Alþýðublaðið - 19.12.1975, Page 1
alþýdu
I
247. TBL. - 1975 - 56. ARG.
SILVIA
SVÍA-
DROTTNING
- Sjá OPNU
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER
Ritstjórn Siöumúla II - Slmi 81866
bmdqi
«.mv
G
HLERAD
Frystihúsin:
700 milljónir
Heildarhalli frystiiðnaðarins
á þessu ári er á bilinu 5-700
milljónir króna. Þessi gifurlegi
halli er fyrirsjáanlegur, þrátt
fyrir greiðslur úr Verðjöfnunar-
sjóði, sem nema hátt á annan
milljarð króna, en frystideild
sjóðsins er nú þurrausin og vel
það.
Þessar upplýsingar komu
fram á aukafundi Félagssam-
bands fiskframleiðenda, sem
nýlega var haldinn i Reykjavík.
Að sögn Árna Benediktssonar,
formanns félagsins, var aðal-
mál fundarins fjárhagsstaða
frystihúsanna. Lausafjárstaða
frystihúsanna hefur versnað
mun meira en hallanum nemur.
Þrátt fyrir að sala flestra
fisktegunda gangi vel og verð-
lag heldur farið hækkandi, eru
ekki likur á að það hækki sem
nemur þvi, sem greitt hefur
verið úr Verðjöfnunarsjóði á
þessu ári. Nokkur frystihús á
landinu hafa sagt upp starfs-
fólki vegna óvissunnar fram-
undan.
Kaupfélags-
smásalan:
29.2 milljónir
1 nýútkomnum skýrslum um
smásöluverzlun fyrir árið 1974,
sem Skipulags- og fræðsludeild
Sambandsins hefur sent frá sér,
kemur fram að afkoma smá-
söluverzlunar fer versnandi. 1
skýrslunum er gefið yfirlit yfir
rekstur 44 kaupfélagsverzlana á
landinu og kemur þar fram, að
velta þeirra á s.l. ári nam sam-
tals 2.500 millj. kr., en sú tala
miðast nær eingöngu við mat-
vöruverzlanir. Heildarvörusala
árið 1974 nam 11.201 millj. kr.,
að meðtöldum söluskatti, en i
þeirri tölu er innifalin sala á
margs konar sérvörum, A sama
tima og salan jókst um 39,1%,
jókst heildarkostnaður um
44.8%, en ástæðurnar munu
aðallega vera tvær, hækkun
vaxta og hækkun orkukostnað-
ar. Meðaltal brúttóhagnaðar
var 15,6%, en meðaltal heildar-
kostnaðar 16,8% af sölu með
söluskatti. Halli þessara verzl-
ana varð þvi 1,2% af sölu af
meðaltali. Samtals varð halli
þeirra 29,2 millj. kr., sem er 17,8
millj. kr. hækkun frá árinu 1973.
Afgreiðslu fjárlaga lýkur væntanlega á morgun:
AFTURHALDSFRUMVARPIÐ
VERÐUR AÐ LÖGUM
Gert er ráö fyrir að annaö kvöld
Ijúki afgreiðslu f járlaga á Alþingi,
og hefst þá jólahlé þingstarfa.
Fundir hafa veriö haldnir langt
fram á kvöld og verða i dag og á
morgun.
Allar breytingatillögur við frum-
varpið um 500 milljón króna auknar
álögur á sjúklinga hafa verið felld-
ar. Það er því Ijóst, að ríkisstjórnin
hefur sínar ákveðnu hugmyndr um
það, hverjir hafi breiðu bökin í
þessu þjóðfélagi, en það eru að
minnsta kosti ekki tekjuskatts-
frjálsu gróðafyrirtækin 500.
DRÁTTARSKIPIN
KVÖDD HF.TM ?
Alþýðublaðið frétti i ] ~ " “ ; ~~ " “
gærkvöidi að brezk her Lfast utti sjónæfni þeirra eftir að eitt sökk í Norðursjó
1974 metár f
húsbyggingum
A árinu 1974 varð þróunin i
byggingamálunum á þann
veg, að sem næst 2070 íbúðir
voru fullgerðar i landinu, en
framkvæmdir hófust við sem
næst 2600 ibúðir. Er hér um að
ræða óvenjulegan árangur i
ibúðaframleiðslunni, þvi að
aldrei áður hefur islenzkur
byggingariðnaður getað fram-
leitt og fullgert 2000 ibúðir eða
meir á einu ári. 1 þvi sam-
bandi er þess að geta, að á ár-
inu 1973 voru fullgerðar 1720
ibúðir og jafnframt voru full-
gerðar 413 viðlagasjóðsíbúðir,
en þær voru allar fluttar inn i
landið erlendis frá. Það er
einnig mjög óvanalegt, hve
framkvæmdir hófust við
margar ibúðir á árinu 1974,
þ.e. scm næst 2600 ibúðir. Að-
eins einu sinni áður hafa
framkvæmdir hafizt við fleiri
ibúðir, þ.e. á árinu 1973, er
framkvæmdir voru hafnar við
2774 ibúðir. Þessi tvö ár ásamt
árinu 1965 skera sig ú að þessu
leytinu til, allt frá 1960. Arið
1965 hófust framkvæmdir við
byggingu 2042 ibúða. öll önnur
ár þessa timabils hafa fram-
kvæmdir hafizt við færri en
2000 íbúðir árlega.
Framhald af bls. 2.
málayfirvöld hefðu ákveð-
ið að kalla dráttarskipin
heim af íslandsmiðum eft-
ir að dráttarskip sökk við
olíuborpall BP í Norðursjó
á laugardaginn.
Sjóhæfni dráttarskipanna hefur
verið véfengd og nú er ekki talið
ráðlegt að hafa þau við íslands-
strendur i vetrarveðrum.
Niu manna áhöfn var á dráttar-
skipinu Norman, sem var við
gæzlustörf á oliuborunarsvæðun-
um, og tókst að bjarga áhöfninni
um borð i fiskiskip, sem var nær-
statt. Dráttarskipin, sem hér hafa
verið að vernda brezka veiðiþjófa
komu einmitt frá oliuvinnslu-
svæðunum.
Oðin klippti og Bretar senda liðsauka
Varðskipsmönnum á Óðni tókst
að festa klippurnar i veiðarfær-
um brezka togarans Crystal
Palace laust fyrir hádegi i gær.
Atburðurinn átti sér stað um 26
sjómilur út af Langanesi.
Brezku togararnir hifðu upp,
þegar Öðinn nálgaðist, en þessi
var nokkuð seinn til. Siðan reyndu
togararnir undir forystu dráttar-
báts að sigla á Óðinn, en hann
sigldi á brott.
Freigátan Lowestoft er komin á
miðin fyrir austan, og fregnir
hafa borist um að ein til sé lögð á
stað á tslandsmið. Verða þá frei-
gáturnar orðnar fjórar.
ALLRA FL0KKA MENN
ANDMÆLA TRYGG-
INGAFRUMVARPINU
Stjórn Sambands islenzkra
sveitarfélaga hefur sent frá sér
samþykkt, þar sem lýst er yfir
undrun yfir framkomnu frum-
varpi um breytingu á almanna-
tryggingalögum.
Vill stjórn sambandsins vekja
athygli á þvi, að þetta ákvæði
gengur i berhögg við þær tillögur,
sem komið hafa fram um endur-
skoðun verkaskiptingar milli rik-
is og sveitarfélaga, en i samræmi
við þær hafa sveitarfélögin lagt
til, að rikið yfirtæki allan kostnað
við sjúkratryggingar. Þá tillögu
hefur fulltrúaráð og stjórn sam-
bandsins itrekað sérstaklega við
stjórnvöld undanfarið.
1 opnu er einnig sagt frá sam-
þykkt byggðastjórna á Reykja-
nesi um sama mál.
Þá var á borgarstjórnarfundi i
Reykjavik i gær samþykkt með 15
samhljóða atkvæðum tillaga lögð
fram af fulltrúum allra flokka,
þar sem þessum sömu fyrirætlun-
um rikisstjórnarinnar er harð-
lega mótmælt.
Félagarnir Björgvin og ólafur H. Jónsson voru einu leikmennirnir,
sem stóðu jafnfætis Júgóslövum að getu. Hér skorar ólafur eitt
marka sinna i gærkvöldi.
Island tapaði fyrir Júgóslövum
i Laugardalshöllinni i gærkvöldi
24:18. Það var varla við öðru að
búast. Þeir sem komu i Laugar-
dalshöllina i gærkvöldi og gerðu
sér einhverjar vonir um að Island
myndi sigra, komust fljótlega að
þvi að sú von var aðeins f jarlægur
draumur. Staðreyndin er sú að
Júgóslavarnir eru heilum gæða-
flokki fyrir ofan okkur, og megum
við teljast heppnir að hafa aðeins
sloppið með 6 marka mun. Allt
leikskipulag, bæði i vörn og sókn,
markvarzla og þrek Júgóslav-
anna er mun betra. Það er kann-
ski varla við öðru að búst, þegar
miðað er við undirbúning liðanna
fyrir þennan leik. Vikudvöl i Dan-
mörku, sem við jafnvel megum
þakka fyrir, nær skammt gegn
þrautþjálfuðu júgóslavnesku liði,
sem hefur að baki allt að 300 sam-
æfingardaga. Islendingar þurfa
ekki að vera sárir yfir þessum úr-
slitum, þvi það er fásinna að gera
veður út af staðreyndum. Ef við
ætlum að gera okkur einhverjar
vonir um að verða i sama styrk-
leikaflokki og landslið eins og
Júgóslavia, þarf að stokka upp
allt islenzka handknattleikskerf-
ið. Það er liklega ekki hægt. Til
þess þarf mikið fjármagn og að-
stoð rikisins, eins og gert er i
Júgóslaviu. Gaman v :ri ef svo
gæti farið, en þvi mií ur virðist
ekkert stefna að sliku. iinu sinni,
áður en handknattleikurinn varð
kerfisbundinn og mönnum var
raðað i lið eftir markafjölda
hvers og eins i 1. deild viðkom-
ÍSLAND ÁTTI
ALDREI MÖGU-
LEIKA GEGN
JUGOSLÖVUM
andi lands, reis islenzkur hand-
knattleikur hátt á alþjóðamæli-
kvarða. Ekki lengur þvi miður.
tsland hefur yfir að ráða alveg
eins góðum efnivið og þessi lönd,
en honum er ekki fylgt eftir vegna
margs af þvi, sem að ofan greinir.
Um leikinn er ekki mikið hægt
að segja, hann var ójafn. Aðeins
fyrstu minúturnar var leikurinn
jafn, en stutt var það. Vörn Júgó-
slavanna var mjög góð, og fannst
manni oft að þeir væru mun fleiri
en þeir sex, sem leyfilegt er að
hafa inná. Sóknarleikurinn var
fjölhæfur og tætti oft vörn okkar
manna. Markvarzlan var einnig
góð. Hjá tslendingum var vörnin
sæmileg, en of gróf. Markvarzlan
sömuleiðis og sóknarleikurinn
var of einhæfur.
Staðan i hálfleik var 12:8 fyrir
Júgóslövum. Lokatölur 24:18 eins
og fyrr segir. Mörk islenzka liðs-
ins gerðu: Ólafur H. Jónsson,
Björgvin Björgvinsson og Gunnar
Einarsson 4 — öll viti. Jón H.
Karlsson 3 — 2 viti — Axel
Axelsson 2, og Páll Björgvinsson
1. Ólafur H. Jónsson var bezti
leikmaður islenzka liðsins, og sá
eini, sem eitthvað kvað að.