Alþýðublaðið - 08.12.1976, Síða 15
AAiðvikudagur 8. desember 1976
SJÖNARMBIÐ 15
Bíóin / Leikhúsin
*3 3-20-75
Vertu sæl Norma Jean
Ný bandarisk kvikmynd sem seg-
ir frá yngri árum Marilyn Monroe
á opinskáan hátt.
Aðalhlutverk: Misty Rowe, Terr-
ence Locke o.fl.
Framleiðandi og leikstjóri: Larry
Buchanan.
tSLENZKUR TEXTI.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
pMLili
3 2-21-40
Aðventumyndin i ár:
Bugsy AAalone
Ein frumlegasta og skemmtileg-
asta mynd, sem gerð hefur verið.
Gagnrýnendur eiga varla nógu
sterk orð til þess að hæla henni.
Myndin var frumsýnd i sumar i
Bretlandi og hefur farið sigurför
um allan heim siðan. Myndin er i
litum gerð af Rank.
Leikstjóri: Allen Parker.
Myndin er eingönguleikin af
börnum. Meðalaldur um 12 ár.
Blaðaummæli eru á einn veg:
Skemmtilegasta mynd, sem gerð
hefur verið.
Mynd fyrir alla fjölskylduna.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Góða skemmtun.
i&MOflLEIKHUSÍfi
ÍMYNDUNARVEIKIN
i kvöld kl. 20
fimmtudag kl. 20
laugardag kl. 20
Siðustu sýningar.
SÓLARFERÐ
föstudag kl. 20
sunnudag kl. 20
Litla sviðið:
NÓTT ASTMEYJANNA
fimmtudag kl. 20,30.
Miðasala 13,15-20. Simi 1-
1200
’ LF.IKF£LAG3f1
v. REYKIAVlKUR PP
SAUMASTOFAN
i kvöld kl. 20,30.
Sunnudag kl. 20,30.
STÓRLAXAR
fimmtudag kl. 20,30.
SKJALDHAMRAR
föstudag kl. 20,30.
ÆSKUVINIR
laugardag kl. 20,30.
Siðustu sýningar fyrir jól.
Miðasalan i Iðnó kl. 14-20,30. Simi
1-66-20.
iiiixíMhr
Grensásvegi 7
Simi ,<2655.
Bráðskemmtileg ný bandarisk
litmynd gerð eftir endurminning-
um kennarans Pat Conroy.
Aðalhlutverk: John Voight.
Leikstjóri: Martin Ritt.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Tðnabíó
3 3-11-82
Helkeyrslan
Death Race
Hrottaleg og spennandi ný amer-
isk mynd sem hlaut 1. verðlaun á
Science Fiction kvikmyndahátið-
inni i Paris árið 1976.
Leikstjóri: Roger Corman
Aöalhlutverk: David Carradine,
Sylvester Stallone
Bönnuð börnum innan 16 ára
Sýnri ki 5, 7, og 9,
Sími 11475
Hjálp í viðlögum
Hin djarfa og bráðfyndna sænska
gamanmynd með
tSLENZKUM TEXTA.
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 5, 7 og 9.
SIMAR. 11798 oc 19B33.
Myndasýning (Eyvakvöldl
verður i Lindarbæ niðri,
miðvikudaginn 8. des. kl.
20.30.
Bergþóra Sigurðardóttir,
læknir sýnir.
Ferðafélag tslands.
Árásin á
fikniefnasalana
Hit
Spennandi, hnitmiðuð og timabær
litmynd frá Paramouth um erfið-
leika þá, sem við er að etja i
baráttunni við fikniefnahringana
— gerð að verulegu leyti i Mar-
seille, fikniefnamiðstöð Evrópu.
Leikstjóri: Sidney Furie.
ISLENZKUR TEXTI
Aðalhlutverk Billy Dee Williams,
Richard Pryor.
.Sýnd kl. 9.
InnlánMiidMkipli leid
.Éll IÚllNTÍ(>Nl4Í|>ta
:RÚNAi);\RBANKI
\C\J ÍSLANDS
AusTurstræti 5
iim.i 21-200
3 1-89-36
AAaðurinn frá Hong Kong
ISLENZKUR TEXTI
mt
Æsispennandi og viðburðarrik ný
ensk-amerisk sakamálamynd i
litum og cinema svope með hin-
uin frábæra Jimmy Wang Yu i
hlutverki Fang Sing-Leng lög-
reglustjóra.
Leikstjóri: Brian Trechard
Smith.
Aðalhlutverk: Jimmy Wang Yu,
George Lazenby.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ENTERTAINMENT
INTERNATIONAL
PICTURES
RELEASE
ZEBRA
FORCE |
Drápssveitin
Hörkuspennandi or viðburðahröð
ný bandarisk Panavision litmynd
um ófyrirleitin rán og ósigrandi
hörkukarla
Mike Lane, Richard X. Slattery.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Hafnarfjarðar Apótek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9 18.30
'Laugardaga kl. 1012.30.
Helgidaga kl. 1112
Eftir lokun:
Upplýsing^simi 51600.
Fremur létt
í vasa
!
Bændur ókyrrast
Bændastéttin hefur löngum lát-
ið að þvi liggja, að ekki sé hún i
verkfalls- eða kröfuhugleiðing-
um, eins og launþegasamtök
þéttbýlisins. Löngum hefur það
fallið i fyrnsku þar á bæ, að
verkafólkið i bæjum og þorpum
hefur brotið isinn i kjarabóta-
málum bænda jafnhliða sinum.
En hvað sem þvi liður virðist nú
svo komið að uppúr sé að sjóða.
í>að má vissulega vekja all-
mikla furðu, að einmitt nú þegar
við stjórnvöl sitja „hinir einu
sönnu bændavinir”, Framsókn
og Sjálfstæðið, skuli svo að
skjólstæðingunum þrengt, að
þeir sjái sérstaka ástæðu til að
kurra.
Menn geta velt vöngum fram
og aftur yfir réttmæti niður-
greiðslna og útflutningsupp-
bóta, og komizt að niðurstöðum
eftir geðslagi. En hitt stendur þó
óhaggað, að.þegar bændur verða
fyrir broti á siðferðilegum rétti,
ef ekki beint lagalegum, þarf
sannarlega engan að furða á, þó
þvi sé misjafnlega tekið.
Hér er enn um að ræða eina
skrautfjöðrina i höttum núver-
andi rikisstjórnar, og voru þó
nógar fyrir.
Bændafundurinn á Hvolsvelli,
sem haldinn var 30. fyrra mán-
aðar afhjúpaði heldur ömurlega
mynd af framferði stjórnvalda.
Þar kom sem sé bert fram, að
rikissjóður skuldar bændum
hundruð milljóna af lögbundn-
um greiðslum fyrir fyrra árs
framleiðslu!
Alltaf má nú segja, að sá sé
vinur, sem i raun reynist!
Þegar á þessu siðastliðna vori
kom það i ljós, að viðskiptafélög
bænda voru illa á vegi stödd
með að greiða fyrir búrekstri,
enþangað hafa bændur oft flúið
með vanda sinn i þessum efn-
um.
Eitt er vist, að hvernig sem
þeim málum hefur verið til
lykta ráðið, hefur það ekki gerzt
þrauta- eða átakalaust. Og það
hefur örugglega ekki gerzt,
nema viðskiptafélögin hafi inn-
heimt eða skuldfært um vexti,
sem allir vita að er enginn smá-
ræðisbaggi.
En hvernig er svo viðhorf
rikisins gagnvartþeim,sem þar
eiga inni? 1 stuttu máli að segja
greiðir rikið aldrei vexti af inn-
eignum einstaklinga eða félaga-
samtaka, hvort sem þær eru
smærri eða stærri og hvort fénu
er haldið fyrir eigendum lengur
eða skemur! Menn þurfa hins-
vegar ekki oft aö setjast að mat-
borði til þess að fá bæði i fyrir-
ogeftirréttallvæna sköfu af hót-
unum frá opinberri hálfu um
refsivexti ef ekki harðari að-
gerðir, standi eitthvað á greiðsl-
um til rikis eða opinberra aðila!
Hvort þessir starfshættir
rikisins eru lagabrot eða ekki,
skal hér ekki dómur á lagöur.
En vant er að sjá hvernig einn
aðili, getur haft siðferðilegan
rétt til slikrar framkomu, þó
máske sé valdið fyrir hendi. Þar
endurtekur þá gamla sagan sig
um vald.sem hvorki máttur eða
dýrð var samfara!
Oddur A. Sigurjónssor
Það upplýstist á fundinum, að
Halldór „brúarsmiður” og
sauðfjármálaráðherra m.m.,
hefði lýst því yfir, að þvi aðeins
yrði skuld rikisins við bænda-
stéttina greidd fyrir áramót, að
staða rikissjóðs leyfði! Þarf þá
vist ekki að efast um málalok.
Það mun sammæli flestra
vitiborinna manna, að rikis-
valdið sjálft hafi staðið fyrir
drjúgum skerfi að óðaverðbólg-
unni, sem nú hefur geisað á
landi hér um ekki allskainma
hrið. A henni hafa bændur
vissulega fengið að kenna ekki
siður en aðrir þegnar þjóðfé-
lagsins. Þegar svo þar við bæt-
ist að þetta sama rikisvald held-
ur réttmætum greiðsl'im fyrir
bændastéttinni og ypptir bara
öxlum ef krafið er, sýnist höfuð-
ið bitið af skömminni. Það væri
fróðlegt að fá upplýst hvaða
öðrum skuldunaut héldist uppi
að viðhafa slikt háttalag.
1 upphafi þessa greinarkorns
var að þvi vikið, að barátta
verkalýðs og annarra launþega
væri ekki ætið rétt skilin eða
metin i hópi landbúnaðar-
manna. Ef til vill fer nú að
renna upp ljós fyrir þeim við
hvað launþegar þurfa að etja
þar sem fjandsamlegt rikisvald
er annars vegar. Einmitt þetta
rikisvald, sem æ ofan i i hefur
gengið á gefin loforð um kjara-
samninga. Og það er ástæða til
að spyrja. 1 krafti hvers hefur
það vogað sér að 'gera slikt?
Brot af þessu svari ætti að
veranærtækt. Bændur skyldu
bara leggja höndina á hjarta og
spyrja sjálfa sig að þvi, hvort
ekki geti nú verið, að einmit
brautargengi þeirra við pen-
ingavaldið, hvort sem það birt-
ist i liki Framsóknar eða Sjálf-
stæðis, eigi ekki drjúgan þátt i
dirfsku þessara kumpána við að
ganga si og æ i berhögg við
vinnustéttirnar. Ef það er rétt-
mætt, sem hér skal ekki um
fjallað en komið mun hafa fram
á nefndum fundi, að bændur
ættu skilið Fálkaorðuna upp til
hópa fyrir þrældóm sinn, ættu
þeir ekki lengi að þurfa að
velkjast i vafa um, hvort þeir
standi nær vinnustéttunum eöa
hundraðshöfðingjum ihaldsins.
Og ef svara yrði leitað i einlægni
og alvöru, mætti koma i ijós
hverjir þaö eru, sem liklegri
væru til raunverulegs brautar-
gengis — vinnubræðurnir eða
hinir. En þaðan væri máske
færri Fálkakrossa að vænta,
enda mundu þeir trúlega léttir i
vasa þó þeir fengjust!
I HREINSKILNI SAGT