Alþýðublaðið - 02.04.1975, Page 12
alþýðu
i n KTíTTil
Plastos liF
PLASTPOKAVERKSMIÐJA
Símar 82639-82655
Vatnsgör6um 6
Box 4064 — Réykjavtk
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
laugardaga til kl. 12
Velferðarmál aldraðra
úr skýrslu Félagsmálastofnunar Reykjavíkur 1973
Árið 1965 var stofnuð sérstök
deild innan Félagsmálastofnun-
ar Reykjavikurborgar, til að
annast velferðarmál aldraðra.
Verkefni deildarinnar eru vist-
un á hæli og sjúkrahús, aðstoð
við aldraða i heimahúsum, upp-
lýsingaþjónusta og almenn að-
stoð við aldraða, t.d. efling og
samræming á starfi safnaða og
félaga.
Aðstoð og upplýsingar:
Jafnframt þvi að veita
öldruðum aðstoð við lausn
persónu- og fjárhagslegra
vandamála, eru gefnar upp-
lýsingar um velferðarmál
aldraðra almennt og þá aðila,
sem að þeim málum vinna hér i
borg. Mikil vinna starfsmanna
deildarinnar er fólgin i fyrir-
greiðsiu við ellilifeyrisþega,
vegna beiðna um lifeyris-
hækkanir, og lækkun skatta og
fasteignagjalda.
Samstarf við söfnuði og
félagasamtök:
Unnið var að þvi að efla sam-
starf við kvenfélög safnaða
Reykjavikurborgar um málefni
aldraðra, en kvenfélögin hafa
haldið uppi ýmis konar starf-
semi fyrir aldraða undanfarin
ár. Reykjavikurborg hóf að
styrkja þessa starfsemi árið
1968, og er veittur rekstrar-
styrkur til þeirra kvenfélaga,
sem annast skipulagða
starfsemi fyrir aldraða a.m.k.
einu sinni i viku. Jafnframt var
samþykkt að veita kvenfélögum
safnaðanna aðstoð i sambandi
við stofnkostnað fótaaðgerða-
og hársnyrtingarþjónustu. Arið
1973 var rekin fótaaðgerða-
þjónusta fyrir aldraða á vegum
flestra safnaða i Reykjavik og
hársnyrting hjá einu félagi.
Rauði kross Islands, kvenna-
deild, hefur tekið upp á stefnu-
skrá ýmis konar þjónustu við
aldraða þ.á.m. heimsóknar-
þjónustu. Hefur ellimálafulltrúi
Reykjavíkurborgar veitt leið-
beiningar og aðstoð I sambandi
við þessa starfsemi.
Heimilishjálp og
heimahjúkrun:
Veitt hefur verið fyrirgreiðsla
um útvegun heimilishjálpar og
heimahjúkrunar. Heimilishjálp
fyrir aldraða er á vegum
Félagsmálastofnunar Reykja-
vikurborgar, en heimahjúkrun
á vegum Heilsuverndarstöðvar
Reykjavikurborgar.
Arið 1970, var samþykkt
ákveðin skipan á allri heimilis-
aðstoð veittri af Félagsmála-
stofnun Reykjavikurborgar.
Samkvæmt þvi, annast sérstök
deild innan stofnunarinnar að-
stoðina undir yfirstjórn félags-
málastjóra og félagsmálaráðs.
Fyrst um sinn greinist deildin I
tvær undirdeildir:
1. Heimilishjálpin I Reykjavik,
sem annast heimilshjálp i
viðlögum, vegna veikinda eða
forfalla húsmóður um
stundarsakir.
2. Heimilisþjónusta Félagsmála-
stofnunar Reykjavikur-
borgar, sem annast heimilis-
hjálp til aldraðra og umönnun
langlegutilfella.
Starfsemi þessi I þágu
aldraðra hefur verið mjög vax-
andi eins og sjá má af þvi að
árið 1969 var 52 heimilum veitt
aðstoð en 1973 var fjöldi þeirra
orðinn 262.
Arið 1973 störfuðu að heimilis-
þjónustu fyrir aldraða á vegum
Reykjavikurborgar 61 kona, þar
af 23 fullan vinnudag, 5 hálfan
vinnudag og 33 i tlmavinnu.
Húsnæðismál:
Hentugar Ibúðir eru oft á tið-
um skilyrði fyrir dvöl aldraðra
utan sjúkrahúsa og hæla.
Reykjavikurborg tók i notkun á
árinu 1966 að Austurbrún 6, 69
Ibúðir fyrir aldraða, öryrkja og
einstæðar mæður. Var 30 Ibúð-
um úthlutað til aldraðra.
Reynsla af þessu er mjög góð. A
árinu 1968 var byrjað að vinna
að teikningum og undirbúningi
að byggingu 60 ibúða fyrir
aldraða við Norðurbrún og voru
ibúðirnar teknar I notkun I
febrúar 1972.Húsið er fyrsta hús
sinnar tegundar, sem hér er
byggt miðað við þarfir
aldraðra. Húsið er 2 hæðir og 3ja
hæðin að norðanverðu að hluta,
vegna halla lóðar. A hvorri hæð
eru 26 einstaklingsibúðir og 4
hjónaibúðir. Samtals 60 Ibúðir.
Auk þess er á 1. hæð húsvarðar-
Ibúð og á 2. hæð setustofur
ætlaðar ibúum hússins. Á jarð-
hæð er ýmis konar þjónustuað-
staða, t.d. fullkomið þvottahús.
Jafnframt er reiknað þar með
ýmiss konar starfsemi i þágu
aldraðra, jafnt þeirra, sem i
húsinu búa og þeirra sem utan
þess búa. Þessi hluti hússins var
tekinn i notkun 20. april 1974.
bar er aðstaða til tómstunda-
starfs, fundarhalda, skemmt-
ana, fótaaðgerða, hárgreiðslu
o.fl.
Nú eru tilbúnar til útboðs 74
Ibúðir, við Furugerði, sem
ætlaðar eru öldruðum. Verða
ibúðirnar svipaðar að gerð og
íbúðir við Norðurbrún. Hús
þetta er 8 hæðir og 10 Ibúðir hæð.
Hluti af 1. hæð og kjallari er
ætlaður tómstundastarfi og
félagsstarfi fyrir aldraða.
Auk þessara 90 ibúða, sem
sérstaklega eru ætlaðar öldruð-
um, er veitt ýmis konar fyrir-
greiðsla I sambandi við húsnæði
t.d. greidd húsaleiga, útvegað
húsnæði. Samtals búa u.þ.b. 180
ellilifeyrisþegar I leiguhúsnæði
Reykjavikurborgar.
Tómstundastarf:
Félagsstarf eldri borgara
hófst I april 1969 og hefur þar til
i lok april 1972 verið til húsa i
Tónabæ. 1 mai voru 4 sam-
komur I ófullgerðri jarðhæð
Ibúðarhúss aldraðra við
Norðurbrún, en i september
1972 fékk starfsemin inni I
félagsheimili karlakórsins
Fóstbræðra við Langholtsveg og
var þar til vors 1973. í ársbyrjun
1973 hófst starfsemi að
Hallveigarstöðum.
Jarðhæð ibúðarhúss aldraðra
við Norðurbrún var svo tilbúin
til notkunar fyrir félagsstarf
aldraðra i april 1974.
Samkomudagar og fjöldi
gesta hafa verið, sem hér
greinir:
Samkomur Gestir.
1969 44 4000
1970 65 7400
1971 73 8300
1972 63 7800
1973 98 9776
Fer ýmis konar starfsemi
fram á samkomunum, spiluð
félagsvist, bókaútlán,
klúbbstarfsemi, fræðsluerindi,
kvikmyndasýningar, skemmti-
atriði, fræðslustarf o.fl. Hefur
mikill fjöldi skemmtikrafta lagt
þar hönd á plóginn fyrir ekkert
gjald.
Allt samstarf við sjálfboða-
liða kvenfélaganna var með
ágætum og unnu sjálfboðaliðar
á árinu 1973 samtals 1340 dags-
verk.
í júni, júli og ágúst féllu sam-
komur niður, en i stað þess var
farið I ferðir á söfn og leikhús og
ferðalög út fyrir bæinn t.d.
grasaferð og berjaferð. Einnig
var efnt til skoðunarferða um
Reykjavik.
Árið 1973 var samtals farið i 6
ferðir og voru þátttakendur
samtals 549 og auk þess 2 leik-
húsferðir með 221 þátttakanda.
Orlofsdvöl aldraðra:
Auk stuttra ferða var ákveðið
að efna til lengri orlofsdvalar
fyrir aldraða sumarið 1973. Var
fengin aðstaða fyrir 23 gesti að
Löngumýri i Skagafirði 7.-18.
ágúst. Komust færri að en vildu
og var dvölin mjög ánægjuleg.
H júkr un ar h eim ili fyrir
aldraða:
Félagsmálaráð Reykjavikur-
borgar hafði forgöngu um
byggingu Hjúkrunarheimilis
fyrir aldraða. Heilbrigðismála-
ráð rekur nú i þeim húsakynn-
um Endurhæfingardeild
Borgarspitalans.
Auk framangreindra atriða
hefur verið unnið að ýmis konar
fyrirgreiðslu fyrir aldraða.
Flugferðir, leikhús og
myndlistarsýningar:
Samkvæmt ákvörðun borgar-
stjórnar voru kannaðir mögu-
leikar á afslætti aðgöngumiða I
leikhús. Samkomulag náðist
vorið 1968 við stjórnendur Þjóð-
leikhúss og Leikfélags Reykja-
vikur um að miðar til elli-
lifeyrisþega, eldri en 70 ára,
verði seldir á hálfvirði. Félag
Islenskra myndlistamanna hef-
ur veitt afslátt af verði að-
göngumiða til aldraðra. Enn-
fremur hefur Flugfélag Islands
veitt 25% afslátt á öllum flug-
leiðum innanlands.
Strætisvagnaferðir:
Samkvæmt ákvörðun borgar-
stjórnar var samið við S.V.R.
um afslátt af fargjaldi aldraðra
og öryrkja með strætisvögnum
Reykjavikur. Nam hlutur
Félagsmálastofnunarinnar I
fargjöldum þessa hóps kr. 1.740
þúsund árið 1973.
fimm a förnum vegi
Finnst þér páskahátíðin þunglamaleg?
Ingvi Þór Arnarson, nemi: „Já,
hún er ferlega þunglamaleg.
Maúr reynir að skemmta sér, ef
hægt er, en annars er ekki hægt
að segja meir um hana, en að
hún er ferlega þunglamaleg.”
Jón Guðmundsson, flugvirki:
,,Ég veit ekki. Nei, fyrir mina
parta er hún það ekki. Þetta eru
þægilegir og góðir afslöppunar-
dagar.”
Jón Grimsson, nemi: ,,Ja, jú,
hún er þunglamaleg. Annars
var hún létt og góð hjá mér I
þetta sinn. Ég lá mest fyrir og
tókst furðu vel að skemmta mér
með þvi móti.”
Þórður Þorvarðarson,
kvikmyndahússtarfsmaður:
,,Nei, það finnst mér ekki. Þetta
er þægilegir dagar og gaman að
nota þá til að hitta gott fólk,
borða góðan mat ot og slappa af
yfir kaffinu. Svo getur maður
notið þess að vakna snemma og
fara i gönguferðir.”
Sigurður ólafsson, rekur
vélaverslun: ,,Æ, ég veit ekki
hvað segja skal. Ég var svo
kvefaður um þessa páska, að ég
hélt mig mest heim. Ég held
samt mér þyki helgin ekkert of
þunglamaleg — að hún sé bara
ágæt eins og hún er.”