Alþýðublaðið - 26.01.1977, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 26.01.1977, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 26. janúar 1977 SJðNARMIl: 5 Frá SUJ m Sambandi ungra jafnaðarmanna m3 Umsjón: Tryggvi Jónsson, Bjarni P. Magnússon, Guðmundur Árni Stefánsson, Óðinn Jónsson y STEFNUMIÐ Gegn íhaldi og misrétti íslenzkum launþegum hefur verið mjög tíðrætt um skattamál undanfarna daga. Ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp til breytinga á skattalögum. Þetta frumvarp er enn einn minnisvarði íhaldsaflanna í landinu til þess að arðræna heimili launþeganna. At- vinnurekendur og braskarar munu enn um sinn verða skattleysingjar í þessu þjóðfélagi, en skattbyrðin þyngjast til muna á launþegum. Þó eru þau ákvæði frumvarpsins alvarlegust sem miða að því að af- þakka vinnu kvenna og reka þær hið skjótasta inn á heimilin. Það mun því sannast sem sagt var að íhalds- rikisstjörnin er andvíg aukinni þátttöku kvenna í at- vinnulífinu og þvi skulu samdráttaraðgerðir stjórn- valda fyrst og fremst bitna á þeim í formi íþyngdrar skattabyrði. Þessa stórháskalegu stefnu ríkis- stjórnarinnar verður að brjóta á bak aftur. Það verður einungis gert með sameiginlegu átaki og þar má eng- inn launþegi liggja á liði sinu. Það hlýtur að vera grundvallar krafa að skattabyrðinni verði réttlátlega skipt á meðal þegnanna. Það hef ur komið sannanlega i Ijós að íhaldsöfl Framsóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins hafa engan vilja til þess heldur miða aðþví einu að viðhalda hinu megnasta óréttlæti í þeim efnum. Á síðasta þingi Sambands ungra jafnaðarmanna voru samþykktar ítarlegar tillögur í skattamálum. Þar er lagt til að tekjuskattur verði afnuminn, þar sem þar er eingöngu um launamannaskatt að ræða. Til að bæta ríkissjóði tekjutapið verði launaskattur at- vinnurekenda hækkaður úr 3.5% í 13%. Þá leggjum við til að tekið verði upp staðgreiðslukerf i útsvars og að mánaðarlaun lægri en 75.000 krónur verði undanþegin útsvari. Þá hlýtur það að vera sanngirniskrafa að elli- lífeyrir og aðrar bætur greiddar af almannatrygging- um verði algjörlega undanþegnar öllum skatti. Þessar tillögur miða allar að því að einfalda skattkerfið og gera skattálagninguna réttláta. Allir hljóta að hafa skilning á því að ríkissjóður þarf sitt til þess að geta gegnt félagslegu þjónustuhlutverki sínu við þjóðfélag- ið. En launþegar geta á engan hátt liðið það að mis- rétti ríki í þeirri f járöflun. Nú hlýtur almenningi að vera það Ijóst að eina aflið í íslenzkum stjórnmálum sem gætir hagsmuna launþega í landinu og stuðlar að jafnrétti á öllum sviðum þjóðlífsins er Alþýðuf lokkur- inn. Það er þess vegna sem jafnaðarmenn hafa með- byr í íslenzkum stjórnmálum í dag. Gunnlaugur Stefánsson HVERT HORFIR í ÍSLENZK- UM STJÓRNMÁLUM? Haft er gjarnan aö oröi þegar stjórnmál eru rædd manna á meöal aö ekki skipti máli hver j- ir fari meö rikisstjórnarvaldiö hverju sinni, þvi úrræöin viö lausn mála eru þau sömu þegar á herðir og framkvæmd stefnu stjornmálaflokkanna sé mjög álika,en það eina sem ber í mill- um séu ólik nöfn á stjórnmála- flokkunum. Því er ekki aö neita aö þessi skoöun hefur stundum átt viö rök að styöjast en ef grannt er skoðað kemur i ljós djúpstæöur grundvallarágrein- ingur i framkvæmd stefnu stjórnmálaafla i landinu og hef- ur þessi ágreiningur oft veriö táknaöur með hugtökunum hægri og vinstri. Það er td staðreynd að Sjálfstæöisflokk- urinn er fulltrúi atvinnu- rekenda og frjálsrar samkeppni þar sem litilmagninn má sin litils, en Alþýöuflokkurinn gætir hagsmuna launþega og þeirra sem mega sin litils NU er svo komiö aö það er hreint lifshagsmunamál heimilanna i þjóðfélaginu aö rikisstjórnin segi af sér og geng- ið verði til kosninga. Staða Alþýðuflokksins Alþýöuflokkurinn hefur nú setið i stjórnarandstöðu i rúm fimm ár. A þessum tima hefur komið mjög skýrt i ljós hvernig stefna flokksins aögreinist frá hinum stjórnmálaflokkunum. Alþýðuflokkurinn er einn allra stjórnmálaflokka i landinu sem hefur lagt fram raunhæfar til- lögur um þjóðnýtingaráform. Ber þar hæst tillaga um þjóö- nýtingu landsins sem nefnt hef- ur verið Landið sameign. Þar er um að ræöa brýnt nauðsynja- mál sem ma kæmi i veg fyrir aö höfuöborgarbraskarar ihaldsins og rikir útlendingar geti keypt upp heilu jarðirnar með þaö i huga aö braska meö hlunnindi og orku i iðrum iaröar. Dæmi þjónar á engan hátt hlutverki sinu. Mannshvörf, morð, mis- notkun banka og rikiskerfis, smygl og hverskonar svindl eru orðin sh'k dagleg brauö aö hinn almenna borgara undrar slikt ekki lengur. Hann er oröinn illu vanur. Þessari þróun veröur aö snúa við, um það eru allir sammála, og dómskerfiö veröur að efla og bæta þannig að þaö þjóni hlutverki sinu. Launþegar ættu að velta' þvi fyrir sér gaumgæfilega i ljósi umræðna um þessi mál hvaða afli i islenzkum stjórnmálum sé bezt treystandi til þess að framkvæma þá nýskipan i þess um málum sem nauösynleg er. Alþy ðuflokkurinn er einn islenzkra flokka sem berst gegn frekari virkjunaráformum 1 Kröflu aö óbreyttu ástandi, enda hafi þingmenn fiokksins oft rætt þetta mál á Alþingi. Sólnesum og öðrum ihalds- mönnum getur ekki levfzt baö gagnvart auövaldi i lifs- baráttunni. Þetta kom berlega i ljós á dögum Viðreisnar- stjórnarinnar, þar sem Alþýðu- flokkurinn þurfti að vera á stöðugu varöbergi gagnvart ásælni ihaldsaflanna i rýra vasa launþegans i landinu. Þótt aö ágreiningur i þeirri rikisstjórn hafi sjaldnast veriö heyrum kunnur þá leyfi ég mér að full- yrða aö hann hafi eiliflega veriö til staöar. Margir Alþýðuflokksmenn telja aö það geti á engan hátt samrýmzt stefnu og starfi Alþýðuflokksins aö eiga sam- starf viö ihaldiö i rikisstjórn, þvi þar hljóti aö vera um slik grundvallarágreiningsmál að ræöa. Eitt er þó vist að miöað við núverandi styrkleikahlutfall á Aiþingi þá sé hlutverk vinstri aflanna það fyrst og fremst aö verja þann rétt og þau kjör launþega er náöst hafa fyrir margra áratuga langa baráttu jafnaðarmanna. Nýir sigrar og áfangar launþegum til handa nást ekki fyrr en Alþýðuflokkur- inn hefur stóraukiö fylgi sitt. Sagan kennir okkur aö án sterkrar stöðu og baráttu Alþýöuflokksins veröa kjör launþega aldrei styrkt á varan- legan hátt. Þetta er óumflýjan- leg staöreynd sem launþegar sem kosiö hafa aðra flokka und- anfarin ár hljóta að velta fyrir sér, en slik umhugsun krefst af- stöðu. Rikisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks færir heim sanninn um það aö þegar ihaldsöflin liggja i einni sæng þá er hætta á ferðum fyrir verkafólk. Nú- verandi stjórnarsamstarf sann- ar svo ekki verði umvillzt hversu mikiu Alþýöuflokkurinn kom til leiöar i Viöreisnar- stjórninni þó starfkröftum hans hljóti aö vera betur variö og skila áþreifanlegri árangri i stjórnarsamstarfi viö vinstri flokkana. þessa efnis eru öllum Islending- um i fersku minni en minna má á Svartsengismáliö og Votmúla- máliö. Þessar tillögur Alþýöu- flokksins skerða á engan hátt stööu bænda heldur þvert á móti styrkja þá gegn ásælni og yfir- gangi braskara sem engan áhuga hafa á einum eða öörum landbúnaði. Hér er án efa um raunhæfustu tillögu aö ræða sem miöar að landsbyggöarþró- un þar sem sveitum landsins veröi viðhaldið i byggö til framleiðslu landbúnaöarafuröa. Þá skal nefnd tillaga Alþýöu- flokksins um þjóöþýtingu oliu- félaganna. Fámenn islenzk þjóð hefur engin efni á aö viöhalda svo gagnslausum báknum og oliufélögunum, og þvf siður þremur dreifingarkerfum sem miða einungis að þvi að verö- lag oliuvara er hærra en ástæöa er til. Þess skal t.d. getiö aö samningar um oliukaup eru ein- farið i höndum rikisvaldsins, þar sem rikið semur endur- gjaldslaust um kaup á oliuvör- um fyrir oliufélögin. Mér sýnist þvi liggja beint viö aö rikisvald- iöflytji vöruna einnig inn i land- ið ogkomi á fót einu dreifingar- kerfi, en oliufélögin veröi hið bráöasta lögð niöur. Þá gæti rikisvaldið m.a. lagt hald sitt á hina fjölmörgu húsnæöis- kastala, sem oliufélögin hafa byggt á undanförnum árum fyrir gróðann af oliusölunni, og nýtt til félagslegra þarfa. í þeim efnum virðist þörfin nóg enda þjáist öll félagsleg opinber þjón- usta af húsnæðiseklu. Alþýöuflokkurinn var fyrstur allra flokka til aö benda á ófremdarástandið i dómsmál- um þjóðarinnar, og einiflokkur- inn sem krefst á borði raunhæfra aðgeröa til að bæta þar úr. Svo er komið að viröing manna gagnvart dómstólum og réttarfarskerfinu er orðin næsta litil, enda er kerfiö þungt og svifaseint i virkni sinni og lengur aö eyöa milljöröum af almenningsfé i tóma vitleysu, enda þarf litla fræöimenn til þess að skynja hvaö þarna er á ferðinni. Á meðan forsætisráð- herra boðar að allir launþegar þurfi nú aö herða sultarólina og verahógværir i kröfum i næstu kjarasamningum, þá er eytt milljöröum króna úr rikiskass- anum til að fjármagna orku- fyrirtæki i Kröflu sem óvitaö er með öllu hvort nokkurn tima gefur einhverja nýtanlega orku, hvað þá að til verði markaöur fyrir alla þá orku sem Sólnes lofar. Það er ekki ofsögum sagt þótt haft sé á orði hvort nokkurt mark sé eiginlega hægt aö taka á þessum forsætisráöherra. Alþýðuflokkurinn einn allra stjórnmálaflokka hefur lagt fram og gert opinbera fjárhags- stöðu sina. Aörir flokkar hafa ekki þorað þaö vegna hræöslu við kjósendur. Bókhald annarra stjórnmálaflokka er þvi leyni- makk. En hverju er verið aö leyna. Þetta er spurning sem launþegar varpa fram og þeir eiga siöferöislega heimtingu aö fá svör. Það veröur fróölegt aö fylgjast með þvi hvort þau svör liggi opinber fyrir næstu kosn- ingar. Til baráttu. Alþýðuflokkurinn er verka- lýösflokkur sem berst fyrir rétti og bættum kjörum launþegum til handa. Alþýöuflokkurinn styður verkalýöshreyfinguna i baráttu sinni um hærri laun og bætt kjör gegn atvinnurekend- um. Núverandi ihaldsrikis- stjórn er andstæö verkalýös- hreyfingunni og gætir hags- muna atvinnurekenda. Þetta ætti öllum launþegum að vera fyrir löngu ljóst. Þvi hlýtur það að verða krafa allra launþega aö ríkisstjórnin fari frá völdum þannig aö réttlæti megi sin ein- hvers i þessu þjóöfélagi. Gunnlaugur Stefánsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.