Alþýðublaðið - 26.06.1975, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 26.06.1975, Blaðsíða 3
ÆTLA AÐ STOFNA KLÚBB UM FERDIR TIL MALLORCA 1 kvöld verður haldinn i Sigtúni stofnfundur nýs ferðaklúbbs, Club Mallorca, sem hafa mun á stefnuskrá sinni ódyrar ferðir til eyjunnar Mallorca, fyrir íslenska ferðamenn. Telja forráðamenn klúbbsins, að mögulegt sé að lækka verð á Mallorcaferðum um allt að 25%, frá því sem rikjandi ■er hjá ferðaskrifstofum hér. í framtiðinni er ætlan klúbbstofn- enda að athuga möguleika á ó- dýrari ferðum til baðstranda á meginlandi Spánar. í viðtali við Alþýðublaðið i gær, kvaðst Axel Gomes Retana, sem er aðalhvatamaður að stofnun klúbbsins hafa staðið i samning- um við nokkur hótel á Mallorca, meðal annars þriggja stjörnu hótel og gæti hann komist að mjög hagstæðum samningum við þau. m NORRÆNNA HÁLS- NEF- OG EYRNA- LÆKNA Dagana 26.-28. júni verður haldið 19. þing norrænna háls-, nef- og eyrnalækna að Hótel Loft- leiðum. Félagasamtök þeirra á Norðurlöndum, en þau eru 5 að tölu, standa formlega fyrir þessu þingi, en slik þing eru haldin þriðja hvert ár og er nú þingað i fyrsta skipti hér á íslandi. Til- gangur rábstefnunnar er að efla kynni og samskipti háls-, nef- og eyrnalækna Norðurlanda, bæði félagslega og faglega og til vis- indalegra umræðna um læknis- fræðileg efni sérgreinarinnar. Gert er ráð fyrir, að þátttakenda- fjöldi verði um 260 manns. Samtfmis þinginu verður hald- inn stjórnarfundur félags nor- rænna háls-, nef- og eyrnatækna, en i henni eru 2 aðilar frá hverju landi, en forseti þess nú er Er- lingur Þorsteinsson, yfirlæknir, sem er jafnframt forseti þessa þings. Þingið verður sett i Þjóðleik- húsinu fimmtudaginn 26. júnf kl. lOf.h. Fara siðan fundirnir fram, eins og áður segir, að Hótel Loft- leiðum. Helstu málefni þingsins verða arfgengir sjúkdómar i hálsi, nefi og eyrum og meðferð ýmissa svimasjúkdóma. Auk þess verða til umræðu fjölmörg önnur atriði þessarar sérgreinar læknisfræðinnar. Ennfremur kvabst Axel eiga i samningaviðræðum við islenskt flugfélag um leiguflug til Mallorca og væri hægt að ná þvi niður í um 25.000 krónur fyrir manninn. Þannig kvaðst Axel geta tryggt íslendingum 15 daga dvöl á Mallorca, ásamt fullu fæði og ferðum, fyrir um 50.000 krón- ur. Verð hjá íslensku ferðaskrifstofunum frá kr. 50.000 Skyndikönnun á verði Mallorcaferða hjá islenskum ferðaskrifstofum i gær leiddi i ljós, að verð þeirra, með fullu fæði, hóteldvöl og ferðum, er frá um 50.000 krónur. Alþýðublaðið hafði i gær einnig samband við flugfélagið Air Viking og spurðist fyrir um verð á leiguflugi. Þar fengust þær upp- lýsingar, að væri fyrirfram tryggt að vélar yrðu alveg full- setnar og þær einnig fylltar til baka, þá mætti ef til vill ná verði á flugfarinu niður i rúmlega 25.000 krónur. Hins vegar væri ekki leyfilegt að selja flugfar i or- lofsferðir, án þess að annað það er fylgir ferðinni sigli með. Um fullyrðingu Axels, að hægt væri að fá flugfarið fyrir 25.000 krónur, sagði Guðni Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Air Viking: ,,Ef það væri tilfellið að maðurinn gæti boðið upp á þetta, þá mynd- um við þegar panta 6000 sæti hjá honum.” SOMU SKIEIM! c Efsta myndin til hægri er af AELOUS (AR 3), en það tilheyrir bandariska flotanum. Skipinu var breytt i kapalskip eða viðgerðar- skip 1954. Á miðmyndinni til hægri sést kapalskipið THOR (ARC 4), syst- urskip fyrrnefnds skips. Neðstu myndina til hægri tóku skipverjar á skuttogaranum Vestmannaey af kapalskipi við suðurströnd Islands fyrir skömmu og sést rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson i baksýn. Við samanburð kemur i ljós, að myndunum úr „Jane’s Fighting Ships” svipar mjög til kapal- skipsins, sem lónað hefur við Is- landsstrendur að undanförnu. A litlu myndinni hér fyrir neðan geturað lita skorsteininn á kapal- skipinu. Hann er merktur og verður ekki betur séð en merkið sé bandariski örninn. Myndirnar á forsiðu og hér á siðunni af kapalskipinu og teknar voru um borð i Vestmannaey eru teknar af Kristjáni Kristjánssyni og Guðmundi Alfreðssyni.— Q l \ L^ji ’• '■'■■ «* j\ / II ’V'L. GAGNKVÆM FERDAMANNASKIPTi MILLI iSLANDS OG SPÁNAR? „Við erum að bollaleggja sumarleyfisferðir milli íslands og Spánar, á báða bóga. Viðræður eiga sér nú stað milli okkar og spönsku ferðaskrifstofunnar Tab- er, sem við munum hafa sam- vinnu við i þessu sambandi, og til stendur að skipuleggja ferðir spánskra ferðamannahópa hing- að, jafnt sem islenskra til Spánar. Ég vil þó sem minnst fullyrða um þetta mál að svo komnu, þar sem ekki hefur enn verið gengið frá þvi að fullu”, sagði Guðjón Styrkásson, framkvæmdastjóri Ferðamiðstöðvarinnar, i viðtali við Alþýðublaðið i gær. ,,Ég fæ ekki séð neitt þvi til fyrirstöðu”, sagði Guðjón enn- fremur, ,,að um gott og hag- kvæmt samstarf geti orðið að ræða, þar sem Taber er traustur viðskiptaaðili og við höfum undanfarið getað boðið upp á góð- ar ferðir til Spánar, á hagkvæmu verði.” Spánska ferðaskrifstofan Taber kom fyrst við sögu ferðamála hérlendis, þegar hópur spánverja kom hingað um siðustu páska. Upphaflega hafði ferð þessi verið skipulögð af spönskum knatt- spyrnuáhugamanni, sem vildi fá islensk félög til þess að taka þátt i páskamóti á Spáni og vildi nýta leiguflug með þvi að senda spán- verja hingað á meðan. Svo sem kunnugt er, af skrifum blaða á þeim tima, varð ekki af för knatt- spyrnufélaganna, en spönsku ferðamennirnir komu engu að siður og likaði mjög vel þrátt fyrir ýmsa hnökra, sem reyndust vera á skipulagningu ferðarinn- ar. Eftir að reynsla var fengin af þeirri ferð, hafði spánska ferða- skrifstofan samband við islenska aðila um hugsanlegt áframhald á þessari starfsemi. Hafa nokkur bréfaskipti átt sér stað milli Ferðamiðstöðvarinnar og Taber, með þeim árangri sem að framan greinir. Ferðaskrifstofan Sunna hefur einnig átt i nokkrum bréfaskrift- um við Taber, án þess þó að um beinar viðræður hafi verið að ræða, en flogið hefur fyrir að verði af samstarfi þessu, muni flugfélagið Air Viking annast flutninga á viðkomandi ferða- mannahópum, þó að það hafi ekki fengist staðfest. SALTFISKTOLLURINN MEÐ LEYFI GATT ,,Ég setti mig strax i samband við yfirvöld á Spáni, þegar ég hafði lesið fréttina i Alþýðublað- inu s.l. þriðjudag, þar sem frá þvi er skýrt, að Spánverjar muni leggja 10% toll á saltfisk frá Isiandi,” sagði Magnús Viglundsson, aðalræðismaður Spánverja á Islandi, en hafði samband við blaðið i gær. „Þetta er alveg rétt, sem Alþýðublaðið segir I þessari frétt. En ég tel eðlilegt, að það komi einnig fram, að spönsk stjórnvöld hafa lagt þerinan toll á allar innfluttar vörur, hann gildir um allan innflutning Akvörðun spánskra stjórnvalda er tekið i samráði við öll GATT- löndin og I samráði við GATT- sáttmálann”, sagði Magnús Viglundsson ennfremur. IÞR0TTAAÐST0ÐUNNI ÁFÁTT NYRÐRA Norðlendingafjórðungur hefur dregíst talsvert aftur úr öðrum landsfjórðungum hvað snertir uppbyggingu iþróttamannvirkja á siðari árum, og má sem dæmi um það nefna, að til að jafna met- in þyrfti að reista þar 34 sund- laugar. 1 byggingu félagsheimila hefur hinsvegar verið gert mikið átak á Norðurlandi, og sam- kvæmt könnun á notum þeirra er aðeins 9% notatimans vegna dansleikja, en 40% vegna skólaaf- nota og æfinga. Þetta kom fram hjá Þorsteini Einarssyni iþróttafulltrða á ráð- stefnu um æskulýðsmál, sem var haldin að Laugum I Reykjadal dagana 21. og 22. júni sl., að til- hlutan F jórðun gssa mbands Norðlendinga, i samstarfi við ungmennasamtök á Norðurlandi, Iþróttaaðila og æskulýðsráð rikis- ins. Ráðstefnuna sóttu 90 manns, vfðsvegar að af Norðurlandi, en tilgangur hennar var að auka samstarf og skilning á milli sveit- arstjórnarmanna og framá- manna I æskulýðsmálum á Norðurlandi. Megin niðurstöður greinar- gerða fulltrúa héraða og kaup- staða á ráðstefnunni voru þær, að æskulýðsstarfsemin byggi viðast hvar við ónóga aðstöðu fyrir starf semi sina, og nauðsynlegt væri að gera stórátak i uppbyggingu iþróttamannvirkja. Hinsvegar væri viðast hvar ekki um veruleg- an fjárstuðning sveitarfélaganna við þessa starfsemi að ræða, og hún þyrfti að byggja að verulegu leyti á framtaki áhugamanna. Var samdóma álit manna, að sveitarfélögin þyrftu að sinna þessum málum af vaxandi þrótti, en fram kom i samstarfshópi um æskulýðsmál. sem starfaði á ráð- stefnunni. að skortur á fjár- magni, hæfum leiðbeinendum og viðunandi aðstöðu hái allri æsku- lýðsstarfsemi á Norðurlandi. Fimmtudagur 26. júní 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.