Alþýðublaðið - 08.12.1976, Page 1
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER
261. tbl. — /976 — 5'j r árg.
Áskriftar-
síminn er
14-900
NORÐURSTJARNAN í HAFNARFIRÐI:
Enga hugmynd um framtíðina
— segir Guðmundur Ólafsson hjá Framkvæmdastofnun
- Nei, blessaöur vertu, við
höfum enga hugmynd um
framtið Norðurstjörnunnar.
Ef svo væri, væri allt miklu
auðveldara, sagði Guðmundur
ólafsson hjá Framkvæmda-
stofnuninni, þegar blaðið
ræddi við hann i gær.
Þeim Guðmundi og Pétri
Péturssyni fyrrum forstjóra
og starfsmannastjóra
Energoproject, hefur verið
falið að gera úttekt á rekstri
Norðurstjörnunnar i Hafnar-
firði, með tilliti til reksturs
fyrirtækisins i framtiðinni.
Staða Norðurstjörnunnar er
mjög slæm framleiðslulega
séð, miklarbirgðir af Kippers-
sild liggja hjá fyrirtækinu og
verður ekki séð, hvernig unnt
er að koma þeim i verð.
— Við sjáum enga snjalla
lausn, eins og stendur, sagði
Guðmundur. — Markaðurinn
fyrir Kippers er dvinandi
erlendis, sérstaklega i Banda-
rikjunum, þannig að þetta er
skelfing bágborinn fram-
leiðsluvegur.
Áherzla á vörur til
framleiöslu
Guðmundur sagði að þeir
myndu leggja mesta áherzlu á
að finna einhverja aðra vöru
til að framleiða, sem nægur
markaður væri fyrir. Þetta
þýddi breytingar á vélakosti,
þar sem hann væri gerður
fyrir Kippers-framleiðsu.
Hins vegar væru þarna allt of
mikil verðmæti innandyra, til
að hægt væri að snúa baki við
fyrirtækinu.
Þessi könnun á framleiðslu-
vöru og markaði verður gerð i
samráði við Sölustofnun lag-
— Timinn verður ekki betur
notaður til annars en að horfa i
kringum sig eftir mörkuðum,
en i Kippersáttina verður ekki
litið, sagöi Guðmundur að lok-
um.
-hm
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í gær:
Hnakkrifust
um geðdeild
Miklar umræður urðu um
málefni geðsjúkra á íslandi á
Alþingi i gær, i framhaldi af
fyrirspurn Ragnhildar Helga-
dóttur til heilbrigðisráðherra,
Matthiasar Bjarnasonar. í ræðu
ráðherra kom m.a. fram, að
áætlaður kostnaður við að full-
gera geðdeild Landspitalans
væri áætlaður um SOOmilljónir,
sem þýddi að til þess að fullgera
hana, þyrfti að veita til hennar
200 millj. árlega. Einnig kom
fram, að gert væri ráð fyrir að
....... ^___—— tók Jón Armann Héðinsson.
nú vantaði hér á landi um 200
vistunarrými á geðsjúkrahús-
um, um 140 á geðsjúkraheimil-
um og um 140 á sérstökum
stofnunum fyrir geðveila og
drykkjusjúka.Þá kom það fram
hjá ráðherra, að leitað hefur
verið eftir þvi við Háskóla
tslands, að heimilt verði að nota
hluta byggingarfjár háskólans
til áframhaldandi fram-
kvæmda við geðdeildina. Er
gertráð fyrir um 50 milljon kr.
láni i þessu skyni.
Hörð orðasenna flokks-
systkina
Að lokinni ræðu ráðherrans
tóku til máls þau Magnús
Kjartansson og fyrirspyrjandi,
Ragnhildur Helgadóttir. Lögðu
þau bæði áherslu á mikilvægi
þess að framkvæmdum við geð-
deildina yrði hraðað sem mest,
enda væri vandséð hvernig ný-
bygging Landspitalans kæmi
geðsjúkum til góða i þvi ástandi
sem hún nú væri. 1 sama streng
Bæjarútgerðin
eignist nýtt
frystihús
A fundi Borgarstjórnar
Reykjavikur siðastliðinn
fimmtudag skýrði Björgvin
Guðmundsson borgarfulltrúi
Alþýöuflokksins frá þvi að út-
gcrðarráð B(JR hefði samþykkt
i einu hljóði að bæta starfs-
mannaaðstöðu i fiskiðjuverinu
þannig aö hagræði i tfinnslu afl-
ans yrði meira og vinnuaðstaða
öli betri.
Þá var einnig samþykkt að
koma upp nýjum matsal fyrir
starfsfólkið.
Fagnaði Björgvin þessu sér-
staklega með tilvisun til tillögu
þeirrar er hann hafði flutt i
Borgarstjórn um að bæta þyrfti
aðstöðu verkafólks i fisk-
vinnslustöövum i Reykjavik yf-
irleitt.
Jafnframt skýrði hann frá þvi
að i útgerðarráði heföi hann
látiö bóka, að þrátt fyrir þessar
breytingar i fiskiðjuveri B(JR
Björgvin Guðmundsson
þyrfti eftir sem áður að stefna
aö þvi aö Bæjarútgerðin eignaö-
ist nýtt frystihús.
-BJ
Matthias Bjarnason tók til
máls á ný og var nú þungorður
mjög i garð þingmanna, en sér-
staklega setti hann þó ofan i við
flokkssystur sina, Ragnhildi, og
sagði að það vantaði ekki ákaf-
ann i þingmenn þegar þeir vildu
hraða einhverjum fram-
kvæmdum. Minna yrði venju-
lega úr þeim ef þeir ættu að sjá
til þess að afla fjármagns vegna
'þeirra. Hann sagði að hér væri
um að ræða dæmigerð vinnu-
brögð þrýstihópa. Það væri ein-
blint á aðeins eitt verkefni og
viðkomandi aðilar vildu að allt
snerist ávallt i kring um það.
Ragnhildur reyndi að bera af
sér lagið og sagði m.a. að það
væri illa komið fyrir stærsta
stjórnmálaílokki landsins, ef
ráðherra úr röðum hans væri
farinn að tala um að málefni
geösjúkra væru borin upp af
þrýstihópi. Sagði þingmaður-
inn að það að hraða fram-
kvæmdum við geðdeildina væri
einmitt i anda ótal samþykkta
frá þingum Sjálfstæðisflokks-
ins. Hún sendi svo ráðherran-
um til baka skeytið, þar sem
hann likti þingmönnum við
þrýstihópa, og kvað sjálfa sig
nota þinglega aðferð til að koma
máli þessu á framfæri og að hún
teldi sig vera i fullum rétti til
þess að gera svo.
Matthias sagði að það væri að
Ragnhildur Helgadóttir: þú hef-
ur þó ekki gleymt ölium sam-
þykktunum okkar, Matthías?
visu rétt að landsfundir Sjálf-
stæðisflokksins hefðu ályktað
um mál þetta, en hins vegar
hefði þingflokkur Sjálfstæðis-
manna gert samþykkt um for-
gangsröð mála i þinginu og á þvi
væri þetta byggt.
Pétur Sigurðsson bar blak af
ráðherranum og sagði að
Matthias Bjarnason: dæmigerð
aðferð þrýstihópa
Magnúsi Kjartanssyni færist
manna sist aö gagnrýna slælega
framgöngu ráðherrans i heil-
brigðismálum, þar sem hann
sæti sjáifur i sömu sök. Yrði að
vekja athygli á þessari stað-
reynd, ,,ef svo færi að Matthias
Bjarnason yrði sakfelldur”.
—ARH
Hyggjast nota
skip við
vatnamælingar
Hópur manna býr sig undir að
taka á móti Kötluhlaupi, segir
Sigurjón Rist, vatnamælingam.
A vegum Hafrannsóknar-
stofnunar er nú verið að kanna
möguleika á, breyttum aðferð-
um við vatnamælingar. Að sögn
Sigurjóns Rist vatnamæiinga-
manns hefur verið rætt um að
nota skip við að mæla leysingar-
vatn frá jöklum sem rennur út i
sjóinn.
,,Þessi hugmynd er ekki ný af
nálinni, sagði Sigurjón, þvi það
var dr. Trausti Einarsson sem
kom fyrstur með hana fyrir 20
árum. Þessi aðferð var svo
reynd fyrir nokkrum árum út af
Skeiðarársandi, en þótti ekki
gefast nægilega góða raun þá.
Þetta var svo teidö aftur til
umræðu núna, hjá hópum, sem
eru að búa sig undir aö taka á
móti Kötluhlaupi, ef það kemur
einhvern tima.
Þá sagði Sigurjón, að liklega
kæmi ekki til þess, að mælinga-
skip yrði staðsett undan strönd-
um landsins langan tima i senn,
þvi það yrði nokkuð dýrt fyrir-
tæki. Hins vegar yrði siglt á
staðinn um leið og eitthvert útlit
væri fyrir jökulhlaup, enda væri
mælingaútbúnaðurinn einfaldur
og þvi fljótlegt að koma honum
fyrir i skipinu.
-JSS
Rltstjórn Slðumúla II - Sfml 81866