Alþýðublaðið - 07.10.1975, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 07.10.1975, Qupperneq 3
Steffnulfós Kjartan Jóhannsson skrifar O Hagstjórnar- tækin óvirk? Hagf ræðilegir ráðunautar ríkisstjórnarinnar hafa nú, eins og oft áður, bent á, að þörf sé að- halds í peningamálum og ríkis- fjármálum. Þetta hefur verið nokkuð reglubundin ábending á undanförnum árum. Stjórnmála- f lokkarnir hafa líka oft ályktað í svipuðum dúr. AAætti þá halda að framkvæmd hinna nauðsynlegu aðhaldsaðgerða hafi verið tryggð. Samt kennir reynslan okkur, að efnahagslífið skoppar með æði reglubundnum hætti úr einni ,,kreppunni" i aðra. Og þegar litið er yfir farinn veg, kemur gjarnan i Ijós, að ekki haf i til tekizt sem skyldi. Hvað veldur? Nýverið hafa bankarnir tilkynnt, að þeir muni halda áfram að takmarka útlán sin með sérstöku samkomulagi, en jafn- framthafa þeirgert rikisstjórn og Alþingi orð, að þessar aðgerðir muni hrökkva skammt, ef Alþingi og rikisstjórn sjái ekki um aðhald i rikisfjármálum og at- höfnum fjárfestingarlánasjóða. Er ekki svona ábending óþörf? Vita mennirnir ekki þetta? Eða er eitthvað í ólagi með hagstjórnartækin? 1 péningamálum hafa hefðbundnar að- haldsaðgerðir einkum verið i þvi fólgnar, að takmarka peningamagn með þvi að frysta hluta inniána bankanna i Seðla- banka, og i þvi að minnka eftirspurn eftir lánsfé með hækkun vaxta. Þegar við bú- um við jafn óhóflega verðbólgu og nú rik- ir, eða 40—50% á ári, eru aðgerðir af þessu tagi gagnslitlar, en geta jafnvel gert ógagn. Eftirspurnina eftir lánsfé er ekki unnt að hemja með vaxtahækkun, þegar vextirnir ná ekki einu sinni hálfum verðbólguhraðanum, samanbersl. tvöár. Ennfremur er ekki kleift að hækka vext- ina i takt við verðbólguna, þvi að þá færi verulegur hluti atvinnurekstrar á haus- inn. Hagstjórnartækið vaxtastefna er þannig óvirkt við þessi verðbólguskilyrði. A hinn bóginn veldur verðbólgan erfið- leikum i atvinnurekstri, vaxandi þörf fyrir rekstrarfé og knappari rekstraraf- komu i mörgum greinum. Vaxtahækkun verður þá til þess að auka enn á þessa erfiðleika, og þau fyrirtæki sem geta, velta hinum aukna tilkostnaði af vöxtunum út i verðlagið, og auka þannig verðbólguna. Frysting fjár i Seðlabanka og beiting refsivaxta hefur heldur ekki reynst nægilega traust aðhald á undanförnum árum. Bankar og spari- sjóðir hafa hreinlega séð sig knúða til þess að axla refsivextina og auka útlán sin, ell- egar talið hag sinum betur borgið með þvi að taka á sig refsivexti og liða t.d. við- skiptaaðilum yfirdrátt á hlaupareikning- um á mjög háum vöxtum, frekar en að hætta á, að rekstur viðskiptaaðilanna stöðvaðist og enn hærri fjárhæðir gætu verið i hættu. Frystingar- og refsivaxtar- ákvæðin hafa þannig ekki skilað tilætluð- um árangri. Þetta hagstjórnartæki hefur reynst i verulegum mæli óvirkt. Samkomulag bankanna um takmörkun útlána verður að skoða i þessu ljósi. I þvi felst að gera virka aðferð (áður oft rædda, en óvirka), sem kemur að hluta i stað hinna hefðbundnu aðgerða, er brugðizt hafa. En þessi aðgerð kemur auðvátað að takmörkuðum notum, ef þær stórkostlegu fjárfúlgur, sem fara um fjárfestingar- iánasjóðina leika iausum hala. Þess vegna er ábending bankanna um þá eðli- leg og reynslan hefur sýnt, að vert er að minna bæði á sjóðina og rikisfjármálin. Með stjórn rikisfjármála á að vera unnt að jafna atvinnustig I landinu, hafa letj- andi áhrif á verðbóigu og hafa ýfirhöfúð verulega stjórn á eftirspurninni i landinu eftir vörum og þjónustu, og þá um leið á- hrif á viðskiptajöfnuð okkar gagnvart út- löndum. Hlutfallið milli þess fjár, sem heimilin hafa til ráðstöfunar og þess sem fer i samneyzlu ákvarðast lika að hluta til af stefnunni i rikisfjármálum. Þegar verðbólga er rikjandi, má þannig hafa letjandi áhrif á verðbólguna með þvi að sýna aðhald I fjármálum rikisins. Þetta viðurkenna lika stjórnmálaflokkarnir i orði. En um framkvæmdina hefur farið heldur verr á undanförnum árum. Reynslan virðist kenna okkur, að þær rikisstjórnir og þeir stjórnmálamenn, sem með völdin hafa farið á næstliðnum árum, hafi i rauninni gert þetta hag- stjórnartæki óvirkt. Það er eins og alþing- ismönnum sé svo I mun, að afrekaskrá þeirra sýni stór framlög til allra handa málaflokka og verkefna, sem i sjáifu sér eru reyndar flest góðra gjalda verð, að þeir séu óhæfir til þess að notfæra sér það hagstjórnartæki, sem rikisfjárlögin eru. Hver þarf að pota sinu og lætur heildina. lönd og leið. Afrekaskráin verður að verá i lagi, en efnahagsástandið er alltaf öðr- um að kenna. Seinustu rikisstjórnir hafa lika reynst óhæfar til þess að leiða þennan „hagsmunahóp” á rétta braut og aðhalds- leysisins eru mörg dæmi i ákvörðunum rikisstjórnanna sjálfra, þvi að ráðherr- arnir hver um sig viröast lika hugsa frek- ar um eigin afrekaskrá en heildarstjórn- ina. Meðan ástandið er svona verðum við sem sagt að réikna með þvi að tvö veiga- mikil hagstjórnartæki séu óvirk, hinar hefðbundnu peningamálaaðgerðir og meðferð rikisfjármála. Hinar fyrrnefndu eru óvirkar af þvi að við höfum komið okkur upp svo ærlegri verðbólgu og af þvi að stofnana- og sjóöakerfið er svo sundr- að, en hinar siðari af þvi að það eru menn i kerfinu, menn, sem ekki hafa náttúru til þess að gera hagstjórnartækið virkt. Meðan þetta ástand varir þarf okkur þess vegna ekki að koma á óvart, að hver „efnahagskreppan” reki aðra og árangur verði ekki sá, sem hagfræðingar ætla. Það er einfaldlega ekki árangurs að vænta af óvirkum aðgerðum. Til þess að ná árangri i stjórn efnahagsmála er nauðsynlegt að hægt sé að beita þeim tækjum, sem pen- ingamál og rikisfjármál eru, þótt jafn- framtsé ljóst að samræmd stefna i launa- málum er ein af forsendum efnahagsjafn- vægis. Viðbrögð bankanna hrökkva þvi skammt nema fleira komi til, þar á meðal sinnaskipti hinna ráðandi stjórnmálaafla. f> f Dagsími til kl. 20: 81866 f rettabraðurinnj*^! Guðmundur á svæðamót í Búlgaríu Svæðamót i skák hefst i Búlgaríu 22. þessa mánaðar og tekur Guömundur Sigurjónsson stórmeistari þátt i þvi. Guðmundur sagði að sextán manns tækju þátt i þessu móti eða sami fjöldiog kepptu á svæðamót- inu sem haldið verður hérlendis. A mótinu sem Guðmundur tekur þátt i verða sex eða sjö stórmeist- arar og má þar nefna menn eins og Matulovic, Radulov og Georghiu. Guðmundur óskaði eftir þvi að Björgvin Viglundsson færi með sér sem aðstoðarmaður, en Skák- samandið sá sér ekki fært að Batásjómenn vilja 150 þús. á mánuði — Bátasamningunum verður sagt upp fyrir 1. nóvember og lágmarkskauptrygging sem við teljum sanngjarna er 150 þúsund á mánuði. Kosin hefur verið 12 manna nefnd til að stilla upp kröf- unum, en stjórnvöld eru búin að skrumskæla svo núverandi samn- inga að ekki verður við unað, sagði Jón Sigurðsson forseti Sjó- mannasambands tslands í viðtali við Alþýðublaðið i gær. Jón sagði, að ef gengið væri út frá deilitölunni 100 væri óhætt að fullyrða, að búið væri að skerða þá tölu niður i 50. Gjald er tekið væri i oliusjóð og stofnfjársjóð hefði skert kjör bátasjómanna um minnsta kosti 11-12%. Nú væri kauptrygging háseta á bátunum aðeins 77 þúsund krónur á mánuði en skylduvinnustundir greiða götu hans I þeim efnum. Sagði Guömundur, aö þaö væri ó- metanlegt aö hafa aöstoöarmenn . meö sér á svona mót og það væri slæmt aö ekki hef ði reynst unnt að verða við óskum sfnum I þessu máli. væru 12 til 18 á sóiarhring. Miðað við greiðslur til manna sem ynnu t.d. við Sigöldu eða á Grundar- tanga væri óhætt að fullyrða aöþar færu greiðslur langt fram úrþviersjómenn bæruúrbýtum. Þvi væri útilokað annað en að sjó- menn risu upp til að ná rétti sin- um. — Þessar kröfur sýna aðeins að menn eru ekki orðnir leiðir á gengisfellingum hérlendis, sagði Kristján Ragnarsson fram- kvæmdastjóri LÍÚ þegar blaðið bar þessar kröfur undir hann. Kristján kvað kaup sjómanna hafa hækkað fyllilega til sam- ræmis við kaup verkafólks i landi. Sjómenn hefðu notið góðs af hækkuðu fiskverði og kauptrygg- ing bátasjómanna væri nú 82.500 á mánuði og ofan á það bættist or- lof. Taldi hann af og frá að sjómenn ættu rétt á kauphækkun þótt oliu- verð hækkaði. Hér virðist bera svo mikið i milli að hætta er á að samningar gangi erfiðlega. Sveinn Ben krefst 320 þúsunda 1 gær var tekið fyrir i Hæsta- rétti mál Sveins Benediktssonar gegn Agnari Bogasyni ritstjóra Mánudagsblaðsins. Mál þetta er orðið nokkurra ára gamalt, en Sveinn stefndi Agnari vegna greinar sem birtist i Mánudags- blaðinu. Krafðist Sveinn Benediktsson þess aö sér yrðu greiddar 320 þús- undir i miskabætur. 1 héraðsdómi voru Sveini dæmdar 50 þúsundir en hann vildi ekki sætta sig við þau málalok og áfrýjaði til Hæstaréttar. Dómur verður væntanlega kveðinn upp innan skamms i máli þessu. Sfðdegisblöðin bíða í óvissu Enn er allt i óvissu með hvort Visir eða Dagblaðið fær prentun i framtiðinni á Blaðaprentsverði. Gerðardómur skipaður þrem mönnum, fjallar um málið en vart er búist við að hann skili áliti fyrr en um miðjan mánuðinn. Upphaflega var gert ráð fyrir, að álit dómsins lægi fyrir áttunda október, en þá er mánuður liðinn frá þvi að Dagblaðið hóf göngu sina. Nú er útséð að svo verði ekki, en sem fyrr segir er niður- stöðu að vænta siðar i mánuðin- um. Þeir sem skipa gerðardóminn eru Stefán Már Stefánsson, Arn- ljótur Björnsson og Guðmundur Jónsson. A meðan úrskurður ligg- ur ekki fyrir greiða bæði blöðin 70% ofan á venjulegan prentunar- kostnað Blaðaprents. Afgangssíldin fryst í beitu „Síld hefur verið lögö upp hér af tveini skipum nú i haust, Hörpu og Jóni Garðari tvisvar”, sagöi vigtarmaöurinn i Sandgeröi viö biaöiö I gær. „Mér viröist þaö hafa veriö fallegasta sild og gæti trúaö, aö hún væri i stæröarflokki 30 sm og þar yfir, bætti hann viö. „Jón Garðar mun eiga hér um 330-340 tunnur uppsaltaöar, en ég veit ekki hvaö Harpa fékk mikið saltaö. Hinsvegar var um 90 tonnum ekiö i frystihús af afla Hörpu og sömuleiöis hefur Jón Garöar látiö frysta þaö, sem skipshöfn komst ekki yfir aö salta. Síldina isa bátarnir þegar.” Aðspuröur um, hvar aflinn heföi fengist, taldi hann aö sumt heföi fengist austur við Vik, en annaö austan Vestmannaeyja. Sláturdrykkju hætt á Kópaskeri Undanfarin haust hefur veriö kvartað mikið undan stórdrykkju sláturhússmanna á Kópaskeri. tbúar staðarins hafa ekki talið sig óhulta vegna drykkjuláta að- komumanna sem vinna við slát- urhúsið. Nú hefur lögreglan á Raufar- höfn tekið þessi mál föstum tök- um, en umdæmi Raufarhafnar- lögreglu nær til Kópaskers. Stöð- ugur vörður er hafður yfir starfs- fólki sláturhússins og hefur það orðið tíl þess að drykkjuskapur og ólæti hafa horfið með öllu. Sjómannastarf Þeir eru fáir, sem hafa vit- neskju um að I Reykjavik er starfandi fátækt og fámennt félag er nefnist Kristilega sjómanna- starfið. Félagið hefur þaö á stefnuskrá sinni að reisa og starf- rækja kristilegt sjómannaheimili i Reykjavik og þarf ekki að fjölyrða um nauðsyn sliks heimilis. 1 tvær stundir á dag hefur Kristilega sjómannastarfið haft opna litla sjómannastofu að Vesturgötu 19, en húsnæðið er alltof litið og ófullnægjandi. Félagið hefur fullan hug á að auka starfsemi sina og treystir á almenning I þeim efnum, þvi það fær enga styrki af almannafé. Dagana 6. til 14. þ.m. verða söludagar á sjómannastofunni, að Vesturgötu 19. Þar verða ullar- vörur og ýmsar handunnar vörur til sölu ásamt fleiru. Braust inn tvisvar á sama stað Tvö sérstæö innbrot á Raufar- höfn hafa nú veriö upplýst. Brotist var inn á verkstæöi Sfldarverksmiöjunnar á staönum 26. júli i sumar og nákvæmlega tveim mánuðum seinna var aftur brotist þar inn. Það innbrot skeði á sömu klukkustund og hið fyrra og nákvæmlega sama aðferð var viðhöfð. Stefán Tryggvason, lög- regluþjónn á Raufarhöfn sagði i samtali við Alþýðublaðið, að innbrotið i júli hefði verið framiö á þann hátt, að brotin var rúöa og teygt sig siöan i handfang til að opna dyrnar. Peningakassi með tæpum 50 þúsundum króna, ávisunum og nótum uppá nokkur hundruð þúsunda var hirtur. Ekki tókst að hafa uppá þjófnum i þaö skiptið þrátt fyrir rannsókn. Tveim mánuðum seinna var aftur brotist inn á sama stað og sama aðferð notuð. Kominn var annar peningakassi og var hann hirtur en i honum voru um átta þúsund krónur i peningum. Nú var málið tekið föstum tök- um, um 10 manns teknir til yfir- heyrslu og einn maður úr- skurðaður i allt að 14 daga gæslu- varðhald. Þegar þjófurinn heyrði þessi tiðindi var honum öllum lokið. Gekk hann á fund lög- reglunnar og játaði brot sitt. Fyrri peningakassanum hafði hann hent i djúpt vatn i nágrenni Raufarhafnar eftir að hafa hirt peningana og rifið ávisanirnar. Seinni kassanum fleygði hann svo i höfnina. Er nú beðið eftir kafara til að leita að peningakössunum tveim. Þriðjudagur 7. október 1975. Alþýðublaóið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.