Alþýðublaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 16
Verður lögð hitaveita úr Borgarfirði til Akraness? 60 kílómetra leið, sem yrði lengsta hitaveitulögn Veröur ráðizt t að leggja 60 km langa hita- veituæð ofan úr Borgar- firði alla leiðtil Akraness á næstunni? Hitaveita/ sem þjónaði einnig Borgarnesi og Hvann- eyri, og ef til vill fleiri aðilum i Borgarfjarðar- héraði. Þetta mál verður til umræðu á fundi bæjar- stjórnar Akraness föstu- daginn 29. október. Bæjarráð Akraness fjallaði um hitaveitumál Akurnesinga á fundi i siðustu viku og fór einnig á fund orkumálaráðherra, Gunnars Thoroddsen, til viðræðna við hann um málið. óhagstæður árangur af Leirá. Alþýðublaðið leitaði frétta af þessu máli hjá Guðmundi Vésteinssyni, bæjarráðsmanni á Akranesi. Sagði Guðmundur, að frá þvi á árinu 1974 hafi staðið yfir boranir og rann- sóknir á jarðhitasvæöinu að Leirá i Leirársveit. Arangur hefurekki orðið nógu jákvæður, þar eð efnainnihald vatnsins á þessu svæði hafi reynzt mjög óhagstætt fyrir hitaveitu og vatnsmagnið takmarkað. Nýjar kostnaðaráætlanir sýna einnig, að hugsanleg hitaveita þaðan mundi vart verða ódýrari en veita frá hinum stóru jarðhita- svæðum i Borgarfirði, þar sem vatnið er talið mjög hagstætt fyrir hitaveitu, bæði hvað varðar hitastig og efna- samsetningu. undirtektir hjá ráðherra já- kvæöar varðandi þetta þýðingarmikla atriði. Byrjaðá innanbæjarkerfi — A áðurnefndum fundi bæjarráðs i siðustu viku var gerð samþykkt um að hefja bera,Svo stór hitaveita sem hér er um að ræða þarf verulegt vatnsmagn strax i byrjun og siðar til að mæta aukningum. Það mun geta komið til greina að nýta sameiginlega fáanlegt vatn i Bæjarsveit óg vatn að Kleppsjárnreykjum, en þar eru sjálfrennandi um 75 sek. 2 1. landsins ár beðið með eftirvæntingu eftir hitaveitu, en hægt hefur miðað áleiðis. Upphitað húsnæði i bænum hefur undanfarið vaxið um 6-7% á ári. A næstunni mun óhætt að gera ráð fyrir enn örari vexti m.a. vegna tilkomu járnblendiverksmiðjunnar rétt fyrir innan bæinn. Rekstrar- Uppdrátturinn sýnir leið hitaveitulagnar frá Deildartunguhver til Hvanneyrar, yfir brú á Borgarfirði til Borgarness og slðan út á Akranes, yfir ósa Leirárvogs. Hugsanlegt er einnig, að leiðin verði inn fyrir voginn. Áhrif tolla og söluskatts — Þær kostnaðaráætlanir, sem gerðar hafa verið sýna hins vegar, að hér er óhjákvæmilega um dýrar hitaveitu- framkvæmdir að ræða. Niður- felling tolla og söluskatts af hinu mikla innflutta efni i aðveituæðar mundi hafa veru- lega þýðingu fyrir afkomu veitunnar og ræður sennilega úrslitum um það, hvort hægt er að ráðast i þetta fjármagns- freka fyrirtæki á næstunni. Þegar bæjarráð gekk á fund orkumálaráðherra var þetta atriði rætt sérstaklega og voru hönnun innanbæjarkerfis með tilliti til þess, að Akranes tengdist hitaveitu á næstu árum (ef til vill i kringum 1980), en strax á næsta ári yrðu hafnar lagnir dreifikerfis i nýjum ibúðahverfum og komið upp kyndistöð, sem þjónaði hluta af bænum þar til hitaveitan kæmi, en yrði þá vara- og toppstöð. Deildartunguhver álit- legastur — Undanfarið hafa farið fram boranir i Bæjarsveit á vegurn Borgarneshrepps, sem ekki er enn að fullu ljóst hvern árangur Frá Borgarnesi. Sterklega kemur einnig til greina, að leggja veituna frá vatnsmesta hver landsins, Deildartunguhver. Þvi samþykkti bæjarráð að óska eftir að teknar yrðu upp sameiginlegar viðræður Akranesbæjar og Borgarnes- hrepps við eigendur jarðhita- réttindanna um hugsanleg kaup á þessum réttindum fyrir hitaveitu og fá úr þvi skorið með hvaða kjörum þau væru fáanleg. Vaxtarskeiö framundan Akurnesingar hafa undanfarin legur grundvöllur hitaveitu ofan úr Borgarfirði, sem til þessa hefur virtst tvisýnn kann þvi vera traustari, en áður hefur verið talið, en hér ræður sennilega úrslitum, eins og áður sagði, hvort aðflutningsgjöld og söluskattur verður felldur niður af efni til hitaveitunnar, en slikt hlýtur að teljast sjálfsagt sanngirnismál, þar sem hér er verið að nýta innlenda orku i stað oliu, sem flutt er inn i land tollfritt og seld án söluskatts og raunverulega greidd verulega niður til notenda i formi oliu- styrks. FOSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976 alþýöu blaöíð Lesið: 1 Visi i gær: „Sigfús Daðason, rithöfnundur og fyrrum forstjóri bókaút- gáfu Máls og menningar, hyggst nú stofna bókafor- lag. Stofnfundur bókaút- gáfunnar verður haldinn i þessari viku. Sigfús Daða- son veitti Máli og menn- ingu forstöðu á siðasta ári. Þá urðu, sem kunnugt er, mikil átök i félaginu, og leiddu þau til þess að Sigfús var gerður að bókmennta- legum ráðunauti i félaginu. Sigfús vildi ekki, er Visir ræddi við hann, skýra frá hvert yrði markmið félags- ins, þar sem ekki væri búið að halda stofnfund. Hann vildi heldur ekki upplýsa að svo stöddu hverjir væru með honum i hinu nýja fyrirtæki.” o Lesið: 1 Búnaðar- ritinu i skýrslu ylræktar- ráðunauts: „Innflutningur blóma var talsverður, eins og á undanförnum árum, en tekið var upp kvóta- kerfi, þannig að ekki munu hafa orðið eins aivarleg brögð að miklum innflutn- ingi ofan i innlenda fram- leiðslu, eins og á undan- förnum árum.” Þótt flestir vilji frjálsan innflutning hlýtur það að vera hámark gjaldeyrissóunar, að flytja inn blóm. o Heyrt: Að kunnur verzl - unarmaður i Reykjavik hafi verið við laxveiðar i Grimsá' i Borgarfirði einn af fáum sólardögum i sum- ar. Laxinn tók ekki og ákvað verzlunarmaðurinn að fá sér sólbað. Hann fór úr öllum fötum, kastaði maðki i ána og lagði sig með stöngina i hendinni. Og auðvitað tók stærðar lax fljótlega. Hann reif alla lin- una út af hjólinu, verzlun- armaðurinn komst i klof- stigvélin, en ekki meira, og þannig æddi hann eftir ár^ bakkanum i örvæntingar- fullri tilraun til að halda laxinum. 1 þann mund bar að áætlunarbifreið, sem i voru 50 til 60 norrrænar hjúkrunarkonur. Þær höfðu aldrei séð svona veiömann, allsberan i klofstigvélum, og var hann myndaður óspart á meðan hann land- aði laxinum sigri hrós- andi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.