Alþýðublaðið - 08.12.1976, Page 16
J ólakrásirnar eru ekki gefnar:
MIÐVIKUDAGUR
8. DESEMBER 1976
Þrjár máltíðir fyrir 20
þúsund krónur!
Liklega hefur það ekki
farið fram hjá neinum,
hve ein verslunarferð
tekur i pyngjuna. Þú
ferð út i verzlun og kem-
ur út með slatta i poka,
og a.m.k. fimmtán
hundruð krónum fátæk-
ari.
En hvað skyldi það þá
kosta visitölufjöl-
skylduna margum-
ræddu að halda jólin
hátiðleg?
Alþýöublaöið hafði samband
viö eiganda einnar af stærri mat-
vöruverzlunum hér í borg, og lét
hann þvi góðfúslega i té upp-
lýsingar um verö á jólakrásun-
um, og var miðaö við matarkaup
fyrir fjóra. Viö gerö matseöilsins
var og miöaö viö heföbundnar
matarvenjur islendinga á þessari
hátíö hátiöanna.
Mörgum finnast rjúpur ómiss-
andi á jólunum, og þvi var
ákveöiö að hafa þær á abfanga-
dagskvöld. Stykkið kostar kr. 750,
og fyrir f jóra kostar máltiðin 3000
krónur. Auk þessa má reikna með
blönduðu grænmeti fyrir kr. 260
og rauðkáli á krónur 330. Við
þetta bætist svo krydd, sósá-og
sulta.
Forréttinum má ekki gleyma,
en sé miðað við algenga súpu-
tegund, kostar pakkinn 111 krón-
ur. Ef einhver vill gera sér daga-
mun, og bæta aspas i súpuna, þá
er verðið á dósinni krónur 330.
1 eftirmat er grjónagrautur og
rjómi, en 1/4 liter af rjóma kostar
280krónur. Lauslega áætlað kost-
ar máltiðin þvi 4.500 krónur.
Fyrir þá, sem vilja hafa mikið
við á jólunum, má geta þess, að
jólagæsin kostar nú 11.000-13.000
krónur.og er þá miöaö við meðal-
fugl. Ekki virðist fólk þó setja
verðið fyrir sig, þvi viðkomandi
verzlunareigandi tjáði okkur aö
aligæsir væru nú viðast hvar upp-
seldar.
Svinasteik til vara
Rjúpur eru einnig viðast hvar
uppseldar, vegna dræmrar veiði,
það sem af er vetri. Þaö þótti rétt
að taka hamborgarhrygg inn i
dæmið svo að sem gleggst mynd
fáist. af matarkos.tnaði um jólin.
Þá litur matseðillinn svona út:
Súpa -f Aspagus kr. 441
Hamb. hryggur 11/2 kg kr. 3900
Rauðvin til matargerðar kr. 600
Blandað grænmeti kr. 260
Rauðkál kr. 330
Pickles kr. 330
Grjónagrautur og
Rjómi kr. 280
6.141 kr.
Hangikjöt er ómissandi á jólun-
um, en meðallæri kostar krónur
2.200. Við það bætast svo grænar
baunir á kr. 211, 2 kiló af rófum á
kr. 208 og rauðkál kr. 330, auk
uppstúfs. Ef menn vilja hafa mik-
ið við i súpugerð og bæta svepp-
um i súpuna, þá kostar hún 470
krónur.
Eftirrétturinn er ávextir og
rjómi, ávaxtadósin á kr. 350 og
rjóminn á 280krónur. 011 máltiðin
kostar um það bil 4.300-4.500
krónur.
A öðrum degi jóla gæti mat-
seðillinn svo litið út eitthvað á
þessa leið:
Bættsúpa kr. 450
2kjúklingar kr. 2400
Grænmetissalat kr. 250-300
Sveppirisósu kr. 360
og brúnaðar kartöflur.
1 eftirrétt er tilvalið að hafa is
og ávexti samtals krónur 560.-
Svo máltiðin kostar þá 4.200-
4.500 krónur.
Ekki er þó öll sagan sögð með
þvi sem hér hefur verið talið upp,
þvi við það bætist jólaölið, sem er
sennilega á hvers manns borði
yfir hátiðina svo og ýmislegt
smávægilegt sem ekki er talið.
Gera má ráð fyrir, að 4 manna
fjölskylda þurfi minnst tvo kassa
af öli, en kassinn kostar kr. 1000.
Auk þess má reikna með ein-
hverju sælgæti og kosta pokarnir
semeinkum eru keyptirfrá kr. 229
og allt upp i 350 krónur pokinn.
Svo það er kannski ekki að
furða þótt jólahaldið komi við
pyngju margra, þegar einungis
matarkostnaður nálgast tuttugu
þúsundin, þessa þrjá daga sem
um er að ræða, en þá er miðað við
eina máltið á dag. Epli og aðrir
ávextir eru ekki reiknaðir með,
og þá ekki kökur og sælgæti.
—JSS
— jólagæsin
kostar 13
þúsund krónur
Man ekki eftir svo rólegu
hausti í fasteignasölunni
— sagði Ragnar Tómasson hjá Fasteignaþjónustunni
— Ég man ekki eftír jatn
rólegu hausti I þessari grein
siöan ég byrjaði i þessu, sagði
Kagnar Tómasson hjá Fast-
eignaþjónustunni i samtaii i
gær.
Ragnar sagði að á skrá hjá
fyrirtækinu væru nú nær 400
eignir, en það væri mun meira
en verið hefði áður. Hann sagði
þetta ástand leiöa iðulega til
þess að ibúðir skiptu um
eigendur á lægra veröi en þær
kostuöu i raun og að útborganir
dreifðust nú á iengri tlma en
áður. Ragnar tók sem dæmi, að
Ibúð sem seld væri á 10 milljónir
króna með 6 milijóna útborgun
og 4 milij. króna skuldabréfi tii 8
ára, væri að staögreiöslu-
verðmæti aðeins 8 milijónir.
Væri þetta raunhæfari tala til að
miða við, þar sem að sá sem
byggja vill sjálfur þyrfti að
sjáifsögðu að greiða alla vinnu
og efni I reiöufé. Þetta atriði
yrði að taka með i reikninginn
þegar íbúðaverö væri athugað. 1
ljósi þess sem fyrr sagði, mætti
þvi sjá að samkeppnisaöstaða
nýsmiðaðra ibúða væri lakari
nú en oft áður, vegna si-
hækkandi byggingarkostnaöar
á sama tima^og vegna þess að
verð fullfrágenginna fbúða
hækkaði óvenju iitið.
Þá sagöi Kagnar það vera
athyglisvert, að áður hafi menn
sem ætiuðu að skipta um hús-
næði gjarnan fest sér nýja eign
áöur en þeir skráðu þá gömlu til
sölu. Nú væri það hins vegar al-
gengara, að menn byrjuðu á þvi
að skrá gömiu eignina og færu
siðan að ieita aö nýrri. Þessa
staðreynd yrði að hafa i huga
þegar metinn væri fjöldi þeirra
ibúða sem nú eru skráðar tii
söiu I borginni.
Kappsmál að sem flestir
eignist eigið húsnæði.
— Við sem vinnum viö
fasteignasölu höfum oft orðiö
vör við þá skoðun margra, að
fasteignasalar eigi þá hugsjón
hæsta, aö halda ibúðaverði uppi.
Ég held nú að þaö sé okkur
öllum kappsmál, að sem flestir
sjái sér fært að eignast sitt eigiö
húsnæði. Þaö er jú sá þáttur
sem varðar mest efnahagslegt
sjálfstæði hverrar fjölskyldu.
En það er greinilegt, að þessi
skoðun manna, að hægt sé að
lækka verð ibúða á auöveldan
hátt — með beinni ihlutun hins
opinbera I söiu fasteigna er bæði
útbreidd og almenn. Til dæmis
hafa nú siðast 3 þingmenn ljáð
skoöun þessari fylgi sitt með
frumvarpi um fasteignasölu
rikisins. þessari rikisstofnun er
vist ætlað það hlutverk að iækka
fasteignaverð á islandi. Ég get
hins vegar ómögulega skilið
hugsunina á bak við þetta frum-
varp, sem hefur þann kostulega
yfirlýsta tilgang að fá fólk til
þess að seija ibúðir sinar
ódýrari en verið hefur. Hræddur
er ég um að seint verði að vænta
góðra úrræða frá Aiþingi ef aö
þessi grautarhugsunarháttur á
að heita dæmigerður fyrir
hugvit þingmanna. Þvi það
mega þeir vila, að einn höfuð-
vandi okkar, sem við fasteigna-
söiu fáumst, er einmitt sá að
brýna fyrir seljendum að halda
sig viö jörðina þegar eignir eru
verðlagðar. Þess vegna er þessi
tiiiaga annað hvort vanhugsað
varaþingmanns-uppátæki eða
fyrsta skrefið I opinberri verð-
ákvörðun Ibúöarhúsnæðis.
ARH
alþýðu
blaðiö
Lesið: 1 Alþýðumanninum
á Akureyri:,,Morgunblaðið
notar ekki lengur bók-
stafinn K til að auðkenna
þingmenn Alþýðubanda-
lagsins i þingfréttum
sinum, og auðkennir þá
með Ab og er nú spurningin
hvort mogginn hafi hjóna-
sængina þegar tilreidda
fyrir Alþýðubandalagið og
hvort hjónaband Sjálf-
stæðismanna og Fram-
sóknarmanna sé þegar svo
slæmt að skilnaöúr verði
óum'flý janlegur, þótt
Framsókn sé treg til að
gefa hnn eftir.”
o
Séð: 1 Lögbergi-Heims-
kringlu, að útgáfunefnd
blaðsins hafi fyrir skömmu
efnt til kveðjuhófs fyrir
Carolinu Gunnarsson, rit-
stjóra blaðsins. Það voru
margir vinir gennar, sem
vildu þakka henni fyrir vel
unnin störf. Um þessar
mundir er Friða Björns-
dóttir, blaðamaður á
Timanum, ritstjóri
Lögbergs Heimskringlu, en
hún kemur til lslands fljót-
lega eftir áramót. Innan
Blaða mannafélagsins
hefur nú verið auglýst eftir
karli eða konu, sem vill
taka að sér ritstjórn Lög-
bergs-Heimskringlu til-
tekinn tima.
o
LESIÐ: 1 auglýsingu i Mbl.
að auglýst er nauðungar-
uppboðá Oxnalækjarlandi I
Hveragerðishreppi að
undanteknum lóöarspild-
um þriggja aðilja. Einn
þremenninganna er Eyjólf-
ur Konráð Jónsson, alþing-
ismaður og fyrrum ritstjóri
Morgunblaðsins, Ahugi
Eyjólfs á búskap þar
eystra hófst nokkru áður en
þessar jarðir komust i verð
vegna þá fyrirhugaðrar
þjóðvegalagningar um
landið.
o
Frétt: Að innan Alþýðu-
bandalagsins sé litið á þá
Eðvarð Sigurðsson og
Snorra Jónsson, sem sigur-
vegara i þeirri hatrömmu
baráttu, er átti sér stað i
hópi verkalýðsforystu
Alþýðubandalagsins á ASl-
þinginu. Þeir hafi sýnt bæði
sanngirni og manndóm,
þegar til kastanna kom, og
ekki tekið undir með þeim
Alþýðubandalagsmönnum,
sem heimtuðu byltingu,
byltingu og ekkert nema
byltingu.