Alþýðublaðið - 16.10.1975, Side 16

Alþýðublaðið - 16.10.1975, Side 16
Útgefandi: Blað hf. Framkvæmda- stjóri: Ingólfur P. Steinsson. Rit- stjóri: Sighvatur Kjörgvinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Bjarni Sigtryggsson. Auglýsingar og af- greiðsia: Hverfisgötu 10 — simar 14900 og 14906. Prentun: Blaða- prent hf. Askriftarverð kr. 800,- á mánuði. Verð í lausasölu kr. 40.-. KÓPAVOGS APÓTEK (Opiö öll kvöld til kl. 7 ilaugardaga til kl. 12 SENDIBILASTOOIN Hf — Veðrið------- Að öllum líkindum mun hann hanga þurr í dag. Austan kaldi verður á og skýjað loft. Er ekki hægt að segja annað en þetta sé hið ákjósanlega verður á þessum árstima. í nótt má hins vegar búast við kalda og ganga mun á með skúrum. Hita- 'stig verður svipað og undanfarið. Gáian 'OTKflUST B/66/HC, 5PYR Hft 1 FjSldi 'HRfl H!1 ftC/N /ð r mnR — * FLHuR atcin VffTNlD ■ÓFIFM fíR 5 flm HLJ- Bmtt. 6ÖTU HLUTfl NÚLL ÍLiKfl 3£/*S +SKINN E/H Mfí /H sér HLJ '/Lflí Dvöl. P/?ÓF mfto \VBRU\ \» AK-1 weyrA HEYRT, SEÐ OG HLERAÐ MEGUM VIÐ KYNNA Pétur Guðjónsson er fæddur á Hverfisgötu 50 I Reykjavik, 19. marz árið 1926. Hann er sonur hjónanna Guðjóns Jónssonar kaupmanns og Sigrfð- ar Pétursdóttur. Kona Péturs er Bára Sigurðardóttir, húsmóðir og kaupkona, en hún rekur verzlun- ina Báru i Reykjavik. Þau hjónin eiga tvo syni, en þeir eru Sigur- jón, sem er 25 ára viðskiptafræð- ingur, en hann er nú við fram- haldsnám i Bandarikjunum, og Guðjón, sem verður tvítugur nU á næstu dögum, en hann er á sjón- um sem stendur. Eftir gagnfræðanám fór Pétur I Loftskeytaskólann, en eftir próf úr honum lá leiðin I Verzlunar- skóla Islands, þar sem Pétur tók próf árið 1948. Pétur hefur stund- að verzlunarstörf siðan, og nú rekur hann fyrirtækið Kosmos hf. Helztu áhugamál Péturs Ut á við eru ferðalög og fjallgöngur, og þá helzt á Islandi, einnig er skytteri framarlega á lista. Um áhugamál sin inn á við sagði Pétur: ,,St jórnmál, hermál, og tungumál eru þar fremst i flokki hjá mér, en þau eru lykillinn að hinum ýmsu menningarheimum”. ,,Ég hef starfað lengi i Sjálfstæðisflokkn- um, og lagt mig sérstaklega eftir utanrikismálum, varnarmálum og sjávarútvegsmálum, og alltaf lagt sérstaka áherzlu á landhelg- ismál frá upphafi, og er það ekk- ert launungarmál, að skoðanir minar og flokksforystunnar hafa ekki farið saman i þvi máli. „Ahugamál innan fjölskyldunnar snúast aðallega um ferðalög, en Bára hefur mikinn áhuga fyrir listum almennt, og var hún i Tón- listaskólanum við pianónám i sjö ár.” „Eitt af minum mörgu áhuga- málum, er áhugi á öllum tegund- um listmuna, og fékk ég strax á- huga á þvlyer ég var i millilanda- siglingum 15 ára gamall. Ég hef safnað miklu af listmunum um æfina, en slik söfnun er mjög við- femt áhugamál sem útheimtir mikla reynslu og þekkingu á listasögu og tæknilegri hlið á gerð listmuna,” sagði Pétur að lokum. LESIÐ: í fjárlagafrumvarpinu, að niðurgreiðslur á landbúnaðar- afurðum á næsta ári muni eiga að nema yfir 4 milljörðum króna. A þvi sama ári er áætlað, að rikis- sjóður fái i tekjur af tekjusköttum allra einstaklinga á Islandium 5,6 millj. kr. Ef ekki hefði verið gert ráð fyrir u.þ.b. fjórðungs niður- skurði á niðurgreiðslum á árinu hefðu þvi tekjur rikissjóðs af tekjuskatti allra einstaklinga á Islandi rétt aðeins hrokkið til að greiða kostnaðinn við niður- greiðslur á búvöruverði. HEYRT: Að ástæðan fyrir þvi, að frestað var að kjósa i fjárveit- inganefnd Alþingis i fyrradag hafi verið sú, að Reykjavikur- þingmenn hafi bundizt samtökum um að reyna að koma einum Ur sinum hópi i nefndina. Fram til þessa hafa einvörðungu lands- byggðarþingmenn valizt til setu i f járveitin ganefnd. TEKIÐ EFTIR: Að fyrir nokkrum dögum ritaði Jón Skaftason, einn af alþingismönn- um Framsóknarflokksins, grein i Timann þar sem hann lýsti þvi m.a. yfir, að landbúnaðarstefnan, sem rekin hefur verið, hafi nú gengið sér til húðar og að brýna nauðsyn beri til að taka hana til endurskoðunar. Bragð er að þá barnið finnur. TEKIÐ EFTlR:\Að enn sem komið er, þá eru- Rússar eina þjóðin, sem forrmega hefur mót- mælt 200 milna útfærslunni við Is- land. Ýmsar aðrar Austur- Evrópuþjóðir stunda veiðar á is- lenzkum miðum, en engin þeirra hefur cnn a.m.k. fylgt fordæmi Rússa. LESIÐ: 1 færeyska blaðinu SOSIALURINN, að i byrjun þessa mánaðar hafi verið stofnuð Neyt- endasamtök i Færeyjum, sem eru sniðin eftir Neytendasamtökun- um á Islandi. Stofnendur félags- ins höfðu kynnt sér lög neytenda- samtaka á Norðurlöndum og komust að þeirri niðurstöðu, að skipulag islenzku Neytendasam- takanna hentaði bezt færeyskum aðstæðum. LESID: 1 Akureyrarblaðinu IS- LENDINGI, að tilboð hafi borizt um að reisa bogaskemmu yfir sundlaugina á Akureyri og hljóði tilboðið upp á 4 m. kr. fyrir efni og vinnu. HEYRT:Aðþess sé skammt að biða, að rækjuverð verði ákveðið og muni það að likindum verða eitthvað nálægt 42 kr. á kiló. Séu rækjuveiðimenn staðráðnir i þvi að fara ekki á sjó fyrir það verð. ER ÞAD SATT, að bókaútgef- endur liafi látið I Ijós eindregna ósk við H ANNIBAL VALDIMARSSON um að fá ævi- minningar hans til útgáfu? Z0RVAR HEFUR ORÐIÐ^J Sjaldan hefur ráðleysi einnar rikisstjórnar opin- berazt betur, en i fjár- lagafrumvarpi rikis- stjórnar Geirs Hallgrims- sonar. 1 athugasemdum þess er boðaður veruleg- ur samdráttur á rikisút- gjöldum. Tillögurnar um, hvernig það eigi að ger- ast, eru hins vegar að meira eöa minna leyti gripnar Ur lausu iofti. Litum t.d. á, hvað rikis- stjórnin segir um málefni almannatrygginga. I frumvarpinu skýrir hún frá þeirri fyrirætlun sinni að lækka áður áætluð framlög rikisins til trygg- ingamála um 2 milljarða króna. Aætluð framlög til lifeyristrygginga eru skorin niöur um 1 mill- jarð og áætluð framlög til sjúkratrygginga um ann- an. Og hvernig á svo að framkvæma þennan nið- urskurð. Á að lækka elli- og örorkulifeyri? A e.t.v. að fella niður tekjutrygg- inguna? A að taka upp þann sið að láta sjúklinga á spitölum greiða hluta af kostnaöi við spitalaleg- una? Eða á að láta al- menning greiða hlutfalls- lega meira fyrir almenna læknishjálp en nú er gert? Ríkisstjórnin svarar eng- um slikum spurningum. HUn segir aðeins mill- jarður hér og milljaröur þar án nokkurra útskýr- inga eða tillagna. HUn segist ætla aö skipa nefnd j allra þingflokka I máliö. Það er sem sé ekki hún, sem ætlar aö gera tillögur um hvernig niðurskurðin- um skuli hagað, heldur ætlar hún að velta þeirri ábyrgð yfir á nefnd meö fulltrúum allra þing- flokka. Þannig ætlar rik- isstjórnin að smeygja sér undan vandanum. Fjárlagafrumvarp rik- isstjórnarinnar er þannig I veigamiklum atriðum . orð án meininga — hug- myndir án útfærslu — á- bendingar án tillagna. Þá sparnaðarstefnu, sem rikisstjórnin boðar i at- hugasemdum fjárlaga- frumvarpsins, fram- kvæmir hún likt eins og blindur maður beiti skær- um. Klippt er hér og klippt er þar og svo á aö skipa nefnd til þess að koma reikningunum saman — til þess að reyna að búa til einhverja heildarstefnu eftirá. t/BB ■ Ertu morgunsvæf(ur)? lris Gunnarsdóttir, skrifstofu- stúlka: „Nei, það er ég ekki. Ég fer frekar snemma að sofa á kvöldin og er vakin snemma á morgnana. Hins vegar nota ég ekki vekjaraklukku til þess að vakna.” Ragnhildur ólafsdóttir, fóstru- nemi: „Nei, ég er mjög árrisul og vakna við vekjaraklukku. Þó þvertek ég ekki fyrir það aö erfiðara er að fullvakna þegar haustar og veður taka að gerast leiðinleg. Að öllu jö/nu sef ég um 7-8 klukkustundir á sólarhring.” Sigrún Kristinsdóttir, fóstru- nemi: „Ég er að eðlisfari frekar morgunsvæf, og ekki sizt þegar fer að dimma á haustin. Ég vakna við vekjaraklukku og það er oft anzi erfitt að rifa sig framúr þegar hún hefur hringt.” Rafn Haraldsson, hljómlistar- maður: ,,Já, það er ég mjög. Vinnu minnar vegna vakna ég sjaldan fyrr en klukkan eitt til tvö eftir hádegi, og þá vakna ég venjulegast af sjálfsdáöum.” Auður Hauksdóttir, nemi: „Svolitiö. Ég vakna þó vanalega klukkan hálf átta á morgnana, en það verð ég að gera náms mins vegna. Þegar fridagar eru sef ég sko frameftir. Ég sef vanalega 8-9 klukkustundir á sólarhring.”

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.