Alþýðublaðið - 09.09.1977, Side 3
mBm' Föstudagur 9. september 1977
3
Listasýning í Nor-
ræna húsinu
Margrét Eliasdóttir opnar list-
sýningu i Norræna hiisinu
laugard. 10. september kl. 14:00.
Þetta er fyrsta einkasýning
Margrétar Eliasdóttur en hún
átti eitt verk á Listsýningu
islenzkra kvenna i Norræna
V___n
húsinu 1975, og i fyrra sýndi hún
leirmuni i Galleri Sólon
Islandus. Margrét stundaöi list-
nám i Holbæk i Danmörku 1965-
66, Myndlista- og handiöaskóia
Islands 1966-71 og konstfack-
skólanum i Stokkhólmi 1972-74.
Margrét er búsett i' Stokkhólmi.
Grettissaga
gefin ut í
Síberíu
Síberiudeild bókafor-
lagsins „Naúka” (Vis-
indi) hefur nú gefið út
eina af íslendingasög-
unum, „Grettissögu”.
Bókin er gefin út i
100.000 eintökum sem
hluti af bókaflokknum
„Minnisvarðar bók-
menntanna”. Olga
Smirnitskaja og Mikael
Steblin-Kamenski sáu
um útgáfunna, en þau
eru bæði þekktir nor-
rænufræðingar i Sovét-
rikjunum. Smirnitsk-
aja þýddi söguna en
Steblin-Kamenski rit-
aði formála og skýring-
ar.
Þetta er i fyrsta sinn sem
Grettissaga kemur út á rúss-
nesku. Aöur haföi hennar veriö
getið i skrifum um íslendinga-
sögur, einsog t.d. i bókinni ,,ls-
lendingasögur” sem Steblin-
Kamenski ritstýrði áriö 1956. 1
þeirri bók voru þýöingar á
nokkrum sögum : Gunnlaugs
sögu Ormstungu, Egilssögu,
Njálu og Laxdæiu. I bókinni
„Heimur sögunnar” sem út
kom i Leningrad 1971 var
birtur listi yfir Islendinga-
sögur. Ennfremur má
nefna bókina „Islenzkar
sögur og irskar hetju-
sagnir” sem gefin var ut i
Moskvu áriö 1973, Þar voru
einnig nokkrar sögur, þ.á.m.
Njála og Gunnlaugs saga sem
áöur voru nefndar, og einnig
Gisla saga Súrssonar, Eiriks
saga rauöa, Harðar saga,
Hrafnkelssaga og Grænlend-
ingasaga.
1 formála sinum ritar Steblin-
Kamenski:
„Hvernig þekktu menn á 13.
öld, þegar sögumar eru skrifaö-
ar, þá atburði sem gerzt höföu á
10. og 11. öld og sagt er frá i sög-
unum? Þetta er spurning sem
visindamenn hafa lengi velt fyr-
ir sér. 1 raun og veru hefur ekki
fengizt svar við henni ennþá.
Augljóst er þó, að atburöir 10. og
11. aldar hafa lifaö i munnlegum
Framhald á bls. 10
Vidskipti rædd
við Pólverja
Dagana 6.-8. septem-
ber s.l. fóru fram i
Reykjavik viðræður
um viðskipti íslands og
Póllands. Um viðskipti
landanna gildir við-
skiptasamningur, sem
nær til timabilsins 1975-
1980.
1 sameiginlegri fundargerð,
sem undirrituö var 8. september
s.l. af Þórhalli Asgeirssyni
ráöuneytisstjóra, formanni
islenzku nefndarinnar, og
Zbigniew Krzyoztofowics skrif-
stofustjóra, formanni pólsku
nefndarinnar, er bent á aö
þróun viöskipta milli landanna
hafi að undanförnu verið hag-
stæö og viðskiptahorfur væru
góöar. Nefndimar voru sam-
mála um aö auka fjölbreytni i
viðskiptum landanna, og i þvi
sambandi lagði islenzka nefndin
sérstaka áherzlu á aukna sölu á
lagmeti, uliarvörum og kisilgúr
auk venjulegra útflutnings-
vara.
Heimiliswin
í3Slit
sjómarps
tækjum
Heimiliö'77 ersjninganiðburöur ársins
HEIHILIÐ77 $
útdregnir vinningar:
26/8 1693, sóttur
27/8 3511 sóttur
28/8 5066
29/8 14760 3/9 32558
30/8 17552, sóttur 4/9 43661
31/8 22826 5/9 45983
1/9 27501 6/9 50644
2/9 29814, sóttur 7/9 54074
Vinningar í gestahappdrætti:
17 Sharp litsjónvarpstæki frá Karna-
bæ og fjölskylduferð til Flórida á
vegum Útsýnar.
Dregið daglega.
Froskurinn Kermit, Svínka, björninn
Fossi og hinir prúðuleikararnir eru
orðnir heimilisvinir á þúsundum ís-
lenskra heimila. Þeir eru Ifka á
stærsta heimili landsins Heimilinu
'77 í Laugardalshöll.
I kvöld gefst tækifæri til þess aö sjá
þá i litum í 35 litstjónvarpstækjum
víðsvegar á sýningunni.
Um leið er tilvalið aö gera saman-
burð á verði og gæðum sjónvarps-
tækja.
|
Heimsækið sýninguna i kvöld, horfið
á prúðuleikarana.