Alþýðublaðið - 20.04.1975, Blaðsíða 3
BRflMBOLT
UM5J1ÍW: GÍ5LÍ SVEifclftl LDFT55QW
GUNNAR FER UTAN
Gunnar Þórðarson, gitarleik-
ari er nú á förum utan, þar sem
hann mun ætla að leita hófanna
i samband við atvinnu i hljóð
færaleik, og þá einna helst sem
sessionisti. Hann áætlar að fara
i næstu viku. Aðspurður sagði
hann utanförina ekki vera af
neinu sérstöku tilefni, hann
langaði bara til þess að reyna
fyrir sér úti. Liklegt er þó að
Sviþjóðarförin hafi kveikt i hon-
um til þessháttar ævintyris. Allt
er óákveðið með hversu lengi
hann mun dveljast erlendis, en
vafalaust mun liða talsverður
timi þar til við fáum að heyra i
honum aftur hér heima.
,Silly Piccadilly' með Pelican komið út
Þá er komin út ný lítil plata
með hljómsveitinni Pelican, og
mun hún vera undanfari stóru
plötunnar, og tekin upp um leið.
Lögin sem á henni eru, heita
„Silly Piccadilly”, sem er eftir
Ómar óskarsson, og „Lady
Rose”, sem er eftir Ray nokk-
urn Dorset, en hann er I hljóm-
sveitinni Mungo Jerry, sem
fyrst gerði þetta lag þekkt. Lag-
ið hefur allt frá þvl að Pelican
byrjaði, verið eitt af vinsælustu
lögunum á efnisskrá þeirra, og
þvi eðlilegt, að þeir skelltu þvi á
plötu I sinni útsetningu. „Silly
Piccadilly” er töluvert öðruvisi
en rósin, og góð andstæða, sýnir
I rauninni aðra og nýrri hlið á
Pelican, en við höfum átt að
venjast. Það virðist samið undir
einhverjum áhrifum frá
country-tónlist, en hefur þó sln
sérkenni. Þetta er létt og
skemmtileg melódla, og það er
raunar rósin llka, svo að platan
á eflaust eftir að ná miklum vin-
sældum. Pelican hafa annars i
nógu að snúast þessa dagana, og
á næstunni mun ómar
Valdimarsson fara utan ein-
hverra erindagjörða, hálfleyni-
legra, en þó munu þær tengdar
Bissniss.
Hliómleikar órsins ó Wembley
• Áfnrmah pr halda envsi- "
~'r-
Aformað er að halda geysi-
mikla tónleika á Wembley-leik-
vanginum, dagana 19,—23. júnl i
sumar. Fyrirtæki það sero fyrir
þeim stendur er i eigu Eltons
Johns, og heitir Rocket records.
Þetta á að verða hið mesta
skrall, og standa yfir I fjóra
daga, og á þeim tíma munu
fjöldamargar heimsþekktar
hljómsveitir troða upp á leik-
vanginum. Þeirra á meðal eru
Rufus, Eagles, Kiki dee band,
og Elton John sjálfur. Það ætti
að verða auðvelt fyrir þá Islend-
inga sem langar I veisluna, aö
drlfa sig, og vist er, að þeir
munu verða nokkuð margir.
im, IE13LriJT(Ö>MEIF»ILíCO>^^]TUm^,
Nýjar plötur með
Eric Clapton
og Chicago
það er tengt gitar, þá er hann
bestur.Talsverðra trúarlegra á-
hrifa gætir I tónlistinni, og virð-
ist hann hafa snúið sér að
trúnni, i framhaldi af sigri sín-
um yfir eiturlyfjunum, og slæst
hann þvi I hóp annarra heims-
kunnra gitarleikara hvaö það
snertir. Hann hefur fengið I liö
með sér nokkra pottþétta hljóð-
færaleikara, og hafa nokkrir aö-
stoðað hann áður, og Yvonne
Elliman syngur ásamt honum.
011 lögin eru fremur einföld,
létt, og Iáta vel I eyrum. Ein af
fáum „laid-back” plötum, sem
ég hef ánægju af að hlusta á.
Góð plata I góðu tómi.
Chicago/VIII CBS
Áttunda platan frá hendi
Chicago, og þeir eru enn I frnlu
fjöri, þótt það sama séekki h^gt
að segja um þá tónlist sem gerði
þá fræga, jassrokkið. Enda hafa
þeir breytt tónlist sinni mikið
frá þvi sem þá var, og það mega
þeir eiga að þó að yfirbragðið
virðist alltaf það sama, þá er
tónlist þeirra alltaf síung. Á
þessari plötu þeirra verðum við
vör við nokkrar breytingar, þær
helstar, að tónlistin er léttari og
CLAPTON
Það er alls ekki svo langt slð-
an við heyrðum síðast frá Clapt-
on, en þó finnst manni einhvern
veginn að maður hafi beðið eftir
þessari plötu hans. Kemur þar
vafalaust til m.a. sú spenna sem
myndast eftir að listamaður
hefur gert góða plötu, og maður
blður og vonar að sú næsta verði
enn þá betri, að minnsta kosti
ekki verri. Oft vill það nú samt
verða svo, að „follow up” plötur
verða ekki nema skugginn af
þeirri fyrri, og kemur þar ýmis-
legt til. En þessi plata Claptons
er undantekning frá þeirri
reglu, hún fyllir manns björt-
ustu vonir, þvi að hún er betri en
sú fyrri að ýmsu leyti. Þess ber
fyrst að geta, aö hér er um al-
gera „layd-back” eða afslapp-
aða tónlist að ræða, en sú stað-
reynd þarf ekki aö virka frá-
hrindandi á neinn, þvi hér er á
ferð ein besta plata sem komið
hefur út með þeirri tegund tón-
listar. Clapton sannar hér sem
endranær, að það er sama
hverju hann kemur nálægt, ef
meira leikandi, melódiurnar
ráða að mestu ferðinni. Nokkur
lög af henni er mjög likleg til
vinsælda, og nefni ég þar helst
„Anyway you want” og „Harry
Truman”, sem reyndar nýtur
nú þegar mikilla vinsælda i
Bandarikjunum. Þeir félagar
virðast hafa gaman af að koma
kaupendum plötunnar á óvart,
þvi henni fylgir varningur sem
oft er settur i plötuumslög nú til
dags, stór litmynd og Chicago-
merki til þess að setja á boli.
Tónlistin er alltaf jafnfáguð og
yfirlætislaus, maður finnur, að
hér eru sannir listamenn á ferð,
sem hafa gaman að því sem þeir
eru að gera. Skemmtilegar út-
setningar fyrir blásturshljóð-
færin gefa lögunum sinn
sérstæða svip, ogþetta fina
Chicago „sound” ásamt góðum
söng. Chicago eiga sér þegar
stóran aðdáendahóp, sem þola
með þeim sætt og súrt, i þetta
skipti mega þeir þola sætt, þvi
að góð er platan og tónlistin
óneytanlega.
OFANGREINDAR PLÖTUR
ERU FENGNAR AÐ LÁNI í FACO, LAUGAVEGI 89.
„Setjum sönginn á rás sjö”
Brambolt lítur við í
fullkomnasta stúdíói landsins
„Setjum við það ekki inn á rás
7, strákar? gellur við i mónitor-
unum inn I stúdióinu, og „strák-
arnir”, Rúnar Júliusson, Gunn-
ar Þórðarson, Engilbert Jensen,
samþykkja rás 7. „Allt i lagi”
heldur röddin I mónitórnum á-
fram, „það var siðast tekið upp
á sex, svo ég held að sjö verði
best. Tilbúnir I æfingu?” Spurn-
ingunni er svarað játandi, og
menn taka lagið.
Það sem þarna er að fara
fram, er upptaka á stórri plötu
með Gylfa Ægissyni, og fyrr-
nefndir félagar eru ásamt
Mariu Baldursdóttur að syngja
bakraddir við lögin. Upptökurn-
ar fara fram i hinu nýja stúdi-
ói „Hljóðritun hf.” sem staðsett
er að Trönuhrauni 6, Hafnar-
firði. Stúdióið tók til starfa fyrir
viku siðan, og nú þegar er mikið
þar um að vera. Borgis hafa
verið þar við upptökur á tveggja
laga plötu, verið er að leggja
siðustu hönd á plötu Gylfa, og
söngflokkurinn Nunnurnar ætl-
ar að taka þarna upp plötu á
næstunni.
Eigendur þessa nýja stúdiós,
eru Jónas R. Jónsson, Böðvar
Guðmundsson, Jón Þór Hannes-
EMT. Hljóðnemar: Sennheiser,
AKG, Neumann, Electro voice,
og flygill af gerðinni Bösen-
dorff.
Það er ekki að efa, að tilkoma
þessa nýja stúdiós, á eftir að
vera islensku tónlistarlifi og
plötuútgáfu mikil lyftistöng, en
hér er um að ræða fyrsta full-
komna stúdióið, sem hægt er að
taka eitthvað af viti upp i, og á
ég þar meðal annars við sin-
fóniuhljómsýeit, karlakóra og
yfirleitt slik stórfyrirtæki, að ó-
gleymdum okkar ágætu popp-
hljómsveitum. Þetta framtak
þeirra félaga er til mikillar
fyrirmyndar, og það má með
sanni segja, að þeir hafa ekki
ráðist á garðinn, þar sem hann
er lægstur, þvi að uppbygging
sliks stúdiós kostar stórfé, og
rekstrargrundvöllur sem slikur
ekki stór i okkar litla landi. En
við eigum okkar sinfóniuhljóm-
sveit, og þvi ekki okkar eigið
stúdió. Tækin keyptu þeir af
Roger Arnhoff i Noregi, sem
tekið hefur upp margar isl.
hljómsveitir, og til marks um
gæði tækjanna má nefna, að
plötur Rió triósins voru teknar
upp i þeim.
Það kemur til með að vera
Star.fs.U5 og eigendur Hljó&'itúiar h.f.
i upptökusaliuiKi.
son og Sigurjón Sighvatsson og
eru þeir allir um leið starfs-
menn stúdiósins. Skipta þeir
með sér verkum þannig, að
Sigurjón sér um framkvæmda-
stjórn, Jónas um upptökustjórn,
og Böðvar og Jón Þór, sem báð-
ir eru þjálfaðir og lærðir upp-
tökumenn, munu annast upp-
tökur.
Hið nýja stúdió er búið mjög
fullkomnum tækjum, og stenst
fyllilega samanburð við bestu
átta rása stúdió erlendis, enda
er allur frágangur og vinnuað-
staða þar til fyrirmyndar.
Tækjabúnaðurinn er sem hér
segir: Hljóðblöndunarborð:
Tore Seem 18 rásir, segulbands-
tæki: Scully f jölrásatæki 8 rásir,
Scully master tape 2 rásir,
bergmálstæki: EMT 140 stereo
Revox tape echo, Quasi mixer:
Allan Heath, Graphic Equaliz-
er: AVAB, Magnarar: H/H
100W, hátalarar: JBL STUDIO
MONITORS 4320, piötuspilarar:
mikill munur fyrir islenskar
hljómsveitir, að i stað þess að
þurfa að leggja dag við nótt er-
lendis, og taka allt upp I einni
lotu, geta þær nú hagrætt upp-
tökutima að eigin vild, og komið
hvenær sem er, hvort sem er að
nóttu eða degi. Þá er verðmis-
munur á upptökukostnaði einnig
verulegur, auk þess sem dval-
arkostnaður fellur úr dæminu.
Þannig lætur nærri, að kostnað-
ur við upptöku á plötu (miðað
við 70tima istúdiói) sé helmingi
minni, ef hún er tekin upp i nýja
stúdióinu, en ef að hún væri tek-
in upp erlendis. Fyrir mismun-
inn er sem sé hægt að taka upp
aðra plötu, eða taka helmingi
meiri áhættu hvað sölu plötunn-
ar varðar. Þá skapast hér einn-
ig aðstaða fyrir ýmsar aðrar
upptökur, svo sem fyrir kvik-
myndir, og útvarps og sjón-
varpsþætti. Brambolt óskar
Hljóðritun H/F alls hins besta i
framtiðinni.
•íonas R. j'óíiyöon, hljóðstjóm, Böðvar Quðmundsson, hijóóritun,
Sigurjósv Siglivut.sGon, fasrik^mkjastlQri Jón Hamtessoru hlióftritun.
Sunnudagur 20. apríl 1975.