Alþýðublaðið - 09.04.1975, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 09.04.1975, Blaðsíða 8
Staða félagsráðgjafa við Félagsmála- stofnun Kópavogskaupstaðar er laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjara- samningi Starfsmannafélags Kópavogs. Umsóknum er greini frá aldri, menntun og fyrri störfum sé skilað til undirritaðs fyrir 20. mai n.k., sem jafnframt veitir nánari upplýsingar á Félagsmálastofnuninni, Álfhólsvegi 32, simi 41570. Félagsmáiastjórinn i Kópavogi Kvenfélag Kópavogs Fundur verður haldinn i Félagsheimili Kópavogs, fimmtudaginn 10. april n.k. kl. 20.30. Félagskonur mætið vel og stundvislega. Stjórnin. Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslulok á Wolkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25 Simar 19099 og 20988. Útboð Tilboð óskast i að reisa SKÁTASKÁLA úr timbri að Úlfljótsvatni. — útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Bandalags is- lenskra skáta, Blönduhlið 35, kl. 13.00-17.00. Tilboð verða opnuð á sama stað, föstudaginn 25. april kl. 14.00. Austurbrún Jökulgrunnur Sporðagrunnur Laugarásvegur Hagamelur Kvisthagi Dunhagi Oddagata Dyngjuvegur Blaðburðarfólk óskast til að bera blaöið út i eftirtaldar götur Norðurbrún Vesturbrún Fornhagi Aragata Fálkagata Bólstaðarhlið Flókagata Hjálmholt Skipholt Hafið sambani við afgreiðslu blaösins.; Sími 14900 1 IHITTIK 'm fT*i w J2S l’fTtí.WW Knapp leggur á ráöin meölandsliöinu fyrir ieikinn viö Belga f fyrra Við hverju má búast? Við hverju má búast af landsliði okkar i fyrstu landsleikjunum sem fara fram siðast i mai og i byrjun júni, en þá leikum við gegn Frökkum og A-Þjóðverjum i Evrópukeppni landsliða? Keppnistimabilið er rétt hafið og með öllu óvist, hvort Asgeir Sigurvinsson eigi þess kost að koma hingað og leika með lands- liðinu. En hann átti stóran þátt i velgengni liðsins i fyrra. Við höfð- um samband við Ásgeir i gær og sagði hann okkur að einmitt þennan dag færu þeir hjá Stand- ard i sumarleyfi og væri þegar búið að skipuleggja ferð suður til Spánar fyrir liðsmenn. Þó væri hugsanlegt að hann gæti leikið fyrri leikinn en ef hann hefði verið einum degi seinna hefði það verið með öllu útilokað, að hann hefði átt kost á að koma. Seinni leikinn gæti hann örugglega ekki spilað þó hann væri allur af vilja gerður. Við höfðum samband við Tony Knapp landsliðsþjálfara, en hann sá um undirbúning liðsins i fyrra og átti mikinn þátt i velgengni liðsins þá og spurðum hann hvort ekki væri erfitt að undirbúa liðið fyrir slik átök rétt i byrjun keppnistimabilsins. „Jú það verður mjög erfitt verkefni sem við eigum fyrir höndum”, sagði Knapp. „Eru þar tvær megin ástæður. 1 fyrsta lagi þá er timinn mjög stuttur sem við höfum til undirbúnings og leik- mennimir varla komnir i fulla þjálfun svona fyrst á keppnis- timabilinu. 1 öðru lagi þá komum við til með að leika landsleikina á grasi, en við komumst ekki til að æfa á þvi fyrr en viku fyrir fyrsta leik- inn. Fram að þvi verðum við að æfa eingöngu á mölinni og erum við þvi m jög óheppnir að fá þessa leiki svona snemma. NUna eru öll liðin sem óðast að undirbúa sig fyrir keppnistima- bilið og munum við þvi reyna að Fyrsti landsleikurinn í knattspyrnu 25. maí Óvíst hvort Ásgeir Sigurvinsson getur komið hafa sem best samband og sam- starf við þjálfara liðanna sem eiga leikmenn i liðinu. Þeir vilja að sjálfsögðu hafa sína menn á meðan á undirbúningi stendur en ég er lfka viss um að þeir muni vera hreyknir að eiga leikmenn i landsliðinu og vonast eftir góðu samstarfi við þá. Við erum þegar búnir að skrifa Jóhannesi Eðvaldssyni til Dan- merkur og Asgeiri Sigurvinssyni og á ekkert að vera til fyrirstöðu með að fá Jóhannes hingað. En verra er ef Asgeir getur ekki komið, þvi við þörfnumst hans svo sannarlega. 1 leiknum á móti A-Þjóðverjum lék hann stórt hlut- verk i liðinu — við megum illa við að missa hann. Við munum þvi gera allar þær ráðstafanir sem við getum til að fá hann i leikina. A siðasta ári var mjög ánægju- legt að vinna með landsliðinu og vorum við eins og stór fjölskylda. Strákarnir gáfu allt sem þeir áttu I leikjunum og meiru er ekki hægt að ætlast til af þeim”. Þess skal getið að Knapp sem var endurráðinn sem þjálfari landsliðsins um siðustu helgi á jafnframt sæti í landsliðsnefnd en hana skipa auk hans, Jens Sumarliðason og Arni Þorgrims- son. Að lokum sagði Knapp að nefndin hefði þegar byrjað undir- búning fyrir landsleikina og myndu þeir halda fund núna næstu daga með þeim leikmönn- um er skipuðu landsliðið i fyrra. En auk þess myndu þeir leggja mikla áherslu á að fylgjast með öllum þeim leikjum sem fram færu á næstunni. Asgeir Sigurvinsson átti mikinn þátt i velgengni landsliösins i fyrra. Hér sést hann i harðri bar- áttu i leiknum gegn Belgiu á Laugardalsvellinum i fyrra. Hann á þarna i höggi viö félaga sinn i Standard Piot, sem jafn- framt hefur verið iandsliðsmark- vörður Belgiu. Tap og sigur hjá Standard ........ er í 4. „Við erum enn i 4. sæti”, sagði Ásgeir Sigurvinsson þegar við höfðum samand við hann i gær. ,,A miðvikudaginn lékum við gegn Molenbeek á útivelli og töp- uðum naumlega 3-2. Þeir skoruðu sigurmarkið á síðustu sekúndum leiksins beint úr aukaspyrnu. Leikurinn var mjög góður og var sárt að tapa báðum stigunum, þeir komust I 2-0, en okkur tókst með góðum leik að jafna og vor- um farnir að sjá framá annað stigið þegar ósköpin dundu yfir. A sunnudaginn lékum við aftur á útivelli gegn frekar slöku liði Olympic Montigneies og fengum sæti þegar 6 umferðir eru þá tvö dýrmæt stig með marki á -siðustu minútu leiksins. Þessi leikur var ekki góður og var völlurinn sannkallað forar- svað eftir miklar rigningar hér að undanförnu ogeinkenndistleikur- inn af þeim aðstæðum.sem Iiann var leikinn við. Mér ætlar ekki að takast að skora frekar en fyrri daginn, i leiknum á sunnudaginn átti ég hörku skalla i stöng og hefur tré- verkið verið hálfgerður þrándur i götu i vetur. Á sunnudaginn urðu úrslit þessi i deildarkeppninni: Licrse — Beveren 1:0 eftir——I Olympic — Standard Liege 0:1 CS Brúgge — Molenbeek 1:0 Ostende — Beringen 2:1 Diest — Charleroi 4:1 FC Liege — Marlines 3:2 Lokeren — Winterslag 0:2 Molenbeek er i efsta sæti með 50 stig, Anderleckt kemur svo i öðru sæti með 45 stig og hefur leikið einum leik minna. f þriðja sæti er FC Brugge með 41 stig, en við erum i fjórða sæti með 40 stig. 1 fimmta sæti er svo Antverpen með 39 stig og heíur eins og Anderleckt leikið einum leik minna.” 0 Miðvikudagur 9. april 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.