Alþýðublaðið - 28.05.1976, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 27. maí 1976.
VETTVANGUR 9
ir að
u til
1.000
það
kosta að hella upp á könnuna?
Jú, sjálfuppáhellandi kaffi-
könnur fundum við á bilinu 7.500
og upp i 17.000 krónur, allt eftir
stærð og iburði.
Iskápar kostuðu á bilinu
60—120.000 krónur, og frysti-
kisturnar ómissandi 88—115.000
krónur.
Ef einhverjum er i mun að
hafa hrærivél á sinu heimili þá
gæti hann þurft að láta út fyrir
henni 10—40.000 krónur.
Minútugrillið sem freistar svo
margra fúndum við á á 15.800
krónur og stóra rafmagnspönnu
með iokiá 15.300 krónur.
Þvottavél og ryksuga.
Þvottavél þurfa allir að eiga,
og helzt sjálfvirka. Þær fást á
bilinu 100—200.000 krónur. Nú
og þeir sem ekki eru svo heppnir
að eiga straufrian þvott þurfa
að kaupa sér straujárn, sem
kosta 5-6.000 krónur.
Fáir vilja vera án ryksug-
unnar. Þannig gripur kostar á
bilinu 20—45.000 krónur.
Þessi verðupptalning, sem
hér er að framan, er engan
veginn tæmandi né nákvæm.
. Það var langt frá að við
heimsæktum allar búðir 1
Reykjavik sem verzla með
heimilistæki og þau verð sem
við fengum uppgefin rúnuðum
við nokkuð af.
Er varan seld með ein-
hverjum greiðsluskil-
málum?
Eins og sjá má á þeim tölum
sem nefndar hafa verið hér að
framan, er það vart á færi
nokkurs meðalmanns að kaupa
heimilistæki nema með
greiðsluskilmálum. Viðasthvar
tiðkast það að kaupanda er
gefinn kostur á að borga
helming andviröisins út og af-
ganginn á 6mánuðum. A þessar
afborganir eru lagðir einhverjir
vextir.
Við fengum þær upplýsingar i
einni verzluninni að liklega
væru það um 80% viðskiptavin-
annasem notfærðu sér þetta af-
borgunarfyrirkomulag.
Við spurðum einnig hvort
ungt fólk virtist eiga mikla
peninga I dag. Svör við þvi voru
á ýmsa vegu. Sumir töldu svo
vera, aðrir ekki. ES.
NNULAUSIR
ÍARAR -
PTU TRILLU
FÚRU A SJÓINN!
Sigurður Jóhannsson: „Gott að komast úr rykinu I hreint og tært
sjávarloftið”.
mikils
iðnað-
r trillu
Þeim
ast úr
eint og
ita um
» múr-
gera i
Sr þvi
Hafa meira upp úr fiski-
riinu.
Aðspurðir sögðust þeir Sigurö-
ur og ölafur hafa mikið meira
gaman af þvi að vera á sjónum.
Það væri heldur ekki amazt viö
launum þeirra eins og launum
múraranna, en svo viröist, sem
sumum finnist múrarar vera eitt-
hvert þjóðfélagsvandamál. Þeir
hafa lika meira upp úr fiskiriinu.
Þær þrjár vikur, sem þeir hafa
verið I þessu, hafa þeir veitt ellefu
tonn og fá 65.000 krónur fyrir
tonnið. Samt hafa gæftir verið
slæmar.
Hafa báðir verið á sjó
áður.
Þeir hafa verið á handfærum
norður af Hrauni og vestur af
Jökli i þrjár vikur og hefur aflinn
verið góður, miðað við gæftir.
Þeir eru engir nýliðar á sjónum,
voru báðir á sjó áður en þeir
lærðu múrverkið. Þar sem bátur-
inn er undir tólf tonnum, þurfa
þeir engin réttindi að hafa.
Þeir ætla að skaka eitthvað
fram á haust, og reyna þá fyrir
sér i múrverkinu aftur. En batni
ástandið ekki fljótlega, er liklegt,
að þeir fái ekkert að gera og verði
þvi að snúa sér að sjónum á nýjan
leik.
gek—ATA — ljósm. ATA
Ólafur Pétursson: „Hér er ekki fundið aö kaupinu, eins og gert er I
múrverkinu”.