Alþýðublaðið - 26.06.1975, Blaðsíða 11
ÍHItðTTIIt
Umsjón: Björn Blondat
Slá FH-ingar HSÍ ref fyrir rass í þjálfaraleitinni?
..Fáum góðar undirtektir
í fl- og V-Þvskalandi”
- segir formaður handknattleiksdeildar FH Ingvar Victorsson
um þjálfaraleit félagsins
Um þessar mundir eru FH-ing-
ar að leita fyrir sér i A- og V-
Þýskalandi eftir handknattleiks-
þjálfara. En FH og Haukar eru
einu liðin f 1. deild sem ekki hafa
ráöið þjálfara fyrir veturinn.
,,Við teljum okkur eiga góða
möguieika á að fá þjáifara frá A-
eða V-Þýskalandi,” sagði
formaður handknattleiksdeildar
FH, Ingvar Victorsson í gær.
„Logi Einarsson bæjarstjóri á
Neskaupstað er að athuga fyrir
okkur með þjálfara I A-Þýska-
landi og eftir þvi sem hann kemst
næst, þá eru taldir góðir mögu-
leikar á aö fá þjálfara þaðan.
í V-Þýskaiandi er Gunnar
Einarsson að athuga þetta mál
fyrir okkur með aðstoð forráða-
manna Göpphingen og teija þeir
okkur eiga góða möguleika á að
fá góðan þjálfara.
Við erum þegar búnir að leita
fyrir okkur I Svfþjóð og Dan-
mörku, en þar virðist ástandið lft-
ið betra en hérna. I Sviþjóð eru
sagðir aðeins 6 góðir þjálfarar og
eru þeir þcgar ráðnir til félaga
þar I landi.
t Danmörku höfðuin við sam-
band við „islandsbanann”
Jörgen Petersen, en hann sagði
okkur að ástandiö I þjálfaramál-
um þar i landi væri ekki upp á
marga fiska og tók hann svo djúpt
I árina að þar væru aðeins starf-
andi 2—3 góðir handknattleiks-
þjálfarar.
Við viljum ekki ráða nema 1.
flokks þjálfara og erum i þvi
sambandi tiibúnir tii að leggja
fram töluverða vinnu. Við settum
þvi stefnuna á A- og V-Þýskaland
og eins og útiitið er I dag erum við
mjög bjartsýnir með að okkur
takist að fá góðan mann Jiaðan.’
Ingvar Victorsson formaður handknattleiksdeildar FH: „Teljum okk-
ur eiga góða möguleika á að fá þjálfara frá A-, eða V-Þýskalandi til
starfa hjá okkur I vetur. Við stefnum að 1. flokks þjálfara, annað þýðir
ekki fyrst við förum út í þessa hluti á annað borö.”
Það virðist þvi sem svo að þeir
FH-ingar ætli að slá stjórn HSl
ref fyrir rass i þessum málum, en
eins og kunnugt er gáfust þeir
stjórnarmenn IISÍ upp á að leita
að erlendum landsliðsþjálfara.
Frankfurt bikarmeist-
ari í V-Þýskalandi
Eintracht Frankfurt varð
bikarmeistari i V-býskalandi
um siðustu helgi, þegar liðið
sigraði MSV Duisburg i úrslita-
leiknum, 1-0.
Leikið var i Hannover að við-
stöddum 43 þúsund áhorfendum
og skoraði miövörður Frank-
furt, Körbel eina mark leiksins
á 57. minútu.
Efri myndin er tekin eftir að
Kröbel hefur sent boltann i
mark Duisburg, en sú neðri þeg-
ar leikmenn Frankfurt fagna
sigri sinum i leiknum. Sá sem
heldur á bikarnum er Körbel, sá
er skoraði sigurmarkið I leikn-
um.
Kemur Göpphingen í haust?
Miklar líkur eru á að lið Gunnars Einarssonar í V-Þýskalandi, Göpphingen
komi hingað i haust i boði IR
Miklar likur eru á að ÍR sem á
haust heimsóknina i handknatt-
leik, geri samkomulag við FH
um að fá félag Gunnars Einars-
sonar, Göpphingen i heimsókn i
haust.
Vitað er að forráðamenn
Göpphingen hafa haft áhuga á
að koma hingað og hafa beðið
forráðamenn FH að athuga þá
möguleika. Mun IR-ingum hafa
verið tilkynnt um þessa ósk
Göpphingen þvi félagið á tilkall
til haustheimsóknarinnar, en
þeir munu ekki hafa haft mikinn
áhuga i fyrstu.
Nú virðast forráðamenn 1R
aftur á móti hafa fengið áhug-
ann og nú eru horfur taldar góð-
ar á að 1R og FH sameinist um
að fá Göpphingen hingað til
lands i haust og yrði sú heim-
sókn þá væntanlega i október.
Keppa Rússar á Reykja-
víkurleikunum í frjálsum?
Sendu óvænt tilboð til FRÍ, en breytingar á dagskrá leikanna
kunna að setja strik í reikninginn
t næstu viku, eða nánar tiltek-
ið á mjðviku- og fimmtudag
verða Reykjavikurleikarnir i
frjálsiþróttum haldnir á Laug-
ardalsvellinum.
Hefur stjórn FRl haft þann
hátt á, að bjóða frægum erlend-
um iþróttamönnum á leikana.
I ár viröist heimsóknir er-
lendra iþréttamanna ætla að
falla niður og þá aðallega vegna
fjárskorts. Nú hefur þeim
frjálsiþróttamönnum hinsvegar
borist óvænt tilboð frá Rússum
sem bjóða að senda 5 góða menn
á leikana.
„Það er þó hinsvegar ekki
ljóst hvort af þessari heimsókn
getur orðið,” sagði örn Eiðsson
formaður FRI i gær. ,,A móta-
skrá Evrópusambandsins eru
leikarnir á dagskrá 7.-8. júli,
en við urðum að breyta dögun-
um vegna knattspyrnukapp-
leikja. Við höfum þegar tilkynnt
þeim um þessa breytingu og
biðum nú eftir svari.”
Mjög dýrt er aö fá góöa frjáls-
iþróttamenn til keppni hér á
landi og t.d. Bandarikjamenn
sem eiga mjög góðu fólki á að
skipa er útilokað að fá til
keppni.
Fær FRÍ1/2 miljón í dag?
Umboðsmaður Winston boðar til blaðamannafundar
1 dag gengst umboðsmaður
Winston sigarettuframleiðand-
ans, Rolf Johansen fyrir blaða-
mannafundi.
Er talið fullvist að fyrirtækið
ætli að afhenda FRt fjárupphæð
i sambandi við söfnunina marg-
frægu á tómum vindlingapökk-
um.
En eins og kunnugt er hætti
FRl við þá söfnun eftir að
nokkrir aðilar höfðu boðist til að
safna fé til styrktar starfsem-
inni, en gegn þvi skilyrði að FRl
hætti við fyrirhugaða söfnun á
tómum vindlingapökkum.
Ekki tókst þessi söfnun sem
best, en FRI fékk þó i sinn hlut
um 1/2 miljón, en upphaf-
iega átti að reyna að safna 1 og
1/2 miljón.
Eftir þvi sem við komumst
næst i gær þá mun FRl fá af-
henta 1/2 miljón i dag frá um-
boðsmanni Winston og er þá
upphæðin orðin 1 miljón sem
FRl hefur haft upp úr krafsinu.
o
Fimmtudagur 26. júní 1975.