Alþýðublaðið - 24.12.1975, Blaðsíða 12
Útgefandi: Blað hf. Framkvæmda
stjóri: Ingólfur P. Steinsson. Rit
stjóri: Sighvatur Björgvinsson
Ritstjórnarf ulltrúi: Bjarn
Sigtryggsson. Auglýsingar og af
greiðsla: Hverfisgötu 10 — simai
14900 og 14906. Prentun: Blaða
prent hf. Askriftarverð kr. 800.-
mánuði. Verð i iausasölu kr. 40.-
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
laugaröaga til kl. 12
r Veðrið
Aðfangadagur jóla
heilsar okkur með meiri
snjókomu og suðvestan-
átt. Ekki mun okkur þó
auðnast að halda öllum
jólasnjónum, þvi að i
kvöld verður komin
þýða með slyddu og rign-
ingu. Á jóladag á að kólna
aftur og ef til vill ganga á
meö éljum.
Gátan
/?£T7 ry/f/fí v£Tue
SHrflM ÓR6Í L-£úfí
KQTT F/tdm /<0/i U YrtD/Ð
f
'htv/f HViiPm 1
OTfl 1
TftLfí flíNIR - J
LOKfí m'fiL'r)
'\ DÖNSK NE/TUH DRUKK /A/rr I
MlLrrs rtLU-T' . £*r?f** If VJ
V
í ■»
'TETTfíR ‘Í£TUR * TV/HL fiRR/Ð
□ \$Æ. 6RÖÐU 11
\Fl ÆK 1 TU 1
Góða sál-
in í Þjóð-
leikhúsinu
Berklatilfelli
á Siglufirði
Smitandi berklatilfelli
fannst fyrir skemmstu á
Siglufirði. Þrir einstaklingar
munu hafa smitast, en smit-
berinn er fundinn og honum
hefur verið komið i sóttkvi.
Blaðið hafði samband við
Jóhannes M. Gunnarsson,
héraðslækni á Siglufirði og
innti hann fregna af þessu.
Jóhannes sagði að hér væri
um að ræða eldra tilfelli sem
komið hefði upp aftur, en
smitberinn hefði fundizt fljótt
og einungis tveir einstaklingar
hefðu smitast af honum.
Fjöldi fólks hefur verið
berklaprófaður og er rann-
sókninni nú að ljúka, en engin
fleiri tilfelli hafa fundist.
Fjöldi þeirra sem rannsakað-
ur hefur verið nálgast eitt
hundrað, þar á meðalbörn á
barnaheimilinu.
Fyrir nokkrum árum komu
nokkur berklatilfelli upp á
Siglufirði, og voru nokkrir
settir i einangrun og mikill
fjöldi bæjarbúa gekk undir
berklapróf. Talið var að tekizt
hefði að komast i veg fyrir
veikina þá.
Varðskip flutti
rjómann til
Patreksfirðinga
Varðskipin hafa haft i ýmsu
að snúast nú fyrir jólin fyrir
utan það að striða við
Bretann. Patreksfirðingar sáu
fram á að þeir sætu uppi
rjómalausir um hátiðarnar
nema eitthvað sérstakt kæmi
þeim til bjargar.
Leitað var til Landhelgis-
gæzlunnar og hún beðin ásjár.
Varðskip var bá statt á Húsa-
vik og varðskipsmenn storm-
uðu upp i mjólkursamlag,
keyptu rjóma fyrir Patreks-
firðinga og fluttu hann vestur.
Raunar stóðu varðskipin i
fleiri stórræðum fyrir Vest-
firðinga þvi varðskipið Þór
flutti tvö tonn af jólapósti til
Bildudals, Tálknafjarðar og
Patreksfjarðar sem annars
hefði ekki náð að komast fyrir
jól.
Equus hjá LR-
Kristnihaldið
Þjóðleikhúsið frumsýnir á ann-
an jóladag, leikritið „Góða sálin i
Sesúan” eftir Berthold Brecht.
Leikrit þetta er dæmisaga eða
dæmileikur eins og Brecht nefnir
það sjálfur, og gerist i borginni
Sesúan i Kina, en vist mætti
heimfæra boðskap leikritsins upp
á hvaða stað sem er. Gengur það
'út á heimsókn 3ja guða sendi-
nefndar að ofan, og eru þeir
vegna mikilla kvartana um
heimsástandið komnir i leit að
góðri sál, þvi fundur einnar slikr-
ar myndi leysa þá undan ábyrgð, á
ástandinu. Þessa góðu sál finna
þeir siðan i götustúlkunni Sén-Te,
og gengur leikritið út á viðskipti
þeirra. Með hlutverk Sén-Te fer
Margrét Guðmundsdóttir, en
guðina leika þeir Þorsteinn 0.
Stephensen, Rúrik Haraldsson og
Ævar Kvaran. Það má geta þess
að Þorsteinn leikur nú i fyrsta
skipti á sviði eftir 7—8 ára hlé, og
hefur hann ekki leikið i Þjóðleik-
húsinu i 10 ár. Með önnur veiga-
mikil hlutverk fara Árni
Tryggvason, Þórhallur Sigurðs-
son, Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Róbert Arnfinnsson, Briet Héð-
insdóttir, Kristbjörg Kjeld o.fl.
Alls eru hlutverkin 30, með auka-
leikurum. Leikmynd er eftir
Sigurjón Jóhannsson og er óhætt
að segja að hún sé mjög fábrotin
og óvanaleg í sniðum, enda helzti
efniviðurinn kassafjalir og af-
gangstimbur. Tekst honum i leik-
myndinniaðdraga mjög vel fram
ömurleika fátæks borgarhverfis.
Tónlist við verkið er eftir Paul
Dessau, en útsett af Atla Heimi
Sveinssyni, og sér hann ennfrem-
ur um stjórn 3ja manna hljóm-
sveitar.
Leikritið hefur aldrei verið sýnt
áður hér á landi, en þýðandi þess
er Þorsteinn Þorsteinsson og hef-
ur Briet Héðinsdóttir aðstoðað
hann við þýðingu bundins máls.
Leikritið er flutt talsvert stytt
enda er upphafleg lengd þess 5
klst. en hér mun flutningurinn
taka rúma 3 tima. Fyrirmyndin
að uppfærslunni hér er fengin frá
Berlin Ensamble i Þýzkalandi og
leikstjóri er Stefán Baldursson.
Er óhætt að segja að Góða sálin
i Sesúan sé eitt vinsælasta verk
Brechts og hefur það verið sýnt
mjög viða, t.d. i Moskvu, Berlin
og Bandarikjunum, en það var
frumsýnt i ZUrich árið 1943. Áður
hafa verið flutt hér á landi mörg
verka haps, t.d. Túskildingsóper-
an, Puntilla og Matti, Smáborg-
arabrúðkaup og svo Ævi Galileós
i Utvarpinu.
á Akureyri
Jólaleikrit Leikfélags
Reykjavikur verður reyndar
ekki frumsýnt fyrr en 30.
desember, og verður þvi gerð
betri skil i blaðinu milli jóla og
nýárs, en það er leikritið
EQUUS eftir Peter Shaffer.
Á Akureyri hefur verið
ákveðið að hafa nokkrar skýr-
ingar til viðbótar á Kristni-
haldinu, en uppselt hefur verið
á allar sýningar leikritsins, 21
talsins.
Um fimm þúsund manns
munu hafa séð leikinn. Reikn-
að var með að Gisli Halldórs-
son færi til annarra starfa um
jólin, en nú hefur tekizt að fá
þvi frestað þannig að unnt
verður að sýna Kristnihaldið
a.m.k. tvisvar, þann 3. jan. og
sunnudaginn 4. jan. Hinn
mikli gangur þessarar sýn-
ingar veldur nokkrum breyt-
ingum á starfsáætlun
leikhússins, t.d. má reikna
með þvi að barnaleikritið
Rauðhetta verði að færast
fram til 7. febrúar en það var
áætlað að sýna um miðjan
janúar. Glerdýrin, leikrit
Tenessie Wiliams sem Gisli
Halldórsson er að setja á svið
ætti að verða tilbúið um
miðjan janúar. Flugfélag
Islands hefur nú komið á
leikhúsferðum á leiðinni
Reykjavik — Akureyri og i
ráði mun vera að Flugfélag
Norðurlands komi sliku á á
sinum flugleiðum.
Dregið hefur verið í Jólagetraun
Alþýðublaðsins. Nöfn hinna heppnu
verða birt í næsta blaði
Ferðir
Stætisvagnar Reykjavikur um
jólin 1975.
Þorláksmessa
Ekið eins og venjulega á virkum
dögum til kl. 19. Eftir það sam-
kvæmt dagtöflu helgidaga i
leiðabók SVR.
Aðfangadagur
Ekið eins og venjulega á virkum
dögum til kl. l'.t. Eftir það sam-
kvæmt timaáætiun helgidaga i
leiðabók SVR.
Siðustu ferðir:
Leið 1 frá Lækjartorgi kl. 17.30
Leið 2frá Granda kl. 17.25, frá
Skeiðarvogi kl. 17.14.
Leið 3frá Lindarbraut kl. 17.21
frá Háaleitisbr. kl. 17.15.
Leið 4frá Holtavegi kl. 17.30, frá
Ægisiðu kl. 17.13.
Leið 5frá Skeljanesi kl. 17.17 frá
Sunnutorgi kl. 17.20.
Leið 6frá Lækjartorgi kl. 17.13
frá Öslandi kl. 17.17.
Leið 7frá Lækjartorgi kl. 17.31
frá Óslandi kl. 17.27.
Leið 8 frá Dalbraut kl. 17. 23.
Lcið 9 frá Dalbraut kl. 17.2:
Leið íofrá Hlemmi kl. 17.10 frá
Selási kl. 17.30
Leið llfrá Hlemmi kl. 17.05 frá
Arnarb.-Eyjab. kl. 17.25.
Leið 12frá Hlemmi kl. 17.13 frá
Suðurhólum kl. 17.26.
Jóladagur
Ekið á öllum leiðum samkvæmt
timaáætlun liclgidagai leiðabók
SVR að þvi undanskildu að allir
vagnar hefja akstur um kl.
14.00.
Annar jóiadagur.
Ekið eins og á sunnudegi.
Upplýsingar i simum 12700 og
82533.
Stærtisvagnar Reykjavikur um
áramótin 1975-1976.
Gamlársdagur
Ekið eins og venjulega á virkum
dögum tii kl. 13. Eftir það sam-
kvæmt timaáætlun helgidaga.
Nýársdagur
Ekið á öllum leiðum samkvæmt
timaáætlun helgidaga i leiðabók
SVR að þvi undanskyldu, að all-
ir vagnar hefja akstur um kl.
14.00.
Upplýsingar i simum 12700 og
82533.
FIMM a förnum vegi
Magnús Magnússon, járna-
maður: Ég slappa venjulega vel
af, og ætla mér að gera það einnig
nú. Ég les meðan eitthvert ný-
meti er að lesa, og einnig er ailtaf
eitthvaö um fjölskylduheimsókn-
ir og svoleiðis hluti.
Eirikur Baldursson, blaðamaður:
Ég tek lifinu með ró, ét vel og les
svolitið af þvi sem mig langar til
að lesa en hef ekki komizt yfir
fyrr. Þetta gæti allt eins vel átt
við venjulega helgi, enda er til-
efnið ekki meira en það: Fri frá
vinnu.
Bryndis IIilmarsdóttir, búðar-
stúlka : Ég eyöi jóladögunum i ró-
legheitum, les nokkuð mikið af
bókum ogfer i nokkur fjölskyldu-
boð. Þar með er flest talið af þvi
sem ég geri jóladagana.
Hvernicf%yðfr^ú^JSfacIogúnum ? **
Helga Torfadóttir, afgreiðslu-
ntær: Ætli maður geri nú mikið
annað en að éta og sofa. Þannig
gengur jólahaldið venjulega til.
Rólegheit og afslöppun. Auðvitað
fer ég, þess utan, i nokkrar fjöl-
skylduheimsóknir.
't
Jólasveinninn I Dalmúla: Þegar
ég er búinn að koma jólagjöfun-
um til krakkanna legg ég land
undir fót, fer og tek þátt i jóla-
haidinu hjá Grýlu og hennar
hyski, bræðrum minum og föður.
Ég er þó ekki viss hvar veizlan
verður haidin núna.
S