Alþýðublaðið - 24.12.1975, Blaðsíða 1
250. TBL. - 1975 - 56. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER
Ritstjórn Siöumúla II - Slmi 81866
ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÓSKAR
ÖLLUM LANDSMÖNNUM
GLEÐILEGRA JÓLA!
Hræringar á Húsavík— en
BÆJARBÚAR
RÖLEGIR
HATIÐ
,,Hér á Húsavik gengur allt sinn
vanagang og engin hræðsla hefur
gripið um sig meðal bæjarbúa
þrátt fyrir alltiða jarðskjálfta,”
sagði Haukur Harðarson, bæjar-
stjórinn á Húsavik, i samtali við
Alþýðublaðið i gær.” Það er al-
gengt að hér séu jarðskjálftar og
við verðum að gera okkur grein
fyrir þvi að lsland er orðið til
fyrir eldvirkni, svo við verðum að
taka jarðhræringum með
jafnaðargeði. Hins vegar hafa
jarðskjálftar minnkað hér á
Húsavik frá þvi sem verst var,
nóttina eftir að byrjaði að gjósa i
Leirhnjúkum. Þó urðu nokkrar
jarðhræringar i nótt, og varð
snarpasti jarðskjálftakippurinn
rétt eftir klukkan sex, var hann
um 4,2 stig á Richtermælikvarða,
einnig urðu nokkrir kippir að
styrkleika 3,8-4,0 stig.
,,Þá sagði Haukur -að ekkert
tjón hefði orðið végng jarð-
skjálftanna en mörgum fyndist
óþægilegt að vakna upp við jarð-
hræringarnar. Haukur sagði að
mannavarnarráð kaupstaðarins
hefði komið saman. en ráðið hefði
ekki rætt hugsanlegar neyðarað-
„Höfum
andvara
á okkur
Þrýstingur í
borholum
Kröflu fer
minkandi
,,Það er allt i rólegheitum
hjá okkur núna. Litill kraftur
er i gosinu, og er það litið ann-
að en gufugos. Einnig hafa
litlar jarðhræringar verið nú
upp á siðkastið,” sagði Björn
Friðfinnsson aöstoðarfram-
kvæmdastjóri Kisiliðjunnar
við Mývatn i samtali við blað-
ið i gær. ,,Þó má geta þess að
þrýstingurinn i borholunum
við Kröflu hefur minnkað og
er cin borholan nánast dauð.”
Björn kvað stjórnstöðina
ekki starfrækta lengur, en
brottflutningsáætlun væri til
taks ef eitthvað brygði út af. I
brottflutningsáætluninni væri
ráðgertað flytja fólk og búfén-
að af aðalhættusvæðunum
suður i sveitir. Væri þá stórt
atriði að halda opnum leiðum
úr sveitinni, en það gæti oft
reynst erfitt vegna snjóþunga.
Þó væri alls ekki snjóþungt i
Mývatnssveit þessa dagana.
,,Við erum sem sagt hættir
öllum látum. Við gerum okkur
þó grein fyrir þvi að gosiö
stendur enn yfir og höfum þvi
andvara á okkur,” sagði Björn
Friðfinnsson að lokum.
gerðir i Húsavik, heldur aðeins
hugsanlega hjálparstarfssemi til
handa Kelduhverfi, þvi sá
landshluti væri i mestri hættu ef
gos hæfist oghraun tæki að renna.
Að lokum sagði Haukur
Harðarson: ,,Min persónulega
skoðun er sú, að nú hafi slaknað á
spennunni og það versta sé gengið
yfir. Ég tel okkur Húsvikinga
nokkuð óhulta fyrir goshættunni
ekki sizt með tilliti til þess að
hraun hefur aldrei runnið til
Húsavikur eftir ísöld.”
Jólafriður
á miðunum?
Jólin hafa verið kölluð hátíð
friöarins og þvi cr varla að búast
við að stórtiðinda verði að vænta
af miðunum um jólin. Varðskipin
verða þó úti flestöll og Bretar
munu halda áfram veiðum yfir
hátfðarnar.
Varðskipin halda áfram upp-
teknum hætti að trufla veiðar
brezku togaranna og búist er við
að cnn ein brezk freigáta verði
komin á miðin milli jólaog nýjárs.
Æ fleiri brezk blöð gagnrýna
þessa flotaihlutun stjórnarinnar
og telja það aðeins timaspursmál
hvenær flotinn verði kallaður
heim.
JÓLATRÉ þetta stendur í
Vmarborg — þessari
fögru og friðsælu borg
listanna i Austurríki,
sem undanfarna daga
hefur verið vettvangur
blóðugs harmleiks og
spennu. Þar tóku
hermdarverkamenn
fjölda manns í gíslingu,
skutu nokkra þeirra til
bana og ullu skelfingu
allra ibúa þessarar ró-
legu borgar.
Þetta minnir okkur á að
jafnvel á ólíklegustu
stöðum og óliklegustu
tímum fæðast ólög — og
þess vegna eigum við
engu síður en aðrar þjóðir
að halda vöku okkar í
þessum efnum.
En jólatréð, hvar sem
það stendur, Ijósum
prýtt, er tákn Ijóss og
vonar i augum hinna full-
orðnu, en augnayndi
barnanna, og jólin eru
fyrst og fremst hátíð
barnanna.
Megi enginn skaði, af
mannavöldum eða
náttúruafla, skyggja á
gleði jólanna — og Al-
þýðublaðið óskar lesend-
um sínum'og landsmönn-
um öllum blessunar og
sannrar jólagleði.
JARÐHRÆRINGAR HOFUST
SUNNANLANDS I GÆR
Um fjögurleytið í gær
fundust nokkrir allsnarpir
jarðskjálftakippir á höfuð-
borgarsvæðinu. Þórunn
Skaftadóttir, iarðfræðing-
ur á jarðeðlisf ræðideild
Veðurstof unnar tjáði blað-
inu, rétt áður en það fór í
prentun i gær, að ekki væri
fullreiknuð stærð
skjálftanna, né heldur
staðsetning þeirra, störf
jarðeðlisf ræðideildarinnar
hefðu farið úr skorðum
vegna þess að allar sima-
línur hefðu samstundis
farið af stað og allir hefðu
viljað vita hvar og hve
stórir kippirnir væru.
Þó var Ijóst að skjálfta-
upptökin voru nærri
Reykjavík, eða um 20—25
km frá borginni í stefnu
austan við Kleifarvatn.
Stærðin var eitthvað yf ir
fimm stig á Richters
kvarða, sem er nokkru
stærri sjálfti en þeir sem
snarpastir mældust fyrir
norðan á dögunum.
Trúlega hefur nokkur
ótti gripið um sig á höfuð-
borgarsvæðinu og þó eink-
um meðal íbúa hærri húsa.
Blaðið hafði spurnir af því
að í nokkrum íbúðum í einu
af hærri húsunum í
Breiðholti hefðu lausir
munir í hillum og á borðum
farið af stað og henzt úr
hillum. Ekki fréttist þó af
neinum skemmdum á
húsnæði enda eru islenzk
ibúðarhús það rammger og
byggð til að þola mun
sterkari jarðskjálfta en
sem hér um ræðir.
Þau eiga að þola allt að
tvöföldum styrk þessara
skjálfta og etv. rúmlega
það.
Bæjarfoss
fékk net i
skrúfuna
Skipið var stjórnlaust á reki
Vöruflutningaskipið Bæjar-
foss fékk netadræsu i skrúfuna
þegar skipið var statt um tvær
og hálfa sjómilu út frá Langa-
nesi klukkan 10 i gærmorgun.
Vél skipsins stöövaðist þegar
og var það stjórnlaust á reki
fram eftir degi i gær á þessum
slóöum. Laust fyrir klukkan 18
var varðskip komið á staðinn og
var reiknað mcð þvi að varð-
skipiö drægi Bæjarfoss til
Reykjavikur.
Sig u r1a u g u r Þo rk e1s s o n
blaðafulltnii Eimskipafélagsins
sagði i samtali við Alþýðublaö-
ið, að Bæjarfoss hefði verið á
leið frá Akurevri til Reykjavik-
ur þegar þetta óhapp henti.
Veður var gott á þessum slóð-
um og rak skipið frekar i átt til
hafs mcöan beðið var eftir varð-
skipinu. Stutt er siðan Bæjar-
foss var keyptur til landsins og
skipstjóri er Kristján Guð-
mundsson.