að sú 2000 miil- jón króna skattalækkun, sem gert er ráð fyrir i efnahagsmálafrumvarpi hennar gagnist sem best þeim, sem við erfiðust kjör búa. Sagði Björn, að efna- hagsmálanefndum Al- þingis hefði einmitt i gærrhorgun verið sent bréf, þar sem farið er fram á, að öllum þeim heimildum til skatta- lækkana, sem i efnahags- málafrumvarpinu eru, verði beitt til lækkunar beinna skatta. „Þarna fara saman að vissu leyti skoðanir okkar og yfirlýs- ing rikisstjórnarinnar,” sagði Björn, „en við vilj- um, að til komi nýr skattafsláttur eða aukinn skattafsláttur, sem verði útborganlegur og menn fái i hendur það fé, sem á að veita i gegnum kerfið, þegar afslátturinn er orð- inn það mikill, að hann gerir meira en að fara upp i opinber gjöld. Þetta teljum við að komi jafnar niður en söluskatts- og tollalækkun, — og þar höfum við Þjóðhagsstofn- unina með okkur,” sagði Björn Jónsson. Geir Hallgrimsson for- sætisráðherra sagði i samtali við Alþýðublaðið, að ríkisstjórnin hafi ekki tekið nánari ákvörðun um skattalækkanirnar en kveðið er á um i efna- hagsmálafrumvarpinu. Benti hann á, að þar sé kveðiðá um,að heimilt sé að lækka beina skatta um 1160—1250 milljónir króna og óbeina um 6—800 mill- jónir króna. Þá sagði for- sætisráðherra, að i frum- varpinu væri heimild til að greiða sem barnalif- eyri þann mismun, sem verður þegar skattalækk- un verður meiri en sem nemur álögðum gjöldum. INNBROT Tveir menn, annar is- lenskur en hinn útlend- ingur, voru handteknir snemma á sunnudags- morgun og játuðu við yfirheyrslur að hafa brotist inn i fyrirtækið Listadún aðfaranótt sunnudagsins. Ennfremur játuðu þeir innbrot i kaffistofuna að Hafnarstræti 16, þar sem þeir stálu nokkru af matvörum fyrr um nóttina, og innbrot i teppaverksmiðju Það var vaktmaður næturvaktþjónustunnar i Súðar- og Dugguvogi, sem kom að þjófunum aðfaranótt sunnudags, þegar þeir voru að bera þýfi út úr fyrirtækinu Listadún, i bifreið sem útlendingurinn hefur yfirráð á. Lyklana höfðu þjófarnir skilið eftir I bilnum og fjar- lægði vaktmaðurinn þá, en þegar þeir urðu þess áskynja tóku þeir til fót- anna. Vaktmaðurinn hringdi þegar á lögregl- una og voru þjófarnir handteknir skömmu siðar.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.