Alþýðublaðið - 08.12.1976, Page 2
2 STJÓRNMÁL
Miðvikudagur 8. desember 1976
Útgeíandi: AiþyAuriukkurim). ;
Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgöarmaður: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggsson.
Aðsetur ritstjórnar er i Síöumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906.
Askriftarsfmi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverð: 1100 krónur á mánuöi og 60 krónur I lausasölu.
alþýöu-
blaöið
Þar duga ekki upp-
hlaup og slagorðaglamur
Hvernig sem menn
deila um þing Alþýðu-
sambands Islands og
árangur þess, störf þing-
sins, innbyrðis deilur,
stjórnmálaátök og bar-
áttu einstaklinga, fer
ekki á milli mála, að
þetta var eitt merkasta
þing, sem Alþýðusam-
bandið hefur háð.
Á þinginu voru teknar
veigamiklar ákvarðanir,
sem móta eiga stefnu
sambandsins í næstu
kjarasamningum og störf
þess í náinni framtíð.
Þetta var jákvætt þing og
stef numarkandi. —
Ákvarðanir þess leggja
þungar skyldur á herðar
því fólki, sem til forystu
var kjörið. Því ber fyrst
og fremst að stuðla að
myndun breiðfylkingar
verkalýðshreyf ingarinn-
ar, sem í væntanlegum
kjaraátökum tekur þátt í
baráttunni af einlægni og
samstarfsvilja.
Þessi fylking verður
ekki eingöngu bundin við
verkalýðsf lokkana, því
hreyfingin á stuðnings-
menn í öllum stjórnmála-
flokkum. Þessir stuðn-
ingsmenn eiga að vera
með í baráttunni, án til-
lits til pólitískra skoðana
þeirra.
Segja má, að á þessu
Alþýðusambandsþingi
hafi komið í Ijós batnandi
sambúð verkalýðsf lokk-
anna, þ.e. hinna öfga-
lausu afla innan þeirra.
— Alþýðuflokkurinn
gegndi mikilvægu hlut-
verki á Alþýðusambands-
þínginu sem málamiðlari
og andstæðingur þeirra
öfgamanna, sem telja. að
hvergi náist árangur
nema með róttækri bylt-
ingu.
Fulltrúar Alþýðu-
flokksins á þinginu voru
andvígir þeim fyrirætl-
unum sumra Alþýðu-
bandalagsmanna, að út-
hýsa f orystumönnum
ýmissa verkalýðshópa
vegna pólitískra skoðana
þeirra. Þessir Alþýðu-
bandalagsmenn spurðu
hvorki um mannkosti né
starf þessara manna
fyrir verkalýðshreyfing-
una. Þeir litu aðeins á
flokksstimpilinn, sem á
þeim var, og dæmdu þá
samkvæmt honum. —
Árangurinn af þessari
stefnu Alþýðuflokksfull-
trúanna er sá, að það
tókst að mynda miðstjórn
Alþýðusambandsins á
breiðum grundvelli. Bægt
var frá þeirri hættu, að
Alþýðusambandið klofn-
aði. í þessari miðstjórn
eiga verkalýðsflokkarnir
fleiri fulltrúa en áður en
hún er eftir sem áður
byggð á breiðum fagleg-
um grundvelli, sem er
mun vænlegri til
árangurs en hefði ein-
angrunarstefnan fengið
að ráða.
Á Alþýðusambands-
þinginu kom berlega í
Ijós, að nokkrir helztu og
reyndustu verkalýðsleið-
togar Alþýðubandalags-
ins voru í stórum dráttum
sammála Alþýðuf lokks-
mönnum um þá stefnu,
sem taka bæri. Nægir í
því sambandi að nefna
afstöðu Björns Jónssonar
og Eðvarðs Sigurðssonar
I byrjun þingsins. Þessir
menn meta meira barátt-
una fyrir bættum kjörum
verkalýðsins á þessari
stundu, en valdabaráttu
stjórnnhálaf lokkanna
innan verkalýðshreyf ing-
arinnar. Þeir gera sér
Ijósa þá ábyrgð, sem á
þeim hvílir í átökunum,
sem framundan eru. Þar
duga ekki upphlaup eða
slagorðaglamur, heldur
stanzlaus og ákveðin bar-
átta í sókninni til bættra
lífskjara og betra lífs.
EIN-
DÁLKURINN
I þágu eiginmannanna?
t Reykja-
vík, á Suður-
landi, Suður-
nesjum,
Akureýri og
kannske oröiö
viöar hér á
landi er til
félagsskapur
sem taldi fyrir
þrem árum
þjóðlegri viröingu og reisn ekki
nægilega fyrir aö fara og mæltist
til þess aö islenzki fáninn skyldi
settur upp í öllum skólastofum
landsins.
Ekki var ljóst hvort félagsmenn
hyggöust sjálfir efla þjóölega
reisn á einhvern hátt sem slikir,
en félagsskapur þessi heitir þvi
mjög svo þjóðlega nafni ,,Junior
Chamber.” Vilji félagsmenn vera
alþýölegir má titla þá skamm-
stöfuninni djei-sfs (JC’s) upp á
amerisku. Hiö islenzka heiti, sem
aldrei náöi aö festa rætur i þess-
ari islenzku siöabótarhreyfingu,
er Ungir athafnamenn.
Ungi maöurinn, sem myndin
hér aö ofan er af, er landsforseti
samtakanna og ber aö sjálfsögöu
viðeigandi gullkeöju, likt og
borgarstjórinn I Reykjavik gerir
á tyllidögum. Ef til vill mætti
fánastöng meö Islenzka fánanum
ganga upp af höfðinu, svona til aö
undirstrika þjóölegheitin.
Sagt er aö Junior Chamber
hreyfingin, sem er angi af JC
International hreyfingunni sé
félagsskapur öllum opinn — og þá
væntanlega konum lika. En
hvernig sem á þvi má standa þá
er innan vébanda þessa merka
félagsskapar starfandi Eigin-
kvennafélag JC. Og tilgangurinn
hjá þvi göfuga félagi er aö standa
viö hlið eiginmanna sinna I bliöu
og strföu og styöja þá á alla lund i
velgengnisbaráttu þeirra.
—BS
O P A L h/f Sœlgœtisgerð
Skipholti 29 - SÍMI24466
Látið rafmagns