Alþýðublaðið - 26.11.1975, Qupperneq 6
Karsten Andersen
Vladimir Ashkenazy
Bohdan Wodisczko
Jón Ásgeirsson
Garðar Cortes
i’orsteinn liannesson
Rut Ingólfsdóttir
Radu Llupu.
Gunnar Guðmundsson, hinn ötuli framkvæmda
stjóri Sinfóniuhljómsveitar islands.
Skammdegisbirta
Sinfóníuhljómsveitin heldur
a.m.k. þrenna tónleika fyrir jól
Snar þáttur i menningarstarfi þjóðar-
innar er rekstur Sinfóniuhljómsveitar
Islands. Þótt ibúar á Suðvesturlandi
hafi til þessa notið hennar meira en aðr-
ir landsmenn, þá hefur S.l. farið út á
land i rikara mæli nú en áður. Er þar
skemmst að minnast farar hennar til
Vestfjarða. Utan þessa er hluta hverra
tónleika hljóðvarpað hverju sinni og oft
kemur það sem á hefur vantað siðar.
Nú eru þrennir tónleikar á dagskránni
til jóla. 5. reglulegu tónleikar Sinfóniu-
hljómsveitarinnar verða haldnir á
morgun, fimmtudaginn 27. nóv. kl.
20.30. i Háskólabiói. Stjórnandi verður
Bohdan Wodiczko . Fluttur verður
forleikur eftir Stanislaw Moniuzko,
skozk fantasia fyrir fiðlu og hljóm-
sveit eftir Max Bruch og Sinfónia nr. 10
eftir Dimitri Sjostakovitsj.
Einleik i verki Bruch innir Rut
Ingólfsdóttir af hendi, en hún hefur
stundað fiðlunám og iðkun frá fimm ára
aldri. Hún kennir nú við Tónlistar-
skólann i Reykjavik, enda hefur náms-
ferill hennar verið glæsilegur bæði hér
heima og erlendis.
6. reglul. tónleikarn ir verða haldnir 4.
desember á sama stað og tima. Verk-
efnin á þeim tónleikum verða Egmond-
forleikurinn og Pianókonsert nr. 4 eftir
Beethoven auk 1. Sinfóniu Brahms.
Stjórnandi verður Vladimir Ashkenazy,
en einleikari Radu Llupu. Þessi pianó-
snillingur, Radu Llupu, er einn frægasti
einleikari á sitt hljóðfæri af yngri
kynslóðinni.
7. og siðustu reglulegu tónleikar S.l. á
þessu ári verða svo haldnir 11. desem-
ber og þá heldur aðalstjórnandi sveitar-
innar, Karsten Andersen, á tónsprotan-
um. A þessum tónleikum verður veru-
legur liðsauki á ferðinni. Má þar fyrst
nefna söngsveitina Filharmoniu, sem
vkr barn Róberts heitins A. Ottóssonar,
en er nú stjórnað af Jóni tónskáldi As-
geirssyni. Einsöngvararar verða Olöf
Harðardóttir, Garðar Cortes og slöast
en ekki sizt Þorsteinn Hannesson,
óperusöngvari, sem nú kemur fram i
fyrsta sinn i 14 ár.
Glöggt má sjá á þessu, að efnisskrá
næstu Sinfóniutónleika er mjög at-
hyglisverð svo og eru flytjendur ekki
siður áhugaverðir.
Það er vert að benda fólki á að haga
verkefnum og gjörðum sinum þannig i
jólaönnunum, að það verði ekki af þess-
ari lifbirtu i skammdeginu.
SHP.
Útvarp
MIÐVIKUDAGUR
26. október
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.15 Prykkjukvennahælið i
Ilvituhlið. Séra Arelius Niels-
son flytur erindi.
13.30 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Fingra-
mál” eftir Joanne Greenberg.
Bryndis Viglundsdóttir les þýð-
ingu sina (8).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Prengurinn i gullbuxunum”
eftir Max Lundgren.Olga Guð-
rún Árnadóttir les þýðingu sina
(5).
17.30 Framburðarkennsla i
dönsku og frönsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Vinnumál.Þáttur um lög og
rétt á vinnumarkaði. Ums'jón-
armenn: Lögfræðingarnir
Gunnar Eydal og Arnmundur
Backman.
20.00 Kvöldvaka. a. Einsöngur.
Stefán íslandi syngur, Fritz
Weisshappel leikur á pianó. b.
Austangeislar. Halldór Péturs-
son les fyrri hluta ferðaminn-
inga sinna frá liðum árum. c.
Um islenzka þjóðhætti. Árni
Björnsson cand. mag . talar. d.
Sögur af hundum og fleiri
minningar.Þórarinn Þórarins-
son, fyrrverandi skólastjóri,
segir frá. e. Kórsöngur. Karla-
kór Reykjavikur syngur lög
eftir Bjarna Þorsteinsson, und-
ir stjórn Páls P. Pálssonar.
Guðrún Kristinsdóttir leikur á
pianó.
21.30 Ctvarpssagan: „Fóstbræð-
ur” eftir Gunnar Gunnarsson.
Jakob Jóh. Smári þýddi. Þor-
steinn O. Stephensen leikari les
(20).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„Kjarval” eftir Thor V il -
hjálmsson. Höfundur les (19).
22.40 Djassþáttur i umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
23.25 Fréttir í stuttu máli. Dag-
skrárlok.
SJómrarp
MIÐVIKUDAGUR
26. nóvember 1975
18.00 Björninn Jógi. Bandariskur
teiknimyndaflokkur. Þýðandi
Jón Skaptason.
18.25 Kaplaskjól. Breskur
myndaflokkur byggður á sög-
um eftir Monicu Dickens. Gjöf
Simonar. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
18.50 Ballett fyrir alla. Breskur
fræðslumyndaflokkur. 2. þátt-
ur. Ballett ryður sér til rúms á
leiksviði. Þýðandi Hallveig
Thorlacius.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Vaka. Dagskrá um bók-
menntir og listir á liðandi
stund. Umsjónarmaður Aðal-
steinn Ingólfsson.
21.15 McCloud. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur. A
skeiðvelli stórborgarinnar.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.05 Englandsför.Ung stúlka frá
Pakistan dvelst um árabil i
Englandi við nám. Er heim
kemur, á hún erfitt með að
sætta sig við ýmsar venjur og
lifnaðarhætti, sem þar tiðkast.
Hún hverfur þvi aftur til Eng-
iands og gerist gangastúlka á
geðveikrahæli. Þýðandi Ingi
Karl Jóhannesson.
22.55 Dagskrárlok.
Pipulagnir 82208 Tökum að okkur alla
IiF pipulagningavinnu
PLASTPQKAVERKSMIOJA Oddur Möller
Sfmar 82439 - 82655
Vatnagftrftum 6 Box 4064 — RaykjavHt löggildur pipulagningameistari
74717.
Hafnarfjarðar Apótek Birgir Thorberg
Afgreiðslutími: málarameistari simi 11463
Virka daga kl. 9-18.30 'Laugardaga kl. 10-12.30. Onnumst alla
Helgidaga kl. 11-12 málningarvinnu
Eftir lokun: — úti og inni —
Upplýsing^simi 51600. gerum upp gömul húsgögn
launbeðamál 7. þingi Verkamannasambands íslands nýlokið
Afleiðing versnandi viðskiptakjara og óðaverðbólgu:
Ráðstöfunarfé heimilanna hefur dregizt
meira saman en kaupmáttur hefur lækkað
Ráðstöfunarfé
7. þing Verkamannasambands
íslands var haldið i Reykjavik
dagana 21.—23. nóvember. Þing-
haldið fór fram i Lindarbæ, Lind-
argötu 9, og hófstþingið kl. 20.30 á
föstudag og lauk kl. 01 aðfaranótt
sunnudags. Þingið sátu 89 fulltrú-
ar 38 sambandsfélaga, en 4 félög
sendu ekki fulltrúa.
Þingforseti var Hermann
Guðmundsson form. Vmf. Hlifar
og varaforsetar Guðriður Elias-
dóttir form. Framtiðarinnar og
Kolbeinn Friðbjarnarson form.
Vöku. Ritarar voru Jón Agnar
Eggertsson, Borgarnesi, og Guð-
rún ólafsdóttir, Keflavik.
Gestir þingsins voru: Björn
Jónsson forseti ASl, Roine Carls-
son stjórnar maður i Nordiska
fabriksarbetarefederationen og
Guðmunda Helgadóttir form.
Sóknar.
t skýrslu stjórnar kom fram, að
nú eru I sambandinu 42 verka-
lýðsfélög með um 18 þúsund fé-
lagsmenn. Samþykktir voru
reikningar sambandsins fyrir ár-
in 1973 og 1974.
Miklar og fjörugar umræður
urðu á þinginu um kjaramálin.
Eðvarð Sigurðsson, sem verið
hefur formaður Verkamanna-
sambandsins frá stofnun þess
1964, lét nú af formennsku af
heilsufarsástæðum, einnig viku
úr stjórn sambandsins að eigin
ósk Hermann Guðmundsson, sem
verið hefur ritari og siðustu árin
varaformaður og Jóna Guðjóns-
dóttirren þau hafa bæði átt sæti i
stjórn sambandsins frá upphafi,
voru þeim öllum og þá sérstak-
lega Eðvarði, þökkuð störf þeirra
i þágu sambandsins.
t stjórn sambandsins til næstu
2ja ára voru kjörin:
Formaður: Guðmundur J.
Guðmundsson, Reykjavik.
Varaformaður: Karl Steinar
Guðnason, Keflavik.
Ritari: Þórunn Valdimarsdótt-
ir, Reykjavik.
Gjaldkeri: Vilborg Sigurðar-
dóttir, Vestmannaeyjum.
Aðrir i stjórn: Ándrés Guð-
brandsson, Reykjavik,Björgvin
Sigurðss., Stokkseyri,Hallgrimur
Pétursson, Hafnarfirði, Herdis
ólafsdóttir, Akranesi, Jón Helga-
son, Akureyri, Pétur Sigurðsson,
Isafirði, Sigfinnur Karlsson, Nes-
kaupstað.
Varamenn i stjórn: Guðriður
Eliasdóttir, Hafnarfirði. Halldór
Björnsson, Kópavogi. Skúli
Þórðarson, Akranesi, Guðrún
ólafsdóttir, Keflavik, Jón Karls-
son, Sauðárkróki.
Ályktun um kjaramál
Þegar 6. þing Verkamanna-
sambands tslands var haldið i
október 1973 var verkalýðshreyf-
ingin að búa sig undir samninga-
gerð, sem lauk svo sem kunnugt
er 26. febrúar 1974 er samninga-
nefnd Alþýðusambandsins undir-
ritaði samninga, við samtök at-
vinnurekenda. Þessir samningar
voru um margt athyglisverðir og
hafa verið mikið tií umræðu sið-
an.
Verðlagsþróunin á þessu tima-
bili hefur verið launafólki mjög ó-
hagstæð. Þannig hefur visitala
framfærslukostnaðar hækkað um
111% frá þvi i des. 1973 til nóv.
1975, en kaup verkamanna aðeins
um 80% á sama tima. Kaupmátt-
ur timakaups verkamanna varð
mestur 1. marz 1974 eða um 10%
hærri en i des. 1973 en lægstur 1.
júni 1975 aðeins 82% af þvi sem
var 1. des. 1973.
Viðnám verkalýðshreyfingar-
innar gegn óðaverðbólgunni og
ýmsum þeim ráðstöfunum stjórn-
valda, sem hafa verið launafólki
mjög andsnúnar hefur verið fólg-
ið i þvi að nota það ákvæði samn-
inganna, að þeir séu uppsegjan-
legir ef veruleg breyting verði á
gengi, til þess að segja þeim upp
og gera siðan bráðabirgðasamn-
inga til skamms tima og hafa
þannig verið gerðir samningar 26.
marz fyrir marz—mai og 13. júni
til áramóta.
Jafnframt hefur verið reynt að
hafa áhrif á gerðir stjórnvalda
launafólki i hag en með misjöfn-
um árangri. Allar launahækkanir
frá 1. marz 1974, nema 3% hækk-
unin 1. des. 1974, hafa verið
krónuhækkanir sem komið hafa
jafnt á alla taxta.
Þessar hækkanir eru alls kr.
91.20 á klst. eða kr. 15.800 á mán-
uði. Þrátt fyrir þetta mikla
hækkun i krónutölu, hefur ekki
tekizt að halda i horfinu og vantar
nú um 17% til þess að timakaup
verkamanna hafi sama kaupmátt
og i des. 1973 en um 30% til þess
að ná hæsta kaupmætti timabils-
ins.
Afleiðing versnandi viðskipta-
kjara og óðaverðbólgu, sem
stjórnvöld hafa haft litla tilburði
til að hamla gegn hefur verið
samdráttur á ýmsum sviðum,
sérstaklega þjónustustarfsemi.
Ráðstöfunartekjur heimilanna
hafa af þeim sökum dregizt mun
meira saman heldur en kaup-
máttur kauptaxta hefur lækkað.
Að ekki hefur orðið stórfellt at-
vinnuleysi er fyrst og fremst að
þakka mikilli atvinnuuppbygg-
ingu undanfarinna ára, sérstak-
lega út um land og að unnið hefur
verið af kappi við stórfram-
kvæmdir i virkjunarmálum..
Hinsvegar sjást nú merki sam-
dráttar og atvinnuleysis, sem
stafar annarsvegar af frestun
framkvæmda og hinsvegar brös-
óttum rekstri hraðfrystihúsa
einkum á Suðvesturlandi, sem
þegar hefur valdið tilfinnanlegu
atvinnuleysi.
7. þing Verkamannasam-
bands tslands telur að við þær að-
stæður, sem nú eru i þjóðfélaginu
og að framan er að nokkru lýst,
þurfi verkalýðshreyfingin á öllum
sinum styrk að halda til varnar
kjörum félagsmanna sinna og
sóknar til aukins kaupmáttar
launa. Þingið telur þvi sjálfsagt
að öll aðildarsamtök Alþýðusam-
bands tslands standi sameinuð i
komandi samningum. í þeim
samningum verði megin áherzla
lögð á að bæta stöðu þeirra lægst
launuðu og vinna hið fyrsta upp
þá kjaraskerðingu, sem orðin er
og felur þingið væntanlegum full-
trúum Verkamannasambandsins
i samningum að fylgja þvi fast
eftir.
Jón Karlsson kjörinn form.
Alþýðusambands Norðurlands
Þá gerði þingið ályktun um
14. þing Alþýðusambands
Norðurlands var haldið á Akur-
eyri 1. og 2. nóvember sl. Þingið
sátu 74 fulltrúar frá 20 félögum i
Norðlendingafjórðungi.
A starfsári sambandsins hafa
gengið i sambandið tvö félög, en
tvö félög verið sameinuð i eitt.
Tala félaga i sambandinu er 20,
en félagsmannafjöldi þeirra er
um 6.500.
Þingforsetar voru kjörnir Jón
Ingimarsson, Akureyri, og
Tryggvi Helgason, Akureyri, og
þingritarar Flóra Baldvinsdóttir,
Siglufirði, og Baldur Halldórsson,
Akureyri.
tskýrslustjórnarkom fram,að
starf sambandsins hefur farið si-
vaxandi frá þvi siðasta þing var
haldiö, m.a. hafa siendurteknir
samningar valdið þar um og svo
nýir samningar fyrir hina ýmsu
hópa innan sambandsfélaganna,
er ekki höföu áður haft samninga.
Auk þessa hafa félögin sótt meiri
þjónustu til sambandsins en oft
áður, en fjárskortur sambandsins
hefur hamlað verulega aukinni
þjónustu við sambandsfélögin.
Bygging sameiginlegrar að-
stööu orlofsgesta 1 orlofsheimil-
um sambandsins að Illugastöðum
(svo kallað Kjarnahús) hefur enn
ekki verið frágengiö og enn vant-
ar nokkuð á að öðrum fram-
kvæmdum sé hægt að ljúka vegna
fjárskorts. Auk þess er samband-
ið með verulegar lausaskuldir er
valda sambandinu fjárhagserfið-
leikum. Það er þvi knýjandi
nauðsyn að sambandinu verði afl-
að fjár til að ljúka byggingu
Kjarnahússins og annarra fram-
kvæmda, og losa sambandið und-
an lausaskuldum þeim er stofnað
hefur verið til á undanförnum ár-
um.
kjaramál, en þar segir m.a.:
„14. þing Alþýðusambands
Norðurlands, haldið á Akureyri 1.
og 2. nóvember 1975, lýsir fyllsta
stuðningi við samþykkt mið-
stjórnar Alþýðusambands ts-
lands, þar sem þvi er beint til
allra sambandsfélaga að þau segi
upp kjarasamningum sinum fyrir
1. desember n.k., þannig að þeir
falli úr gildi á áramótum.
Það hlýtur að verða höfuðkrafa
i komandi kjarasamningum, að
gerðar verði raunhæfar ráðstaf-
anir til að hefta verðbólguna og
tryggja það, að hún verði ekki
meiri hér á landi en gerist i ná-
grannalöndum okkar. Þingið
heitirá alla þá, sem koma til með
að starfa að gerð nýrra kjara-
samninga að leggja allt kapp á að
ná þessu fram, þar sem umsamd-
Framhald á 11. siðu.
Allar ráðstafanir aðrar en bein-
ar kauphækkanir, sem gerðar
kunna að verða og miða að aukn-
ingu kaupmáttar, mun verka-
lýðshreyfingin nú sem jafnan áð-
ur meta, enda fylgi þeim ráðstöf-
unum tryggingar, sem hún tekur
gildar. 1 nýjum samningum verði
ákvæði er tryggi að umsamið
kaup haldi raungildi sinu.
Þingið telur það skipta megin-
máli, að allt verði gert til að koma
i veg fyrir atvinnuleysi og að full
atvinna verði tryggð.
7. þing Verkamannasambands
tslands samþykkir að boða til
fundar i framhaldi af ráðstefnu
A.S.t. 2. des. nk. til aö ganga frá
sérkröfum aðildarfélaga sam-
bandsins i væntanlegum kjara-
samningum. Til fundarins verði
þannig boðað, að hverju aðildar-
félagi verði gefinn kostur á að til-
nefna einn mann, Vmf. Dagsbrún
fjóra, Vlf. Eining og Vkf. Fram-
sókn tvo. A.S.V., A.N. og A.S.A.
verði einnig gefinn kostur á að til-
nefna einn mann hvert, sem full-
trúa fyrir þau félög á sambands-
svæðum þeirra sem ekki eru aðil-
ar að Verkamannasambandinu.
A fundinum verði kosin samn-
inganefnd, sem verði bakhjarl
fulltrúa Verkamannasambands-
ins i aðalsamninganefnd A.S.l.
jafnframt þvi að vera tengiliður
við verkalýðsféiögin.
Samþykkt um
landhelgismálið
7. þing Verkamannasambands
Islands telur að með skýrslum
Hafrannsóknarstofnunarinnar og
starfshóps visindamanna á veg-
um Rannsóknaráðs rikisins sé
fullsannað að til þess að þvi
markmiði verði náð að vernda
fiskistofna á tslandsmiðum sé
óhjákvæmilegt að draga fremur
úr sókn tslendinga þar, þótt engin
veiði erlendra þjóða komi þar til.
Þvi er auðsætt að allir samningar
um veiðirétt til handa erlendum
fiskiveiðiflotum stefna beint að
þvi að rýra lifskjör almennings á
islandi og jafnvel að þvi að eyði-
leggja grundvöllinn, sem þjóðin
byggir á lif sitt i landinu.
Þingið telur að samningsdrög
þau, sem nú liggja fyrir um
veiðiheimildir upp á 60 þús. tonna
ársveiði Vestur-Þjóðverja i næstu
tvö ár séu á allan hátt fordæman-
leg frá sjónarmiði tslendinga og
þýði i raun verulega aukningu á
veiðum þeirra innan fiskveiði-
markanna frá þvi sem verið hef-
ur.
Vill þingið vart trúa öðru en að
rikisstjórnin hafni þessum
drögum þegar i stað og taki i stað
þess það ráð að efla landhelgis-
gæzluna með tiltækum skipakosti
og beita henni til að verja hana að
fullu. — Allt annað telur þingið
fráleitt undanhald og uppgjöf hins
islenzka málstaðar.
Þingið skorar á öll aðildarfélög
sin, allt vinnandi fólk i landinu og
alla þjóðholla íslendinga hvar i
stétt eða flokki sem þeir standa
að sameinast nú um vernd land-
helginnar en gegn öllum upp-
gjafarsamningum og telur efna-
lega framtið þjóðarjnnar velta á
þvi að slik þjóðareining verði
augljós þegar i stað. Til áherzlu
þessarar skoðunar beinir þingið
þeim eindregnu tilmælum til alls
verkafólks i landinu að það mót-
mæli með sem öflugustum hætti
fyrirliggjandi samningsdrögum
við Vestur-Þjóðverja og öðru
hugsanlegu undanhaldi frá þeirri
stefnu að tslendingar einir hafi
rétt til fiskveiða innan 200 milna
fiskveiðilögsögunnar.
Fró Fjárhagsnefnd.
7. þing Verkamannasambands
Islands haldið i Lindarbæ 21.-23.
nóvember 1975.
Samþykkir að kjósa 5 manna
nefnd til að samræma reglur um
félags- og vinnuréttindagjöld
sambandsfélaga og þá með það i
huga hvort ekki sé rétt að taka
upp prósentugjald, sem verði viss
prósenta af dagvinnutekjum
verkafólks.
Einnig skal nefnd þessi gjöra
tillögur um eflingu verkfallssjóða
félaganna. Nefndin hraði störfum
og leggi tillögur sinar fyrir sam-
bandsstjórn til staðfestingar og
geta þá tillögur nefndarinnar
komið til framkvæmda með sam-
þykki viðkomandi félags.
Ályktun
um skattamál.
7. þing Verkamannasambands
íslands mótmælir harðlega þvi
ranglæti, sem rikir við skattlagn-
ingu hér á landi.
Þingið bendir á, að vegna rang-
láts skattkerfis og ósæmilegra
fyrningareglna er hér á landi
mikill og vaxandi fjöldi einstakl-
inga, sem hefur háar tekjur og lif-
ir i vellystingum, en bera þó eng-
an eða mjög litinn tekjuskatt.
Fjöldi fyrirtækja I landinu
blómstrar og skilar góðum
hagnaði, en nýtir sér leiðir sem
löggjafinn hefur opnað, til að
losna að verulegu eða öllu leyti
undan greiðslu tekjuskatts.
Meðan þessu fer fram er al-
menningur, sem yfirleitt verður
að leggja á sig óhóflegan vinnu-
dag, til að sjá sér og sínum
farborða, látinn bera þunga
skatta af nauðþurftartekjum sin-
um.
Þingiö mótmælir harðlega nú-
verandi skattalögum og fram-
kvæmd þeirra og telur að hér sé
þörf skjótra og gagngerðra breyt-
inga.
Þá telur þingið eðlilegt, að hluti
tekna verkafólks við fiskvinnslu
verði skattfrjáls við álagningu
tekjuskatts.
Frá kjaranefnd.
7. þing Verkamannasambands
tslands, haldið i Reykjavik dag-
ana 21.-23. nóv. 1975, mótmælir
þvi ranglæti sem islenzkum kon-
um er gert með þvi að fé til
greiðslu á fæðingarorlofi verka-
kvenna er tekið úr almennum
sjóði verkafólks, atvinnuleysis-
tryggingasjóði, en sams konar
orlof þeirra sem vinna hjá rikinu
eða sveitafélögum, er greitt af
almannafé.
Jafnframt vekur þingið athygli
á þvi misrétti, sem þeim konum
er sýnt, er eingöngu sinna vinnu á
heimiium sinum, en þær fá ekki
greitt neitt fæðingarorlof.
Þingiö telur eðlilegt og sjálf-
sagt að fæðingarorlof allra
kvenna greiðist af almannatrygg-
ingum, en fé til þeirra greiðslna
komi frá atvinnurekendum.
Frá kjaranefnd.
7. þing Verkamannasambands
tslands vill vekja athygli á þvi, að
með aukinni þátttöku islenzkra
kvenna I atvinnulifinu hafa
myndast öryggislausir láglauna-
hópar kvenna, en þær vinna þó
þau störf sem skapa þann arð og
þá fjármuni, sem þjóðfélag vort
byggist á og þá jafnframt mögu-
leika til að rétta samfélaginu þá
menntunaraðstöðu, sem það
kallar á til betur launaðra starfa.
-Þessi stóri hópur verkamanna
eru konur i frystihúsum og iðnaði,
sem er að verða stærsti hópur
anaarnir
DRAWN BY DENNIS COLUNS WRITTEN BY MAURICE DODD
Karl Steinar Guönason, varafor-
maður.
Þórunn Valdimarsdóttir, ritari.
verkamanna i landinu á lægsta
kaupi. Þær búa viða við lélegan
aðbúnað á vinnustöðum, vinna
erfiða vinnu og eru eigi siður en
aðrar útivinnandi húsmæður i
tvöföldu starfi.
Á kvennaári vill þvi þing
Verkamannasambands tslands
leggja áherzlu á það að ef launa-
jafnrétti kvenna og karla á að
verða nokkuð annað en pappirs-
jafnrétti þarf hér betur að vinna
en verið hefur og nú dugar ekki
lengur skráð kaup heldur greitt
kaup samkvæmt islenzkum
lögum um launajafnrétti karla og
kvenna.
Teppahreinsun
Hreinsum gólfteppl og húsgögn I
heimahúsum og fyrirlckjum.
Erum meft nýjar vélar. Góft þjón-
usta. Vanir menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
Ctvarps.og
sjónvarpsviðgerðir
Kvöld og helg-
arþjónusta.
10% afsláttur til
öryrkja og aldr-
aftra.
SJÓNVARPS-
VIÐGERÐIR
Skúlagötu 2S —
sltni 11740.
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 7420« — 74201
Dúnn í GtAEflBflE /ími 64900
T-ÞÍO TTILiSTlNN
T-LISTINN ER
imgreyptur og
þolir alla veðráttu.
T LISTINN A:
útihuröir svalahurðir
hjaraglugga og
\eltiglugga
LRC
vi
Gluggat miójan
20 - fcm. M7J0