Alþýðublaðið - 02.04.1975, Page 11

Alþýðublaðið - 02.04.1975, Page 11
Kl. 19.35: „Spurt og svarað”. Svala Valdimarsdóttir leitar svara við spurningum hlustenda að þessu sinni. Þess skal getið, að þeir, sem vilja koma spurn- ingum á framfæri við þennan þátt, þurfa að hringja i sfma út- varpsins 22260 á fimmtudags- morgnum kl. 11-12. Ýmsum spurningum um byggingar verkamannabústaða verður svarað i þættinum, en það gerir Guðmundur Vigfússon hjá Húsnæðismálastofnuninni. Margrét Sigurðardóttir, fé- lagsmálafulltrúi, svarar spurn- ingum um ákvörðun gjalda fyrir barnagæzlu i heimahúsum, og viö hvað er miðað almennt i þeim efnum. Strætisvarnakerfið i Reykja- vik er nær endalaust umræðu- efni, en i þættinum i kvöld, svar- ar Einar B. Pálsson, verkfræð- ingur, spurningum hlustanda um það. Hlustandi spyr, hverju það sæti, að svo litið er leikið af harmonikulögum i útvarp. Þor- steinn Hannesson svarar fyrir það. Þórunn Klemensdóttir, fulltrúi i heilbrigðisráðuneyt- inu, svarar spurningum varð- andi frumvarp eða frumvörp til laga um fóstureyðingar. Telja má vist, að einnig verði svarað spurningum varðandi útgáfu bókar i sambandi við 100 ára afmæli frimerkisins. Kl. 20,35 hefst þátturinn „Tækni og visindi”, en umsjón- armaður hans er að þessu sinni Sigurður H. Richter. Verður meðal annars fjallað um vernd- un augnanna. Er þar komið viða við, en m jög hefur skort á skipu- lega leiðbeiningarstarfsemi i þvi tilliti, þrátt fyrir það, hversu mikilvægt liffæri, en jafnframt viðkvæmt, er hér um að ræða. Þá verður sagt frá tannrétt- ingum, sem hér á landi mega heita nýjar af nálinni, þótt fá- einir sérfræðingar hafi stundað þær um nokkurt árabil. Er skemmst af að segja, að það er næsta ótrúlegt, hvað hægt er að gera i tannréttingum, ef þess er gætt að það sé i tæka tið. Ekk* aðeins geta tannréttingar ger- breytt útliti, heldur eru þær fyrirbyggjandi aðgerð gegn tannskemmdum. Hins vegar eru þær stundum afar kostnað- arsamar, jafnvel svo, að i allrí velferöinni sýnist aðgerð til tannréttinga fjárhagslega ó- kleif. Kl. 21.05 er á skjánum finnsk kvikmynd um ástir ungrar stúlku, sem dvelst um skeið á búgarði hjá ættingjum slnum, Myndin er i léttum tón og heitir „Þegar amma var ung”. Kl. 22.35: „Hungruð jörð”. Þetta er heimildarmynd um þurrkana miklu i Afriku og ástandið, sem fylgir I kjölfar þeirra. Er þetta áhrifamikil lýs- ing á þvi, hversu gifurleg áhrif veðurfarið og breytinhar á þvi, geta haft fyrir allt lif, bæði manna og dýra. Ekki fer heldur á milli mála, að þessi áhrif koma niður á efnahagslifi þeirra þjóða, sem fyrir þeim veröa.og þá auðvitaðþeim mun fremur, sem atvinnuvegir eru frumstæðari og einhæfari. STJÖRNUSPÁIN Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar. Það er áriðandi aö þú ekki treystir ráöum vina þinna og kunningja i fjármálum. Þú verður að fara mjög varlega, ef misskilningur á ekki aö skemma daginn. Haltu þig við vanabundin störf. Fiskarnir 19. febrúar — 20. mars. Misskilningur gæti skemmt samband þitt við starfsfélaga. Taktu þér nægan tima til allra á- kvarðana, en gættu þess að sýna ákveöni, þar sem hik gerir engum gott. Þér gæti reynst auð- veltað leysa vandamál barna i dag, svo þú skalt sinna þeim. Hrúturinn 21. mars — 20. aprii. Láttu ekki flækja þig i gróðabrall vina þinna. Astarmálin eru ekki efnileg og ástvinir þinir verða liklega móögunargjarnir þegar á liður. Reyndu að alda rósemi þinni. Nautið 21. aprfl — 20. mai Hugmyndaflug þitt er raunhæfara fyrri hluta dags, svo þú skalt taka daginn snemma. Maki þinn eða félagi verður þér lfklega ósammála i fjármálum. Dagurinn er ekki góður i ástarmál- um. Tviburinn 21. maf — 20. júni Eitthvað i sambandi við starf þitt veldur liklega vandræðum gagnvart maka þinum eða félaga og þér gæti reynst erfitt að lagfæra það. Þér gefst tækifæri til að laga fjármálin, en flýttu þér hægt. Krabbinn 21. júni — 20. júli Gættu orða þinna og gættu þess að hafa afstööu þina til málanna skýra. Reyndu að leita ráöa sérfræöinga, ef vandamál koma upp. Reyndu ekki að leysa hnúta upp á þitt eindæmi. Ljóniö 21. júli — 21. ágúst Detti þér I hug að leggja út fé i sambandi viö ein- hver áhugamál þin, þá faröu varlega, þvi i- myndunarafl þitt gæti verið að kúga skynsem- ina. Dagurinn er óræður. Meyjan 22. ágúst — 22. september Maki þinn gæti kúvent öllum áætlunum ykkar i dag, en reyndu að halda rólyndi þinu og leitaöu ekki langt yfir skammt að lausn þeirra vanda- mála sem skapast. Einbeittur þér. Vogin 23. september — 22. október Ruglingur á vinnustað veldur misskilningi, sem auðvelt ætti að vera að leiðrétta. Fylgdu ákvörð- unum þinum eftir af akveðni og reyndu aö koma sem mestu I verk. Sinntu heilsunni. Sporödrekinn 23. október — 22. nóvember Imyndunarafl þitt er ofurlitið of virkt i dag, svo þú skalt hlaupa varlega eftir draumum þinum. Það er mögulegt að rómantiskt flangs þitt hafi slæm áhrif á fjárhagiiin. Sinntu þér eldra fólki. Bogmaöurinn 23. nóvember — 20. desember Fjölskyldan er þér ekki sammála i fjármálum, en ef þú stendur fast á þinu, er liklegt aö allt fari vel. Sinntu f jármálum maka þins af natni og ein- beittu þér að umbótum á heimilinu. Steingeitin 21. desember — 19. janúar. Tviræður dagur. Láttu ekki útlit blekkja þig. Þurfir þú að taka ákvaröanir, þá gættu þess að kynna þér málin nógu vel fyrst. Góður dagur i vinnunni, en ekki heima við. RAGGI RÓLEGI Égereinmittmeð rétta bilinn handa þér, Raggi FJALLA-FUSI Karl Ö. Runólfsson Fjölskyldutónleikar Næstu tónleikar Sinfóniu- hljómsveitar Islands verða haldnir i Háskólabiói laugar- daginn 5. april og hefjast þeir klukkan 14.00. Tónleikar þess- ir verða fjölskyldutónleikar og verða á þeim flutt verk eftir Karl Ó. Runólfsson, Mozart, Wagner og fleiri tónskáld. Tónleikunum stjórnar Páll P. Pálsson. Næstu reglulegu tónleikar Sinfóniuhljómsveitarinnar verða svo haldnir fimmtudag- inn 10. april. Stjórnandi á þeim hljómleikum verður Karsten Andersen, en Vladi- mir Ashkenazy annast einleik á pianó. Söngsveitin Fil- harmonia flytur Sálma- sinfóniuna eftir Stravinsky, Ashkenazy leikur pianókon- sert númer 2 eftir Beethoven og ennfremur veröur flutt Sin- fónia númer 5 eftir Carl Niel- sen. Fjórtándu reglulegu tón- leikar Sinfóniuhljómsveitar- innar verða svo aðeins viku siðar, fimmtudaginn 17. april. Þeim hljómleikum stjórnar Vladimir Ashkenazy, en ein- leikari verður Árni Egilsson, bassaleikari, sem frumflytur tónverk fyrir bassa og hljóm- sveit, eftir Þorkel Sigur- björnsson. Á þeim hljómleik- um verða einnig fluttir þættir úr ballettnum Rómeó og Júlia, eftir Prokofieff, og sinfónia númer fjögur, eftir Tsjaikov- ský. Hvað varstu að gera í nótt? Síðasta sýning I kvöld, miðvikudagskvöld 2. april, verður siðasta sýning á franska farsanum „Hvað varstu að gera i nótt”. Leikrit þetta var frumsýnt i Þjóðleik- húsinu i september siöastliðn- um og hefur verið sýnt sam- fellt siðan. Leikstjóri er Sviinn Christian Lund, sem íslend- ingum er góðkunnur af sviö- setningum sinum hérlendis, meðal annars á Þjófum, likum og fölum konum. Frá þvi leik- ritið var frumsýnt hafa um átján þúsund manns séö það, en, eins og fyrr segir, þá er siðasta sýning á þvi i kvöld. Þá eru aðeins tvær sýningar eftir á ballettinum „Coppe- liu”, en þær verða á fimmtu- dagskvöld 3. april og föstu- dagskvöld 4. april. Með aðal- hlutverk i Coppeliu fara Auður Bjarnadóttir, Þórarinn Bald- vinsson og Bessi Bjarnason. Miðvikudagur 2. apríl 1975. o

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.