Alþýðublaðið - 19.04.1975, Qupperneq 5
Ábyrgðaleysi 4
Langmest er skoriö niður til
byggingar stofnana i þágu aldr-
aðra eða 95 millj., en til barna-
hcimila 62 millj. eða samtals 157
millj. til þessara mikilvægu
stofnana.
Samþykkt borgarstjórnar á
sinum tima um 7,5% framlag af
útsvörum án álags til ,stofnana i
þágu aldraðra var i raun og veru
stórmerkileg og hefði svo sannar-
lega áttað marka timamót i þess-
um efnum. Af öllum nauðsynleg-
um framkvæmdum á vegum
Reykjavikur-borgar er nauðsyn-
legast að hraða svo sem mest má
verða byggingu hjúkrunar- og
dvalarheimila fyrir aldrað fólk.
Talið er að um það bil 9,5% af i-
búum Reykjavikur séu 67 ára eða
eldri eða 8—9 þúsund manns.
Mikill fjöldi þessa fólks býr nú við
slik skilyrði, að algerlega er ó-
samboðið velferðarþjóðfélagi
sem svo er stundum kallað.
Fjöldinn allur af heimilum þessa
gamla fólks getur með engu móti
veitt þvi þá umönnun og þá að-
hlynningu sem það þarfnast.
Þannig tvinnast saman nánast
óleysanlegur vandi tveggja aðila,
þ.e. gamla fólksins sjálfs og að-
aðstandenda þess.
Góður vilji enga
gerir stoð
Ekki dreg ég það i efa eitt and-
artak, að það hafi verið framan-
taldar staðreyndir auk góðs hug-
ar i garð gamla fólksins sem
stýrðu höndum hinna 15 samtaka
borgarfulltrúa, þá er þeir sam-
þykktu ieinu hljóöi hina frægu til-
lögu Alberts Guðmundssonar.
En góður hugur og fögur sam-
þykkt duga skammt, ef ekki
fylgja athafnir i kjölfarið.
Skyldu hinir 15 fyrrnefndu full-
trúar ekki allir hafa gert sér ljóst,
að samþykkt tillögunnar þýddi
einfaldlega það að færa ætti fjár-
magn úr hinum ýmsu fram-
kvæmdum borgarinnar, fjár-
magn sem næmi áðurnefndum
7,5%, yfir i framkvæmdir i þágu
aldraöra — nema til kæmu nýir
tekjustofnar? Þaðhafa þeir hlotið
að gera. Eigi að siður er þetta
mikla nauðsynjamál nú i mikilli
hættu, þegar fulltrúar bæði meiri
og minni hlutans bera fram tillög-
ur um stórfelldan niðurskurð til
þessara hluta að ógleymdu þvi fé,
sem átti að veita til þessara
framkvæmda á sl. ári, en var ekki
gert. Hér er um að ræða fjármagn
sem veltur á hundruðum mill-
jóna.
Af framangreindum ástæðum
ber ég fram tillögu um, að fjár-
hæð sú — 163 millj., — sem verja á
á þessu ári skv. sérstakri sam-
þykkt borgarstjórnar standi ó-
bögguð. Og til áréttingar þvi, að
sérstök byggingarnefnd verði
skipuð til framgangs málinu.
Mér finnst blátt áfram sagt, að
reisn og heiður borgarstjórnar
Reykjavikur sé i veði.
Akvörðunin um 7,5 — prósentin
verður ekki misskilin. Hún er ó-
tviræð.
Framkvæmdir í
skólamálum
Þá vil ég fara nokkrum orðum
um skólamálin og framkvæmdir
þar.
Það er alveg ljóst, að án stór-
aukinna fjárframlaga til bygg-
ingar skólamannvirkja er áætlun
þar að lútandi oröin að haldlitlu
pappirsgagni.
Það ber þvi brýna nauðsyn til
þess að huga að nýjum tekju-
stofnum i þessum efnum.
Ég tel að nú, þegar tekist hafa
kynni með borgarstjórn og þing-
mönnum Reykjavikur, þá þurfi
að kynna þeim siðarnefndu áætl-
unina um byggingu skólamann-
virkja, sem nær til 1980.
Lauslega reiknað miðað við nú-
gildandi byggingarvisitölu virðist
mér, að til þess að hún I megin-
efnum fái staðist, þurfi hlutur
borgarinnar einnar að vera 500
millj. á ári næstu 5 ár.
Framlag borgarinnar á yfir-
standandi ári er nálega helmingi
minna eða 264,8 millj.
Af þessu sést að hér er verk að
vinna.
Það er til litils að embættis-
menn búi til fallegar áætlanir, ec
Framhald á bls. 6
Rnnir þú til
feróalöngunar;
þá er það vitneskian
um voríð erlendis
sem veldur
25% lækkun á fargjöldum til Evrópu á tímabilinu 1. apríl til 15. maí.
loftleidir
fSLAXDS
Felög sem sjá um föst tengsl við umheiminn
Rækjuvinnslustöðvar
Sjávarútvegsráðuneytið vekur athygli á
þvi, að samkvæmt lögum um samræmda
vinnslu sjávarafla og veiða, sem háðar
eru sérstökum leyfum, er aðilum skylt að
leita leyfis sjávarútvegsráðuneytisins,
hyggist þeir koma á fót nýjum rækju-
vinnslustöðvum eða auka afkastagetu
þeirra, sem fyrir eru.
Sjávarútvegsráðuneytið
17. april 1975.
Styrktarfélag vangefinna
heldur almennan félagsfund
laugardaginn 19. april kl. 14 i Bjarkarási
við Stjörnugróf.
Fundarefni:
Tannlækningar vangefinna. Gestur fund-
arins, Björn Russell, tannlæknir frá Dan-
mörku, flytur erindi og svarar fyrirspurn-
um fundarmanna.
STYRKTARFÉLAG VANGEFINNA.
0
Laugardagur 19. apríl 1975.