Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Alþýðublaðið - 04.06.1975, Side 12

Alþýðublaðið - 04.06.1975, Side 12
alþýðu mRTnm Mjntmt liF PLASTPOKAVERKSMIÐJA Slmar 82639-82655 Vatnogðr6um 6 Box 4064 - Reykjavík KÓPAYOGS APÓTEK Opiö öll kvöld til kl. 7 laugardaga til kl. 12 S£NDI8IL ASTÖOINHf Þórarinn Helgason Sigriöur Böövarsdóttir Steinþóra Einarsdóttir hér á Hrafnistu, en ég verð ni- ræður i haust. Ég er nú alveg hættur að hugsa um fjármálin, þau sér sonur minn um fyrir mig, svo að ég veit ekki hvernig þeim málum er háttað. Ég geri mér ekkert til skemmtunar, ég get það ekki, er orðinn svo slæmur i höndunum af riðu.” Oti á svölunum hjá aðal- dyrunum hittum við fyrir Sig- riði Böðvarsdóttur, en hún hefur dvalið á Hrafnistu i ein átta ár. Hún sagði: ,,Ég get nú litið af mér gert, ég er i hjólastój, og get mig hvergi hreyft eða geng- ið. Ég fer hérna út á svalirnar og út á ganga i stólnum, það er voðalega mikill munur að kom- ast það þó, og þurfa ekki að liggja rúmföst. Ég þarf ekkert að borga fyrir vistina hérna sjálf núna, hún er greidd úr tryggingunum, en meðan maðurinn minn lifði, og vann fyrir okkur, þurftum við að borga.” Við förum aftur inn, og á ganginum hittum við Steinþóru Einarsdóttur, sem biður okkur strax upp i herbergi til sin, þar sem við ræðum við hana. Hún hefur dvalið á Hrafnistu i þrjú ár. ,,Ég borga hérna með mér 38 þúsund krónur á mánuði, og það stendur vist til að það hækki i mai. Þetta finnst manni nú nógu hátt, en þetta bjargast samt með naumindum hjá mér. Fólk hérna hefur sumt reynt að lifa á tvöföldum lifeyri og tekst það sumu. Ég geri mér það nú helst til dundurs að hekla og steypa i leir. Fyrsta árið, sem ég var hérna, hnýtti ég teppi, stór veggteppi, en naut þá meiri hjálpar en ég nú geri, varð siðan löt, og tók til við að hekla, uns nú á siöustu dögum, að ég er tekin til við leirinn. Annars á að vera hér sérstakt föndurherbergi, en þar er ekkert til. Það þyrfti endilega að vera góð föndurað- Jón Guömundsson og Jason Sigurösson Þaö er ekkert leyndarmál nú orðið, að það er erfitt að vera gamall á tslandi, og ástandið i málum aldraðra verður sifellt iskyggilegra. Ekki kemur það til með að bæta úr skák, að fyrir nokkrum dögum auglýsti eitt elliheimilanna, að ekki þýddi neitt fyrir aldrað fólk að sækja þar um vistun næstu misserin, þvi að biðlistinn væri orðinn svo langur, að heimilið treysti sér ekki lengur til þess að skrifa niður nöfn þeirra, er hug hefðu á vistun. Það var elliheimilið Hrafnista, sem lét þessa til- kynningu út ganga, og i tilefni hennar, brá blaðamaður Al- þýðublaðsins sér þangað til þess að ræða þar við nokkra vist- menn og kynna sér hag þeirra. Af svörum þeirra mátti ráða, að þeim fannst ýmislegt ábótavant i málefnum aldraðra, en verst fannst þeim þó dýrtiðin, og þeir baggar sem hún hefur lagt þeim á herðar, gamla fólkinu, sem ætti að vera áhyggjulaust i ell- inni. Viö hittum fyrst fyrir Odd Jónsson og Þórarinn Helgason, þar sem þeir sitja frammi á gangi og eru að spjalla saman. Oddur er 86 ára og hefur verið blindur siöustu tiu árin. Við spyrjum hann, hvað hann hafi unnið hér áður fyrr, og hvort hann finni ekki mikinn mun á þvi að lifa þá og nú. Oddur svar- aði: Ég gutlaði nú á togurunum i tuttugu ár, en vann siðan hjá bænum tuttugu siðustu árin, áð- ur en ég missti sjónina. Þá var ég lika með kotbúskap i Soga- mýrinni i nokkur ár. Ég hef það nú svo sem ágætt núna. Hérna fæ ég allt fritt, en enga drykkju- peninga, einn af þeim fáu. Ég get sem sagt ekkert fengið mér að drekka. Enda segja þeir að það sé orðið svo dýrt brenni- vinið nú orðið, það kostaði ekki nema 60 aura, þegar ég fyrst byrjaði að lepja. Og vinar- brauðið i þá daga kostaði 5 aura.” Þórarinn hafði þetta að segja: ,,Ég átti að heita bóndi, og bjó á Látrum i Mjóafirði. Þetta er nú fimmta árið, sem ég hef búin RÆTT VIÐ ÞÁ HEPPNU Á HRAFNISTU Ljósm. Gisli Þau sátu að spiium staða hér. En stofnunin er alltaf á hausnum held ég, og getur lit- iðsinnt þessum málum. Annars vil ég taka það fram, að allt starfsfólk hér er reglulega þægilegt, og Hrafn vill allt fyrir mann gera, sérstaklega eru gangastúlkurnar elskulegar. En það er samt margt sem er hér ábótavant.” Inni i dagstofunni á þriðju hæð hittum viö þau Kristinu Guð- mundsdóttur, Jón Kjerúlf Guð- mundson, Elinberg Pétursson og Sesselju Eldjárn. Þau sátu að spilum. Aðspurð kváðust þau vera að spila sér til afþreyingar eða eins og Elinbergur sagði: „Eitthvað verðum við að gera til að drepa timann, og þetta er það eina, sem við getum gert.” Úti á svölunum hittum við fyrir hresst fólk, sem var að ganntast i góða veðrinu. Þeir Jón Guðmundsson og Jason Sigurðsson sátu á sólbekk. Ekki tókst okkur þó að hafa mikið upp úr þeim, þvi að i þessu komu út nokkrar eldri konur, sem sögðu, að þeir væru stór- Oddur Jónsson varasamir, og fáu trúandi, sem þeir segðu. Við snerum okkur þvi að þeim og spurðum, hvað þær hétu. Þær kváðust heita Guðrún Ólafia Asbjörnsdóttir, og Jónina Pétursdóttir. Guðrún hafði eftirfarandi að segja: „Við höfum nóg við að vera hér, ég vakna oft snemma og fer út að ganga, og fer oft niöur i bæ. Svo fer ég mikið út að dansa, og fer á öll böll, sem haldin eru hérna fyrir okkur. Svo hef ég leikið i kvikmyndum i sjónvarp- inu, bæði Brekkukotsannál og séra Hallgrimi hans Jökuls.” Að lokum spjölluðum við við eina frú á staðnum, en hún sagði það meðal annars, að hún og maður- inn hennar þyrftu að borga 60 þúsund á mánuði, og að endar næðu að sjálfsögðu ekki saman með þvi móti. Þau hefðu reynt að fá viðbót, en árangurslaust. Af framangreindu má sjá, að ástandið er allt annað en gott meðan 500 manns eru á biðlista eftir þvi að komast inn á dvalar- heimili fyrir aldraða. Guðrún ólafía Asbjörnsdóttir. PIMM á förnum vegi Guömundur Lárusson, fram- kvæmdastjóri: „Abyggilega er • ég það. Almennt athæfi mitt, svo sem annarra, er með þeim hætti, að ég hiýt að vera synd- ugur”. Katrin Kristinsdóttir, ganga- stúlka: „Það má lengi ræða um hvort ég er syndug eða ekki. Það eru vist allir meir eða minna syndugir og ég býst við að ég sé það lika. Hvort ég er meir eöa minna syndug dæmi ég ekki um”. Jón Guðjónsson, skrifstofumaö- ur: „Já, ég er syndugur. Ef til vill ekkert sérstaklega, en ætli maður komist gegn um lifið án þess að syndga? Það geri ég ekki ráð fyrir. Hefur þú annars hitt einhvern syndlausan?” Ragnheiöur Matthiasdóttir, nemi: „Já, það er ég, en hverjar syndirnar eru segi ég ykkur ekki. Ætli ég sé ekki rétt i með- allagi syndug”. Axel Valdimarsson, verkamaö- ur: „Nei, það hef ég aldrei ver- ið. Bæði er ég svo vel af Guði gerður, að ég er syndlaus maður og svo er ég verkamaður að at- vinnu og hef þess vegna ekki heldur efni á að syndga. Verka- menn á Islandi hafa yfirleitt ekki efni á þvi”. Ert þú syndug(ur)?

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.