Alþýðublaðið - 09.09.1977, Qupperneq 12
alþýðu-
blaóiö
tJtgefandi Alþýðuflokkurinn
Kitstjórn Alþýðublaösins er aö Sfðumúla 11, slmi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að
Hverfisgötu 10, simi 14906 — Askriftarsimi 14900.
FÖSTUDAGUR
9. SEPTEMBER 1977
_______ J
Lyfjanotkun íþróttamanna:
Er hún þess virdi?
Hér á landi eru til
iþróttamenn, sem taka
lyf sem getur haft sjúk-
leg áhrif á beingerð og
verkað rýrnandi á eista-
vef, svo eitthvaö sé nef nt.
Þetta kemur fram í at-
hyglisverðri grein eftir
Ásmund Brekkan, yfir-
lækni Röntgendeildar
Borgarspítalans, sem
birtist í Morgunblaðinu i
gær.
t greininni segist hann nýlega
hafa haft til rannsóknar ungan
mann, sem stendur framarlega
f einni þeirra iþróttagreina sem
útheimta mikla likamsburöi.
Röntgenmyndir gáfu til kynna
að verið gæti um alvarlega
truflun á stýringu beinmyndun-
ar i likamanum aö ræöa. Þessi
ungi iþróttamaður hefur tekið
inn lyf, sem á að örva vöðva-
uppbyggingu likamans, lyf sem
nefnist anabol steroida, en lyfið
er að sögn Asmundar mjög
sterkt og afbrigðilegt hormóna-
lyf.
Asmundur bendir á nokkrar
staöreyndir i sambandi viö hor-
mónalyf af þessari gerð, segir
m.a. að slik hormónalyf séu ein-
göngu ætluð til meðferöar á
rýrnunar- og hrörnunarsjúk-
dómum og I einstökum tilfellum
sem viðbótarmeðferð við
krabbameinssjúkdóma.
Séu lyf þessi gefin fullfrlsku
fólki i stórum skömmtum, valda
þau talsveröum ofvexti i vööv-
um, en viðhald þessa ofvaxtar
erlikamanum ákaflega erfitt og
nánast ofviöa, öðruvisi en gengið
sé á aöra varasjóði, sem getur
valdiö t.d. sjúklegum áhrifum á
beinagerð, eins og fyrr var get-
iö.
Hinir nýbyggðu vöðvar hverfa
fljótlega, ef einstaklingur hættir
aö nota lyfin og i staö vööva-
frumanna kemur fitufruma og
vöðvarnir geta þannig á
skömmum tima breytzt i óhollt
og sjúklegt fituhvap.
Jafnframt geta lyf þessi verk-
að rýrnandi á eistavef.
Iþróttamenn?
Hér að framan voru aðeins
dregin út fáein atriði úr grein
Asmundar. Ljóst er þó hvað lyf
sem þessi geta veriö hættuleg,
sé þeirra neytt i óhófi.
Stera-lyf, eins og talað var um
hér að framan eru bannvörur á
öllum stórum mótum erlendis
en þó er það talið fullvist, aö
fjöldamargir af frægustu lyft-
ingarmönnum og þátttakend-
um i kastgreinum og öörum
kraftiþróttum neyti þessara
lyfja ótæpilega. Samkeppnin er
mikil i iþróttunum en framför-
um mannslikamans eru tak-
mörk sett. Þegar menn hætta að
bæta metin, þá verður að gripa
til einhverra aögeröa. Stangar-
stökksmenn fóru að nota nýjar
og betri stangir, sundmenn
setja öldukljúfa á laugarbakka
sina og salt i vatniö, allt til að
bæta árangurinn. Kraftiþrótta-
menn hafa margir hverjir grip-
ið til lyfja notkunar til að bæta
sinn árangur.
Er þetta rétt stefna? Er frá-
bær árangur svo mikils virði, að
hægt sé aö leggja allt i sölurnar
fyrir hann?
Iþróttafólk, sem er aö leggja
út á þá vafasömu braut aö bæta
árangur sinn meö hormónalyfj-
um gerir sér ef til vill ekki
glögga grein fyrir þeim hættum,
sem þessari lyfjanotkun fylgir.
Það ætti aö hugsa sig tvisvar
um, verðið fyrir nokkra senti-
metra eða nokkur kiló gæti orðið
eyðilegging bæði likama og sál-
ar er fram i sækir.
Þá er oröiö litið eftir af
gamla, góöa markmiöinu meö
stundun iþrótta:
„Heilbrigð sál i hraustum lik-
ama”. —ATA
Fimm gefa kost á sér í Reykjavík
Framboösf restur til
prjófkjörs Alþýðuflokks-
ins við næstu borgar-
stjórnarkosningar á vori
komanda rann út á mið-
V
nætti 7. þessa mánaðar.
Fimm framboð komu
fram, þar af þrjú í 1. sæti
á væntanlegum lista og
tvö í annað sæti.
Þeir sem gefa kost á sér eru
þessir:
Björgvin Guömundsson,
skrifstofustjón i 1. sæti, dr.
Bragi Jósepsson, uppeldisfræö-
ingur i 1. sæti, Eyjólfur Sigúrðs-
son, prentari, i 1. sæti, Elias
Kristjánsson, mælingamaður i
2. sæti og Sjöfn Sigurbjörnsdótt-
ir, kennari i 2. sæti.
Prjófkjörið fer fram dagana
1. og 2. október næstkomandi, og
geta allir tekiö þátt i þvi, sem
ekki eru flokksbundnir i öörum
flokkum en Alþýöuflokknum og
hafa náð 18 ara aldri.
GUÐMUNDUR
GEFUR KOST
ÁSÉR í
FYRSTA SÆTI
f prófkjöri á Vesturlandi
é
Alþýðublaðið hefur
fregnað, að Guðmund-
ur Vésteinsson bæjar-
fulltrúi á Akranesi hafi
ákveðið að gefa kost á
sér við prófkjör um
frambjóðendur Al-
þýðuflokksins á Vest-
urlandi við næstu
alþingiskosningar.
Kjördæmisráö flokksins á
Vesturlandi kemur saman til
fundar 1. október næstkomandi
til að fjalla um prófkjörsmálin
og fleira, og verður þá væntan-
lega tekin frekari ákvörðum um
prófkjör. Framboðsfrestur og
önnur tilhögun hefur ekki verið
ákveðin enn. Hins vegar er ljóst
að undirbúningur allur getur
tekið á annan mánuð, þannig að
ljóst má vera að prófkjör fer
varla fram fyrr en undir lok
nóvembermánaðar.
Benedikt Gröndal, formaður
Aiþýðuflokksins, sem verið
hefur i efsta sæti á Vesturlandi
og þingmaður kjördæmisins,
hefur ákveðiö að gefa kost á sér
I fyrsta sæti á lista Alþýðu-
flokksins I Reykjavík við
prófkjör þar.
—hm
Lengsta málverk á
íslandi
Listmálarinn L.
Alcopley var við vinnu
sina í kjallara Kjarvals-
staða þegar blaðamenn
AB litu þar inn í gær.
„Það sem er sérstakt við
þetta málverk," sagði
Aðalsteinn Ingólfsson
framkvæmdastjóri List-
ráðs, er að þetta mun
vera lengsta málverk,
sem málað hefur verið á
islandi, alls 25 metrar á
lengd."
Alcopley sagði, að í
þessari mynd vildi hann
túlka hreyfingu. Myndin
er máluð á hvitan striga,
og liturinn er aðeins einn
— svart, ef lit má kalla.
Listamaðurinn vildi þó
taka fram, að myndin
væri alls ekki f ullbúin, og
til þessa hefðu engir
ruðst inn í kjallara til að
lita á sköpunina utan
blaðamenn AB.