Alþýðublaðið - 10.01.1976, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 10.01.1976, Blaðsíða 5
Jafnrétti kynjanna Árið 1961 samþykkti Alþingi lög um launajöfnuð kvenna og karla. Hafði frumvarpið verið flutt af þing- mönnum Alþýðuflokksins fyrir for- göngu Jóns Þorsteinssonar. Mark- aði þessi lagasetning timamót i jafnréttisbaráttu kvenna á sviði launamála. Það kom að visu i ljós um þessa lagasetningu, eins og svo marga aðra, sem felur i sér róttæk- ar breytingar, að ýmsir erfiðleikar og tafir urðu á þvi að framfylgja á- kvæðum hennar út i æsar, en enginn vafi er samt á þvi, að með þessari merku löggjöf var grundvöllur lagður að lögmætri kröfu kvenna um launajöfnuð. Fyrir tveimur árum fluttu þing- menn úr öllum flokkum undir for- ystu Svövu Jakobsdóttur frumvarp um Jafnlaunaráð, sem samþykkt var sem lög árið 1973. 1 þeim lögum eru og mikilvæg ákvæði varðandi réttindamál kvenna. Jafnlaunaráð það, sem sett var á fót samkvæmt lögunum og á m.a. að hafa eftirlit með og tryggja, að um launajöfnuð sé i reynd að ræða, og nýtur forystu reynds lögfræðings, Guðrúnar Er- lendsdóttur, mun hins vegar hafa haft mjög takmarkaða aðstöðu til þess að hef ja umtalsverða starfsemi sökum þess, hve bæði fyrrverandi og núverandi rikisstjórnir hafa sýnt starfseminni litinn áhuga. Fyrir næstum tveimur árum lagði rikisstjórn norska Alþýðuflokksins fyrir Stórþingið frumvarp til laga um jafnrétti kynjanna, og er það enn til meðferðar á þinginu. í þvi frumvarpi eru ýmis nýmæli, auk þess sem kveðið er nánar á um nokkur atriði varðandi launajafn- rétti en gert hefur verið i eldri lögum um þau efni. Mörg ákvæði frumvarpsins eru að sjálfsögðu miðuð við norskar aðstæður. En nokkur þeirra eru svo almenn eðlis og svo athyglisverð, að full ástæða er til þess að athuga, hvort ekki sé timabært að lögtaka þau hér á landi. Af þessum sökum fluttu þingmenn Alþýðuflokksins i siðastliðnum mánuði tillögu til þingsályktunar um setningu löggjafar um jafnrétti kynjanna. Er það efni tillögunnar að sameina i einn lagabálk meginatriði iaganna um launajöfnuð kvenna og karla og Jafnlaunaráð, en bæta einnig við ýmsum nýjum sjónar- miðum. Meðal þeirra eru þessi: 1. Konum skal i reynd tryggt al- gert jafnrétti á við karla á öllum sviðum þjóðlifsins, og skulu konur og karlar eiga jafnan rétt til vinnu og menntunar. 2. Ef bæði karlar og konur geta gegnt starfi, skal óheimilt að miða auglýsingu við annað hvort kynið. Við ráðningu I störf, flutning milli starfa, skiptingu i launaflokka, veit- ingu orlofs frá starfi eða uppsögn skal óheimilt að miða reglur eða ráðstafanir við það, hvort um karla eða konur er að ræða. Umsækjandi, sem fær ekki stöðu, sem hann hefur sótt um, getur krafizt þess, að vinnuveitandinn láti honum i té skriflegar upplýsingar um hvaða menntun, reynslu og aðra hæfni sá umsækjandi hafi, sem stöðuna hlaut. 3. Kveða skal skýrt á um, að með sömu launum fyrir sömu vinnu sé átt við allar greiðslur og hlunnindi. 4. Konur og karlar, sem starfa hjá sama vinnuveitanda, skulu eiga sama rétt til starfsmenntunar og starfsþjálfunar, ásamt orlofi till þess að afla sér slikrar menntunar og þjálfunar. 5. Auglýsingar mega ekki vera með þeim hætti, að i ósamræmi sé við grundvallarregluna um jafnrétti kynjanna, né heldur þannig, að þær særi siðferðisvitund annars hvors kynsins. Umræður um þetta mál i nálægum löndum hafa leitt skýrt i ljós nauðsyn lagasetningar um þetta efni. Það er áreiðanlega ekki vanþörf á itarlegri reglum um raunverulegt jafnrétti kynjanna en nú eru i gildi hér á landi. Sagt er, að háskóla- menntuð kona, sem sótti um starf i ráðuneyti á sinu sviði, hafi fengið það svar, að starfið væri ekki við konu hæfi, enda fékk hún ekki stöð- una. Meðan slikt getur gerzt, ætti að vera augljóst, að iöggjafanum ber að veita ekki aðeins atvinnurekend- um, heldur einnig sjálfu fram- kvæmdavaldi rikisins, styrkara að- hald. GÞG. BJARGAÐI SÉRA Dr. Herrema, hollenski iðju- höldurinn, sem var gisl irskra mannræningja i þrjár vikur, bundinn og i ömurlegu umhverfi, hélt jafnvægi sinu með því að leysa skákþrautir i huganum. Það er áriðandi að minnast þess.að dr. Herrema hafði verið i fangabúðum nasista á striðsárun- um og gerði sér augljóslega grein fyrir hversu mikils virði var að leiða hugann frá hinni geigvæn- legu hættu, sem hann var i. Þetta minnir óneitanlega á hina frábæru sögu Stefans Zweigs „Manntafl”. Ástraliumaðurinn J.W. Corn- forth, sem nýverið fékk Nóbels-verðlaunin fyrir efna- fræði, er góður skákmaður. Tefldi hann fyrir Hampstead i ensku deildakeppninni og fékk margan vinninginn gegn bestu skákmönn- um Lundúna. Jólahraðskákmót Taflfélags Reykjavikur var haldið sunnu- daginn 28. og mánudaginn 29. desember. Teflt var á sunnudag- inn kl. 14 og á mánudaginn kl. 20. Sigurvegari varð Haukur Angan- týsson, en jafn honum að vinning- um varð Islandsmeistarinn i skák, Björn Þorsteinsson, en hafði færri stig. Tefldar voru fimm minútna hraðskákir. Jólaskákmót Skákfélagsins Mjölnis var haldið sunnudaginn 28. desember kl. 20 um kvöldið, svo ekki rækist það á mót T.R. Þar voru tefldar fimmtán min- útna skákir, þ.e. fimmtán minút- ur á mann. Sigurvegari varð Magnús Sólmundarson, annar varð Bragi Halldórsson og þriðji Ingvar Ásmundsson. Jólahraðskákmót Taflfélags Kópavogs var haldið á sama tima og mót T.R. á sunnudaginn 28. des. Sigurvegari varð Guðni Sigurbjarnarson. ,,Það væri óréttlátt fyrir leik- fléttuskákmann, ef verjandinn sæi allt i hinum takmarkaða tima, sem leyfður er til umhugs- unar.” Keres. Þess i orð Keresar eig a m jög vel við eftirfarandi skák, sem var tefld 13. desember siðastliðinn, i deildarkeppni Skáksambands ts- lands, þegar Skákfélagið Mjölnir Myndir, sem kvik- myndahús borgarinnar hafa sýnt um jólin, eru mjög misjafnar aö sjálfsögðu, bæði um efni og gæði. Farið er að framleiða mikið af alls konar rándýrum af þreyingarmyndum, sem þjóna aðeins þeim tilgangi að menn sitja í tvo tíma og láta mata sig án þess að leiðast. Af tur er f ærra af mynd- um sem hafa listrænt gildi, og eru um leið góðar sem slíkar. Af þeim jólamyndum sem nú hafa verið sýndar, eru aðeins tvær sem geta flokkast þannig, en það eru,, Lady Sings The Blues'', og Chaplin- myndirnar tvær, sem sýndar eru í Haf narbíói. Að minu mati er það þess virði að ösla í krapi á götunum til að sjá þessar tvær myndir, svo ekki sé meira sagt. En hvað um það, það er Chaplin, sem fjalla á um. Fyrri mynd meistarans heitir „Hundalif” en sú siðari „Gullæðið”, sem er ein af hans frægari myndum. Allir, sem hafa séð Chaplin vita, hvernig hann setur húgmyndir sinar um þjóðfélagið, og daglega háttu manna, i stórkostlega skoplegan búning, þannig að fólk svo að segja grenjar i tvennum skiln- Bíóin PERLA ingi. 1 fyrri myndinni „Hundalif”, er Chaplin hinn venjulegi flækingur, sem á ekki bót fyrir boruna á sér. Eins og nafn myndarinnar gefur til kynna, þá lifir hann algjöru hundalifi, þar sem litill munur er á honum og flækingsundinum, sem hann hirðir af götunni. Virðist hann halda mjög mikið upp á hunda, eins og sjá má i mörg- um mynda hans. 1 myndinni var nokkuð mikið af væmnum atriðum, en hvað fyrirgefur maður ekki meistaranum? Þessi mynd var þögul með texta, en i siðari myndinni „Gullæðið”, talar Chaplin inn á. Hann hefur lagt mjög mikið i þá mynd, sem er vönduð að öllu leyti. I myndinni koma fyrir atriði, sem eru hreint út sagt stórkostleg, og nær hann oft töluverðri spennu. Ævintýraiegasta atriðið finnst mér þó, þegar hann hoppar úr kofanum á allra allra siðustu stundu. Það er eins með þessar Chaplinmyndir sem aðrar, að það er mjög gaman að sjá þær tvisvar, vegna hinna ótal- mörgu smáatriða, sem koma fram, og er þetta ekki sagt i auglýsingaskyni. Sem sagt vaðið krapið og missið ekki af meistara Chaplin. G.G. SKÁKINNI! vann Skákfélag Hafnarfjarðar mjög naumlega þó, eða með fjór- um og hálfum vinningi gegn þrem og hálfum. Hvitt: Björgvin Viglundsson, Mjölni. Svart: Haukur Kristjánsson, Hafnarfirði. Grunfeld-vörn. 1. d4, Rf6 2. c4, gG 3. Rc3, d5. 4. Rf3, Bg7. 5. Db3, dxc4. 6. Dxc4, 0-0. 7. e4, c6. 8. Db3, Dc7. 9. Be2, Bg4. 10. 0-0, Rbd7. 11. h3, Bxf3. 12. Bxf3, e5. 13. dxe5, Rxe5. 14. Be2, Hfe8. 15. Be3, Re5d7. 16. Dc2, Haa8. 17. Hadl, Da5. 18. Bc4, b5. 19. Bb3, c5. 20. Bd5, Rxd5. 21. Hxd5, b4. 22. Re2, Dxa2. 23. Hfdl, b3. 24. Dc4, Bd4. 25. Rxd4, Rb6. 26. HxH, RxD. 27. Hxe8 skák, Kg7. 28. Re6 skák, fxe6. 29. Hd7 skák, Kf6 og gaf um leið. ■ mmk m WM lll «■ wtk WM ...... i wm. ím • i nn Wm i HP wk Ijl ÉÍ w 4 ipl A W/ j§ i hp rnm jj wm í& # ItozÍ Éi m mk m m ■ m .LLL Þarsem nyjung okkar með stöðu- myndina stóðst prófið i siðasta blaði, sem skákþáttur var i, birti éghér lokastöðuna, en þar er mát i þriðja leik. 30. Hf8 skák, Ke5. 31. Bf4 skák. Kxe4. 32. f3. Mát. Svavar Guðni Svavarsson Laugardagur 10. janúar 1976. Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.