Alþýðublaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 15
biaðið Föstudagur 29. október 1976
15
Bíóin / Leikhúsin
Spartacus
Sýnum nú í fyrsta sinn með is-
lenzkum texta þessa viðfrægu
Oscarsverðlaunamynd.
Aðalhlutverk: Kirk Douglas,
Laurence Olivier, Jean Simmons,
Charles Laughton, Peter Ustinov,
John Gavin, Tony Curtis.
Leikstjóri: Stanley Kubrich.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
Siðasta sýningarhelgi.
Sími50249
Þau gerðu garðinn frægan
Fred Astaire Frank Sinatra
Bing Crosby Elizabetr Tavlor
Gene Kelly James Stewart
Judy Garland Debbie Reynolds
Mickey Ronney Ester Williams
Clark Gable Ginger Rogers
Jean Harlow Ann Miller o.fl.
Islenzkur texti Sýnd kl. 9
LEIKFÉLAG 2f2
REYKJAVtKUR
ÆSKUVINIR
eftir: Svövu Jakobsdóttur.
Leikstjórn: Brlet Héðinsdóttir.
Leikmynd: Steinþór Sigurðsson.
Leikhljóð: Gunnar Reynir
Sveinsson
Lýsing: Daniel Williamson.
Frumsýning i kvöld. — Uppselt.
2. sýn. sunnudag kl. 20,30.
3. sýn. miðvikudag kl. 20,30.
Rauð áskriftarkort gilda.
SKJALDHAMRAR
100. sýn. laugardag. — Uppselt.
SAUMASTOFAN
þriðjudag kl. 20,30.
STÓRLAXAR
fimmtudag kl. 20,30.
Miðasalan i Iðnó kl. 14-20,30. Simi
1-66-20.
YOl'NG FRANKENSTKIV GENK \VILI»EH- l’ETKK H0YI.K
MAI5TY FKI.DMW • (T.0RIS LEACHMAN TERIGARR
_________hKVNKUI MARS MADKI.INK RAHN
tSLENZKUR TEXTI.
Ein hlægilegasta og tryllingsleg-
asta mynd ársins gerð af háð-
fuglinum Mel Brooks.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Hækkað verð.
Sýnd kl. 5, 7,15 og 9,30.
T&nabió
3*3-11-82
Varið ykkur á vasaþjófun-
um
Harry in your pocket
JAMES COBURN MICHÁEL SARRAZIN
TRISHVAH DEVERE • WALTER PIDGEOH
"HARRYIH YOUR POCKET’1
ABWCtCaiCRPWOUCTION • Wnnwb, WJtSO»VlOBUCtUNA« wlROHAIBTK
hMuCKHnbtAmlribfBWaCmtR • t*«-iAL0SOWRIN
IPGl'S^-SS’l Uratad Artnts
Spennandi ný amerisk mynd, sem
sýnir hvernig þaulvanir vasaþjóf-
ar fara að við iðju sina.
Leikstjóri: Bruce Geller.
Aðalhlutverk: James Goburn,
Micael Sarresin.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
ífJMÓÐLEIKHÚSÍfi
SÓLARFERÐ
i kvöld kl. 20. Uppselt
20. sýn. laugardag. kl. 20. Uppselt
sunnudag kl. 20. Uppselt
LITLI PRINSINN
sunnudag kl. 15
Litla sviðið:
NÓTT ASTMEYJANNA
eftir Per Olov Enquist.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Leikmynd: Birgir Engilberts.
Frumsýning þriðjudag kl. 20.30.
2. sýning miðvikudag kl. 20.30.
Miðasala 13,15-20. Sími 1-1200
Arnarborgin
eftir Alistair MacLean.
Hin fræga og afar vinsæla mynd
komin aftur með islenzkum texta.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
3*16-444
Morð mín kæra
MITCIIUM
Afar spennandi ný ensk litmynd,
byggð á sögu eftir Raymond
Chandler, um hinn fræga einka-
njósnara Philip Marlowe, sem
ekki lætur sér allt fyrir brjósti
brenna.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Partizan
Mjög spennandi og sannsöguleg
mynd um baráttu skæruliða i
Júgóslaviu i siðari heimstyrjöld.
Tónlist: Mikis Theodorakis.
Aðalhlutverk: Rod Taylor, Adam
West, Xenia Gratsos.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Siðasta sinn.
cnnRione
RHTMOKD
CtlflKDl£K5
RfihrUHG
3 1-89-36
SERPIC0
ISLENZKUR TEXTI.
Heimsfræg sannsöguleg ný
amerisk stórmynd um lögreglu-
manninn Serpico. Kvikmynda-
handrit gert eftir metsölubók
Peter Mass. Leikstjóri Sidney
Lumet. Aðalhlutverk: A1 Pacino,
John Randolph.
Myn þessi hefur alls staöar fengið
frábæra blaðadóma.
Bönnuð innan 12 ára.
Hækkað verð.
Sýnd kl. 6 og 9.
Ath. Breyttan sýningartima.
Verkmernitun
í orði, eða á borði
Engin þjóð, sem vill vera
sjálfstæð, getur komizt af án
verkmenntunar. Þó við sleppum
stóriðju þjóða, sem tekizt hefur
að komast af, og reyndar meira
en það, með vinnutækni reista á
mjög svo takmarkaðri verk-
kunnáttu hvers einstaklings, er
þörfin sama fyrir gjörmenntaða
verkkunnáttumenn.
En smáþjóð eins og okkur er
vitanlega ekki kleift að feta i
fótspor milljónaþjóðanna i allri
þeirra færibandatækni.
Bezt er einnig að hafa það i
huga, að mismunandi vinnu-
brögð falla auðvitað misjafn-
lega að huga og geðslagi. Það er
reyndar ekki neitt öfugmæli,
sem Stephan G. Stephansson
orti um sjálfan sig, sem þurfti
að sinna óskyldustu viðfangs-
efnum : „Löngum var ég læknir
minn....” o.s.frv.
Það er fjarri mér, að vilja ýta
undir neinn þjóðrembing vegna
umræðu um fjölhæfni tslend-
inga. En ég hygg, að nokkur
leitun mætti vera á þjóð, sem
stæði þar feti framar, jafnvel
jafnfætis.
Hversem gengur um byggða-
söfn, sem góðu heilli hefur verið
efnt til viða um land, getur ekki
annað en undrast, hvernig Is-
lendingum hefur tekizt að gera
hina fjölbreyttustu og hagleg-
ustu hluti, þrátt fyrir að kalla
allsleysið. Er þó ekki unnt að
draga i efa, að gifurlega margt
hefur glatazt, sem ekki ætti sið-
ur heima á söfnunum en það,
sem þar er að finna.
Með hliðsjón af þessu, má
leiða að þvigild rök, að hér sé að
finna möguleika á, að Islending-
ar geti orðið verkmenntaþjóð i
fremstu röð, ef rétt er á haldið.
Fámenniokkar og sú aðstaða,
að vera háðir miklum samskipt-
um við aðrar þjóðir, gerir það
að verkum að okkur er bein lifs-
nauðsyn að virkja allan þann
hagleik.sem þjóðin hefur fengið
i vöggugjöf.
Allir viðurkenna, að nú er svo
komið, að gömlu undirstöðu-
greinarnar geta ekki tekið á
móti vaxandi fólksfjölda, svo
neinu nemi. Við horfum þess-
vegna til iðnaðarins, sem eins-
konar bjarghrings i þeim efn-
um.
Það ætti að vera nokkuð ein-
sætt, að þjóðin verður að snúa
sér alfarið að þvi, að vinna —
fullvinna —úr þeim hráefnum,
sem hér eru fyrir hendi og
stefna að þvi að það sem við
flytjum úr landi þurfi ekki um-
bóta við. En enginn skyldi ætla,
að þetta gerist af sjálfu sér.
Þrátt fyrir það, að handiðn-
aður verkmenntaðra manna
eigi sérhér talsverða sögu, er á-
standið siður en svo loflegt, þó
bjargazt hafi verið við.
Fyrir 30 árum var sett hér ný
skólalöggjöf, og hún hafði inni
að halda ákvæði, að
minnstakosti heimildarákvæði,
um að auka og efla verkmennt-
un i islenzkum skólum. Niður-
Oddur A. Sigurjónsson
staðan af þeirri viðleitni var
nánast sagt raunasaga. Óhætt
er að segja, að þar kom margt
til. I fyrsta lagi voru skólarnir
alls ekki viðbúnir að gera verk-
námi nokkur skil, sem það nafn
var gefandi, vegna skorts á
húsakynnum, tækjum og siðast
en ekki sizt verkmenntuðum
kennurum. I annan stað er hin
landlæga hugmynd okkar, að
binda við hugtakið menntun að-
eins bóklærdóm.
Þar sem reynt var að koma á
fót bók- og verkmenntun nokk-
umveginn samhliða, varð nið-
urstaðan sú, að verknámsdeild-
irnar fengu á sig einskonar
tossamark með réttu eða röngu,
en þar voru bóknámskröfurnar
vægari. Þetta vanmat á verk-
kunnáttunni varð svo til þess, að
menn sneru sér frá henni sem
litilsverðri. Hér við bætist auð-
vitað, að tæki og aðstaða til
verkmenntunar eru margfalt
dýrari, og það var aðstandend-
um skólanna viðast ofviða að
búa út sæmileg verkból.
Þessi blákalda staðreynd hef-
ur skólamönnum oft sviðið, en
óhægt um vik til úrbóta. Það eru
reyndar fleiri en skólamenn,
sem hafa séð hvert stefndi.og
ætla hefði mátt, að i þeim hópi
væruýmsir i röðum landsfeðra.
En þvi miður verður þá að
segja, að þeirra hefur litið gætt
— svo lítið, að eftir 30 ár stönd-
um við nú i nærfellt sömu spor-
um.
Að visu hefur nú ný löggjöf
komið til, sem kveður nokkuð
fastar að um þessa hluti en áð-
ur. En allt um það verður ekki
betur séð en að þau orð stangist
nákvæmlega eins við gerðirnar
eins og fyrir 30 árum!
Un hið eiginlega iðnnám, sem
þó hefur verið stundað i a.m.k.
þrjá aldarfjórðunga er svo á-
statt i þokkabót að þar hefur að-
eins tekizt, að skipulegga
(hanna) 3-4 iðngreinar af 66-67,
sem þó eru löggiltar hér! Fá-
tæktin var min fylgikona....
kvað gamli Jón á Bægisá. En nú
ætti að vera nóg komið af orða-
gjálfri, sem ekkertinntak hefur.
Viö eigum ekki margra kosta
völ, annarra en að snúast mann-
lega við, ef það er raunveruleg
ætlun að koma fótum undir
verkmenntun unga fólksins.
Það kann að vera rétt, að dýrast
sé að vera fátækur. En höfum
við efni á, að spara eyrinn en
kasta krónunni með þvi að láta
við svo búið standa, sem nú
blasir við i verkmenntunarmál-
um?
III HREINSKILNI SAGT
HORNID Auglýsingasími
Skrifið eða hringið Alþýðu blaðsins
í síma 81866 14906
Míisíamb IiI*
Grensásvegi 7
Sími 82655.
InnlánMiidMkipG lefid ^
lÉII
!BÚN/\D/\RBANKI
' ISLANDS
Austurstrætl 5
5imi 21,-200
Hatnarijaröar Apótek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
'Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsing^simi 516Ó0.
\S£NDiMlASTÖDIN Hf