Alþýðublaðið - 02.08.1975, Síða 12

Alþýðublaðið - 02.08.1975, Síða 12
Ekta islenskur um- hleypingar og ómögulegt að spá. „Þetta er með allrá versta móti mina, eiginlega ómögulegt ab spá nokkru um veðrið, sú spá getur verið orðin marklaus á næstu andrá”, sagði Guðmund- ur Hafsteinsson veðurfræðingur i samtali við Alþýðublaðið i gær. Þó sagði Guðmundur að sér sýndist verða norðvestanátt og súld og skúrir frá suðvestan- landi til norðurlands i gær og fram á daginn i dag, en þurrast á austur- og suðausturlandi. í Vestmannaeyjum sagðist hann efast um að yrði þurrt fyrst um sinn. En það rikja sem sagt ekta is- lenskir umhleypingar þessa dagana og erfitt eða ómögulegt að spá nokkru um veðrið, þann- ig að þrátt fyrir allt geta þeir sem eru á faraldsfæti um landið þessa helgi, verið bjartsýnir, al- veg eins og svartsýnir. Qáian VORA V//VA/A * □ i 't : VA V, ^TffOK t/ff/NN urvci D.j\DR PNb/ * mot HÆNUR NN S MCrR HLur/ ARK ? ■ínmTtf F/SK - UPINN SPurvfi T/IK/ •ÍPVJU AL mÚG! r <í/tLun v£NV/ TPÍ s 1 /1 S/NJUH tKKI moPG t fj'RX hÓP/KH FffOSl Wgffl mv-L Otgefandi: Blað hf. Framkvæmda- stjóri:IngólfurP. Steinsson. Ritstjóri: Sighvatur Björgvinsson. .Fréttastjóri: Helgi E. Helgason. Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10, simi 14906. Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10, simi 14900. Prentun: Blaöaprent hf. Askriftarverö kr. 700,- á mánuði. Verð i lausasölu kr. 40.- KOPAYOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 MEGUM VIÐ KYNNA Ninn nýi ritstjóri Vfsis, Þorsteinn Pálsson er 27 ára gamall Selfyssingur, fæddur 29. okt. 1947 — en fluttist nlu ára gamall til höfuðborgar- innar þar sem hann gekk I skóla og lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla tslands árið 1968 — og svo prófi I lögum frá Ht i fyrravor. Þá haföi Þorsteinn ásamt námi verið blaðamaður við Morgunblaðið frá árinu 1970. For- eldrar hans eru hjónin Ingigerður Þorsteinsdóttir og Páll Sigurðs- son skrifstofumaður. Þorsteinn er kvæntur Ingi- björgu Þórunni Rafnar, frá Akur- eyri, dóttir Jónasar Rafnar bankastjóra og konu hans, Aðal- heiðar Bjarnadóttur. Ingibjörg lauk lögfræðiprófi nú i vor og starfar sem lögfræöingur fyrir Búnaðarbankann. Þau eiga eina dóttur barna, 10 mánaða gamia. — Það eru óttalega litlar tóm- stundir, sem okkur gefast, svar- aði Þorsteinn spurningu Alþýðu- blaðsins, en ef okkur gefast þær, þá höfum við ákaflega gaman af að fara í gönguferðir úti i náttúr- unni. — Ef þú værir ekki i blaða- mennsku, hvaða starf kysir þú þér? — Ætli það yrðu ekki lögfræði- störf. Þegar ég var lltill átti ég mér þá ósk heitasta að verða bil- stjóri. Ég er hins vegar eindæma klaufi við það — og eina starfs- bakterian sem hefur gripið mig er blaðamennskan. — Hvernig er samvinna ykkar ritstjóranna hér á VIsi? — Samstarf okkar Jónasar Kristjánssonar er mjög gott og þar rikir fullt samkomulag. OKKAR Á MILLI SAGT Að tjaldabaki I pólitikinni eru sifelldar sögusagnir þess efnis, að Halldór Sigurðsson.samgöngu- og landbúnaðarráðherra hafi hug á að verða bankastjóri við Búnaðarbankann... Hann mundi þá væntanlega ekki bjóða sig fram til þings aftur. Koma kinverska skipsins HAN CHUAN til Stra'umsvíkur og kaup Klnverja á 10.000 lestum af áli voru sögulegri atburður en flestir gerðu sér grein fyrir... Klnverjar gátu keypt álið á hent- ugri stöðum, en völdu ísland visvitandi af þvl að þeir viija auka skipti við okkur ... Verði áframhald á sllkri verslun, verður Klna stór aðili I utanrikisviðskiptum okkar og vegur e.t.v. eitthvað á móti þeim áhrifum, sem fiskikaup Sovétrlkjanna hafa veitt þeim hér um árabil. IIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIUIHIIIIIIIMIIIIHMIIIIHIIIIMIIIIHIIIIIMIIIIIIIIIIIMIMmiimi HEYRT OG HLERAÐ Magnús Kjartanssonsálgreindi fornvin sinn, Þórarinn Þórarins- son.i leiðara nýlega og komst að þeirri niðurstöðu, að Þórarinn ætti við andlega kreppu að etja vegna þess, að hann hefði hvorki verið valinn ráðherra I Ólafiu né i ihaldsstjórnina. Fróðir menn segja, að Magnús hefði einnig getað nefnt nöfn þeirra Steingrims Hermannssonar, Ingvars Glslasonar og Jóns Skaftasonar I þessu sambandi. Þessir fjórir myndi skuggaráðu- neyti flokksins. xxx Þvi hefur heyrst fleygt, að rikisstjórnin hafi við siðustu rækjuverðsákvörðun heitið rækjuútflytjendum þvi að láta gengi islensku krónunnar siga hægt og rólega til þess að bæta þeim i munni eftir verðákvörðun- ina, sem þeir töldu sér óhag- stæða. „Gengissigið”, sem ríkis- stjórn ólafs Jóhannessonar fann upp, er nefnilega þannig úr garði gert, að hægt er að fella gengíð i smáskömmtum án þess að eftir þvi sé tekið — enginn veit, hve mikið af „siginu” er aðflutt og hve mikið „blandað á staðnum”. En svo er nú komið, að Banda- rikjadollar er 10 krónum dýrari þessa stundina, en hann var i vor. Að sögn Alþýðumannsins á Akureyri gengur sú saga fjöllun- um hærra nyrðra, að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi i hyggju að „hrók- era” á Jónasi Haralz, banka- stjóra Landsbankans og Matt- hlasi Á. Mathiesen, fjármálaráð- herra. Munu menn telja Lands- bankann svo vel stæðan, að þetta sé óhætt. ÖRVAR HEFUR ORÐIÐ Þegar skráð verður saga þess timabils, sem íslendingar nú lifa, mun óðaverðbólga án efa verða talin megin- einkenni þess, rétt eins og menn muna óðaverðbólg- una I Þýskalandi upp úr 1920, en fátt annað frá þvi tímabili. Rikistjórnir þessa timabils, vinstri stjórnin og Ihaldsstjórnin, hafa gert ísland að algeru viðundri með um og yfir 50% verðbólgu, svo að sambærileg dæmi finnast ekki nema I rikjum I Suður-Amerlku, sem ramba á barmi hruns og stjórnleysis. Þrátt fyrir þetta reyna stuðningsmenn stjórnar- innar að telja þjóðinni trú um, að rlkisstjórnin hafi stefnu i efnahagsmálum og þessi stefna sé farin að sýna árangur. Þvl til sönnunar nefna þeir yfir- leitt aðeins eitt dæmi: Það hefur verið full atvinna — þjóðin hefur komist hjá atvinnuleysi. Þetta er að miklu leyti rétt. Hins vegar má ekki gleyma því, að I hagkerf- um Islands og annarra lýðræðisrikja er órjúfandi samhengi milli verðbólgu og atvinnuleysis. Rlkið getur dælt fé i framkvæmdir og aukinn kaupmátt, og þannig dregið stórlega úr at- vinnuleysi eða jafnvel af- numið það. Á hinn bóginn getur rikið gert harðar ráðstafanir gegn verð- bólgu, en þær leiða oft til samdráttar og atvinnu- leysis.Vandinnerað finna hið rétta jafnvægi þarna á milli, og er það engan veginn auðvelt. Þegar ljóst er samhengið milli verð- bólgu og atvinnuleysis, vaknar þessi spurning: Mundi nokkurt rlki verða I vandræðum með aö þurrka út atvinnuleysi með þvl aö sleppa lausri 30—50% verðbólgu? Rikin I Vestur-Evrópu og Norður-Ameriku mundu ekki þurfa nálægt þvi svo mikla verðbólgu til að vinna bug á atvinnuleys- inu. Það getur þvi varla talist til mikilla afreka, þótt rlkisstjórn íslands haldi fullri atvinnu með þvi móti sem það er gert. í fyrrahaust lofaði for- sætisráðherra að verð- bólgan mundi á komandi hausti verða komin niður I 25%, en það virðist nú vonlaust meö öllu. Isiendingar verða að gera hvorttveggja, viðhalda fullri atvinnu og hemja verðbólguna, a.m.k. við þau 10—12% á ári, sem hér hafa verið, og siðar á enn lægra stigi. Það er engin afsökun fyrir 50% verðbólgu, að tekist hafi að forðast at- vinnuleysi. Þvl marki á að ná án þess að missa al- gerlega stjórn á verð- bólgunni og valda þarmeð ómælanlegri röskun um allt efnahagslif þjóðar- innar. FIMM á förnum vegi Sveinn Stefánsson, lögreglu- þjónn: —Ef engin læti verða um helgina og ég verö ekki kallaður út á aukavakt, þá hef ég I hyggju að eyða helginni i sumarbústað sem ég á i Hverageröi. Ingi Arsælsson, fulltrúi: — Ég hef nú ekki ákveðið mig enn. Annað hvort fer ég I Veiðivötn eða að Skaftafelli. Helgi Birgisson, kjötiðnaöar- maður: — Ég er alveg harö-' ákveðinn i þvi, að fara helst ekki mikið lengra, en fram úr rúm- inu. Rögnvaldur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri: — Ég er nú ný- kominn úr sumarfrii austan af fjörðum. Ég hygg þvl ekki á löng ferðalög um helgina. Sigriður Gisladóttir, rafsuðu- nemi: — Nei, ætli ég fari nokkuð. Annars vorum við píurnar að pæla I þvi að fara að Draghálsi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.