Alþýðublaðið - 20.03.1977, Qupperneq 3
ssar Sunnudagur 20. marz 1977
LISTIR/MENNING 3
ÁRBLIK I
SJÓNVARPIÐ
Loksins viröist draumur
hinna fjöldamörgu aðdáenda
hljómsveitarinnar vinsælu Ár-
blik, um aö fá þá alla leiö inn i
stofu til sin, vera aö rætast þvi
aö nú hefur sjónvarpið orðið
vart viö vinsældir þessarar sér-
stæðu hljómsveitar og var ekki
seinna vænna, þvl sögusagnir
hafa verið á kreiki um að aðdá-
endur Árbliks hyggðust stofna
til kröfugöngu ef þessi vinsæla
hljómsveit birtist ekki á skján-.
um hvað úr hverju. Sem betur
fer áttaði sjónvarpið sig i tæka
tið á vinsældum Arbliks og hafa
nú tekið þessa vinsælu hljóm-
sveit upp til útsendingar I þátt-
inn Rokkveita rikisins. Ef
SKIFAN þekkir Arblik rétt þá
verður þetta sannkallaður stuð-
þáttur.
Ekki hefur enn verið á-
kveðið hvenær þátturinn verður
sýndur en hann er I röð nokk-
urra annarra Rokkveitu rikisins
þátta sem sýndir verða nokkra
næstu miðvikudaga einhvern-
timann á milli klukkan 18 og 19.
Þeir sem verða I þessum þátt-
um fyrir utan hljómsveitina
vinsælu Árblik eru Guðmundur
Rúnar Júliusson & Co. og hljóm-
sveitirnar Cobra, Fresh, Eik,
Haukar og e.t.v. vonandi fleiri.
Jens Kristján Guömundsson
Reynir „poppari” Sigurðsson, söngvari Árbliks.
SÉ
Gamlir rokkslagarar
Tileinkað Sveiflum —
Geimsteinn
Þessi skífa er tileinkuð
ýmsum sveif lum og hlið 1
byrjar á réttlæitssveifl-
unni, erlendur rokkari
með stórgóðum texta
ólafs Hauks Símonarson-
ar „Þeir hengja smið fyr-
ir þjóf":
Allir þeir sem ekki lita undan
eflaust hafa séð hvað hér er
skeð,
þeir griða einhvern garm
og setja hann fastan,
garm sem allir vita er bara peð.
Peningarnir
hengja þig fyrir sig,
þeir hengja flón fyrr jón,
þeir hengja mann fyrir þann
sem alla klæki kann.
þeir hengja þig fyrir sig,
þeir hengja flón fyrir jón,
þeir hengja þann
sem enga klæki kann.
Réttvisinnar vél er orðin riðguð,
lög og reglur eins og vindubrú,
gúmmitékkar ganga út
eins og lummur
ganga sértu ekki bara þú.
Peningarnir o.s.frv.
„Framsókn hún er farsælasta
vörnin”
feitur aurapúki hefur sagt.
Þú finnur ekki fyrr en er um
seinan
fólið hefur snöru um háls
þér lagt.
Peningarnir o.s.frv.
Næsta sveifla er um
trúbadúra, siðan er dæmisögu-
sveifla eftir G. Rúnar Júliusson
og tekur hann nokkur dæmi um
slúður, gagnrýnendur og gróu-
sögur og segir þar ma.a:
„Tungan getur talað
sittaf hverju slúðrað
talaö illa um fólk
si og æ að lasta.
Hugsaöu um hitt
hve miklu þú getur klúðrað
ihugaðu vel ef þú ætiar orðum
að kasta.” •
Þá er næst danssveifla með
bjánalegum texta Þorsteins
Eggertssonar en hann getur þó
ennþá gert ágæta texta inn á
milli þó að þeir séu reyndar i
miklum minnihluta hjá honum
en einn af þeim er við næsta lag
sem er einmana- og saknaðar-
sveifla, lagið er eftir Rúnar.
Hlið 1 lýkur svo með gömlum
uppáhaldsrokkara Get ready
(bónus) sungnum á frummál-
inu. Hlið 2 byrjar á innhverfri I-
hugun um vináttu o.svl. siðan
kemur bulltexti eftir Þorstein
Eggertsson þar sem hann vill
betri bila, yngri konur, eldra
whisky og meiri pening. Þó að
þetta sé ekki besta hagfræði-
kenning sem fram hefur komið
þá er ég viss um að alþýðan I
Chile yrði ánægðari eftir þessu
hagkerfi Þorsteins en banda-
riska nóbelsverðlaunahafans og
fasistans Friedman.
Þá er það örstutt hugleiðing
um snertisveiflu, siðan er
ágætis lag og texti eftir Rúnar
um óþekktu og dularfullu
sveifluna (ætli Rúnar sé nlals-
sinni?). Skifan endar svo á
ástar-, hreinlyndis- og
tryggöarsveiflu. Geimsteins-
skifan er framin af G. Rúnari
Júliussyni sem syngur flest lög-
in, útsetur, raddar og leikur á
gitara, Maria Baldursdóttir
syngur 2 lög, raddar og leikur á
slagverk ásamt Keith Forsey,
Þórir Baldursson leikur á
hijómborð og sér að einhverju
leyti um útsetningar, t.d. er
„discofeelingurinn” áreiðan-
lega kominn frá honum,
Anthony Jack leikur á bassa á-
samt Don Payne, Jimmie
Young leikur á trommur og Cliff
Morris og Mats Björklund leika
á gitara. Er allur hljóðfæraleik-
ur, útsetningar og öll vinna hin
vandaðasta einnig er umslagið
skemmtilegt og vel hannaö af
Primsa sf.
Bestu lög: Þeir hengja smið
fyrir þjóf (Bobby Darin),
Heyrðu herra trúbador (Bob
Dylan).
Bestu textar: Þeir hengja
smið fyrir þjóf (Olafur Haukur
Simonarson), Ihugaðu vel ef þú
ætlar orðum að kasta (G. Rúnar
Júliusson).
Jens Kristján Guðmundsson.
ölafur Haukur Simonarson.
Rúnar Júliusson
(ERtU éfTTHVáÐ KUKKA6UR AIAR^
HVéR H£LDUR9U KAMSKi M>
5PILI 'A HéAiAlí ?•