Alþýðublaðið - 31.10.1976, Blaðsíða 2
8 FRÉTTIR
í
Sunnudagur 31. október 1976;,biai
Iþýöu-
laóiA
Frtw-Arm 8000
í’íM*
Kr. 51.700
TOYOTA SAUMAVELIN
er óskadraumur konunnar.
Toyota-saumavélin
er mest selda saumavélin á Islandi í dag
TOYOTA varahlutaumboðið h.f.,
Ármúla 23, Reykjavík, sími 81733.
Einkaumboð d íslandi
37.600
Samband dýravernd-
arfélaga íslands:
Kemur sér
upp trún-
aðarmanna-
kerfi
Stjórn Sambands
dýraverndunarfélaga
hefur nýlega ritað öilum
oddvitum landsins bréf/
þar sem þess er farið á
leitr að þeir tilnefni
trúnaðarmenn fyrir
Samband dýra-
verndunarfélaga
íslands.
Starf dýraverndunarfélaga er
rekið af áhugamönnum, eins og
flestum er kunnugt. Þessir ein-
staklingar eru oft á tiðum önnum
kafnir i starfi sinu, og eiga erfitt
með að vinna það fyrir sam-
bandið sem þeir vilja. Einnig eru
staðir á landinu, þar sem ekkert
dýraverndunarfélag er starfandi
og erfitt um eftirlit með skepnu-
haldi.
Að sögn Jórunnar Sörensen
formanns Sambands dýra-
verndunarfélaga tslands, er
ætlunin að þessir trúnaðarmenn
verði „augu og eyru sambandsins
um land allt”.
— Það kemur oft fyrir að við
fáum ábendingar frá fólki úti á
landi, en getum ekki sinnt þeim,
vegna þess að við höfum ekki tök
á að fara. Þá er auðvitað ómetan-
legt að hafa einhvern á staðnum,
sem getur farið og séð hvort hér
er um að ræða illa meðferð á
dýrum. Eða hvort hér er um
nágrannakrit að ræöa, eins og
stundum á sér stað. Þessir menn
eiga sem sagt að meta málið og
senda okkur siðan skýrslu.
Jórunn sagði, að þegar væru
farin að berast svarbréf frá odd-
vitum. Þeir sem hafa svarað hafa
allir tekið vel i erindið og ýmist
tilnefnt einhvern sveitunga sinn,
eöa einfaldlega tekið starfið að
sér sjálfir. Hér er að sjálfsögðu
um ólaunaö starf að ræöa.
Trúnaðarmenn þessir munu fá
send lög og reglugerðir um dýra-
vernd til að byggja starf sitt á.
Jórunn bað að lokutn um, að þvi
yrði beint til oddvita þeirra sem
enn hafa ekki svarað erindisbréfi
Sambands dýraverndunarfélaga,
aö gera það hið fyrsta. —hm.
( frétt frá Nemendaráði
Tækniskóla íslands segir,
að aðalfundur nemenda-
ráðs skólans mótmæli
harðlega þeim gerræðis-
legu vinnubrögðum sem
viðhöfð hafi verið við
samningu og frágany' út-
hlutunarreglna Lánasjóðs
islenzkra námsmanna.
Segir, að aðalf undurinn
krefjist þess að ráðherra
dragi undirskrift sína til
baka og leiðrétti út-
hlutunarreglur þannig að
sanngjarnar megi teljast,
ella segi ráðherra af sér.
Er þetta efnislegt innihald
bréfs sem sent var
menntamálaráðherra, Vil-
hiálmi HiálmarQcvni — ARH
Hjúkrunar-
fræðingar
óánægðir
A fundi hjúkrunarfræðinga
við Heilsuverndarstöð Reykja-
vikur, sem haldinn var fyrir
skömmu, kom fram megn
óánægja vegna úrskurðar
kjaranefndar um sérsamninga
Reykjavikurborgar og
Hjúkrunarfélags íslands, er
staðfestur var 22. september
siðast liðinn.
f frétt frá hjúkrunar-
fræðingunum segir, að störf
hjúkrunarfræðinga almennthafi
verið mjög vanmetin i úr-
skurðinum, og engar sérkröfur
hjúkrunarfræðinga Heilsu-
verndarstöðvarinnar teknar til
greina.
Þá segir: „Úrskurður kjara-
nefndar um hækkun um einn
launaflokk, sem allar aðrar
starfsstéttir fá, breytir engu um
það vanmat, sem hjúkrunar-
fræðingar hafa sætt i launum
miðað viðmarga þá starfshópa,
er gegna ábyrgðarminni
störfum hjá Reykjavikurborg,
eöa störfum, sem krefjast minni
menntunar.”
STRINDBERG í
NÝJU LJÓSI
Þjóðleikhúsið er nú að
hef ja sýningar á leikritinu
Nótt ástmeynna, eftir
sænska höfundinn Per
Olov Enquist. Þýðinguna
gerði Stefán Baldursson.
Æfingar hafa staðið yfir
dag hvern síðan 3. sept.
Leikurinn gerist i Kaup-
mannahöfn 1889. Agust
Strindberg á í miklum
f járhagserfiðleikum.
Enginn fæst til að birta
eftir hann greinar, gefa út
bækur hans, né þá sýna
leikrit hans. Auk þess
stendur hann í skilnaði við
konu sína Siri von Essen.
Siri er það eina áhugamál að
komast út i atvinnulifiö aftur,
fara að leika.
Verið er að æfa einþáttung eftir
Strindberg, þar sem Siri von Ess-
en fer með aðalhlutverk. Strind-
berg mætir á eina æfinguna, og
hefst þar hið heiftarlegasta rif-
rildi milli hjónanna. Strindberg
heldur þvi fram aö kona hans eigi
vingott við danska stúlku Marie
David, en hún leikur annað hlut-
verk i einþáttungnum, sem æf-
ingar standa yfir á.
Kvöldið liður i einu allsherjar
rifrildi, þar sem hvorki Strind-
berg né kona hans virðast geta
gleymt þvi eitt andartak aö þau
standa i skilnaði. Inn i rifrildið
blandast siðan aö sjálfsögðu hin
danska vinkona Siri, Marie og
auk þess danskur leikari Viggo
Schiwe að nafni.
Leikrit þetta er um ársgamalt
og hefur verið sýnt við góða að-
sókn á flestum Norðurlöndunum.
Nokkrar ritdeilur urðu um verkið
i sænskum blöðum, og var höf-
undur gagnrýndur harðlega fyrir
túlkun sina á persónu Strind-
bergs.
Fyrirhugað er að sýna verkið i
Þýzkalandi og Englandi. Einnig
hefur leikritið verið selt vestur
um haf, og mun þaö hinn kunni
kvikmyndaleikari Jack Nicholson
sem fara á með hlutverk Strind-
bergs.
Allar horfur eru á að höfundur
verksins komi hingað til lands i
boði Norræna hússins, og verði þá
viöstaddur sýningu á Nótt ást-
meyjanna.
Með hlutverk Strindbergs i
Þjóðleikhúsinu fer Erlingur
Gislason, konu hans leikur Helga
Bachmann, Edda Þórarinsdóttir
leikur Marie hina dönsku og Bessi
Bjarnason og Sigmundur örn
Sviðsmynd úr „Nótt ástmeyjanna”
Arngrimsson skiptast á um að
leíka danska leikarann Viggó
Schiiwe. Leikstjóri er Helgi
Skúlason.
Nótt ástmeyjanna verður sýnt á
Litla sviðinu i Leikhúskjallaran-
um og er frumsýning þriðjudag-
inn 3. nóvember og hefst kl. 20.30.
—Af
Félag
áhugamanna
um heims-
speki stofna
félag
Klukkan 14.30 i dag verður
fluttur fyrirlestur, á vegum
félags áhugamanna um
heimsspeki, fyrirlestur i Lög-
bergi húsi Lagadeildar Háskóla
tslands. Fyrirlesari er Halldór
Guðjónsson, stærðfræðingur og
nefnir hann erindi sitt „Málfræði
Chomskys og gagnrýni á hana”.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Félag áhugamanna um heims-
speki var stofnað hinn 16. október
og er tilgangur félagsins að efla
kynni áhugamanna um heims-
speki og gangast fyrir fyrirlestra-
haldi um heimsspekileg efni.
Fyrirlestur Halldórs Guðjóns-
sonar er hinn fyrsti i röð 8 fyrir-
lestra, sem fyrirhugaðir eru i
vetur.
Tækniskóla-
nemar vilja
setja Vil-
hjálm af!
i
ur 31. október 1976
FRÉTTIR g
Farsælu dagsverki að Ijúka:
w
Sr. Oskar J. Þorláksson
lætur af embætti í dag
A sunnudaginn kemur
mun sr. óskar J. Þor-
láksson, dómprófastur
vinna sitt siðasta
opinbera embættisverk í
dómkirkjunni, er hann
setur inn í embætti eftir-
mann sinn sr. Hjalta
Guðmundsson ný-
skipaðan dómkirkju-
prest. Þar með lýkur 45
ára farsælu starfi hans
innan þjóðkirkjunnar.
Alþýðublaðið átti ör-
stutt rabb við sr. óskar i
tilefni af þessum tíma-
mótum i lífi hans.
„Hvenær tókst þú prestvigslu,
sr. Óskar, og hvar hófust þin
prestsstörf ? ”
,, Eg var vfgður þann
átjánda október 1931, af dr.
theol Jóni Helgasyni, biskupi,
og tók við embætti að Kirkjubæ
á Siðu strax þar eftir, en þar
þjónaði ég i 3 1/2 ár.”
„Og þaðan lá leiðin til Siglu-
fjarðar?”
„Já, ég tók þar við af sr.
Bjarna Þorsteinssyni, þeim
landsþekkta klerki.”
„Fannst þér vera vandi á
höndum, að taka við af
honum?”
„Bæði já og nei, er óhætt aö
segja. Sr. Bjarni Þorsteinsson
var, eins og allir vita mikill
hæfileikamaður, og starf hans i
þágu tónmennta og þó einkum
við söfnun þjóðlaga er
ómetanlegt. Þar var ekki
heiglum hent að ganga i hans
fótspor, enda reyndi ég það
ekki. En hann skildi eftir mikla
virðingu fyrir prestsstarfinu,
sem ég naut góðs af.”
"Stundaðirðu þar einhver
störf samhliöa prestsstarfinu?”
„Ég fékkst dálitið við kennslu
bæði i gagnfræðaskólanum og
barnaskólanum, og svo voru
auðvitað ýmiskonar félagsstörf,
eins og gengur, þarna þjónaði
ég i 16 ár.”
„Og svo komstu til höfuð-
borgarinnar?”
„Já, 1951. Þar tók ég við af sr.
Bjarna Jónssyni, vigslu-
biskupi.”
„Ekki var hann nú siður
ástsæll prestur en nafni hans á
Siglufirði?”
„Nei, það er óhætt um það.
Hann skildi við góðan söfnuð,
sem handgenginn var sálu-
sorgara sinum.”
„Hefurðu haldið áfram
félagsmálastörfum, eftir að þú
fluttist til Reykjavikur?”
„Ofurlitið já. Það hefur helzt
verið að slysavarnamálum, auk
þess sem ég hefi tekið þátt i
Rotary-hreyfingunni.”
„Hvað viltu segja, sr. Óskar,
um starf prests i stórum
söfnuði?”
„Það er vitanlega nokkuð
annað en að hafa smærri söfnuð.
Kynning við alla safnaðarmenn
verður ekki eins náin og kostur
er þar sem safnaðarfólkið er
færra. Almennar húsvitjanir
eru t.d. meiri erfiðleikum
bundnar. En það var siður
minn, að hafa samband við for-
eldra allra fermingarbarna, og
svo hafði ég auðvitað fasta
viðtalstima, sem talsvert eru
notaðir.”
„Hvað er þér nú efst i huga,
þegar þú lætur af 45 ára
þjónustu?”
„Mér er þakklæti efst i huga,
bæði til Guðs og manna. Ég hefi
mætt alúð yfirleitt safnaðar-
barna, og ég hefi verið heilsu-
góður alla ævi, sem ég get ekki
fullþakkað Guði minum.”
„Er eitthvað, sem þú vildir
segja sérstaklega um lifsviðhorf
þin, sem manns og prests?”
„Já. Ég hefi alltaf talið, að
hvort heldur eru menn almennt
og ekki siður prestar, eigi að
vera jákvæður, láta ekki ýmis-
konar vonbrigði, sem alla
hendir einhverntima á lifs-
leiðinni, villa sér sýn og myrkva
hugskotið. Það er meira af góöu
fólki i veröldinni en ýmsir vilja
vera láta. Sé þess leitað, finnst
það.”
„Og hvað tekur nú við?”
„Eins og er, hefi ég ekki
ákveðið neitt um það. Timinn
verður að leiða i ljós, hvað mér
kann að vinnast og i hverju”,
sagði sr. Óskar J. Þorláksson,
Síöastliöinn laugar-
dag var stofnuö deild
hinnar alheimslegu
Rósarkrossreglu,
A.M.O.R.C., hérá landi
og hefur þún hlotið
nafniö Atlantic
Pronaos.
Rósarkrossreglan er bræðra-
lag karla og kvenna, sem helga
sig námi, rannsóknum og hag-
nýtingu náttúrulegra og
andlegra lögmála. Hér er ekki
um að ræða sértrúarflokk, en
tilgangur reglunnar er aö auö-
velda mönnum að lifa i sam-
hljóm við hin skapandi og upp-
byggjandi kosmisku öfl.
Reglan er öllum opin án tillits
til trúar- eða stjórnmála-
skoðana, en Rósarkross-
þekkingunni er miðlað á þann
hátt, að meðlimir fá send
vikulega bréf, sem þeim er
gert að vinna úr innan veggja
heimilis sins. Auk þess geta þeir
gerzt þátttakendur i þvi sam-
starfi, sem hófstmeð stofnun
Atlantic Pronaos hér á Islandi.
Atlantic Pronaos heyrir undir
Norrænu Stórregluna, en aðal-
stöðvar reglunnar eru i San José
i Kaliforniu.
Deildir Rósarkrossreglunnar
eru starfandi i milli 60 og 70
löndum, svo ólikum sem
Danmörku, Madagaskar,
Liberiu og Israel.
Rósarkrossreglan er
ævagömul og rekja reglumenn
regluna aftur til daga Thutmose
111., sem rikti i Egyptalandi um
1500 fyrir Krist.
RÓSARKROSSREGLAN ST0FNAR
DEILD HÉR A LANDI
FLUGLEIÐIR HEFJfl SAMSTARF MEÐ T.M.A.
Flugleiöir hafa gert
samning við fraktflug-
félagið Trans Mediterran-
ean Airways á Heathrow-
flugvelli í Bretlandi um aö
þeir taki við afgreiðslu af
brezka flugfélaginu Brit-
ish Airways á vörum til
flutnings með vélum
félagsins. Samningurinn
kemur til framkvæmda
hinn 30. október n.k. klukk-
an 3 síðdegis, er hinn nýi
umboðsaðili hefur móttöku
á vörum viðskiptavina
félagsins.
Trans Mediterranean Airways,
sem venjulega gengur undir heit-
inu T.M.A., er libanskt fraktflug-
félag og er það eitt hið stærsta i
heimi á sviði vöruflutninga.
Heimilisfangið er Heathrow Air-
port Cargo Terminal, Shoreham
RoadEast, Hounslow, Middlesex,
og siminn er 01-7590081. Skrifstofa
stöðvastjóra Flugleiða á Heath-
rowflugvelli veitir alla fyrir-
greiðslu um pantanir viðskipta-
vina vegna vöruflutninga með
vélum félagsins. Slmi stöðva-
stjórans er 01-4996721 og 01-
4999971.
Flugleiðir vænta þess, aö breyt-
ing þessi verði viðskiptavinum
félagsins til hagsbóta og fyrir-
greiðsla öll og þjónusta við þá
betri en áöur var, þar eö i hlut á
minna fyrirtæki, sem getur betur
sinnt þörfum hvers og eins.
Varnarmál og
varnarstöðvar
37. þing Alþýðuflokksins harmar, að
flota- og kjarnorkukapphlaup stór-
veldanna, risavaxin uppbygging
sovézka flotans við Murmansk og
vaxandi mótaðgerðir Bandaríkjanna
skuli hafa aukið spennu á norðanverðu
Atlantshafi i þann mund er Helsinki-
samkomulagið gaf von um að draga
mætti úr ófriðarhættu.
Flokksþingið telur þvi rökrétt með
tilliti til öryggis íslands og viðhorf i
heimsmálum, að íslendingar leiti að
svo stöddu trausts i varnarbandalagi
grannþjóðanna og taki þátt i
sameiginlegum vörnum Atlantshafs-
bandalagsrikjanna.
Þingið leggur jafnframt áherzlu á að
vakað verði yfir fyrsta tækifæri til
þess að láta varnarliðið hverfa úr
landi án þess að öryggi þjóðarinnar
stafi hætta af og að um þá ákvörðun
verði höfð þjóðaratkvæðagreiðsla.
Ný stjórnarskrá •
viðreisn Alþingis
37. þing Alþýðuflokksins telur brýna
nauðsyn að setja lýðveldinu nýja
stjórnarskrá i stað þeirrar úreltu, ni-
tjándu aldar stjórnarskrár, sem enn er
litt breytt i gildi.
Ný stjórnarskrá á að tryggja raun-
hæft frelsi og jafnrétti allra Islend-
inga fyrir lögum, við skattheimtu og
skiptingu þeirra þjóöartekna og þess
fjármagns, sem til ráðstöfunar er
hverju sinni.
Ný stjórnarskrá á að tryggja raun-
hæft lýðræði, sem kallar á virka þátt-
töku allra landsmanna, stjórnmála-
legt lýðræði, félagslegt lýðræði og at-
vinnulýðræði.
Flokksþingið ályktar að rétt sé að
afgreiða fyrst breytingar á stjórnar-
— --------------—;------smv&k:
Stóraukið fræðslustarf um
málefni launþega-samtakanna
37. þing Alþýðuflokksins telur brýna
nauðsyn á að eflt verði mjög starf
verkalýðsmálanefndar flokksins I
þeim tilgangi að samhæfa sem mest
má verða stefnu og markmið flokksins
og launþegasamtakanna og ná fyrr og
betur raunhæfum árangri I baráttu
beggja fyrir hagsmunamálum alþýöu
manna.
Þingið telur nauðsynlegt i þessu
sambandi að ráðinn verði hið fyrsta
sérstakur starfsmaður verkalýðs-
málanefndarinnar og felur flokks-
stjórn og stjórn verkalýðsmálanefnd-
ar að vinna að þvi að svo megi verða.
Þá tclur þingið einnig aö efla þurfi
hópstarf flokksmanna og fylgismanna
flokksins i launþegasamtökunum i
þeim tilgangi að flokksmcnn verði þar
almennt mun virkari en nú er. Sömu-
leiöis að stórauka fræðslustarf flokks-
ins um málefni launþegasamtakanna
og gera flokksmenn á þann hátt hæfari
til að vinna innan launþegasamtak-
anna, fyrir þau og meö þeim.
skrárákvæðum um jöfnun kosninga-
réttar og rétt kjósenda til persónu-
legra vals milli frambjóðenda, jafn-
ræði milli flokka með uppbótarkerfi,
18ára kosningarétt og skipan Alþingis
i eina deild. Flokksþingið skorar á Al-
þingi að hefjast handa með þvi að
samþykkja frumvörp Alþýðuflokks-
manna um breytta starfsháttu Alþing-
is til að auka áhrif þess i stjórnkerfinu
og umboðsnefnd þingsins til að verja
einstaklinga fyrir misrétti af hálfu
stjórnsýsluaðila og skrifstofubákns>
hins opinbera.
Að lokum þessum fyrsta áfanga við
umbætur stjórnkerfisins ber að endur-
skoða stjórnarskrána að öðru leyti og
afgreiða hana eins fljótt og unnt er.
Þingið minnir á 30 ára aðild Islands
að Sameinuðu Þjóðunum og tilgang
þeirra samtaka að koma i veg fyrir
ófrið i heiminum og tryggja öllum
þjóðum frið og öryggi.
Reynslan hefur sýnt, að tilvist
hernaöarbandalaga ein sér hefur ekki
komið i veg fyrir hernaðarátök og
nauðsynlegt er aö tryggja frið með
öðrum hætti. 1 þvi sambandi er mikil-
vægast að efla Sameinuðu þjóðirnar og
friðargæzlustarf þeirra, ná samkomu-
lagi um gagnkvæma afvopnun, auka
friðsamleg samskipti þjóða og stefna
aðafnámi hernaðar-bandalaga.
Flokksþing Alþýðuflokksins bendir á
að óeðlilegt er, að varnarliðsmenn
njóti sérréttinda umfram landsmenn.
Þingið krefst þess, að sem allra fyrst
verði öll slik sérréttindi varnar-
liösmanna afnumin, svo sem sér-
stakur gjaldmiðill, tollfriðindi o.fl.