Alþýðublaðið - 09.09.1977, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 09.09.1977, Blaðsíða 1
FOSTUDAGUR 9. SEPTEMBER tbl. 1977 — 58. árg. Ef blaðið berst ekki kvartið til Alþýðublaðsins f síma (91) 14900 AB mynd GEK HRAUNGOS HAFIÐ í MÝVATNSSVEIT Virkjuraarsvæðið við Kröflu ekki í hættu að svo stöddu. — Glóandi hraunleðjan streymir úr kílómeters langri sprungu Laust fyrir klukkan 18 i gær hófst hraungos um tvo kiló- metra fyrir noröan Leirhnjilk i Myvatnssveit, um fjóra kiló- metra noröan viö virkjunar- svæöiö viö Kröflu. Hér er um töluvert mikiö gos aö ræöa og mun alvarlegra en gosiö i nóvember 1975. Minna gos- stöövarnar um margt á gosiö I Heimaey fyrstu nóttina og vell- ur glóandi hrauneöjan úr tæp- lega kílómeters langri sprungu. Blaöamenn Alþýöublaösins flugu noröur, þegar eftir aö til- kynnt haföi veriö um gosiö og - voru þá meöfylgjandi myndir teknar. Gossprunganliggurfrá noröri til suöurs. Um þaö bil 50 metra háir hraunstrókar þeyttust i loftiö og hrauniö rann greiölega niöur slakka til norvesturs aö mestu leyti, utan hvaö smá- vægilegt rennsli var til austurs. Nýja hrauniö viröist renna viö og ofan á hrauninu sem myndaöist i gosinu 1975. jEkki yfirvofandi hætta við Kröflu Eins og ástandiö var i gær- kvöldi virtist ekki vera yfir- vofandi hætta á aö hrauniö rynni i átt aö Kröfluvirkjun, enda hefur hún ekki veriö rýmd af starfsfólki. Hins vegar er ómögulegt aö segja hvaöa stefnu málin nyröra geta tekiö, enda hafa myndast tveir geysi kröftugir hverir sunnan viö aöaleldstöövarnar, i sömu sprungu, og spúöu þeir hvitu þegar Alþýöublaösmenn komu á staöinn, en sá litur var oröinn nánast svartur þegar viö yfir- gáfum eldstöövarnar. Nýja hrauniö var i gærkvöld, laust fyrir klukkan 20, oröiö á aö gizka þrir ferkilómetrar aö flatarmáli, en ekkert lát var á straumnum úr sprungunni og þvi vist aö þaö á eftir aö stækka verulega. Skjálftar laust fyrir kl. 16 Þaö var laust fyrir klukkan 16 i gær aö fram kom á mælum nyröra smákippahryna, sem smástyrktistoguppúrkl. 17 var oröiö ljóst, aöeitthvaö alvarlegt var aö gerast. Þaö var svo laust fyrir kl. 18 aö eldgos braust út um tvo kilómetra noröur af Leirhnjúk eins og áöur sagöi. 1 viötali viö útvarpiö i gær- kvöldi sagöi Siguröur Þórarins- son jaröfræöingur, aö gos þetta væri dæmigert sprungugos, kvikugos meö auöfljótandi hrauni, og ómögulegt aö segja til um framhaldiö. Axel Björnsson jaröfræöingur sagöi viö sama tækifæri, aö ekki heföi veriö beinlinis búizt viö gosi nyröra um þetta leyti. Hins vegar heföi veriö búiö aö vara viö þvi, aö eitthvaö myndi áreiöanlega gerast i náinni framtiö. Hvort þaö væri gos eða ekki, hefði ektó veriö hægt aö segja til um, en nú heföi sem sagtkomið i ljós, aö þama heföi veriö um gos aö ræöa. _hm Sjá nánar bls. 2

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.