Alþýðublaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 12
GREiNARGERPIN UM KRÖFLUVIRKJUN.
Höndlað með kornvörur
í Kornmarkaðn-
um við Skóla-
vörðustíg
Þessi auglýsing vakti
hygli blaöamannsins.
at-
$ I/PPÍýSlAÍ&flR
Vto fW.luM meo M fitfc fcfhffz
ou ÚÍUHAUL oi,
nu í.«vU Vfíör
El»«u hx. óoýRu Mjílr»v
!p» v Hurt ustin floKr: ct
Rfttrtue,
f-ú £Ru ii i tJs
t>Æt K»U« 50 K’i. 'r
Vlt> Vlljuu, Ný,» m SÍM
Uo t*. I*t« fo*d itM oft 6£
hub* 5tu:
Nll RíxfA-A, VI« flf foltrt /l£j,rt
fttXlfoM Í (H 00 SlótH I,
tú*f‘>*h «
i. FfcbtúAR vfctOvM vro ICqaamhí
«.tO ^jooUojóN, HU\i hvti«fee„
h£X\ftN 1-00 u C o.f,
ttUðlUMONHXt. HOtXHAfi KAOKXoO Mto
I KtVKWtl ft 5k».
A Skólavöröustig 21 hefur um
nokkurra mánaöa skeiö veriö
rekin verzlun sem óhætt er aö
telja frábrugöna öörum
verzlunum eins og þær almennt
gerast. Verzlunin heitir Korn-
markaöurinn og eins og nafniö
gefur til kynna, er þar einkum
„höndlaö meö kornmeti og
skyidar vörutegundir. Blaöa-
maöur Alþýöublaösins lagöi leiö
sina á Kornmarkaöinn þeirra
erinda aö kynnast nánar
verziunarrekstrinum og þeim
sem aö honum standa.
Þá kom i ijós að verzlunin er
rekin af félögum i hreyfingu
sem kallar sig Ananda Marga
og byggir á kenningum Shri
Ananda Murti. Verzlunarstjór-
inn heitir Sigmar Arnórsson og
tjáði hann blaðamanni aö til-
gangurinn meö verzlunar-
rekstrinum væri m.a. að sjá þvi
fólki sem neytti jurtafæðis fyrir
hráefni við sitt hæfi á viðráðan-
legu verði.
„Við flytjum okkar vörur inn
sjálfir, milliliðalaust, og hjálpar
það okkur aö halda verðinu
niðri. Við reynum að reka
verzlunina á heiðarlegan hátt,
án tillits til arðsemissjónar-
miðsi ns,þvi það er ekki ætlunin
aðgræðaá viðskiptunum” sagði
Sigmar.
Nýtnin i fyrirrúmi
A einum veggnum i verzlun-
inni hékk auglýsing, þar sem á
stóð að greiddar væru 2 kr. fyrir
bréfpoka sem viðskiptavinir
létu verzluninni i té. Þá væru
greiddar 5kr. fyrirplastpoka og
5 kr. fyrir hreinar glerkrukkur
með loki.
Sigmar var að þvi spurður
hver væri tilgangurinn með
þessum pokakaupum. ,,Við vilj-
um . hvetja fólk til n ýtni og
þetta er ein leiðin til þess. I
verzlunarrekstrinum þurfum
við á pokum að halda, og ef við-
skiptavinirnir eiga slika poka
Smá sýnishorn af þeim vörum sem seldar eru IKornmarkaönum.
Ab. myndir GEK
fínnst okkur sjálfsagt að þeir
séu notaðir i stað þess að þeim
sé hent. Það er skömm aö þvi
hvað fólk nytir almennt hlutina
illa.”
Aðspurður sagði Sigmar að
hér i bænum væru um 20 virkir
félagar i Ananda Marga, en auk
þeirra hefðu um 300 aðrir lært
hugleiðslu hjá þeim, en þau hafa
aðstöðu til hugleiðslu aö Berg-
staðastræti 28. Sagði Sigmar að
þessa dagana væri staddur hjá
þeim mjög sterkur Jógi hingað
kominn frá Sviþjóð og er greint
frá honum á öðrum stað i blað-
inu i dag.
—GEK
Áætlanirnar misskilningur
sagði Sighvatur Björgvinsson, alþm.
„Þaökemur ekkert fram I þess-
ari greinargerö um Kröfluvirkj-
un, sem ekki var vitaö áöur,”
sagöi Sighvatur Björgvinsson al-
þingismaöur, þegar Alþýöubiaöiö
spuröi hann um máliö i gær.
Sighvatur sagði að nauðsynlegt
væri að tryggja Norðlendingum
næga raforku. Þaö yrði ekki gert
með þvi að halda áfram virkjun
Kröflu. Það sem nú ætti að géra,
sagði Sighvatur, væri að ljúka
byggðalinu fyrir Hvalfjörð. „Það
er fljótvirkasta og bezta leiðin til
að tryggja Norðlendingum næga
raforku,” sagði Sighvatur.
Sighvatur taldi það augljóst, að
upplýsingarnar um kostnaðar-
áætlanir væru byggðar á mis-
skilningi iðnaðarráðherra og
Kröflunefndar. Ljóst væri aö
framkvæmdakostnaöurinn viö
Kröfluvirkjun færi upp í 7.8
milljarða, þannig að árleg
greiðsla vaxta færi langt fram yf-
ir þær tekjur sem fengjust fyrir
orkusölu frá virkjuninni. t grein-
argerðinni um Kröfluvirkjun
kemur fram, að gert er ráð fyrir
þvi að 5 nýjar holur verði borað-
ar. SagöiSighvatur það furðulegt,
að ekki væri tekið fram i greinar-
geröinni hvort þessar holur yrðu
boraðar á virkjunarsvæðinu eða
utan svæðisins sem þá mundi
leiða af sér stóraukinn kostnað
vegna nýrra lagna.
—BJ.
Krefjumst þess að verða
metin aðverðleikum
— segja hjúkrunarfræðingar sem sagt hafa upp störfum
Sem kunnugt er af fréttum
hafa hjúkrunarfræöingar á Stór-
Reykjavikursvæðinu sagt upp
störfum sinum. Krefjast þeir
stórbættra kjara og sann-
gjarnra samninga til aö koma f
veg fyrir aöneyðarástand skap-
ist á sjúkrahúsum höfuöborgar-
innar. í yfirlýsingu frá fundi
hjúkrunarfræðinga, sem sagt
hafa upp störfum, segir meöal
annars aö miðað viö önnur
Norðurlönd sé islenzk hjúkrun-
arstétt ótrúlega langt á eftir
hvaö snertir laun og önnur kjör.
Ennfremur segir í yfirlýsing-
unni aö aöstæður hafi breytzt
svo, aö hjúkrun sé ekki lengur
fórnarstarf „kvenna”, heldur
þurfi hjúkrunarfræöingar aö
véra færirum aö sjá fyrir sér og
sinum.
Nám hjúkrunarfræðinga tek-
ur þrjú ár, það er fjögur skóla-
ár. Undirbúningsmenntun nú,
er tvö ár fram yfir gagnfræða-
próf eða samsvarandi menntun
og meiri.
Núverandi laun hjúkrunar-
fræöinga'eru eftirfarandi: Ný-
útskrifaðir. B-10 kr. 99.941,
hjúkrunarfræðingar með fulla
starfsreynslu,B-ll kr. 106.486.
Hjúkrunarfræðingar vinna all-
an ársins hring, helgar og stór-
hátiöir.Um hátiðar fá þeir álag
sem nemur kr. 211.56 á klukku-
stund.
Æðsta embætti hjúkrunar-
fræðings á sjúkrastofnunum er
staða hjúkrunarforstjóra (for-
stöðukonu) á sjúkrahúsum meö
yfir 200 rúm. Fyrir það er greitt
samkvæmt launaflokki B-21 kr.
152.367.
1 yfirlýsingu hjúkrunarfræö-
inga segir, að stétt þeirra sé nú
ein fárra sem sifellt eigi i erfiö-
leikum inni á sjúkrahúsum,
vegna skorts á starfsfólki og sé
vinnuálag þvi oft óheyrilega
mikið.
Hjúkrunarfræðingar.sem sagt
hafa upp störfum við Borgarspi-
talann, Landakotsspitala og
Vifilsstaðaspitala álita.að með
bættum kjörum verði talsverð
bót ráðin á þvi ófremdarástandi
sem nú rikir, mun það auka á-
huga á hjúkrunarnámi og halda
fólki betur i starfi. —AB
LAUGARDAGUR
12. FEBRÚAR 1977
alþýdu
blaöiö
Séö i bréfi frá Jóni Ormi
Halldórssyni, islenzkum
námsmanni i Englandi, að
hann og aðrir námsmenn i
Englandi séu hættir áð
mótmæla og predika rót-
tækar kenningar, en séu
þess i stað farnir að læra.
o
Tekiö eftir myndskreyttri
frásögn i Dagblaðinu um
það, þegar þegar einn
handhafa diplómatapassa
frá norska sendiráöinu var
færður heim til sin eftir
næturgöltið af tveim
fögrum lögreglukonum. Sá
diplómatiski var ekki
hreinlegri en svo, að önnur
lögreglukonan varð ,,að fá
hreinsun á fatnaði sinum
eftir samveruna meö
honum.” (Það skal tekið
fram að viðkomandi dipló-
mat er hundur.)
o
Heyrt að stjórn sóknar-
nefndar Viðistaðasóknar I
Hafnarfirði hafi sagt af sér
og sé sóknin þar með
stjórnlaus. Þessi stjórn
varð fræg að endemum
þegar hún var kosin, þar
sem konum var meinað að
eiga þar sæti. Þetta
kvennaleysi virðist ekki
hafa gefizt vel eins og sjá
má, en væntanlega hefur
uppstillinganefndin fyrir
næsta stjórnarkjör vit á að
velja konur i stjórnina, þó
ekki sé nema til að halda
henni við störf.
o
Frétt að Jón Sólnes vilji
endilega fá bjórinn lög-
leiddan á Islandi og
slangur af bjórkrám, auk
kennslu i umgengnis-
reglum við Bakkus. Ekki
eru allir á eitt sáttir um
það, af hverju þessi áhugi
Jóns á bjórnum er sprott-
inn, en helzt hallast menn
að þvl, að það sé gos-
magnið i þessum veigum
sem heillar hann.
o
Heyrt að ný skýring sé
fundin á flóði og fjöru.l
fyrsta skipti sem
Islendingar komu niður að
sjónum, varö hann svo
hræddur að hann hörfaði.
Siöan hefur hann komið á
sex tima fresti til að athuga
hvort þeir væru farnir.
.