Alþýðublaðið - 09.09.1977, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 09.09.1977, Qupperneq 2
2 Föstudagur 9. september 1977 SKST Hitaveita Borgarfjardar mun kosta 3,1 milljarð Verói Deildartunguhver virkjaður Samkvæmt áætlun sem verkfræöiskrifstofa Sig- urðar Thoroddsen og verkfræöiskrifstofan Fjarhitun h.f. hafa gert, mun virkjun Deiidar- tunguhvers i Reykholts- dal ásamt aðveituæð í Borgarnes, Akranes og Hvanneyri og dreifikerfi um fyrrgreinda staði kosta 3,1 milljarð króna. Aætlun þessi miðast viö að framkvæmdir hefjist strax á næsta ári við aðveituæðina auk þesssem lokiðyröi 25% af vinnu við dreifikerfin. Árið eftir, eða 1979 yröi siöan lokið við aðveitu- æðina, en samkvæmt áætluninni yrði lagningu dreifikerfisins lokið árið eftir. Svo sem Alþýðublaðið hefur skýrt frá hafa staðið yfir við- ræður milli Hitaveitu Borgar- fjarðar og eigenda Deildar- tunguhvers, en samkomulag um greiðslur fyrir afnot af hvernum hefur ekki náðsl. Kyrir nokkrum mánuöum bauöst Hitaveitan til að kaupa hverinn fyrir 20 milljónir króna, en þvi tilboði var hafnað. Siðan það tilboð var lagt fram hefur aftur á móti náðst allgóð- ur árangur af borunum eftir heitu vatni i Bæjarsveit sem er um 9 km. nær Borgarnesi en Deildartunguhver. Ef i Ijós kemur, að hægt verður að fá nægjanlegt heitt vatn i Bæjar- sveit muni þaö spara verulegar upphæðir i lagningu aöveituæð- ar. Hefur t.d. verið reiknað út aö ef það nægir að bora 4 fremur grunnar holur, sem hver um sig kosti um 15 millj. króna næmi sparnaðurinn um 200 milljónum króna. Jarðfræðingar rannsaka um þessar mundir fyrirhugað bor- svæöi i Bæjarsveitinni og er von á skýrslu frá þeim um mögu- leika svæðisins siðar i haust. Fæst þá væntanlega úr þvi skor- ið hvort hér er um raunhæfan valkost að ræða. Er þá aöeins eftir að vita hvort eigendur jarðhitasvæðis- ins i Bæjarsveit, en það er einnig i einkaeign, reynast samningsliprari en sveitungar þeirra i Reykholtsdal. —GEK VÍSIR smáauglýsinqar Allir þeir sem birta smáauglýsingu i VÍSI á meóan sýningin Heimilió '77 stendur yfir, veróa sjálfkrafa þátttakendur í smáauglýsingahappdrætti VÍSIS. Vinningurinn - Philips litsjónvarpstæki - veróur dreginnút 15-9 -77 Smáauglýsing i VÍSI er engin sma sími 86611 auglýsing Skjálftavirkni færist sudur á bóginn: Kísiliðjan rýmd seint í gærkvöldi — Sem stendur teljum við ekki að íbúar á Kröflusvæðinu séu i neinni hættu, en hins vegar höfum við rétt i þessu látið stöðva allar vélar Kisiliðj- unnar og flutt mann- skapinn á brott — sagði Guðjón Petersen hjá Almannavörnum rikisins i samtali við Alþýðublaðið um klukkan 10:30 i gær- kvöldi. Skömmu áður hafði orðið vart auk- innar skjálftatiðni i Bjarnarflagi og var því gripið til þess ráðs að flytja starfsfólkið á brott. Sagði Guðjón að umhverfi Kröfluvirkjunar virtist standa betur af sér gagnvart þeim jarðhræringum sem nú eiga sér staö en Kísiliöjan. Ekki var i gærkvöldi búiö að takmarka umferð feröamanna um gossvæðið, en til stóö að tak- marka umferðum Bjarnarflag. Þannig voru settir vaktmenn sitthvorum megin við Bjarnar- flag seint i gærkvöldi og áttu þeir aö hamla gegn umferð austur yfir flagið, en þeir sem komnir voru austur yfir fengu þó að fara aftur vestur yfir i gærkvöldi undir eftirliti. Ekki hafði orðið vart við gliðnun i sprungum á svæðinu og ekki var vitað til þessaö þrær Kisiliðjunnar hefðu brostið. —GEK

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.