Alþýðublaðið - 02.04.1975, Side 3
SIGURÐUR RE
ER ENN Á
TOPPNUM
Samkvæmt skýrslum Fiski-
félags íslands fengu 35 skip ein-
hvern afla i vikunni, og nam
vikuaflinn samtals 13.601 lest.
Heildaraflinn frá vertiöarbyrj-
un var s.l. laugardagskvöld
samtals 439.833 lestir en var á
sama tima i fyrra 457.060 lestir.
Nú er aðeins vitað um 20 skip
á miðunum en þau voru 107 þeg-
ar þau voru flest og þar af hafa
90 skip fengið meira en 1.000
lestir á vertiðinni.
Aflahæsta skipið i vikulokin
var m/s Sigurður RE 4, skip-
stjóri Kristbjörn Arnason með
samtals 13.577 lestir.
Loðnu var landað á öllum
Pétur Jónsson RE 69 7092
Gullberg VE 292 6921
Óskar Halldórson RE 157 6847
Asgeir RE 60 6783
Jón Finnsson GK 506 6753
örn KE 13 6538
Bjarni Ólafsson AK 70 6139
Dagfari ÞH 70 5931
Magnús NK 72 5887
Harpa RE 342 5853
Grindvikingur GK 606 5787
Skirnir AK 16 5779
Náttfari ÞH 60 5580
Svanur RE 45 5568
Helga II RE 373 5269
Höfrungur IIIAK 250 5212
Halkion VE 205 5119
Albert GK 31 4978
Arnarnes HF 52
Gunnar Jónsson VE 500
Hafrún ÍS 400
Bára GK 24
Helga RE 49
Hinrik KÓ 7
Grimseyingur GK 605
Hagbarður KE 116
Isleifur IV VE 463
Sæunn GK 220
Bjarni Ásmundar ÞH 197
Vörður ÞH 4
Bjarnarey VE 501
Hamravik KE 75
Árney KE 50
Þorbjörn II GK 541
Þorri ÞH 10
Asborg RE 50
Glófaxi VE 300
Kópur RE 175
Guðrún GK 37
Snæfugl SU 20
Álsey VE 502
Reykjanes GK 50
2376
2369
2344
2307
2266
2236
2230
2102
2063
1910
1881
1758
1601
1582
1493
1482
1461
1395
1393
1382
1253
1236
1195
1163
höfnum SV-lands frá Vest- Skógey SF 53 4929 Skipaf jöldi 90
mannaeyjum til Akraness auk bræðsluskipsins Nordglobals. Sæberg SU 9 Hrafn Sveinbjarnarson GK 4794 Vikuafli 13601 lestir
Meðfylgjandi er skýrsla yfir 255 4561 Heildarafli 439833 lestir
þau skip er fengið hafa 1.000 lestir eða meira, svo og skýrsla yfir löndunarstaði. Nafnskips magn (lestir) Vfðir NK 175 Keflvikingur KE 100 Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 Arni Siguröur AK 370 4505 4502 4414 4252 Nafn staðar Vikuafli heildarafli (lestir) (lestir)
Sigurður RE 4 13577 Álftafell SU 101 4242 Vestmannaeyjar 338 76456
Börkur NK 122 12228 Sigurbjörg OF 1 4051 Norglobal 7324 74298
Gisli Árni RE 375 11394 ísleifur VE 63 3849 Seyðisfjörður — 34986
Guðmundur RE 29 11313 FaxiGK44 3816 Eskifjörður — 27275
Súlan EA 300 9982 Flosi 1S 15 3547 Reyðarfjörður — 24440
Loftur Baldvinsson EA 24 9907 Ljósfari ÞH 40 3443 Reykjavik 952 23997
Óskar Magnússon AK 177 9200 Skinney SF 20 3234 Vopnafjörður — 18353
Rauðsey AK 14 8963 Ársæll Sigurðsson GK 320 3220 Keflavik 2017 17461
Eldborg GK 13 8729 Huginn VE 55 3168 Hornafjörður — 14809
Reykjaborg RE 25 8644 Viðir AK 63 3020 Raufarhöfn — 14687
Fífill GK 54 8614 Vonin KE 2 2999 Þorlákshöfn 479 13970
Ásberg RE 22 8564 Kristbjörg IIVE 71 2961 Akranes 200 13719
Faxaborg GK 40 8395 Arsæll KE 77 2955 Siglufjöröur — 12439
Helga Guðmundsdóttir BA Sandafell GK 82 2906 Grindavik 783 11680
77 8378 Ólafur Sigurðsson AK 370 2863 Hafnarfjörður 983 11470
HeimirSU 100 8353 Ólafur Magnússon EA 250 2692 Sandgerði 526 11394
Hilmir SU 171 8263 Húnaröst ÁR 150 2668 Fáskrúðsfjörður — 10250
Héðinn ÞH 57 7875 Þórkatla II GK 197 2533 Djúpivogur — 10039
Þórður Jónasson EA 350 7501 Asver VE 355 ■ 2479 Stöðvarfjörður — 9169
Jón Garðar GK 475 7320 Arni Magnússon SU 17 2451 Breiðdalsvik — 4586
Þorsteinn RE 303 7201 Bergur VE 44 2432 Bolungavik — 4354
,,EKKI ANÆGÐUR
EN ÞAÐ VAR
SKYNSAMLEGT
AÐ SEMJA"
K
„Ég er aldrei ánægður með
svona samninga, og það fékkst
ekki bættur nema hluti þeirrar
kjaraskerðingar, sem orðið hef-
ur, —-en eftir atvikum tel ég, að
þaö hafi verið skynsamlegt að
gera þessa bráðabirgða-
samninga, miðað við það
ástand, að bannað er að greiða
vlsitölubætur á laun”, sagði
Björn Jónsson forseti Alþýðu-
sambands Islands, þegar Al-
þýðublaðið spurði hann álits á
nýgerðum kjarasamningum
„Þess vegna voru
samningarnir lika gerðir til
skamms tlma, þaö voru engin
rök fyrir þvi að gera varanlega
samninga”, sagði Björn enn-
fremur, „og ég tel það óvist, að
tt til verkfalla hefði komið
efðu náðst samningar til langs
tima. Og ég held, að þessir
samningar verði samþykktir
hjá félögunum, sagði Björn að
lokum, „það er ekkert sem
bendir til annars”.
Kjarasamingar ASÍ og Vinnu-
veitendasambandsins, sem
voru undirritaðir 26. mars sl.
eru á þessa leið:
1. Núgildandi mánaðarkaup,
sem er lægra en kr. 69.000,
miðað við fulla dagvinnu hækki
um kr. 4.900 á mánuði, en hlut-
fallslega minna til þeirra, sem
skemur vinna.
2. A núgildandi laun á bilinu
frá 69.000—73.900 greiðist kaup-
hækkun þannig, að launin verði
kr. 73.900 til þeirra, sem skila
fullri dagvinnu og hlutfallslega
til þeirra, er skemmri vinnu
skila.
3. Hækkun á yfirvinnukaupi
greiðist þannig, aö gildandi
hlutföll milli eftir-, nætur og
helgidagakaups og dagvinnu
haldist óbreytt.
4. Um útreikning greiðslu
framangreindrar kauphækkun-
ATVINNUREKENDUR KLOFNIR
„Þau verslunarfyrirtæki og
önnur fyrirtæki, sem hafa
verslunarfólk i þjónustu sinni, og
samtök verslunarinnar, annast
samninga fyrir, munu greiða
starfsfólki sinu óbreytt kaup frá
þvi, sem verið hefur, þar til nýir
kjarasamningar hafa verið
undirritaðir af Félagi islenskra
stórkaupmanna, Kaupmanna-
samtökum Islands og Verslunar-
ráöi íslands”, segir i yfirlýsingu
frá Kjararáði Verslunarinnar.
Þar segir ennfremur:”
Hjalti og
félagar
Reykjavík-
urmeistarar
Orslit ' Reykjavikurmeist-
aramótsins i bridge voru spil-
uð laugardaginn fyrir páska.
Tvær sveitir, sveit Hjalta
Eliassonar og sveit Þóris Sig-
urðssonar, leiddu þar saman
hesta sina. Spiluð voru 64 spil i
tveim lotum. Eftir fyrri lotuna
(32 spil) stóðu stigin 54:50
fyrir sveit Hjalta.
1 siöari lotunni vann sveit
Hjalta nokkuð jafnt og stöðugt
á og leiknum lauk með 130
stigum gegn 79 fyrir Hjalta.
Reykjavikurmeistarar i
bridge i ár er þvi sveit hans,
en hana skipa: Hjalti Elias-
son, Amundur Pálsson, Einar
Þorfinnsson, Guðlaugur R. Jó-
hannsson og örn Arnþórsson.
Félag Islenskra stórkaup-
manna, Kaupmannasamtök Is-
lands og Verslunarráð íslands
eru samningsaðilar fyrir hönd
flestra verslunarfyrirtækja og
ýmissa annarra fyrirtækja um
kaup og kjör verslunarfólks.
Verslunarmannafélag Reykja-
vikur og Landssamband
islenskra verslunarmanna, sögðu
fyrir all nokkru upp samningum
sinum við áðurnefnd samtök, en
hafa fram að þessu ekki lagt
fram neinar óskir um kauphækk-
un eða aðrar breytingar á kjara-
samningum. Þar af leiðandi hafa
engar viðræður farið fram milli
þessara aðila um kjaramál. Al-
þýðusamband Islands mun hafa
fengið umboð til þess að fara með
samningsrétt verslunarmanna-
félaganna, en það hefur ekki sent
samtökum verslunarinnar neinar
kröfur og hafa viðræður við það af
þeim sökum heldur ekki hafist.
Björn Jónsson forseti ASÍ hefur
nú snúið sér til Hjartar Hjartar-
sonar, formanns Kjararáðs
Verslunarinnar, sem er
sameiginleg samningsnefnd sam-
taka verslunarinnar og óskað
eftir viðræðum um kjaramál.
Búist er við að fyrsti fundurinn
verði haldinn á miðvikudaginn og
að þá muni ASÍ leggja kröfur
verslunarmanna formlega fram,
og aö báðir aðilar kynni hinum
viðhorf sin til málsins. Náist sam-
komulag ekki fljótlega má búast
við að málinu verði visað til
sáttasemjara til meðferðar.”
„Það er sáttasemjari rikisins,
sem boðar aðila til samninga-
funda, þegar kjaradeilum hefur
veriðvisað til hans”, sagði Björn
Þórhallsson, formaður Lands-
sambands islenskra verslunar-
manna, I viðtali við Alþýðublaðið.
Hann kvað ASÍ hafa
samningsumboð fyrir verslunar-
menn og hefði nú verið óskað við-
ræðna við Kjararáð verslunar-
innar.
„Ég tel engan vafa á þvi, aö
bráöabirgðasamningar þeir, sem
nú hafa tekist, gilda um kaup og
kjör starfsfólks þeirra fyrirtækja,
sem eru aðilar að Vinnuveitenda-
sambandi Islands”, sagði Björn
Þórhallsson.
Guðmundur H. Garðarsoson,
formaður Verslunarmannafélags
Reykjavikur, sagðist ekki vilja
tjá sig um einstök atriði varðandi
samningsgerð, er fréttamaður
Alþýðublaðsins spurði hann álits
um þá stöðu, sem upp væri kom-
in, og meðal annars fælist I yfir-
lýsingu Kjararáös verslunarinn-
ar.
Aöspurður um það, hvort
verslunarmenn á Reykjavikur-
svæðinu ættu ekki aðild að bráða-
birgðasamningunum, sagði Guð-
mundur: „Mörg verslunar- og
þjónustu fyrirtæki eru i fleiri en
einum samtökum. Til dæmis eru
mörg fyrirtæki i Verslunarráðinu
einnig I Vinnuveitendasambandi
Islands. Þannig er þvi mjög veru-
legur hluti verslunar- og skrif-
stofufólks starfandi hjá fyrirtækj-
um, sem eru i tveimur samtökum
vinnuveitenda. Ég geri ráð fyrir,
að það sé ekki fjarri 3/4 hlutum
meðlima.”
NYIR YFIRMENN
PÓSTS OG SÍMA
Samkvæmt reglugerð um breytingu á stjórn og skipulagi pósts
og slmamála, sem gefin var út af Samgönguráðuneytinu 20.
desember 1974, hefir samgönguráðherra nú skipað i tvær nýjar
stöður hjá Pósti og sima frá 1. april 1975. Það er I stöðu umdæmis-
stjóra Pósts og sima I umdæmi I og I stöðu simstjórans i Reykja-
vik.
1 stöðu umdæmisstjóra i umdæmi I var skipaður Aöalsteinn
Norberg, ritsimastjóri. Undir umdæmisstjórann heyrir öll
starfsemi póst-, slma- og radióstöðva stofnunarinnar á Suður- og
Vesturlandi, þ.á.m. póststofan I Reykjavik og simstöðin I Reykja-
vik.
I stöðu simstjórans I Reykjavik var skipaður Hafsteinn
Þorsteinsson, skrifstofustjóri. Staða slmstjórans kemur i stað
stööu bæjarsimastjóra og ritsimastjóra I Reykjavik, þ.e.a.s.
rekstur bæjarsimans, ritsimans og talsimastöðvarinnar I Reykja-
vik verður nú undir stjórn simstjórans.
ar fari skv. siðastgildandi regl-
um um kaupbreytingar, m.a.
þannig, að með kauptaxta skuli
teljast hvers konar samnings-
bundin áög og kaupauka, sem
ekki svara með beinum og ótvi-
. ræðum hætti til útlagðs
kostnaðar launþega vegna
öflunar launtekna.
5. Stefnt er að þvi að samiö
verði um fyrirkomulag
verðlagsbóta á laun fyrir 1. júni
1975.
6. Samkomulag þetta gildir
frá 1. mars til 1. júni 1975, en
fellur þá úr gildi án uppsagn-
ar”.
Fyrrverandi
kennari
Rockefellers
í heimsókn
Fyrir páskana var hér á ferö
Donald Cobleigh frá Gardner i
Massachussetts fylki i Banda-
rikjunum.
Cobleigh, sem nú er kominn
á eftirlaun, er fyrrverandi
prófessor viðDartmotuh, N.H.
háskólann i hljómlistar-
fræðum. Meöal nemenda hans
var Nelson Rockefeller, nú-
verandi varaforseti Banda-
rikjanna.
Cobleigh nam organleik hjá
M’lle Nadia Boulanger i Paris
og var fyrir páskana einmitt á
leið þangaö til að hitta sinn
fjörgamla kennara, sem hann
hefur reyndar gert undanfarin
ár.
Til Islands kom Donald
Cobleigh til að hitta islenska
kunningja. -
STAKIR STÓLAR OG SETT.
KLÆÐIGÖMULHÚSGÖGN
GOTT ÚRVAL AF ÁKLÆÐI.
BÓLSTRUN
ÁSGRÍMS,
Bergstaðastræti 2,
Sími 16807.
Miðvikudagur 2. apríl 1975.