Alþýðublaðið - 02.04.1975, Page 2
STJORNMÁL
Skýrsluæði á islandi
Það verður ekki séð á at-
höfnum ýmissa opinberra
stofnana, að þær skorði nú fé.
Á undanförnum vikum hafa
blöðunum borist nokkrar árs-
skýrslur um starfsemi nokk-
urra opinberra stofnana og
eru skýrslurnar þannig úr
garði gerðar að engu likara cr,
en að viðkomandi stofnanir
eigi guilnámur — eða a.m.k.
svo sem eins og eina oliulind
hver.
Kyrst kom skýrsla frá Rík-
isútvarpinu, mikil bók og vel
úr garði gerð skreytt myndum
og töflum. Jafnframt voru i
þessari vönduðu skýrslu
gefnar þær upplýsingar, að
stofnunin væri á hausnum,
skorti milljónir til þess
nað jafna útgjöld og tekjur.
lEkki var þess getið, hvernig
peningar fengust fyrir prent-
kostnaðinum.
Næsta skýrsla kom svo frá
Rannsóknaráði rikisins. Ekki
var lesmálið eins mikið og hjá
Rikisútvarpinu, en myndirnar
fleiri, siður auðari, pappir
betri og prentun áferöarfeg-
urri. Jafnframt var talsvert
mörgum siðum varið i að telja
upp hinar ýmsu stofnanir á
landinu, sem fást við rann-
sóknir á einu eða öðru, og birt
stúdíómynd af sérhverjum
forstöðumanni sérhverrar
stofnunar. Að sjálfsögðu þarf
ekki að taka það fram, að
rannsóknastofnanir islenskar
eru að falla saman af fjár-
skorti — nema auðvitað til
þess að láta prenta skýrslur á
myndapappir.
Þriðja skýrslan yfirgekk svo
hinar fyrri — enda frá þvi
merka fyrirtæki Landsvirkj-
un. Hér er um að ræða hreinan
sýnigrip í prentlist— enda
skýrslan hönnuð af einhverj-
um listrænasta auglýsinga-
hönnuði landsins. Pappirinn
hnausþykkur og gljáfagur
myndapappir, linurit og
töflur, súlurit og hvaðeina i
öllum regnbogans litum og
vandvirkni uppsetningar og
prentlistar slik, að ekki virðist
hafa vcrið unnt að gefa Geir
Hallgrimssyni forsætisráð-
herranafnbót i skýrslunni þótt
Geir hafi veriö búinn aö gegna
þvi embætti I meira en hálft ár
þegar skýrslan kom út.
Ekki ætla ég að leiða
neinum getum að því, hvað
skýrsla eins og þessi hefur
kostað viðkomandi stofnun —
eöa öllu heldur almenning i
landinu, sem verður að greiða
þegar allt kemur til alls.
Sjálfsagt er þar um að ræða
talsvert mörg hundruð þúsund
krónur. Fróðlegt væri að fá
það upplýst, svo og rök-
semdirnar fyrir þvi að opin-
berar og hálfopinberar stofn-
anir skuli standa i slíkri
„listaverkaframleiðslu” á
timum, eins og okkur er sagt
að nú séu.
—SB
Sumaráætlun i millilandaflugi
Flugleiða gekk i gildi i gær, 1.
april. Að þessu sinni verða
nokkru færri ferðir á Norður-At-
lantshafsleiðinni, milli Luxem-
borgar-lslands-Bandarik janna,
en verið hefur.
Þotur Loftleiða munu fljúga
18 ferðir á viku til Bandarikj-
anna, þar af 15 til New-York, en
3 til Chicgago. Tólf þessara
ferða verða frá Luxemborg,
tvær frá Norðurlöndum og ein
frá Bretlandi. Þar að auki er
timasetning á þotuflugi Flug-
félags Islands þannig, að
farþegar með þeim geta náð
framhaldsflugi frá íslandi til
U.S.A. með þotum Loftleiða.
Þotur Flugfélags Islands
munu fljúga 12 ferðir á viku frá
Keflavik til Kastrupflugvallar i
Kaupmannahöfn. Þar að auki
verða flognar ferðir fyrir SAS á
mánudögum og föstudögum.
Fjórar ferðir verða til Osló,
tvær til Stokkhólms og ein til
Frankfurt.
í samvinnu við SASog að hálfu
sem leiguflug verða fjórar
ferðir á viku frá Keflavik til
Narssars_suaq á Grænlandj
Skrúfuþotur Flugfélags Is-
lands munu fljúga 59 ferðir til
austurstrandar Grænlands
(Kulusuk) með ferðamanna-
hópa mánuðina júni-sept.
Færeyjaflug. Aö þessu sinni
veröur sú breyting á Færeyja-
flugi, að flogið verður frá Egils-
stöðum til Voga i Færeyjum. Er
það i fyrsta sinn, sem flugáætl-
un er gerð milli landa frá öðrum
flugvöllum en Reykjavikurflug-
velli eða Keflavik. Tvisvar i
viku verður Færeyjafiug sam-
stillt við flug milli Egilsstaða og
Hornafjarðar, þannig, að
farþegar frá Hornafirði geta
náð framhaldsflugi til og frá
Færeyjum.
Krefjast tafarlausra
úrbóta sjúkrahússmál-
anna á Suðurnesjum
Hópur áhugafólks um heil-
brigðis- og sjúkrahúsmál efndi til
fundar fimmtudaginn 13. mars
s.l. I Vik i Keflavik til undir-
búnings og kynningar á væntan-
legri stofnun styrktarfélags
sjúkrahúss Keflavikur-
læknishéraðs.
Á fundinn var boðið forráða-
mönnum sjúkrahússins, sveitar-
og bæjarstjórum, læknum
hérðasins og einnig formönnum
kvenfélaganna. Kynntu þeir
sjónarmið sin og voru undirtektir
þeirra mjög jákvæðar og áhugi
mikill á framgangi málsins.
„Markmið félagsins er að vekja
áhuga almennings og stjórnvalda
á brýnni nauðsyn þess að hef jast
nú tafarlaust handa við ný-
byggingu sjúkrahússins. Mun
félagið þrýsta fast á forráðamenn
heilbrigðis- og fjármála i landinu
og krefjast tafarlausra úrbóta i
sjúkrahúsmálum á Suðurnesjum.
Æskilegt væri, að öll félög og
klúbbar á svæðinu hefðu sam-
stöðu með félaginu f þessu máli”,
segir i fréttatilkynningu frá
undirbúningsnefndinni, sem efndi
til fundarins.
Þar segir ennfremur, að unnið
sé að undirbúningi stofnfundar og
verður hann auglýstur, er þar að
kemur.
A fundinum var samþykkt svo-
hljóðandi tillaga: „Fundur, hald-
innhinn 13. mars 1975, i fundarsal
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavikur, Hafnargötu 80,
ákveður að stofna félag til styrkt-
ar og eflingar Sjúkrahúsi Kefla-
vikurlæknishéraðs. Félagið verði
opið jafnt konum, sem körlum,
sem búsett eru á svæðinu”.
Sjávarútvegsráðherra hefur
skipaö Jóhann Guðmundsson,
efnaverkfræðing, forstjóra
Framleiðslueftirlits sjávar-
afurða frá 1. júli n.k. að telja.
Jóhann Guðmundsson er
fæddur i Reykjavik áriö 1930.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum I Reykjavik
og stundaði siðan nám viö há-
skólann i Köln og verkfræði-
háskólann i Munchen.
Prófverkefni hans fjallaöi um
aminosýrur (protein). Að
loknu námi starfaði Jóhann
sem efnafræðingur við síldar-
verksmiðjurnar á Neskaup-
stað og Vopnafirði og hjá
sildarútvegsnefnd. Þá starfaði
Jóhann hjá rannsóknastofu
Fiskifélags islands og siðast
hjá Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins frá stofnun hennar.
Auk Jóhanns sóttu um
stööuna Einar M. Jóhannsson,
eftirlitsmaður, Halldór Gisla-
son, efnaverkfræðingur, og
Helgi Angantýsson, sildar-
matsstjóri. -
Helgi E. Helgason
fréttastjóri
Alþýðublaðsins
Helgi E. Helgason, blaöamað-
ur, hefur verið ráðinn frétta-
stjóri Alþýðublaðsins frá og
með s.l. mánaðamótum.
Helgi hefur lengi starfað við
blaðamennsku og jafnan á Al-
þýðublaðinu. Hann hóf störf á
ritstjórn blaðsins árið 1967 sem
fastráðinn blaöamaður, en haföi
áður starfaö við blaðið I afleys-
ingum á sumrin. Hann var
framkvæmdastjóri Félags Is-
lenskra simamanna árin
1973-1974, en þá réðist hann aft-
ur til Alþýðublaðsins og hefur
starfað þar siðan. Helgi hefur
skrifað bæði fréttir, greinar og
um stjórnmál i blaðið,er virkur
félagi i Alþýðuflokknum — átti
sæti I flokksstjórn hans og er
varaformaður Sambands ungra
jafnaðarmanna. Helgi sótti
námskeið i blaðamennsku við
danska blaðamannaháskólann i
Arósum veturinn 1972.
Helgi E. Helgason er þritugur
að aldri, sonur Helga Sæmunds-
sonar, sem um árabil var rit-
stjóri Alþýðublaðsins.
,Guö launi fyrir hrafninn’
öllum, bæði skyldum og vanda-
lausum, er heiðruðu mig á 75
ára afmæli minu 17. þ.m. með
heimsóknum, blómum, skeyt-
um og ýmsum gjöfum, færi ég
minar innilegustu þakkir. Sér-
staklega þakka ég eigendum og
starfsfólki Kassagerðar
Reykjavikur hf. fyrir höfðing-
lega gjöf. 1 sambandi við ofan-
sagt, vil ég hafa sömu orö um og
Njáluhöfundur leggur i munn
Gunnars á Hliðarenda, þá Njáll
færði honum gjafir.
„Góðar eru gjafir þinar, en
meira þykir mér verð vinátta
þln”.
Vonast ég svo til, að það forn-
kveðna sé enn I gildi: Að Guð
launi fyrir hrafninn. Lifið heil.
Elias Sigfússon
Kleppsvegi 44.
£k Aðalfundur
Alþýðubankans h.f.
verður laugardaginn 12. april 1975 i Súlna-
sal Hótel Sögu i Reykjavik og hefst kl.
14.00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykkt-
um bankans.
Aðgöngumiðar að aðalfundinum ásamt
atkvæðaseðlum, verða afhentir hluthöfum
og umboðsmönnum þeirra i bankanum að
Laugavegi 31, dagana 10. og 11. april n.k.
Reykjavík 1. april 1975.
Bankaráð Alþýðubankans h.f.
Hermann Guðmundsson form.
Björn Þórhallsson, ritari.
Sími 8-55-22.
Opiö allan sólarhringinn |
1
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐ VERZLA i KR0N
$
&
| Hafnarf jaröar Apótek
ij§ Afgreiðslutími:
$ Virka daga kl. 9-18.30
f Laugardaga kl. 10-12.30.
% Helgidaga kl. 11-12 i|
U Eftir lokun:
| Upplýsingasími 51600. jT
8c
u
*/.
Dúrtfl
í GiAEÍIDflE
/ími 84200
€T
Miðvikudagur 2. apríl 1975.