Alþýðublaðið - 28.01.1977, Page 5

Alþýðublaðið - 28.01.1977, Page 5
iSSó' Föstudagur 28. janúar 1977 IÞROTTIR 70 ár lioin frá stofnun Kvenréttindafélags íslands í gær voru liðin 70 ár, frá stofnun Kvenréttindafélags tslands, en félagið var stofnaö þann 27. janúar 1907. Frumkvöðull að stofnun félagsins var Briet Bjarn- héðinsdóttir. Hún hafði þá um árabil gefið út Kvennablaðið, eða frá 1895. Arið 1904 voru stofnúð i Berlin alþjöðleg samtök kvenréttinda- félaga. Island var ekki i þeim hópi, þar sem enginn sllkur félagsskapur var starfandi á landinu þá. Hins vegar höfðu Brieti borizt eindregnar áskor- anir erlendis frá um að stofna félag til þess að Island gæti gerzt aðili að alþjóðasam- tökunum. Arið 1906 var svo haldið alþjóðlegt þing kvenréttinda- félaga i Kaupmannahöfn og var Bríeti Bjarnhéðinsdóttur boðið að sitja þingið. Var þá lagt hart að henni, að koma á fót slikum félagsskap hér, og varö þessi ferð hennar til þess, að boðað var til fundar á heimili hennar eftir að heim var komið. Þar mættu 15 konur úr Reykjavik, og var ákveðiö að stofna Kven- réttindafélag Islands. Fyrsti formaöur félagsins var kjörin Briet Bjarnhéðinsdóttir, og gegndi hún formannsstarfi I 20 ár. Slðan tók viö formennsku dóttir hennar Laufey Valdi- marsdóttirog var hún formaður til ársins 1945. Aðrar konur i for- mannssæti voru, Maria Knudsen, Sigriöur J. Magnús- son, sem lengi átti sæti i stjórn Alþjó ðasa m tak anna, Lára Sigurbjörnsdóttir, Sigurveig Guðmundsdóttir, og Guðný Helgadóttir. 1975 tók núverandi formaður, Sólveig ólafsdóttir viö for- mennsku, en hún er jafnframt langyngst þeirra sem hafa haft formennsku félagsins með höndum. Félagið hefur allt frá upphafi barizt fyrir réttindum kvenna. Það hefur látið sig miklu varða lagasetningar sem snúa að stjórnmálalegum réttindum kvenna, og einnig þau mál er varða atvinnu- og menntamál kvenna. 1 gær var minnst 70 ára afmælis félagsins með veg- legum fundi um skattamál, en þau hafa sem kunnugt er verið mjög i brennidepli að undan- förnu. Verður nánar sagt frá fundinum siðar. Loks má geta þess, að Kven- réttindafélag Islands gefur út ársrit, sem ber nafnið 19. júni. A það heiti blaðsins að minna á réttarbótadag kvenna, þ.e. þegar konur fengu rétt til kosn- inga 19. júni 1915. vvt HHAJ L»Aft***T* i [ Efc- ; Konum hefur orðið mikið ágengt f baráttu sinni fyrir jafnrétti. Myndin sýnir nokkurn hluta þeirra kvenna sem á kvennadaginn 1975 söfnuðust saman á Lækjartorgi. „Tel mig vera fylgjandi almennum mannréttindum” - rætt við Guðnýju Helgadóttur fyrrv- formann K.í Guðný Helgadóttir er ein þeirra kvenna sem hafa unnið mikið og gott starf i þágu Kven- réttindafélags íslands. Guðný gekk i félagið á árunum 1945-1946 og 1971 tók hún við for- mennsku, sem hún gegndi til 1975. Auk þess hefur hún verið viðloðandi stjórn eða varastjórn féiagsins siðastliðin 25 ár. Alþýðublaðið náði tali af Guðnýju i gær, og baö hana að segja örlitið frá störfum Kven- réttindafélagsins og þvi sem það hefur fengið áorkað. Sagði hún aö stefnuskrá félagsins hefði ifyrstu kveðið svo á um að konan hefði sömu pólitisku stöðu og karlmenn. Eins hefði verið getið um jafna aðstöðu tii menntunar og atvinnu. „Þetta hefur alltaf verið ofar- lega á baugi, allt til dagsins i dag, sagði Guðný. Þó hefur enn ekki náðst nógu góður árangur á öllum sviðum enn sem komið er. Tii dæmis rikir hér ekki algjört launajafnrétti, þó svo eigi að heita. Félagið lagði á sinum tima mikla áherzlu á, að hér rikti al- gjört jafnrétti varðandi kosningarrétt og kjörgengi, bæðii til Alþingis og sveitastjórnakosn- inga. Þegar þeim merka áfanga var náö 1915, stóðu mörg Evrópu- landanna okkur að baki, hvað þetta snerti, þvi þar rikti ekki jafnréttur kynjanna til kosninga. Nú má einnig segja, aö hér riki jafnréttitil menntunar. En ég er aftur á móti ekki tilbúin til að kyngja þvi, að konur hafi jafnan rétt á við karlmenn til embætta alls konar. Barátta á breiðari grundvelli. Hvaða málefni eru helzt á dag- skráhjá félaginu, þegar svo mörg fyrri baráttumál erukominl höfn að miklu eða öllu leyti? „Þaðl er óhætt að segja að félag- ið hafi snúið sér meira að baráttu fyrir ýmis konar mannréttindum nú á siðariárum. Til dæmis er nú i lögum og stefnuskrá að félagið eigi að beita sér fyrir almennum mannréttindum á öllum sviðum og er I þvi sambandi vitnað i mannréttindayfirlýsingu Sam- einuðu þjóðanna. Hins vegar finnst okkur að enn hafi ekki unnizt fullur sigur i mörgúm þeirra mála sem voru á stefnuskrá. Oft er jafnréttið meira i orði en verki, þvi segja má að lagalega séð ætti algert jafnrétti að vera rikjandi hér á landi, en það er það hins vegar ekki. En þetta er viöa brotið i heiminum, þó svo að lagabókstaf- urinn sé til fyrir þvi. Skattamálin i brenni- depli. Frumvarp til skattalaga hefur valdiö miklum deilum undanfar- ið. Hver er þin skoðun á þvi? Skattamálið er nú eitt af jafn- réttismálunum, ogþar eiga konur að hafa sama rétt og karlar. Min persónulega skoðun á þessu máli er sú aö þarna sé aðeins verið að breyta orðalagi og formi. Það er augljóst, að þó þetta eigi að heita sérsköttun hjóna, þá er það alls ekki rétt. Þetta heldur áfram að vera samsköttun, bara með breyttu formi. En ég vil láta þess getiö hér, að ég fagna mjög þeim áföngum, sem náðst hafa i jafnréttisbarátt- unni, ég hef alltaf haft mikinn áhuga fyrir jafnréttismálum. Allar minar skoðanir grundvall- ast á þvi, að ég tel mig vera fylgj- andi almennum mannréttindum. Jafnrétti er ekkert annað en mannréttindi, og ég tel aö menn eigi aö njóta sömu réttinda, sama hvort um karl eða konu er að ræða.” sagöi Guðný Helgadóttir að lokum.... —JSS -útgáfan sendir frá sér fyrstu bókina: „Saga af því hvernig þúsundir karla og kvenna hafa læknast af alkóhólisma” Stjórn AA-útgáfunnar boðaði fréttamenn á sinn fund i gær til þess að kynna AA-bókina sem útgáfan sendi ný- lega frá sér. AA-útgáfan er stofnuð 26. júli 1975 af fólki sem er i AA-sam- tökunum (Alcoholics Anonymous), sem stendur þeim nærri og fólki sem stendur alveg utan samtakanna, en styður markmið þeirra. 320 stofnfélagar lögðu fram 3 þús. kr. hver og var það framlag notað til útgáfu bókarinnar sem fyrr er getið. Jóhannes Bergsveinsson yfir- læknir skrifar stuttan formála aö bókinni, sem er á þessa leiö: „Drykkjusýki er sjúkdómur. Sjúkdómur, sem ekki verður læknaður aö fullu, aðeins gerður óvirkur. Ovirkur þannig aö lifa má eðlilegu llfi máian áfengis er ekki neytt. Hver sá maður, sem stendur andspænis ólæknandi sjúkdómi, er grafið hefur undan félagslegri velferð hans og rænt hann stjórn á eigin lifi, er kominn i ógöngur. Bókin sem hér fer á eftir er vegvisir. Vegvisir saminn af körl- um og konum, er komist hafa i ógöngur en fundið úr þeim leið. Leið, sem stendur opin öllum er þurfa og vilja fara hana”. í formála að I og II. útgáfu bókarinnar er rakin þróun og starf AA-samtakanna i stuttu máli og þar á eftir er kafli sem ber nafniö „Skoöun læknisins” eftir Dr. William D. Silkeworth, einn ágætasta stuðningsmann AA-samtakanna i læknastétt frá upphafi. Dr. Silkeworth segir frá sjúklingi sem hann fékk til með- ferðar á árinu 1934 og sem hann taldi vonlausan, þrátt fyrir að hann hafi veriö kaupsýslumaöur ogfærum að afla sér hárra tekna. Siðan segir læknirinn: „Meðan á þriðju meðferð hans stóð fékk hann ákveðnar hug- myndir varðandi mögulega leið til bata. Hann tók að bera hug- myndir sinar á borð fyrir aöra alkóhólista, sem þátt i endurhæf- ingu sjálfssin, og lagði á við þá að þeir tækju að sér enn aðra á sama hátt. Þetta hefur orðið grundvöll- ur hraðvaxandi samtaka manna og fjölskyldna þeirra. Maður þessi, og á annað hundrað honum likir viröast hafa náð bata. Ég þekki persónulega tugi þeirrar tegundar, sem aðrar að- ferðir höfðu ekkert gagn gert. Þessar staðreyndir virðast hafa stórkostlegt læknisfræðilegt gildi. Vegnaþeirra sérstæðu möguleika til örs vaxtar, sem þessi hópur manna hefur, kunna þeir að marka þáttaskil i annálum alkó- hólismans. Velmá vera að þessir menn hafi úrræði, sem hæfa þús. manna, sem eins er ástatt um. Ykkur er óhætt að treysta al- gjörlega hverju sem þeir hafa af sjálfum sér að segja” Meginefni bókarinnar skiptist i ellefu kafla. I þessum aðalhl. bókarinnar er þróun og eðli drykkjusýkinnar rækilega lýst frá sjónarmiöi þeirra, sem sjálfir hafa ratað i ógöngur ofdrykkjunnar og þolað dýpstu örvæntingu, en tekist að ná fótfestuá ný og gerast hæfir og nýtir menn. Efnið fjallar um það hvernig þeim tókst þetta með þvi að beita aöferðum, sem byggöust á dýrkeyptri en ómetanlegri reynslu. Bókin er rik af ráölegg- ingum og ábendingum til drykkjumanna jafnt sem að- standenda og vinnuveitenda. 1 enskumælandi löndum og viða annars staðar, þar sem bókin hef- ur verið þýdd, er hún notuð sem grundvallartexti á AA-fundum og þarhefur hú oröið til þess aö sam- hæfa og treysta starfiö. Einnig hefur hún orðið kærkominn föru- nautur þeim alkóhólistum, sem við einangrun búa og ekki eiga kost á samneyti við aðra alkóhól- ista. í bókinni eru birtar 12 reynslu- sögur, sem skiptast I fjóra flokka. Þarna segja tólf alkóhólistar lær- dómsrikar sögur, sem án efa end- urspegla lifsreynslu flestra ann- arra alkóhólista að meira eða minna leyti. í siðasta hlutanum eru þrjár islenzkar sögur. I bókarlok kom svo „Tólf erfðavenjur AA-samtakanna”, sem eru i raun skilgreining á starfi, tilgangi og hlutverki AA- samtakanna, m.a. með tilliti til félagslegra umsvifa. AA-bókinfæst i bókaverzlunum um land allt og kostar kr. 3.450 með söluskatti. Pantanir má einnig senda i pósthólf 1022 í Reykjavík. —ARH. Stefnumót á Keflavíkurflugvelli: Geir Hallgrímsson hittir varafor- seta Bandaríkjanna - n.k. laugardag Walter Mondale, varaforseti Bandarikjanna, sem feröast nú um Vestur-Evrópu og heldur það- an n .k. laugardag til Japan mun á þeirri ferð hafa viðdvöl á Kefla- vikurflugvelli. Ráðgert er, að Geir Hallgrimsson, forsætisráö- herra, hitti varaf orsetann á flug- vellinum. Enga samninga takk! - Landhelgissamtökin gangast fyrir mótmælastöðu við Alþingishúsið Landhelgissamtökin mótmæla fyrirhuguðum samningum milli Efnahagsbandalagsins og is- lenzku rikisstjórnarinnar um veiðiheimildir handa EBE þjóð- um innan islenzkrar fiskveiðilög- sögu með mótmælastöðu við Alþingishúsið. Félagar úr samtökunum munu skiptast á I mótmælastöðunni, föstudaginn 28. janúar frá klukk- an 13.00 til klukkan 18.00 mánudaginn 31. janúar frá kluk an 15.00 til klukkan 18.00 Samtökin gangast fyrir und skriftarsöfnun og munu und: skriftalistar liggja frammi, þ, sem andstæðingar samninga v erlenda aðila um veiöiheimild innan 200 milnanna geta ritj nöfn sin.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.