Alþýðublaðið - 10.12.1976, Side 1
FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER
263. fbl. — 1976 — 57. árg.
Áskriftar-
síminn er
14-900
i"__i ■ /___i '___ • x ■■ /
ornar
Börnin mega ekki
fara í jólaköttinn
Erfiðleikar í innfiutningi:
Nóvember var
óvenju daufur
sölumánuður
„Troðfylltist allt
um leið og fyrstu
snjókornin féllu”
Nokkrir erfiðleikar munu hafa
verið undanfarið hjá innflytj-
endum, við að leysa lít þann varn-
ing sem þeir háfa pantað erlendis
frá. Þannig hafa safnazt saman
miklar birgðir ósótts varnings i
vöruskemmum Eimskipafélags-
ins, að sögn Ingólfs Möller, sem
hefurumsjón með skemmum fyr-
irtækisins. Þetta stafar af þvi, að
kaupmenn hafa pantað meira en
þeir geta umsett og hefur þetta
ástand verið rikjandi siðan í sum-
ar.
Ingólfur sagði blaðinu i gær, að
innflytjendur rækju nú mjög á
eftir þeim varningi sem væntan-
legur er með næstu skipum
félagsins, og munu ætla að leysa
þær vörur út strax enda um jóla-
varning að ræöa i flestum tilfell-
um.
Nóvember daufur
Alþýðublaðið hafði i gær sam-
band við nokkra innflytjendur og
sþurði þá hvernig sala hefði
gengið i desembermánuði.
t)li Tryggvason skrifstofustjóri
hjá Eggerti Kristjánssyni sagði,
að fyrirtækið væri svo til ein-
göngu með matvöru, og væri litil
breyting á sölu slíks varnings frá
fyrrimánuðum. Það væri þá helzt
að fólk drægi i við sig kaup á
niðursoðnum ávöxtum og slíkum
dýrari vörutegundum.
Ólafur Pálsson sölustjórihjá 0.
Johnson & Kaaber sagði að
nóvembermánuður heföi verið
óvenjudaufur sölumánuður, en
hins vegar hefði salan tekið mik-
inn fjörkipp eftir mánaðamótin
og desembermánuður væri i
rauninni óvenjugóður sölu-
mánuður. Sérstaklega væri mikil
sala á matvöru.
Jón Guðbjartsson hjá Kristjáni
Skagfjörð sagði okkur að sölu-
menn fyrirtækisins kvörtuðu und-
an þyngri sölu i desember en und-
anfarin ár. Kaupmenn væru nú
varkárari i peningamálum en oft-
ast áður og pöntuðu minna. Hins
vegar væri fyrirtækið ekki með
neitt sem flokka mætti undir
beinan jólavarning, heldur aðal-
lega nýlenduvörur og matvörur.
Hjá Natan & Olsen fengum við
þær upplýsingar að salan væri
mjög jöfn allt árið og litill munur
á desembermánuði og öðrum.
Hins vegar hafði sölumaður sá
sem við var rætt enga viðmiðun
Framhald á bls. 10
Það kostar skildinginn að verzla til jólanna.
í fyrradag fengum við reiknað út hvað al-
gengar jólamáltíðir muni kosta meðalstóra
fjölskyldu i ár, og á baksiðu i dag er sundur-
liðað hvað það kostar að klæða tvö börn, svo
þau fari ekki i jólaköttinn.
Er blaðamaður og ljósmyndari fóru i
verzlanir að skoða barnafatnað brugðu þau
sér inn i Verzlanahöllina við Laugaveg 26 og
litu þar inn i barnafataverzlunina LILLY,
þar sem JA tók þessa mynd.
Hin nýkjörna miðstjórn Alþýðusambands íslands kom saman til fyrsta
fundar sins i gær. Við það tækifæri tók LÁ þessa mynd fyrir Alþýðublaðið.
Nánar verður skýrt næstu daga frá ýmsum þingstörfum, sem enn er ógetið
og birtar ályktanir 33. þings ASÍ:
Það troðfylltist allt hérna
hjá okkur um leið og fyrstu
snjókoruin féllu til jarðar,
sagði starfsmaður Hjól-
barðaverkstæðisins í
Höfðatúni, þegar við töluð-
um við hann i gær.
„Það var varla við öðru
að búast, þvi menn hafa
verið mjög rólegir i tiöinni,
það sem af er vctri. Svo
kom kippuri þetta idag, og
við höfum ekki haft undan
að skipta uin dekk og koma
vetrardekkjunum undir i
dag.
Það er talið, að nú séu
um það bil 10% bifreiöa cnn
á sumardekkjum og er þá
eingöngu iniðað við R-
uúmerin. En þetta breytist
væntanlega núna i dag og
svo á morgun. Eftir þann
tima ættu allir aö vera
kom nir með vetrardekk
undir bilana sina." —JSS
Rltstfórn Sföumúla II - Sfml 8I8ÓÖ