Alþýðublaðið - 08.12.1976, Síða 10
10
AAiðvikudagur 8. desember 1976 gaas1
— Hættan af óheftu frelsi
er mun minni en hættan af
því að bera alls kyns fjötra
Framhald af blaðsíðu 7
að allt, sem birtist sé gott eða
gagnlegt. Ég tel, að allt frelsi
verði að vera borið uppi af
ábyrgðartilfinningu, og margt,
sem birt er, sé ábyrgðarlitið.
En ég er lika siður en svo sam-
mála öllu, sem opinber stjórnvöld
birta, eða láta hafa eftir sér,
heldur ekki ýmsu þvi, sem alls-
kyns framagosar hafa uppi, eða
viðskiptahöldar, eða verkalýðs-
hreyfingin. Og oft er ég hneyksl-
aður á fðlki, sem streymir út á
götur og torg, til að mótmæla hinu
og þessu!
Það er bezt aö játa, að stjórn-
málakerfi okkar er i mörgu ærið
ósnoturt. Við höfum verið fremur
óformlegir i það heila tekið siðan
1776 og erum það enn.
Kosningabaráttan sem háð er
fyrir forsetakjör er oft óhrjáleg,
eða svo virðist mörgum öðrum.
Þvi verður að lita svo á, að ef fjöl-
miðlar sjást ekki fyrir oft og ein-
att, sé það fremur afleiðing en or-
sök.
Fjölmiðlar ljóstruðu upp um
Watergate-hneykslið, sem lauk
með afsögn forsetans, og þeir áttu
sinn góða þátt i að afhjúpa
hneykslismál innan CIA.
Þessi starfsemi gerði beinlinis
ókleift fyrir stjórnvöld, að dyija,
eða vanmeta uppljóstranimar,
Vel má vera, að ýmisiegt, sem
fram kom, hafi verið miðlungi
sanngjarnt gagnvart sumum ein-
staklingum, eða stjórnarherrum.
Þar hafa ekki allir átt óskilið mál.
En hvað sem öðru liður var ekk-
ert dulið, hvorki fyrir okkur ne"
umheiminum. Við létum okkur
hafa það, að þvo óhreinu fötin
okkar i augsýn alls heimsins!
Spyrja má — og það gera ef-
laust einhverjir— ,hvort rétt hafi
verið að haga sér svo. Var allur
þessi fyrirgangur ekki ranglátur
gagnvart stjórnvöldum — jafnvel
samfélaginu? Var þetta ekki til
þess fallið, að grafa undan traust-
inu á forsetaembættinu, ef vikið
erað Watergate-hneykslinu? Eða 1
hefur CIA-málið ekki skaðað og
tálmað starfsemi CIA, sem stjórn
okkar telur nær ómissandi?
Þetta eru eðlilegar spurningar.
En aftan í þeim hangir þá annað
ihugunarefni. Eiga Bandarikja-
menn að fá að vita ef stjómvöld
misnota vald sitt eða ekki?
Okkar svör eru hiklaus. Það er
betra að fá vitneskjuna en ekki,
jafnvel þó það kosti allskonar
fjaðrafok. Fólkið á rétt til að fá
nauðsynlegar upplýsingar, til að
geta metið málin réttilega.
Við þá, sem finnst þessi háttur
hættulegur, vil ég segja þetta:
Þegar Watergate-hneykslið
endanlega upplýstist, eftir allt
það japl og jaml og fuður, sem
það kostaði, hrundi himinninn
sannarlega ekki yfir okkur!
Nixon forseti hvarf af sjónar- /
sviði embættisins og Ford tók við
ákaflega einfaldlega og hvergi
sáust á götum höfuðborgarinnar
neinar æsingar, hvað þá heldur
nein striðstæki eöa vopnaðir her-
menn!
Vel má kalla okkur óformlega
— fjölmiðlana ekki siður en fólk
almennt. En viðhöfum samt yfir-
leitt og öll sem eitt, rika tilfinn-
ingu sjálfsstjórnar, sem hindrar
okkur frá ótimabærri múgsefjun.
Tökum forsetakosningar sem
dæmi.
Forsetinn getur verið kosinn
með 1500 atkvæða mun, þó 70
millj. greiði atkvæði. Enginn ef-
ast um réttmæti þess.
Forseti hverfur af vettvangi,
annar tekur við, samkvæmt
stjórnarskrá okkar. Ollum finnst
þetta eðlilegt — og lögmætt.
Auðvitað gagnrýna fjölmiðlar
Ford forseta, eins og gerzt hefur
um forvera hans. En menn viður-
kenna eigi að siður rétt hans til
embættísins-og annarra stjórnar-
starfa.
Viðurkenna skal, að frjálsræði
fjölmiðlanna i Bandarikjunum er
eða getur oft verið misnotað. En
það er trútt hugsjónum frelsins.
Vissulega skal játað, að ég
þekki ekki neitt frjálsræði, sem
fólkið hefur, sem ekki er unnt að
misnota. Þar gildir einu, hvort
um ræðir tal eða skrif, eða kosn-
ingarétt.
Þanniggetur fólkið —ef svo ber
undir — steypt góðri stjórn af stóli
og komið illri stjórn á laggimar.
Engin trygging er fyrir þvi, að
frelsið sé ætið notað skynsam-
lega.
Við þetta vil ég bæta þessu. Ef
fólkinu er ekki treystandi til að
rata um myrkviði frjálsræðisins,
er engin von eftir skilin fyrir hina
bandarisku tilraun, sem hófst
1776!
Þessi tilraun byggðist og bygg-
ist enn, fremur á trú en rök-
hyggju, trú, sem er fullvissum að
hættan af óheftu frelsi sé mun
minni en hættan af því að bera
allskyns fjötra. Ég vil ennfremur
benda á, að hingað til hefur þessi
trú sannað réttmæti sitt með
þeirri staðreynd, að stjórnarform
okkar hefur nú varað óbreytt i
tvöhundruð ár.
Mér virðist óumdeilanlegt, að
frjálsræðið hafi þjónað okkur
betur — þar með talið frjálsræði
fjölmiðianna — heldur en við
hefðum án þess verið.
Þannig er þetta svarið — ef til
vill eina svarið, sem ég get gefið
— um hvort frjálsræði fjölmiðla
þjóni hagsmunum okkar betur
eða verr.
2-21-40
Frumsýning á Aðventumyndinni
N£
/J
Blaöaummæli: sýnishorn:
AAbl.Nog eitt er alveg víst. Þessa mynd má
óhikað auglýsa fyriralla f jölskylduna. Börnin
munu njóta hennar sem skemmtilegrar ævin-
týramyndar meðan hinir eldri geta jafnframt
hlegið innra með sér að f jölmörgum persónum
og sviösetningum, sem þeir munu kannast við
úr alvarlegri myndum um sama efni. Alan
Parker, höfundi og leikstjóra myndarinnar,
hefur nefnilega tekist að búa til einstaklega
aðlaðandi mynd, sem á yfirborðinu er spenn-
andi ævintýraland fyrir börn (enginn fullorð-
inn sést í myndinni) en undir niðri er botnlaust
grín og háð um aðrar myndir, sem f jalla um
svipað efni."
SSP
Dagbladet í Oslo: „Skemmtilegri mynd hef ur
aldrei verið gerð."
Aftenposten Oslo: NVið fullyrðum að þessi
mynd ætti að slá öll met, besta músikin, frum-
leg og fyndin, fyrir alla aldursflokka, frá
barnæsku til áttræðisaldurs."
Fjölbreytilegir lokkar
á örfáum mínútum BRflun
Braun Quick Curl
Gufa og rétt hitastig gefur
endingargóða lokka
Auglýsing
Til eigenda gjaldmælaskyldra leigubif-
reiða og notenda þeirra.
Hinn 13. október s.l. heimilaði verðlags-
stjóri hækkun á gjaldskrá leigubifreiða.
Af þvi tilefni, og með hliðsjón af ákvæðum
reglugerðar nr. 181/1974, sbr. rg. 432/1975,
skal eftirfarandi tekið fram:
Eftir 1. des. s.l. er notkun verðskrár við
ákvörðun ökugjalds leigubifreiða með öllu
óheimil, og ber notendum þessara öku-
tækja ekki skylda til greiðslu annarrar
upphæðar en gjaldmælirinn sýnir hverju
sinni.
Bent skal á að brot gegn téðum reglum
getur varðað eiganda gjaldmælaskylds
ökutækis refsingu samkvæmt VII. kafla
umferðarlaga.
Kærur samkvæmt ofansögðu verða um-
svifalaust sendar viðkomandi lögreglu-
stjórum.
Reykjavik, 3. desember 1976
Samgönguráðuneytið.
Bandaiag islenskra leigubifreiðastjóra
Löggildingarmenn gjaldmæla.
Sóknorkonur
sem eiga rétt á styrk úr Vilborgarsjóði,
sendi umsóknir sem fyrst.
Stjórnin
VIPPU - BIISKURSHURÐIN
1-kmnmr
Lagerstærðir miðað við jnúrop:
hæð;210 sm x brekki: 240 sm
- x - 270 sm
Adrar stá»rðir. smíðaðar eftir beicktc
OLU%AS MIÐJAN
„ Si&umúla 20, simi 38220
Heildsala — smásala
Skóiavörbustig 1-3 og Bergstaðastræti 7
Siglufjarðar-
kaupstaður
Starf bæjarritara er hér með auglýst laust
til umsóknar frá og með 1. janúar 1977.
Tilskilið er að umsækjandi sé viðskipta-
fræðingur eða löggiltur endurskoðandi.
Umsóknum skal skilað fyrir 10. desember
n.k. til bæjarstjórans á Siglufirði, sem
veitir allar nánari upplýsingar.
TRUL0F-
HRINGAR
Kljót afgreiðsla
Sendum gegn póstkröfu
Guðmundur Þorsteinsson
gullsmiður
^Bankastræti 12, Reykjavik. j
Siglufirði, 15. nóvember 1976.
Bæjarstjfinn i Siglufirði
Bjarni Þór Jónsson.
Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —Vélarlok — Geymslulok á Wolkswagen f allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reyniö viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
Auglýsií 5 í Alþýðublaðinu