Alþýðublaðið - 24.02.1977, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 24.02.1977, Qupperneq 6
Fimmtudagur 24. febrúar 1977 Erum við að fugla í búri? Námstyrkja og námslánakerfið hefur um langt skeið verið mikill höfuðverkur stjórnvalda og kastaði þó fyrst tólfunum á liðnu ári. Ýmislegt hefur verið reynt i þá átt að lappa upp á þetta kerfi, en flest hefur það verið unnið fyrir gýg og orðið til þess eins að magna óánægju námsmanna. l>ess er þó ekki að vænta i næstu framtið að unnt reynist að bjóða upp á náms- styrkjakerf i, sem skólafólk sætti sig við að öllu leyti, ef fyrir þvi vakir sú eina lausn að upp verði tekin full framfærslunámslaun. í fyrsta lagi horfir víst ekki þannig i bráð, að þjóðfélagið telji sig hafa efni á slikri rausn, og i annan stað er alls ekki augljóst, að slikt kerfi sé æskilegt, og kemur þar margt til. En vikjum þá aftur aB þvi ástandi, sem rikt hefur og enn rikir i þessum málefnum okkar. t stuttu máli er það ástand óvið- unandi. Námsstyrkja og námslána- kerfið er á margan hátt ranglátt og beinlin. skaðlegt, bæði fyrir námsfólkið sjálft og þjóðfélagið i heild. Það mismunar náms- mönnum herfilega, umbunar i sumum tilfellum þeim, er slður þurfa á þvi aö halda, en setur aðra, sem verri hafa ástæður, viðskorinn skammt. Skaðlegust og óskynsamlegust er þó sú úthlutunarregla, sem beinlinis hegnir þeim náms- mönnum, er hafa einhverjar tekjur af eigin vinnu samhliöa náminu, séu þeir bornir saman við hina, er annað hvort þurfa ekki á þvi aö halda að afla sér tekna með eigin vinnu eða kjósa þann kost að láta sér nægja námskostnaöaraðstoðina I staö þess að leita sér atvinnu I skóla- frium sinum. Sá námsmaöur, er sýnir þann dugnað að afla sér tekna i leyf- um sinum, skal með öðrum orð- um hafa eitt fyrir snúð sinn aö sitja við skerta námskostnaðar- aðstoð, meöan félagar hans, sem ekki þurftu eöa vildu taka til höndum samhliða náminu, fá sinn skammt óskertan. Þessi undarlega stjórnvizka hefur það máske sér til ágætis að vera einfalt og auðleyst reikningsdæmi, en er hún aö sama skapi skynsamleg? Það mætti einnig spyrja, hvort það sé ungu fólki hollt uppeldi að verðlauna þannig iðjuleysið? Svarið hlýtur að vera neit- andi. Hér i þéttbýlinu erum við far- in aö ala unga fólkiö upp eins og fugla i búri, fyrst á dagheimil- ala upp fólk eða um og siðan innan veggja skól- anna, með þeim afleiðingum að námsfólkið kemst aldrei á námsárum sinum i snertingu við athafnalif þjóöfélagsins og kynnist ekki af eigin raun nein- um vinnubrögöum eða vinnu- stöðvum, sem eru hornsteinar tilveru okkar. Þá fer skólafólkið einnig á mis við öll félagsleg tengsl viö þá sveit, er vinnur hörðum höndum, til þess að okkar heitt elskaða „velferðar- þjóðfélag” fái staðizt. Allt eru þetta þýðingarmiklir þættir i lifsreynslu og þroska ungs fólks, ekki sizt fyrir þá, sem eiga það fyrir höndum að taka að sér stjórnar störf og margskonar forystuhlutverk, er langskólanámi lýkur. Það er óvéfengjanleg iikam- leg og andleg nauðsyn ungu fólki að taka til höndum og reyna á kraftana jafnhliða skólanámi. Og okkur ber að ala upp athafnasamt fólk, sem er reiðubúið að drepa hendi i kalt vatn og deila kjörum með þeim er standa i eldlinu daglega lifs- ins, i stað þess að gera unga fólkið að einhæfum og innilok- uðum skólabókapáfagaukum. • Þess vegna eigum við meðal annars aö hverfa frá þeirri námsstyrkjareglu, er refsar þvi námsfólki, sem reynir aö vinna fyrir sér að einhverju leyti sam- hliða náminu. t stað þess mætti taka upp þá reglu að áætla öllu námsstyrkja -skólafólki sanngjarnar lág- markstekjur af eigin vinnu, nema sannað sé aö atvinna hafi ekki reynzt föl eða aðrar gildar ástæður hafi komið I veg fyrir atvinnutekjur. Sú regla mundi koma I veg fyrir það misrétti, sem bent er á héraöframan.ogum leið stuöla að nánari kynnum nemenda af skóla lifsins. Jóhá. Hafliði J. Hafliðason — kveðja fra frá Sveinafélagi járnsmiða Hafliöi J. Hafliðason fæddist að Dvergasteini i Hafnarfiröi 3. október 1891. Hann hóf smiöanám hjá Sveini Magnússyni, bátasmiði i Hafnar- firði I febrúar 1907, en lauk námi hjá Otta Guömundssyni, skipa- smiði I Reykjavik árið 1911. Hann sigldi siðan til Danmerk- ur, var I iönskóla f Fredrikshavn og lauk þaðan námi 1918. Framhaldsnám stundaöi hann við tækniskóla i Helsingör i Dan- mörku og lauk þar prófi i skipa- verkfræði i marz 1922. Hafliði var frá upphafi einn ágætasti félagi Sveinafélags skipasmiða. A undirbúningsfundi að stofnun félags fyrir skipasmiöi sem haldinn var snemma árs 1934, var hann einn af þremur sem kosnir voru i nefnd, til þess að undirbúa félagsstofnunina og gera drög að lögum fyrir væntan- legt félag. Hann var I stjóm félagsins frá stofnun þess fram á áriö 1945, er hann baðst undan endurkosningu vegna breyttra avinnuaðstæöna. A því ári var hann kjörinn endur- skoðandi félagsins og gegndi þvi starfi i fjölda ára, en starf hans i stjórn félagsins hafði einmitt ver- ið gjaldkerastarfið. Vegna mannkosta sinna og hinnar mikluþekkingarsem hann hafði aflaö sér, valdist Hafliði tii hinnar margvislegu starfa fyrir félagið, sem of langt mál yrði hér Munið alþjóðiegt hjálparstarf Rauða.krossins. RAUÐI KROSS ÍSLANDS upp að telja. Sjálfsagt þótti að hafa Hafliða með i ráðum og þvi fremur sem viöfangsefniö var erfiðara eða flóknara og alltaf reyndist hann hinn trausti og öruggi félagi. Vandfundnir eru þeir menn sem vinna störf sin af sömu trú- mennsku, sömu einurð, sömu ósérhlifni og af sama heiðarleika og Hafliði J. Hafliðason, gerði. A félagsfundi I febrúar 1937 las formaöur bréf til félagsins frá Hafliöa J. Hafliöasyni þar sem hann skýrir frá peningagjöf til félagsins, „sem nota skyldi sem visi að sjóðsstofnun, sem geti orð- ið félagsmönnum til styrktar á einhvern hátt”. Fé þaö sem Hafliði gaf félag- inu, var greiðsia sem hann hafði fengiö fyrir teikningu af varöbát fyrir skipagerð rikisins. Þetta atvik lýsir Hafliða vel sem manni, þannig voru viðbrögð hans. Á grundvelli þessarar gjafar, var strax næsta mánuð á eftir, stofnaður Styrktarsjóður Sveina- félags skipasmiða og samþykkt reglugerð fyrir hann. Þessi s jóður hefur það hlutverk að greiða félagsmönnum styrk I slysa- og veikindatilfellum. Sveinafélag skipasmiða stendur ávallt i stórri þakkarskuld viö Hafliöa fyrir störf hans. A aöalfundi 23. febrúar 1947 var Hafliði einróma kjörinn heiöurs- félagi Sveinafélags skipasmiða, með þvi vildu félagsmenn sýna skilning sinn á störfum hans og örlitinn þakkiætisvott. Hafliði var fyrsti heiðursfélag- inn, siðar var Sigurður Þórðarson kjörinn heiðursfélagi, en þessir tveir menn voru buröarásar félagsins frá stofnun þess, og alla tið meðan þeir störfuðu. Annar er sá þáttur Hafliða sem sennilega verður seint kannaður og aldrei þakkaður að verðleikum en þaö er þáttur hans I menntun skipa- smiða hér i Reykjavik og Hafnar- firði. Frá þvi kennsla i skipateikn- ingu var hafin viö IBnskólann i Reykjavik árið 1928, hafði Hafliði þessa kennslu með höndum. Hann kenndi ekki einungis skipateikn- ingu, heldur einnig margvislega og flókna útreikninga i sambandi við smiði skipsins, stöðugleikaút- reikninga og margt fleira. Hann gerði þetta allt á svo lifandi og eölilegan hátt að þrátt fyrir, að nemendurnir hefðu þvi miður allt of litla möguleika á aö vinna við nýsmiði jafnhliða náminu I skól- anum, þá hélst þekking ótrúlega vel I hugum þeirra. Stóran þátt i þvi átti auövitað það mikla vald sem Hafliði hafði á viðfangsefninu, ogþekking hans á eðli og eiginleikum efniviöarins sem unnið var úr, trénu en það er eitt af grundvallaratriðum þess að kennsla komu að réttum not- um. Auk þess að kenna i iðnskólan- um i Reykjavik og Hafnarfirði, undirbjó hann og þjálfaði enn frekar ófáa skipasmiði, sem ann- að hvort ætluöu að taka aö sér að sjá um smiði skipa eða fara I við- bótarnám erlendis, en Hafliði hvatti menn mjög til þess að afla sér frekari menntunar. Með kennslunni ásamt félags- störfum hefur Hafliði manna mest unnið að þróun iðngreinar- innar á þessu timabili. Fyrir allt þetta þakkar Sveina- félag skipasmiða Hafliða J. Hafliðasyni og vottar konu hans og dætrum samúð sina. Helgi Arnlaugsson, formaður. Níræður í dag J ohannes Carl Klein Þeir Reykvíkingar, sem komnir eru á miöjan aldur, og hafa ekki heyrt um eða skipt við kjötbúðir J.C. Klein, munu vera- næsta fáir. 1 full 50 ár hefu? verzlunin verið rekin með reisn og myndarskap, svo athyglis- vert er. Hitt vita ef til vill ekki eins margir, aö I dag fyllir stofnandi hennar nlunda ára- tuginn eftir sextiu ára sam- fellda búsetu hér á landi. Litlum vafa er bundið, að J.C. Klein hefur verið einn af dug- mestu frumherjum i iön sinni og landsmenn hafa haft af honum mikið aö læra. Þess er bæöi ljúf t og skylt að minnast, þeg'ár þessi heiðursmaður, sem tekið hefur sérkennilegu ástfóstri viö Is- land, nær þvl aldursmarki, sem fáum einum auðnast að ná. Enginn skyldi halda að lff út- lendings, sem úr litlu haföi að spila og stofnaði sérverzlun, hafi á þeim tlmum, sem það var, verið neinn dans á rósum. En með árvekni og dugnaði og umfram allt með því að hafa þann metnað, að hafa einungis góðar vörur á þoðstólum, tókst honum að komast I tölu bjarg- álna manna og koma börnum sínum vel til manns. Johannes Carl er tvfvkæntur, Islenzkum konum, sem báðar eru látnar. En þrátt fyrir slna löngu dvöl hér hefur hann ekki breytt um rlkisfang, né heldur lært Is- lenzku til þess að tala hana. Samt skyldi enginp halda, að þaö væri fyrir neinn sérvízku- legan óvilja á Islandi, slður en svo. Hér mun hann vilja bera beinin og hvila I Islenzkri mold svo sem hans nánustu ástvinir og lífsförunautar. Sjálfur lætur hann hug sinn I ljós með þessum oröum: „Ég mun verða Dani alla mina æfi. Ég hefi heldur aldrei lært að tala Islenzku og verð aldrei Is- lenzkur rlkisborgari. En ég á heima á tslandi. Það er indælt að koma til Danmerkur I stutta skemmtiferð, en heldur ekki meira.” Johannes Carl Klein dvelur nú hjá dóttur sinni og tengdksyni aö Skólagerði 6 I Kópavogi eftir langt og gæfuríkt starf hér á landi, þar sem hann „útlending- urinn” vill eiga heima.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.