Alþýðublaðið - 08.12.1976, Síða 13
asr Miðvikudagur 8. desember 1976
... TIL KWÖLDSl3
( Flohhsstarfió
Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar
heldur almennan félagsfund fimmtudaginn 9. desember n.k. kl.
21 í Alþýðuhúsinu.
Fundarefni: Hvaðerframundaníkjaramálum að afstöðnu A.S.l
þingi?
Frummælandi: Karl Steinar Guðnason, varaformaður Verka-
mannasambands Islands.
J
Stjórnin.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
i Kópavogi og Garðabæ
Fundur verður haldinn i Hamraborg 1 4. hæð — fimmtudaginn 9.
desember klukkan 8.30 siðdegis.
Kaffi.
Stjórnin.
Framkvæmdastjórn
Alþýðuflokksins
er boðuð til fundar I félagsaðstöðu Alþýðuflokksins i Kópavogi,
að Hamraborg 1 n.k.laugardag klukkan 12á hádegi.
EyjólfurSigurðsson, form.
FRAM TIL BARATTU
ALÞÝÐUFLOKKSFÓLK
- Seljið og kaupið happdrættismiða
flokksins
- Styðjið með því flokksstarfið
- Eflið Alþýðuflokkinn
HAPPDRÆTTI ALÞÝÐUFLOKKSINS
Upplag miða 3 vinningar: Sólarlandaferðir me8 Fer8ami8«lö8inni hver a8 upphasð kr. 60.000,— Samtals kr. 180.000,—
12.500 20 vinningar: Vöruúttekt að eigin vali, hver a8 upphœS kr. 15.000,— Samtals kr. 300.000,-
Dregið verður Verð miðans Mi8i þossi er númer
15. desember aðeins 200 kr. Yr. 1
_ Upplýsingar I *fma 1 50 20 J
IMfarp
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
14.30 Miðdegissagan:
15.45 Frá Sameinuðu þjóðunum
Svavar Gestsson ritstjóri flytur
pistil frá allsherjarþinginu.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.30 tJtvarpssaga barnanna.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Hraunhiti og háhiti
Sveinbjörn Björnsson eðlis-
fræðingur flytur þriðja erindi
20.00 Kvöldvaka
jrfn sigurbjörnsson syngur
Olafur Vignir Albertsson leikur
á pianó. b. Bóndinn á Brúnum
Sverrir Kristjánsson sagnfræð-
ingur flytur fimmta hluta frá-
sögu sinnar. c. Tvö kvæði um
útlagann i Drangey Jóhannes
Hannesson á Egg i Hegranesi
les „Grettir sækir eldinn” eftir
Gísla Olafsson og „Illugadrápu
eftir Stephan G. Stephansson.
d. Eina viku á eynni Skye
Gunnar ólafsson.
Neskaupstað segir frá dvöl
sinni á Suðureyjum. e. Um
islcnzka þjóðhættiArni Björns-
son cand mag. flytur þáttinn. f.
Kórsöngur Stúlknakór Hliða-
skóla syngur. Söngstjóri:
Guðrún Þorsteinsdóttir.
Pianóleikari: Þóra
Steingrimsdóttir.
21.30 Otvarpssagan: „Nýjar
raddir, nýir staðir” eftir
Truman C'apote Atli Magnús-
son les þýðingu sina (14).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Kvöidsagan:
„Minnisbók Þorvalds Thorodd-
sens” Sveinn Skorri
Höskuldsson les (19).
’ 22.40 Djassþáttur i umsjá Jóns
Múla Arnasonar.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
SJomrarp
18.00 Hviti höfrungurinn Nýr,
franskur teiknimyndaflokkur i
13 þáttum, um krakka í sumar-
leyfi og vin þeirra, hvita
höfrunginn. 1. þáttur. Þýðandi
og þulur Ragna Ragnars.
18.15 Skipbrotsmennimir
Ástralskur myndaflokkur. 9.
þáttur. Segl við sjdndeiidar-
hring Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.40 Tassúla Heimildarmynd um
litla griska stúlku, sem heitir
Tassúla. Hún flyst með foreldr-
um sinum til Sviþjóðar.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar ogdagskrá
20.40 Nýjasta tækni og visindi
Tölvustýrð löggæsla Steypumót
úr viðartrefjum, Kafaraveikin
Uppskurður i plastpoka o.fl.
Umsjónarmaður Sigurður H.
Richter.
21.05 Myndsmiðar Picassos
Bresk heimildarmynd um
höggm y ndalist Pablos
Picassos. Þýðandi og þulur
Aðalsteinn Ingólfsson.
21.35 Undir Pólstjörnunni
Finnskur framhaldsmynda-
flokkur byggður á sögu eftir
VSinS" Linna. 3. þáttur. Efni
annars þáttar. Hið nýstofnaða
verkalýðsfélag berst fyrir
bættum kjörum félagsmanna,
en árangurinn er litill i fyrstu.
Þýðandi Kristin MSntylST.
22.25 Dagskrárlok
Úr fortíð og nútíð
Sæmundur G. Lárusson skrifar
eftirfarandi grein:
Frá löngu liðinni tíð:
Stóra bomban gegn
Jónasi Jónssyni.
Lengi verður mér og þeim
sem þar voru saman komnir i
minni framboðsfundur er hald-
inn var i Búðardal i Dölum
vestra og var sá fjölmennasti,
sem ég minnist að hafa verið á
og að sama skapi fjörugur. Þar
leiddu saman hesta sina mælsku-
menn og rökfastir þar sem voru
þeir Jónas Jónsson og Tryggvi
Þórhallsson mættir fyrir Fram-
sóknarflokkinn. Þvi miður eru
mér nú gleymd nöfn þeirra
manna, sem mættu fyrir and-
stöðuflokkana, en þetta var þá
er flokkspólitikin var orðin hat-
römm og einskis svifizt, enda
gekk það svo langt hjá Sjálf-
stæðisflokknum, aðförin að
Jónasi, að liktist þvi að þeir ætl-
uðu að koma honum á geð-
veikrahæli.
En Jónas Jónsson var þeim
ofjarl og stóðst allar þeirra
árásir. Jónas sem slikur hafði
barizt fyrir skólamálum okkar
og I sambandi við það vil ég
minna á Laugarvatnsskóla og
minnismerki það er honum var
reist i hliðinni fyrir ofan skólann
— og mun standa þar um
ókomin ár honum til heiðurs.
Þetta er eitt af þvi, sem ég vildi
minnast frá fyrri tima þótt
margs væri fleira að minnast,
sem flýgur yfir hugann.
Klúbbsmálið i Morgun-
blaðinu laugard. 13. og
17. nóv. s.l.
Laugardagsmorguninn við
Lindargötu og húsleit inni við
Lækjarteig. Fyrir ofan þessa
feitletruðu yfirskrift er smá-
letruð rammagrein sem byrjar
orðrétt með þessum hætti: Fá
sakamál hafa komið öðru eins
róti á allar umræður i islenzku
þjóðlifi og Klúbbsmálið, sem
svo hefur verið nefnt, Ásakanir,
yfirlýsingar og orðahnippingar
um eðli og meðferð málsins inn-
an dómskerfisins hafa kallað á
mikið rúm á siðum dagblaðanna
nú um eins árs skeið, verið
helztu umræðuefni á manna-
mótum, tilefni eilifra vanga-
veltna og heilabrota, auk þess
sem Framsóknarflokkurinn
hefur dregizt inn i mál þetta
með sérstökum hætti.
Og svo framvegis og svo
framvegis. Undir þetta rita nöfn
sin Aslaug Ragnars, Björn
Vignir og Sigtryggur
Sygtryggsson. Svo mörg eru
þau orð. Ég, sem þessar línur
rita ætla mér ekki að fara að
rekja alla þessa löngu grein og
hina ýmsu kafla hennar, aðeins
nefna upphaf og endi og myndir
þær, sem sýndar erú. Upphaf
fyrsta kafla byrjar svo:
TEXTI: AR.BV. og SS.
Hverfum þá rösklega fjögur
ár aftur i timann. Tollgæzlu-
menn og laganna verðir hafa
grunsemd um það að mikið af
smygluðu áfengi sé i umferð á
svörtum markaði á þéttbýlis-
svæðinu suðvestanlands. Næsti
kafli ber yfirskriftina 17 kassar
á ferð. Siðan eru myndir af sex
mætum mönnum, sem sagt er
að hafi allir setið fundinn i toll-
gæzlustöðinni. Nafna þeirra
manna læt ég ógetið, þeir eru
allir vel þekktir og myndir
þeirra allar eðlilegar. Siðan
kemur mynd af áfengissölunni
við Lindargötu og önnur af
Klúbbnum. Næsti kafli ber yfir-
skriftina Þingað i tollstöðinni.
Þar segir svo: Kristján og Ás-
mundur óskuðu siðan eftir fundi
með tollgæzlustjóra, fulltrúa
........ .......... .......
saksóknara, skattrannsóknar-
stjóra, rikisendurskoðanda,
fulltrúa sakadóms og lögreglu-
stjóra og var sá fundur haldinn i
húsakynnum tollgæslustjóra.
Siðan vik ég að þvi, sem stendur
i Morgunblaðinu miðvikudaginn
17. nóv. Þar er heldur feit-
letruðu fyrirsögn: Sigurbjörn og
húsbyggingarsjóður fram-
sóknarfélaganna:
SAMSKIPTIN EKKI EILIFUR
DANS A RÓSUM — EN
ALLTAF VAR ÞÓ SAMIÐ.
Þarhafið þið það. En það þyk-
ir mér furðu gegna, að mynd-
irnar, sem birtast i þessum
kafla eru til dæmis myndir af
landbúnaðarráðherra, Halldóri
E. Sigurðssyni, sem væri hann
litardökkur, og svo er litar-
háttur Kristins Finnbogasonar
ekki mjög bjartur, en út yfir
tekur myndin af Sigurbirni
Eirikssyni. Hann er sýndur sem
alger svertingi og með svört
gleraugu. Guðjón Styrkársson
hefur þó hlotið réttan litarhátt.
Ekki myndi mér hafa líkað
svona aðfarir ef væri ég Fram-
sóknarflokks eins og ég var, og
flokkurinn i rikisstjórn með
Sjálfstæðisflokknum. En það
getur vel verið að Framsóknar-
flokkurinn verði að gera sér það
að góðu, og þykir mér það næsta
ótrúlegt að blóð þeirra allra sé
farið að seytla það hægt að
engum hafi volgnað i hamsi, en
mér er sama úr þessu.
Tryggingarstofnun
rikisins og Gjaldheimt-
an i Reykjavik.
NU langar mig að gera smá-
vegis grein fyrir þvi hvernig
Gjaldheimtan ætlaði að fara
árið 1976. Þeir lögðu
á mig i fyrirframgreíðslu kr.
14.000,oo. Ætla ég siðan að skýra
frá ellilifeyri þeim, sem
Tryggingarstofnunin lét
mánaðarlega.
Janúar: kr. 16.130.
Afgangur þegar 14.000 hafa
verið greiddar er kr. 2.130.
Febrúar frá TR: kr. 17.760,- af-
gangur er þá kr. 3.760. I marz er
upphæðin kr. 16.940 og afgang-
urinn þá kr. 2.940, en i april er
upphæðin komin i 18.640. Af-
gangs hef ég þá kr. 4.640. Sú tala
er óbreytt i mai og júni, en i júli
var hún 18.648. Þessar afgangs-
upphæðir duga skammt fyrir
matarkaupum þó aðeins sé um
tvær manneskjur að ræða. Hins
vegar bregður svo við i ágúst að
mér er send tekjutrygging án
þess að ég hafi endurnýjað um-
sókn mina frá árinu 1973 þegar
ég missti starfsþrek og lá rúm- .
fastur, enda þá orðinn 77 ára
gamall— og sannast fannst mér
varla geta komið til greina að
mér yrði neitað, en samt var
það gert. Nú i águst er mér send
tekjutrygging 29.849 krónur og
þótti mér það gott. En Adam
var ekki lengi i Paradis. I
september var upphæðin felld
niður ikr. 12.021 ogi október var
upphæðin sú sama. I nóvember
var hún svo 13.626. Hver svo
sem jólaglaðningurinn verður.
Það sem ég gerði þegar ég var
búinn að borga iþrjá mánuði kr.
14.000 mánaðarlega og sá að
þetta var ómögulegt skrifaði ég
skattstjóra og lýsti fyrir honum
ástæðum heimiiisins og lét hon-
um i té tölur og gögn sem hann
gat sannprófað. Eftir fáa dag
fékk ég svar frá honum þar sem
hann tjáði mér að fyrirfram-
greiðsla skyldi vera kr. 27.000.
Sömuleiðis lækkaði hann launa-
skattana um kr. 18.431 og i
þriðja lagi sjúkratrygginga-
gjald úr kr. 4.500 i kr. 2.600.
Þetta gerðist allt án kæru, að-
eins með bréfaskriftum sem
höfðu að geyma gögn, sem hann
gat sannprófað. Gjaldheimtan
ætlaði mér að borga krónur
70.000 i fyrirframgreiðslu, en
það mistókst. Að öðru leyti visa
ég til framtalsskýrslu. Ég geri
að visu út bil, en afrakstur hans
var ekki meiri en sá að við ára-
mót var til bankabók viö Lands-
bankaútibúið Langholtsvegi 43
með innistæðu kr. 155.000. En þá
komu fram afborgun þunga-
skatts ásamt ökumannstrygg-
ingu, sanianlagt kr. 68.080, svo
það var ekki til fyrir þessum
greiðslum þegar þær féllu i
gjalddaga. En það var góðkunn-
ingi minn, Valdimar Magnús-
son, framkvæmdastjóri Hag-
tryggingar, sem bjargaði mér
og auðvitað borgaði ég honum
strax og inn komu peningar.
Sannleikurinn er sá að þessir
dfselbflar taka það mikið til sín
og með það stuttu millibili, að
undrum sætir. Ofan á þetta bæt-
ast svo sihækkandi allir hlutir,
sem til útgerðarinnar þarf og
minnkandi vinna, sem auðvitað
er mjög svo eðlilegt.
Þarna hef ég lýst i stórum
dráttum útkomunni eins og hún
er i dag. Það litur helzt út fyrir
að rikisvaldið vilji koma i veg
fyrir það að nokkur maður geti
átt bil. Hvernig myndi innflytj-
endum lika þviumíikar ráðstaf-
anir? Ég trúi trauðla að þeim
liki það eins skarpt og þeir aug-
lýsa bilana núna. Ekki þýðir að
flytja inn ef enginn getur keypt
Ég sá nú einn daginn að lög-
regluþjónar klipptu númer aí
þremur bilum hér i götunni
Haldið þið virkilega að eigendur
þessara bila hefðu látið gera
það ef þeir gætu borgað af þeim
eða gert þá út? Nei og aftur nei
Það er farið að sverfa að
mönnum þegar svona er komið
og þaö er engin furða með sliku
ráðslagi stjórnvalda. Og með
sama áframhaldi verður fjöldi
manna að leggja bilum sinum,
og hvað kemur þá inn til toll-
stjóra. Og hvaðan taka þeir þær
upphæðir, sem hafa komið inn
með þessum hætti? Væri ekki
nær að létta eitthvað þessa
skatta svo almenningur gæti átt
þessi farartæki, sem að manni
virðast jafn nauðsynleg og
manni fannst hesturinn vera
meðan hann var eina farartækið
sem við Islendingar höfðum og
notuðum að öllu leyti i stað vél-
anna nú.